Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 34

Morgunblaðið - 03.09.1997, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KARÍTAS . GUÐMUNDSDÓTTIR 4- Karítas Guð- ■ mundsdóttir fæddist í Reykjavík 19. desember 1917. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 26. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Guð- jónsson, kaupmað- ur í Reykjavík, f. 19. júní 1894, d. 3. september 1961, og Anna María Gísla- dóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 18. mars 1893, d. 10. apríl 1981. Systkini Karitasar eru Guðjón Aðalsteinn, f. 6. janúar 1921, Borghildur, f. 8. febrúar 1925, Kristín, f. 18. febrúar 1930, og Hildigunnur, f. 18. janúar 1936, d. 26. júní 1936. Karítas giftist 25. október 1941 Sigurði E. Ingimundar- syni, fyrrv. alþingismanni og forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins, f. 10. júlí 1913, d. 12. október 1978. Foreldrar Sig- urðar voru Ingi- inundur Einarsson verkamaður og Jó- hanna Egilsdóttir, fyrrv. formaður Verkakvennafé- lagsins Framsókn- ar. Börn Sigurðar og Karítasar eru Anna María, hús- móðir, f. 4. október 1942, gift Bern- hard Petersen, framkvæmda- stjóra, og eiga þau þrjú börn. Jó- hanna, alþingis- maður, f. 4. október 1942 og á hún tvö börn og eitt barna- barn. Hildigunnur, flugfreyja, f. 19. maí 1950, maki Lárus Ogmundsson, lögfræðingur, og eiga þau þrjú börn. Gunnar Egill, hagfræðingur, f. 19. maí 1950, kvæntur Guðfinnu The- odórsdóttur, sölustjóra, og eiga þau tvö börn. Karítas verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15.00. Ertu horfin? Ertu dáin? Er nú lokuð glaða bráin? Angurs horfi ég út í bláinn, autt er rúm og stofan þín, elskulega mamma min. Gesturinn með grimma ljáinn glöggt hefir unnið verkin sín. Ég hef þinni leiðsögn lotið, líka þinnar ástar notið, fínn hve allt er beiskt og brotið burt er víkur aðstoð þín, — elsku góða mamma mín. * Allt sem gott ég hefi hiotið hefír eflst við ráðin þín. Fiýg ég heim úr fjarlægðinni, fylgi þér í hinsta sinni krýp með þökk að kistu þinni, kyssi í anda sporin þín, elsku góða mamma mín. Okkur seinna í eilífðinni eilíft ljós frá guði skín. (Árni Helgason.) Guð geymi þig alla tíð, elsku mamma mín. Þín, Hildigunnur. í dag er til moldar borin mæt sómakona, Karítas Guðmundsdótt- ir, en hún andaðist á hjúkrunar- heimilinu Eir 26. ágúst síðastliðinn á áttugasta aldursári. Ég kynntist Karítas er ég hóf að gera hosur mínar grænar fyrir dóttur hennar, Hildigunni, fyrir rúmum aldarfjórðungi. Vandi ég þá mjög komur mínar á æskuheim- ili Hildigunnar að Lynghaga 12. Karítas og eiginmaður hennar Sig- urður Egill Ingimundarson, for- stjóri og fv. alþingismaður, sem lést árið 1978 langt fyrir aldur fram, höfðu byggt húsið á Lyng- haga 10—12 um miðja sjötta ára- tuginn ásamt foreldrum og systkin- um Sigurðar og mökum þeirra. Segja má að þar hafi risið mikil kratahöll, en Sigurður, Jóhanna móðir hans og bræður voru alla tíð virkir þátttakendur í starfi Alþýðu- flokksins. Inn á heimili Karítasar og Sig- urðar var gott að koma. Bæði var viðmót þessara heiðurshjóna ákaf- lega hlýtt og andrúmsloftið á hinu snyrtilega og fallega heimili þeirra notalegt. Karítas var fyrirmyndar húsmóðir. Heimilishaldið hlýtur á köflum að hafa verið nokkuð eril- samt því þau hjónin eignuðust tvenna tvíbura, fyrst Önnu Maríu og Jóhönnu og síðan Gunnar Egil og Hildigunni. í augum þess sem einungis hefur glímt við að koma einburum á legg krefst slíkt a.m.k. atorku, skipulagshæfileika og nokkurs æðruleysis. Þessir eigin- leikar einkenndu tengdamóður mína. Þetta erfiða hlutverk sitt leysti hún auðveldlega og að því er virðist áreynslulaust af hendi. Ekki verður komist hjá því að minn- ast Lilju heitinnar Jónsdóttur, upp- eldissystur Guðmundar föður Ka- rítasar, þegar minnst er á heimili hennar og Sigurðar. Um árabil átti þessi mæta kona sitt annað heimili á Lynghaganum og naut þar um- hyggju, alúðar og ekki síst vináttu Karítasar sem hún virti og treysti öllum öðrum fremur. Karítas var falleg og tilfinninga- næm kona, hæglát en lundin létt og glaðleg. Snyrtimennsku hennar, smekkvísi, barngæsku og natni við stórt og smátt var viðbrugðið. Er fjölskyldunni sleppti var tónlistin hennar helsta áhugamál. í æsku stundaði hún tónlistarnám, m.a. undir handleiðslu Páls ísólfssonar, og var alla tíð liðtæk á píanó. Hún var alþýðleg í viðmóti og afstöðu til manna og málefna. Þá ein- kenndi hana ekki síður einhver höfðingsskapur enda hafði hún yf- irbragð hinnar dæmigerðu hefðar- konu. Fyrir u.þ.b. áratug veiktist Ka- rítas alvarlega og gekk hún ekki heil til skógar eftir það. Hún glímdi við sjúkleika sinn af elju og þraut- seigju. Fráfall hennar bar engu að síður nokkuð óvænt að þar sem heilsan hafði á hennar mælikvarða verið allsæmileg um alllangt skeið. Ljóst er þó að hún yfirgaf þennan heim fullkomlega sátt við Iífið og það sem það gaf henni. Karítas gat í raun ekki síður verið sátt við það sem hún hafði veitt og gefið þeim sem hún hafði alið önn fyrir og átt samleið með í lífinu. Blessuð sé minning hennar. Lárus Ögmundsson. Mig langar að kveðja tengda- móður mína, Karítas Guðmunds- dóttur, með örfáum orðum og þakka henni samfylgdina. Ekki datt okkur í hug þegar við kvöddum Kaju að þetta væri hinsta kveðjan, en daginn eftir fengum Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasima 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasið- um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað . við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að ** hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. við upplýsingar um að hún væri látin. Þessi umgangspest, sem hún var talin vera með, hefur verið undanfari þess sem koma skyldi. Kaja var borgarbarn, ólst upp í Reykjavík þar sem hún hefur búið alla sína tíð. Ung fór hún til Nor- egs þar sem hún var við nám á garðyrkjuskóla um tíma. Hún hafði yndi af tónlist, stundaði píanónám hjá Páli ísólfssyni og lauk síðan prófi sem píanóleikari frá Tónlistar- skóla Reykjavíkur. Hún var viljug að miðla kunnáttu sinni og öllum sínum barnabörnum bauð hún að setjast á píanóbekkinn hjá sér og vildi kenna þeim svo lengi sem hún hafði heilsu til. Kaja var mikil hannyrðakona og eru eftir hana margir fallegir munir. Hún var mikill fagurkeri, enda var heimili hennar fallegt og smekklegt, öllu haganlega fyrir komið og þar var einstaklega hlýlegt. Fjölskyldan öll var henni afar kær og um hana snerist hugur hennar og henni vildi hún þjóna. Hún hafði líka sína nánustu stórfjölskyldu alla tíð í nágrenni við sig. þegar ég kom fyrst á Lynghaga til tengdaforeldra minna, bjó nánast öll hennar §öl- skylda við þessa götu, náin vinkona hennar og báðar systur hennar og í húsinu sem er nr. 10 og 12 bjó öll tengdaíjölskyldan, ættmóðirin Jóhanna Egilsdóttir, hennar börn og þeirra fjölskyldur. þannig að vinir og venslafólk hafa ekki þurft að fara langt til að hittast og öll systkinabörnin hafa því kynnst betur en ella. Kynni okkar hófust þegar ég kom inn á heimili hennar á Lyng- haga fyrir rúmum 25 árum. Hún var þá um fimmtugt, glæsileg og virðuleg kona. Af gömlum ljós- myndum sem ég hef séð af henni, má sjá stórglæsilega og fallega unga konu. Frá fyrstu kynnum fann ég hlýju og umhyggju streyma frá þessari konu. Hún var höfðingi í eðli sínu, vildi fremur veita og gefa en þiggja. Hún heilsaði alltaf innilega eins og maður væri að koma til baka eftir langa fjarveru og kvaddi á sama hátt. Þannig má með sanni segja að þó að andlát hennar hafi borið brátt að, hafði hún örugglega kvatt alla sína nán- ustu á sinn innilega hátt. Kaja hefði orðið áttræð 19. desember nk. og reiknuðum við með að þá yrði haldin veisla. Fjölskyldan hitt- ist alltaf á Lynghaganum 19. des- ember og var þessi dagur einskon- ar byijun á jólum hjá henni því þennan dag hafði þessi fyrirmynd- arhúsmóðir lokið nánast öllum sín- um jólaundirbúningi og leit ég oft öfundaraugum í kringum mig þeg- ar mér var hugsað til þess sem ég átti eftir ógert en þó með þeim ásetningi á hverju ári að fyrir næstu jól skyldi ég taka tengda- móður mína til fyrirmyndar. Fyrir um tíum árum veiktist Kaja sem gerði það að verkum að hún átti erfitt með að halda heim- ili sjálf. Fluttist þá inn á heimilið Guðrún Elíasdóttir sem varð henn- ar vinkona og vinur fjölskyldunnar. Með aðstoð Guðrúnar og barnanna gat hún því haldið áfram að búa á heimilinu og viljum við öll færa Guðrúnu bestu þakkir fyrir hennar aðstoð og umhyggju. Síðustu árin hefur Kaja búið á hjúkrunarheimilinu Eir við einstak- lega gott atlæti starfsfólksins þar. Fyrir stuttu hafði hún fengið píanó- ið sitt sent á Eir því hún hafði gaman af að spiia og stundum spil- aði hún fyrir fólkið á heimilinu. Fjölskyldan vill þakka öllu starfs- fólki hjúkrunarheimilisins sem ann- aðist hana af hlýju og góðvild. Hún flíkaði ekki tilfinningum sínum og skoðunum, en sagði okk- ur þó oft ýmislegt frá fyrri tíð. Kaja og Sigurður áttu mjög gott líf saman og það var alltaf gaman að vera með þeim. Við ferðuðumst með þeim um landið, þau höfðu yndi af að fara í sumarbústaðaferð- ir og það gladdi þau mjög þegar öll fjölskyldan gat komið með, börn og barnabörn. Eigum við öll yndis- legar minningar frá þessum tíma og var farið í margar slíkar ferðir vítt og breitt um landið. Þau höfðu gaman af að spila brids og alltaf til í að taka einn slag. Þau Sigurður ferðuðst líka mikið erlendis. Sig- urður lést árið 1978, langt um ald- ur fram og var það henni mikið áfall. Það var kannski ekki svo greinilegt þá hve mjög hún saknaði hans því hún vildi alltaf bera sig vel, en þegar litið er til baka, þá sér maður að það var sem eitthvað slokknaði í bijósti hennar þegar hann féll frá. Nú er hún lögð til hinstu hvílu við hlið Sigurðar og ég trúi því að nú sé hún á stað þar sem henni líður vel og búin að hitta Sigurð eftir langan aðskilnað. Það er margs að minnast að leið- arlokum. Ég vil þakka tengdamóð- ur minni samfylgdina og allt sem hún var mér og minni fjölskyldu. Guðfinna. Með fáeinum orðum Iangar okk- ur að minnast ömmu okkar, ömmu Kaju eins og við kölluðum hana alltaf, og þeirra yndislegu stunda sem við áttum saman. Alltaf var jafn notalegt að heimsækja hana eða fá hana í heimsókn. Ætíð ljóm- aði andlit hennar af gleði og hlýju. Hvergi leið henni betur en í faðmi fjölskyldu sinnar. Það var aldrei langt í hláturinn og grínið hjá henni ömmu. Hún gat oftast komið auga á eitthvað skemmtilegt í öllu. Frá því við systkinin munum fyrst eftir hefur hún verið með okkur á að- fangadagskvöld. Henni fylgdi hin sanna jólastemmning. Næstu jól verða án efa mjög tómleg án ömmu. Á stundu sem þessari hjálpar það okkur og huggar að rifja upp hinar ótal góðu minningar sem við eigum um hana. Elsku amma, hjartans þakkir fyrir allt. Minninguna um þig mun- um við varðveita í hjarta okkar um ókomna tíð. Við kveðjum þig með miklum söknuði. Guð blessi þig og varðveiti um ókomna ti'ð, elsku amma. Lilja Karítas, Dóra María, Sigurður Egill. Elsku amma Kaja. Mig langar með þessum fáu orðum að þakka þér fyrir allt það sem þú gafst mér. Þegar ég kvaddi þig sunnu- daginn fyrir andlát þitt, óraði mig ekki fyrir því að það væri í síðasta sinn því þú Ieist svo vel út og virt- ist vera hress. Þegar ég minnist þín kemur upp í hugann hlýja og umhyggja. Þú tókst alltaf á móti okkur með opn- um örmum og bros á vör. Mínar fyrstu minningar um þig eru þegar ég var hjá þér á Lynghaganum. Þú kenndir mér margar bænir og vísur sem ég kann enn í dag. Er mér minnisstæðast þegar þú kenndir mér „Ó, Jesú, bróðir besti“ og „Kristur minn ég kalla á þig“. Ég var svo lítil þegar þú kenndir mér „Faðir vor“ að ég man ekki einu sinni eftir því, en mér hefur verið sagt að ég hafi þulið það fram og aftur á hinum ólíklegustu stöð- um. Þú kenndir mér einnig að spila nokkur lög á píanóið sem ég hafði mjög gaman af. Þú hafðir ótrúlega gott minni sem kom fram þegar þú varst að riija upp gamlan tíma og mér verða minnisstæð þín oft á tíðum skemmtilegu tilsvör. Ég minnist þess einnig hve þú varst umhyggjusöm og nærgætin við afa þegar hann veiktist. Ég veit að hann var þér mikils virði og finnst mér sárt að hafa ekki náð að kynn- ast honum betur. Elsku amma, ég vil þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Ég mun sakna þín sárt en mínar góðu minningar um þig mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Þín nafna, Karítas. Vertu yfir og allt umkring með eilífri biessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. . (S.J.) Amma Kaja kenndi okkur að biðja bænir, spilaði og söng sálma og fór með kristilegar tilvitnanir. Hún ól börn sín og barnabörn upp í guðrækni, var ástrík kona sem gaf frá sér mikla hlýju. í henni bjó manngæska og náungakær- leikur. Amma passaði vel upp á sína, gat virst alvarleg en hafði í raun ríka kímnigáfu, var hlátur- mild og það var gott að hlæja með henni. Amma Kaja eignaðist og ól upp tvenna tvíbura og segir það meira en mörg orð um hversu mikil kjarn- orkukona hún var. Hún og afi Sig- urður héldu fallegt heimili á Lyng- haganum sem gott var að komá á og hápunkturinn að dvelja nætur- langt. Oftar en ekki var þar laum- að að okkur útlensku gotteríi sem nóg var af enda var hún mikill sælkeri og auk þess með tvær flug- freyjur í heimili sem sáu um að halda birgðunum við. Á okkar yngri árum fóru amma og afi oft með börn, tengdabörn og barnabörn í ferðalög og voru sumarbústaðaferðir í miklu uppá- haldi. Amma naut sín í faðmi fjöl- skyldunnar, söng fyrir okkur börn- in og kenndi okkur að spila á spil. Hún var þolinmóður kennari og reyndi á það í píanótímunum sem við sóttum hjá henni. Við hljótum að hafi verið frekar erfiðir nemend- ur þar sem áhuginn var takmarkað- ur en með elju tókst henni að kenna okkur lög sem við kunnum enn í dag. Árið 1978 lést afi og við það urðu straumhvörf í lífi ömmu. Sjö árum síðar veiktist hún alvarlega og varð aldrei söm eftir það. Helstu kostir hennar hjálpuðu henni í gegnum erfiða tíma, hún var trú- rækin, þolinmóð og það var stutt í hláturinn. Eftir veikindin naut hún heimilisaðstoðar og síðastliðin fjög- ur ár dvaldi hún á Hjúkrunarheimil- inu Eir. Hún dvaldi oft á heimili foreldra okkar og nutum við þess að hitta hana reglulega. Amma Kaja var glæsileg kona og bar sig vel. Þannig var hún þegar hún kvaddi svo óvænt þenn- an heim. Við kveðjum ömmu okkar með hennar eigin orðum: Guð almáttug- ur annist þig, verndi og varðveiti alla tíð.“ Bernhard; Hrönn og Egill Orn. Minningarnar hrönnuðust upp þegar mér var sagt frá láti Kaju móðursystur minnar, þriðjudaginn 26.8. sl. Karítas hét hún og fór það henni vel, því kærleikur og góðvild var ríkjandi eiginleiki hennar. Sem stelpa var ég hjá henni, þegar foreldrar mínir fóru í siglingu og þau tilfinningabönd sem þá urðu til hafa haldið æ síðan. Kaja var gift Sigurði E. Ingi- mundarsyni, alþingismanni og kennara við Verslunarskóla Is- lands. Mér þóttu kennslustundirnar hjá honum fljótar að líða vegna kennarahæfileika hans og ekki var síðra að kynnast honum í einkalífi sem heimilisföður. Lést hann um aldur fram. Var mikið jafnræði með þeim hjónum og kemur það best fram í því barnaláni sem þau áttu að fagna. Ég minnist vart neinna hátíða- stunda í mínu lífi án þess að Kaja frænka tengdist þeim á einhvern jákvæðan hátt með góðum óskum eða gjöfum gefnum af rausn og örlæti. Afmælum í íjölskyldunni gleymdi hún aldrei og fóru börnin mín ekki varhluta af góðvild henn- ar. Á undanförnum árum hrakaði heilsu Kaju frænku og síðustu ár bjó hún á hjúkrunarheimilinu Eir. Dætur hennar og sonur hugsuðu vel um hana, raunar öðrum til eftir- breytni. Gott er að vita að andlát hennar bar að með þeirri ró og virðingu sem einkenndi hana. Blessuð sé minning hennar og Guð geymi hana. Arndís Jóna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.