Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 32
•v32 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
_________AÐSENPAR GREiMAR
Mengun á varnar-
svæðum í Keflavík
HINN 16. maí var
skýrt frá því í staðar-
blaði í Reykjanesbæ og
einnig á annarri sjón-
varpsstöðinni að haldið
væri að sjúkdóm í
fóstrum sem ylli fóst-
urláti í Reykjanesbæ
og nágrenni mætti
rekja til mengunar á
svokölluðu Nikkel-
svæði. Þetta kom mér
alls ekki á óvart. Hér
er um meira en Nikkel-
svæðið að ræða þó svo
að gífurlegt magn af
olíu og ýmsu eldsneyti
hafi farið þar niður í
jarðveginn á vegum
hersins allt frá 1946 þegar þessi
stöð var reist, jafnvel frá stríðsárun-
um. A svokölluðu Turner-svæði,
sem liggur þar fyrir ofan, þar sem
var braggaþyrping, voru öskuhaug-
ar á vegum varnarliðsins og enn
sjást glögg merki um þá, þó svo
að þeir hafi verið jafnaðir við jörðu.
Á þá hauga var kastað öllum hugs-
*■ anlegum hlutum sem varnarliðið
var hætt að nota og liggja þeir að
núverandi flugstöðvarvegi, á vinstri
hönd þegar ekið er til flugstöðvar-
innar. Vegurinn klýfur svæðið þar
sem Turner-kampurinn var á hæð-
inni fyrir ofan Nikkel-svæðið. Þarna
hefur ugglaust verið hent banvæn-
um spilliefnum og er deginum ljós-
ara, eins og ég hef áður minnst á,
að þar þyrftu að fara fram rann-
sóknir. í viðtali sagði ljósmóðir í
Reykjanesbæ „ef“, en ég held það
* sé meira en „ef“, heldur 99% líkur
á að þetta sé varnarliðinu að kenna.
í þessu samhengi vil ég vitna enn .
einu sinni til stöðvar sem Banda-
ríkjaflotinn rak (en hann rekur
einnig stöðina í Keflavík) við Clyde-
fjörðinn í Skotlandi, nánar til tekið
í Dunoon við Holy Loch. Dunoon
er af svipaðri stærð og Reykjanes-
bær, og eru staðhættir þar að
mörgu leyti eins og í Reykjanesbæ.
Flotastöðin þar var endanlega lögð
niður árið 1992 og flutt burt. Þegar
ég var staddur í Skot-
landi í byijun mars í
ár rölti ég um bæinn
og kynnti mér aðstæð-
ur. Þar er ekkert sem
minnir á veru Banda-
ríkjamanna lengur.
Hús sem þeir skildu
eftir hafa annaðhvort
verið endurbyggð eða
einfaldlega rifín. Bær-
inn er ósköp venjulegur
skoskur bær. En það
sem veldur íbúum hans
gífurlegum áhyggjum
er að nú hefur komið
í ljós að á fjarðarbotni
er geysileg mengun.
Bandaríkjamenn voru
þar úti á firðinum, sem er frekar
þröngur, með þurrkví og herskip
þar við, og þar fóru fram viðgerðir
á kafbátum, áhafnaskipti og ýmis-
legt fleira. Sagt er að mengun af
völdum PCB í setlögunum á botni
Holy Loch sé sú mesta sem finnst
við strendur Evrópulanda, og ýmsu
öðru var hent þar í ómerktum tunn-
um. Vitað er að Bandaríkjamenn
losuðu þar mikið kælivatn úr kaf-
bátum, en um 20 kafbátar höfðu
þar móðurstöð. Eitt skipti þegar ég
var staddur þar sá ég fimm kafbáta
inni á læginu.
Þegar Bandaríkjamenn fóru þá
tók breska ríkið við stöðinni og af-
henti Clyde Ports. Kostnaður við
hreinsun, sem er geysilegur, mun
bitna á breska ríkinu. Kannanir
hafa verið gerðar og fundir haldnir
með heimamönnum, og það er eng-
in spurning: þetta verður hreinsað.
í blaðinu US News and World Re-
port frá 30. nóvember 1992 er haft
eftir James Bush, sem þjónaði sem
foringi á þrem kjarnorkuknúnum
kafbátum, að um 10 ára skeið hafi
bandarískir Pólaris-kafbátar losað
geislavirkt kælivatn við móðurstöð-
ina í Holy Loch og þar í kring.
Þetta hefur skapað geislvirkni.
Bandaríkjamenn komu þar 1961 og
munu hafa hætt þessu um 1972.
Bush segir að þetta hafi ekki verið
Utanríkis-, umhverfis-
og heilbrígðisyfirvöld
eiga, að mati Skarp-
héðins H. Einarsson-
ar, að heija nú þegar
hreinsunarstörf á
menguðum varnarliðs-
svæðum.
leyft í bandarískum höfnum, aðeins
erlendis. Bandaríski flotinn yfirgaf
Holy Loch í júní 1992. í þessari
grein kemur fram að tíðni krabba-
meins á þessu svæði er sú hæsta í
Bretlandi og tíðni fósturláts í bæj-
um í nágrenninu er einnig með því
hæsta, og veldur þessu kjarnorku-
mengunin. í Keflavík er talið að
mengun af völdum Bandaríkjahers,
hvort sem hún er af olíusvæðinu
eða af gömlum sorphaugum, sé
orsök þess að tíðni fósturláts sé
mikil.
í fyrrnefndri grein kemur fram
að hvar sem Bandaríkjaherinn hef-
ur verið í heiminum hefur hann
skilið eftir mengun. Hún virðist
hvergi vera meiri eða ógnvæniegri
en í Þýskalandi þar sem var hálf
milljón bandarískra hermanna þeg-
ar mest var.
Hvað varðar Holy Loch, þá ætla
Bretar að hefjast handa við hreins-
un í haust. íbúar Dunoon og nær-
liggjandi bæja hafa sett sig upp á
móti þeirri hreinsun. Þeir telja að
mengunin sem er í dag eigi eftir
að margfaldast þegar farið verður
að hræra í þessu og að enginn viti
með vissu hve mikil mengun er
þarna niðri í firðinum. Þeim hefur
tekist að byggja þetta upp sem
ferðamannabæ; staðurinn er gífur-
lega fallegur og nátturufegurðin
mikil. Einnig hefur fiskur verið
þar, en þeir halda að hann muni
hverfa algjörlega og að erfitt yrði
Skarphéðinn H.
Einarsson
Aukinn sparnaður fyrir
atvinnulíf og almenning
FYRIR skömmu
sendi Vinnuveitenda-
samband íslands frá
sér greinargerð um
þróun efnahagsmála
og afkomuhorfur í at-
vinnurekstri. Þar er að
finna ýmis varnarorð
sem mikilvægt er að
huga að. Einna mikil-
vægast í þessu sam-
bandi er að auka
sparnað þjóðarinnar en
hann er mun minni en
hjá öðrum þjóðum.
Lítill sparnaður en
miklar skuldir
Ef litið er til sam-
keppnisþjóða íslendinga innan
OECD kemur í ljós að sparnaður
sem hlutfall af landsframleiðslu er
lítill eða um 15% á meðan sparnað-
urinn er að jafnaði hátt í 20% innan
OECD. Einstök lönd leggja enn
meira til sparnaðar og bæði Japan-
ir og Svisslendingar spara tvöfalt á
-*• við okkur.
Ekki er nóg með að sparnaður
sé lítill, heldur er skuldabyrði ís-
lenskra heimila mikil. Þannig uxu
skuldir heimilanna úr 20% af tekj-
um í byrjun níunda áratugarins í
um 120% á árinu 1995. Full ástæða
er til þess að hafa áhyggjur af þessu
því auknar skuldir draga úr mögu-
leikum manna til eignamyndunar
og geta jafnframt leitt
til krafna um aukin
opinber framlög í
framtíðinni.
Orsök lítils
sparnaðar
Ýmsar skýringar má
finna á lágu sparnaðar-
hlutfalli hérlendis og
mikilli skuldasöfnun.
Þannig má benda á að
lengi vel brann sparifé
upp í verðbólgubáli,
sparnaðarmöguleikar
voru fáir og samkeppni
á íjárrnagnsmarkaði
takmörkuð. Jafnframt
hefur stór hluti af
sparnaði margra launamanna (fyrir
utan íbúðarhúsnæði) verið þvingað-
ur sparnaður í lífeyrissjóðum sem
þeir hafa ekkert haft um að segja.
Af þessum sökum hafa margir ekki
vanist því að hugsa um sparnað.
Mikilvægi sparnaðar
Með auknum sparnaði undirbúa
fólk og fyrirtæki sig undir nýjar
fjárfestingar eða eignast varasjóð
til að nota ef áföll dynja yfir. Auk-
inn sparnaður leiðir til aukins fram-
boðs lánsfjár, sem almennt ætti að
leiða til lægri vaxta. Slíkt hefur
jákvæð áhrif á fjárfestingu en dreg-
ur um leið úr nauðsyn erlendrar
fjármögnunar, en almennt örvar
Stjórnmálamenn geta
hjálpað til við að auka
sparnað með því, segir
Kolbeinn Kristinsson,
að styrkja sparnaðar-
hvötina, þ.e. efla ftjáls-
an sparnað,
fjárfesting hagvöxt og eykur tekju-
möguleika þjóðarinnar í framtíð-
inni. Aukinn sparnaður dregur einn-
ig úr neyslu en slíkt er forsenda
þess að halda megi verðbólgu í
skefjum, en það er eitt brýnasta
verkefni í hagstjórn á næstunni.
Þannig þarf ekki að fara mörgum
orðum um það að aukinn sparnaður
er þjóðhagslega hagkvæmur og
mikilvægt tæki við að halda stöðug-
leika í efnahagsmálum.
Hvernig má auka sparnað?
Stjórnmálamenn geta hjálpað til
við að auka sparnað með því að
styrkja sparnaðarhvötina, þ.e. efla
fijálsan sparnað. Þetta geta þeir
gert bæði með því að veita sérstak-
ar ívilnanir vegna sparnaðar, af-
nema hömlur á sparnað, bjóða upp
á áhugaverða fjárfestingarkosti og
gæta þess að setja ekki löggjöf sem
hefur öfug áhrif.
Kolbeinn
Kristinsson.
að koma honum upp aftur: sjórinn
yrði einfaldlega svo spilltur að varla
yrði hægt að dýfá hendi í. Ennþá
meiri sjúkdómar og plágur myndu
fylgja í kjölfarið.
Það er kominn tími til að íslend-
ingar fari að athuga sín mál. Við
erum með umhverfísmálaráðherra,
utanríkisráðherra, heilbrigðisfull-
trúa á Suðurnesjum, en þessir menn
halda að allt sé í lagi og fljóta ein-
faldlega sofandi að feigðarósi hér
á íslandi. Það er skoðun mín, og
ég veit það með vissu að komandi
kynslóðir verða að gjalda fyrir
þetta. Nú þegar þarf að hefjast
handa við að grafa upp gamla ösku-
hauga og fjarlægja það drasl sem
þar er. Þeir hafa verið á mörgum
stöðum á Vellinum: á Turner-
svæði, á Patterson-flugvelli fyrir
ofan Hagkaup voru öskuhaugar á
sínum tíma, við Hafnarveg og á
fleiri stöðum. Og enn eru Banda-
ríkjamenn að grafa drasl við Staf-
nes í landi Miðneshrepps. Þetta
þarf að hreinsa. Aðalverktakar eru
á Keflavíkurflugvelli með sínar
vinnuvélar og munu brátt hverfa
þaðan, en ég tel að Bandaríkjamenn
og utanríkisráðherra og varnar-
málaskrifstofan og allt þetta batt-
erí, sem hernum fylgir, ættu að fá
Aðalverktaka til að gera þriggja
ára áætlun um að hreinsa upp þessa
hluti, því að það er líklegt að á
næstu árum muni mengun við
Reykjanesbæ og í nágrannabyggð-
arlögunum margfaldast. Heyrst
hefur að tíðni krabbameins sé
óvenjuhá í byggðarlögum við her-
stöðina miðað við landið í heild. Það
er deginum ljósara að gífurleg
mengun er á varnarsvæðinu, og
íslendingum ber skylda til að fara
strax af stað með áætlun um viðeig-
andi ráðstafanir og hreinsa þetta
upp. Reykjanesbær getur ekki tekið
við Nikkel-svæði fyrr en hreinsun
hefur farið fram eða athugun hefur
sýnt hvort það er heilsuspillandi
svæði eður ei. Það þýðir ekkert að
koma nálægt þessu svæði eða sam-
þykkja móttöku á því fyrr en það
liggur fyrir. Eg er viss um að það
sem ég hef hér sett á blað á við
rök að styðjast - því miður.
Í þessu hef ég stuðst við Dunoon
Observer og frétt sem sýnd var í
skoska sjónvarpinu í febrúar.
Höfundur býr & Vatnsleysuströnd.
Þannig gætu stjórnmálamenn
stigið stórt skref með því að koma
á valfrelsi í lífeyrissparnaði, þannig
að almenningur gæti ráðið því hvar
slíkum sparnaði væri best fyrir
komið. Slíkt myndi auka samkeppni
á markaðnum, fjölga mögulegum
sparnaðarleiðum og auka heildar-
sparnaðinn. Viðhalda ætti skattaaf-
slætti vegna hlutabréfakaupa (í
stað þess að afnema hann) en sá
afsláttur hefur leitt til þess að stór
hluti þjóðarinnar hefur fjárfest í
íslensku atvinnulífi. Veita mætti
ívilnun vegna langtímasparnaðar,
t.a.m. frádrátt frá sköttum ef
sparnaður væri bundinn til ákveðins
tíma og einnig (eða jafnvel) mögu-
leika á skattfrestun á fjármagns-
tekjuskatti við breytingar á sparn-
aðarformi.
Setja þarf aukinn kraft í einka-
væðingu opinberra fyrirtækja og
gefa almenningi kost á að kaupa
hluti á sem hagstæðustum kjörum.
Gæta þarf þess að löggjöf sé vin-
samleg sparnaði, t.a.m. að fjár-
magnstekjuskattur verði ekki
hækkaður.
Verkefni næstu mánaða
Á næstu mánuðum er mikilvægt
að stjórnvöld sýni aðhald og gæti
þess að þensla aukist ekki hér á
landi. Þar skiptir miklu að opinber-
um útgjöldum verði haldið í skefjum
og ríkissjóður verði rekinn með
myndarlegum afgangi. Hitt er ekki
síður mikilvægt, að skapaður verði
hvati til þess að auka sparnað, en
aukinn sparnaður eflir hag og fjölg-
ar tækifærum hjá bæði fólki og
fyrirtækjum.
Höfundur er fornmdur
Verslunnrráðs Islands.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
IUjJna rsson
Islandsmót
ítvímenningi 1997
Mótið verður spilað í tveimur
hlutum, opin undankeppni 11. og
12. okt. og síðan úrslit 1. og,2.
nóv. Úr undankeppninni komast
a.m.k. 32 pör í úrslit og síðan eiga
svæðameistarar hvers svæðis rétt
til að fara beint í úrslitin. Nýti þeir
ekki rétt sinn fjölgar þeim sem
komast úr undanúrslitum.
Mót á næstunni
Opna Hornafjarðarmótið 26. og
27. sept. Árlegt haustmót með góðri
þátttöku undanfarin ár.
Minningarmót um Einar Þor-
finnsson, Selfossi, 18. okt. nk. Tak-
mörkuð þátttaka.
Tekið er við skráningu á skrif-
stofu BSÍ, s. 587-9360.
Útboð á veitingasölu í húsnæði
BSÍ veturinn 1997-8
Stjórn BSÍ hefur ákveðið að bjóða
út rekstur á veitingasölu Bridssam-
bandsins næsta vetur. Áskilinn er
réttur til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
Skilafrestur er til 9. sept. Útboðs-
gögn og nánari upplýsingar á skrif-
stofunni, s. 587 9360.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Fimmtudaginn 21. ágúst sl. spil-
uðu 23 pör Mitchell tvímenning.
N/S
Baldur Halldórsson - Baldur Ásgeirsson 271
Lárus Hermannsson - Eysteinn Einarsson 255
Lárus Arnlaugsson - Hannes Ingibergsson 250
A/V
Viggó Norquist - Oddur Halldórsson 251
Ragnar Halldórsson - Hjálmar Gíslason 242
Eggert Einarsson - Kristinn Magnússon 242
Mánudaginn 25. ágúst spiluðu
19 pör:
N/S
Rafn Kristjánsson - Auðunn Guömundsson 257
Ingunn K. Bernburg - Vigdís Guðjónsdóttir 246
Böðvar Guðmundsson - Sæmundur Björnsson 236
A/V
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 242
Sigurleifur Guðjónsson - Oliver Kristófersson 234
Ragnar Halldórsson - Hjálmar Gíslason 220
Fimmtudaginn 28. ágúst spil-
uðu 18 pör.
N/S
EysteinnEinarsson-LárusHermannsson 303
ÞórarinnAmason-BergurÞorvaldsson 260
Rafn Kristjánsson - Auðunn Guðmundsson 230
A/V
Eyjólfur Halldórsson - Þórólfur Meyvantsson 254
Oddur Halldórsson - Viggó Norquist 252
Sæmundur Bjömsson - Jón Andrésson 230
Meðalskoralladaganavar 216
Bridsmót í Hall-
ormsstað 6. sept.
NÆSTKOMANDI laugardag, 6.
septémber, verður haldið silfur-
stigamót í nýju hóteli, Fosshóteli, í
Hallormsstað.
Mjög góð aðstaða er til spila-
mennsku í íþróttahúsi sem er við
hlið hótelsins. Til stendur að gera
þetta mót að árlegum viðburði en
þátttakan nú verður bundin við 32
pör.
Skráning er hjá Bjarna, í síma
471-2070 eða Pálma, í síma
471-1421. Þátttökugjald er 3.000
krónur og er innifalið hlaðborð.
Frá Bridsdeild
Sjálfsbjargar
EINS og undanfarna vetur verð-
ur spilað á mánudagskvöldum kl.
19 í félagsheimilinu Hátúni 12.
Byijað verður mánudaginn 8. sept.
nk. með eins kvölds Mitchell-tví-
menning, verðlaun fyrir efsta sæti
í báðum riðlum verða leikhúsmiðar.
Frekari upplýsingar gefa Páll sími
551-3599 og Karl sími 562-9103.
Bridsfélag Kópavogs
VETRARSTARFSEMIN hefst á
morgun með eins kvölds tvímenn-
ingi. Spilað er í Þinghól, Hamra-
borg 11, þriðju hæð. Spilamennska
hefst kl. 19.45. Keppnisstjóri Her-
mann Lárusson.