Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 35

Morgunblaðið - 03.09.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 35 EINAR G. LÁRUSSON + Einar Geir Lár- usson var fædd- ur í Vestmannaeyj- um 24. september 1913. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 22. ágúst síð- astliðinn. Hann var fjórði í röðinni í fimm systkina hópi, Unnur Halla, yngsta systkinið, er ein eftir á lífi. Hin voru Óskar, Ólafía og Ólafur. Foreldr- ar: Lárus Halldórs- son, fiskkaupmað- ur, og kona hans Elsa Dóróthea Ólafsdóttir. Einar eignaðist son með Jónu Hjörleifsdóttur, Theodór, bifreiðasljóra, og á hann þrjú börn. Með fyrstu konu sinni, Stígheiði Þorsteinsdóttur, eignaðist hann þrjú börn: Sigurbjörgu Ólafíu, skrifstof- ustúlku, og á hún þrjú börn, Elsu Dórótheu, starfsstúlku hjá Flugleiðum, hún á fjögur börn. Yngstur er Þorsteinn Einar, bifvélavirki, og á hánn fimm börn. Einar var einn af stofnendum bif- reiðastöðvar Hreyf- ils og ók leigubíl í 10 ár. Vann síðar um árabil sem bíla- viðgerðarmaður hjá Agli Vil- hjálmssymi, versl- unarmaður hjá Byko í 6 ár og rak jafnframt sauma- verkstæðið „Signu“ ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Elínborgu í átta ár. Síðustu starfsár vann Einar hjá Vogi hf. eða í 11 ár en hætti síðan fyrir aldurs sakir. Bálför Einars fer fram í dag frá Fossvogskapellu, en jarð- neskar leifar verða Iagðar við hlið Sigrúnar Elínborgar Guð- jónsdóttur á afmælisdegi hins látna hinn 24. september næst- komandi. Þegar vinir okkar og samferða- menn í lífsferðinni okkar allra hverfa frá okkur inn í móðuna miklu þar sem aldrei segir af ferðum og við stöndum eftir hér á þessari strönd, fínnum við að þáttaskil hafa orðið. Okkur finnst autt rúm standa eftir í hjörtum okkar. Við kveðjum í dag Einar Geir Lárusson bifreiðarstjóra, kæran bróður og mág, sem hefur verið okkur tryggur vinur og góður sam- ferðarmaður um langan veg. Og eins og ævinlega á slíkum stundum er margs að minnast frá langri ævi. Systkini, sem alast upp saman frá barnæsku, eiga sameiginlega minningaröð frá bernsku- og ungl- ingsárum. Þau minnast gleði æsk- unnar en einnig sorgar og erfíð- leika. Á kveðjustund renna minning- arnar fram í hugann. Oft var minnst æskustöðvanna kæru, Vestmanna- eyja, þaðan var gnægð minninga bæði ljúfar og sárar. Þegar ég minnist Einars mágs míns, man ég hann ávallt sem hæglátan og yfír- lætislausan. Hann var hlýr maður og þeim eiginleika gæddur að tala ævinlega vel um alla samferðar- menn sína. Undantekningalaust heyrði ég hann aldrei hnjóða til nokkurrar manneskju. Hann var höfðingi heim að sækja og með afbrigðum örlátur við vini sína og skyldmenni. Áföllunum í lífí sínu tók hann með stakri ró. Og nú í síðustu veikindum sínum, sem hann vissi hvern endi hefðu, sá honum enginn bregða. Nú þökkum við kærum bróður og vini langa samfylgd, þökkum ræktarsemi hans og vináttu alla. Far þú í friði, kæri bróðir og vinur. Bömum hans öllum og fjölskyldum þeirra vottum við innilega samúð. Unnur H. Lárusdóttir, Magnús K. Jónsson. Mér er ljúft að minnast Einars G. Lámssonar, en hann lést eftir stutta legu á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur 22. ágúst síðastliðinn. í kringum 1950 kynntist Einar tengdamóður minni Sigrúnu Elín- borgu Guðjónsdóttur frá Syðstakoti í Miðneshreppi og má með sanni segja að það hafí orðið ást við fyrstu sýn, því upp frá því vom örlög þeirra ráðin. Þau giftu sig skömmu síðar og Einar hélt með konu sína til Dan- merkur til lækninga, en hún hafði lengti glímt við hinn illvíga sjúkdóm berklaveiki, sem hafði verið landlæg hér. Allt vildi hann reyna til að hún næði heilsu. Aðgerð, sem fram- kvæmd var á sjúkrahúsi við Vejle á Jótlandi heppnaðist vel. Á þessum tíma starfaði Einar sem bílaviðgerðarmaður hjá Agli Vilhjálmssyni. Einar var mikill hagleiksmaður og lék allt í höndunum á honum. Einnig var hann hugmyndaríkur og kom það best í ljós er þau stofnuðu saman fyrirtækið „Signu“ er fram- leiddi allt mögulegt, sem Einar hannaði, get ég nefnt serviettustat- íf, gervijólatré og allan mögulegan fatnað. Eftir nokkur ár komu þau sér upp fallegri íbúð á Nýbýlavegi 27 í Kópavogi og notuðu bílskúrinn fyrir framleiðsluna, Elínborg stýrði henni á daginn, en Einar var þá farinn að starfa hjá Byko í Kópa- vogi, sem afgreiðslumaður. Á kvöldin og um helgar sneið Einar svo allt, sem framleitt var og höfðu þau nokkrar saumakonur í vinnu, en tengdamóðir mín var einnig fær í saumaskap og voru þau mjög sam- hent við þennan iðnað. Börn sín rækti Einar vel og báð- ar dætur hans bjuggu tímabundið á heimili þeirra á meðan þær voru að koma sér fyrir í eigin húsnæði. Þau voru alltaf samstíga að hjálpa börnum sínum, ef með þurfti, og var Sigrún Júlía dóttir okkar hjá þeim eitt sumar, en öll börnin okk- ar hafa ætíð kallað Einar „afa“. Maður minn, Kristján Kristjáns- son, var einkabarn móður sinnar og henni afar kær. Einar tók okkur öll inn í líf sitt af slíkri hlýju og væntumþykju að óvenjulegt hlýtur að teljast, en hann hafði það stórt hjarta að böm þeirra beggja og bamabörn rúmuðust þar vel. Fram á þennan dag var Einar alltaf fyrstur að koma í heimsókn með blóm á afmælum okkar allra, ég hefí aldrei kynnst trygglyndari manni. Hann ræktaði samband við skyldfólk og vini og var sannarlega vinur vina sinna. Árin eftir andlát Sigrúnar Elín- borgar 1971, sem hann syrgði mjög, voru Einari erfið, en öll él styttir upp um síðir og lífíð heldur áfram. Hann kynntist góðri konu, Sig- ríði Sigurðardóttur og giftist henni. Þau bjuggu í nokkur ár, fyrst á Háaleitisbraut í íbúð sonar Sigríð- ar, síðar á Laugarnesvegi, en síð- ustu árin bjuggu þau í íbúð fyrir aldraða í Norðurbrún 1. Sigríður dó fyrir nokkrum ámm og bjó Ein- ar þar einn til dauðadags. Áð leiðarlokum þökkum við góð- um dreng fyrir allt, sem hann hefur verið okkur og bömum okkar. Um leið sendum við börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúðarkveðjur, þau launuðu hon- um öll góðmennsku hans, þegar heilsa hans fór að bila. Það kunni hann að meta-og var sáttur við allt og alla er hann kvaddi þennan heim. Þú starfaðir jafnan með umhyggju og ást, elju og þreki, er sjaldan brást, þér nýttist jafnvel nóttin. Þú vannst fyrir besta vininn þinn, þú vinnur nú með honum í annað sinn með efldan og yngdan þróttinn. (G. Bjömsson) Drottinn varðveiti minningu Ein- ars G. Lárussonar. Erla Wigelund. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu- sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíð- um. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskulegur vinur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN V. HELGASON frá Bjargi, Vopnafirði, Skólabraut 5, Seltjarnarnesi, lést 1. september á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Ingibjörg Danfelsdóttir, Helgi F. Jónsson, Frfða Friðgeirsdóttir, Sigurgeir Þ. Jónsson, Auður Valgeirsdóttir, Bergvin F. Jónsson, barnabörn og barnabamabarn. + Útför mannsins míns, föður okkar, tengda- föður og afa, BALDURS GUÐMUNDSSONAR fyrrv. símaverkstjóra, Dunhaga 15, sem lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 26. ágúst, fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 4. september kl. 13.30. Helga Danfelsdóttir, Skúli Baldursson, Stefanfa Guðmundsdóttir, Bryndfs Bender, Ingibjörg Helga Skúladóttir, Helga Guðmundsdóttir Bender, Auður Olga Skúladóttir. + Systurdóttir okkar, SONJA JÖRGENSEN CHADWICK iést fimmtudaginn 28. ágúst í Bergen. Fyrir hönd ættingja á íslandi, Unnur Jónsdóttir, Sigríður Jónsdóttir. + Elskulegur bróðir okkar, JENS GUÐNASON, frá Þorkelsgerði, Selvogi, lést á heimili sínu, Reykjabraut 16 í Þorlákshöfn, mánudaginn 1. september. Jarðarförin auglýst síðar. Systkinin. + Ástkær frænka okkar og vinkona, AÐALHEIÐUR ÞORSTEINSDÓTTIR, Hreimsstöðum sem andaðist föstudaginn 29. ágúst, verður jarðsungin frá Hvammi, Norðurárdal, laugar- daginn 6. september kl. 14.00. Ættingjar og vinir. Arnór Ýmir Aðalsteinsson, Vernharður Aðalsteinsson, Anna Rannveig Jónatansdóttir, Jónatan Vernharðsson, Sylvía Reynisdóttir, Anna Sigríður Verharðsdóttir, Auðunn Páll Sigurðsson. + Elskuleg eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERNA DÓRA MARELSDÓTTIR, Álfheimum 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morg- un, fimmtudaginn 4. september, kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hennar, er bent á minningarsjóð Kvenfélagsins Keðjunnar eða Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Alfreð Júlfusson, Guðbjörg Pálsdóttir, Guðbjörg Alfreðsdóttir, Ásmundur Karlsson, Marfa Júlfa Alfreðsdóttir, Símon Ólafsson, Ólöf Alfreðsdóttir, Ágúst Victorsson, Kristín Gróa Alfreðsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + HRÓBJARTUR R. EINARSSON fyrrverandi fulltrúi norræna menningarsjóðsins í Kaupmannahöfn, andaðist föstudaginn 29. ágúst á Horsholm sjúkrahúsi. Útförin fer fram 5. september kl. 13.00 frá Horsholm kirkju. Ásbjörg Einarsson, Ásbjörn Hróbjartsson, Efnar Hróbjartsson, Ingibjörg Einarsdóttir, Ásta Einarsdóttir, Sveinbjörn Einarsson, Hulda Hjörleifsdóttir, Sigrún Einarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.