Morgunblaðið - 03.09.1997, Síða 38

Morgunblaðið - 03.09.1997, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 MIIMIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ MAGNÚSÁGÚST HARALDSSON + Magnús Ágúst Haraldsson fæddist í Bolungar- vík 24. ágúst 1905. Hann lést 15. ágúst síðastliðinn í sjúkra- skýlinu í Bolungar- vík. Foreldrar hans voru Haraldur Stef- ánsson frá Tröð í Álftafirði, f. 27.10. 1877,, d. 19.3. 1961, og Ágústa Marís- dóttir frá Langey- jarnesi, Dalasýslu, f. 15.12. 1880, d. 13.12. 1930. Systk- ini hans voru: Eggert Karvel Haraldsson, Bolungarvík, f. 9.4. 1904, giftur Valborgu Guð- mundsdóttur, f. 1.8. 1914, Katr- ín Guðrún Haraldsdóttir, f. 9.6. 1907, d. 13.9. 1907, Marís K.G.A. Haraldsson, Reykjavík, f. 29.8. 1908, giftur Guðrúnu Þórarinsdóttur, f. 29.6. 1916. Magnús giftist Sigríði Níels- ínu Níelsdóttur, f. 17.10. 1900, d. 2.11. 1961, og eignuðust þau sjö börn: 1) Kristján Björn, f. 20.2. 1928, d. 18.11. 1943, 2) Ágústa Stefanía, húsmóðir, ísafirði, f. 15.8. 1929, gift Ólafi Halldórssyni, sem lést 1994, börn þeirra eru: Birkir Már, Halldór Magnús, Sigríður og Ingibjörg. 3) Margrét Elísabet, húsmóðir, Siglu- firði, f. 24.11. 1930, d. 22.2. 1996, gift Jóhannesi Þór Eg- ilssyni, fram- kvæmdastjóra á Siglufirði, dóttir þeirra er: Sigríður Eddý, f. 15.1. 1953. 4) Herdís Katrín, húsmóðir, Hafnar- firði, f. 22.8. 1932, d. 15.4. 1977, gift Kristjáni Baldri Krisljánssyni, börn þeirra: Krislján Magnús, Reyn- ir, Björk og Ágústa. 5) Níels, f. 12.5. 1934, d. 27.7. 1934. 6) Sigurður Magnús, skipstjóri, Eskifirði, f. 8.5. 1936, giftur Guðrúnu Haiidórsdóttur, börn þeirra eru: Bryndís Fjóla, Magnús Ómar og Brynjar. 7) Haraldur Níeis, vélvirkjameist- ari, Hafnarfirði, f. 13.7. 1937, d. 24.7. 1976, sonur hans og Fríðar Jónsdóttur: Siguijón. Utför Magnúsar Ágústs fór fram frá Hólskirkju í Boiungar- vík 23. ágúst. Það var að kvöldi 17. ágúst að mér bárust þær fréttir frá íslandi að afi minn Magnús Ágúst Haralds- son hefði látist föstudaginn 15. ágúst. Ég var á ferðalagi í Dan- mörku og hafði notið lífsins í björtu og góðu veðri. Það er einkennilegt að einhvern veginn finnst manni það draga úr söknuði og sársauka ef veðrið er bjart og fallegt heldur en ef það er dumbungslegt veður. Afi var orðinn háaldraður og þess- ari stund held ég hann hafi beðið lengi eftir. Þegar ég heimsótti hann þá sagði hann alltaf við mig að það væri ekki pláss fyrir sig fyrir hand- an, það væri alveg sama hvað hann væri búinn að biðja mikið. Magnús afi var skemmtilegur og spaugileg- ur karl sem hafði mikla kímni. Hann sagðist aldrei ljúga, bara plata stundum. Þetta lýsir að sumu leyti hans kímni. En það sem mér fannst merkilegast við afa var að með honum fór kynslóð sem ólst upp við svo gjörólíkar aðstæður sem við búum við í dag að þegar hann var að segja manni frá þeim tímum sem hann ólst upp á þá hélt maður stundum að hann væri að segja manni ævintýri. Og í raun held ég að líf hans hafi að mörgu leyti ver- ið ævintýri. Á sínum yngri árum var hann formaður á bátum og í þá daga var nú ekki algengt að bátar hefðu vélar. Þá voru hafnirn- ar helst gerðar af náttúrunnar hendi. Sæta varð lagi þegar lenda átti í fjörunni við búðina í Bolungar- vík. Sjósókn stundaði afi af miklum dugnaði og kappi, því í þá daga var enginn kvóti og hugsuðu menn fyrst og fremst um að draga björg í bú svo allir hefðu nóg að bíta og brenna. Afi var mikiil keppnismaður og hlaut hann ótal verðlaun fyrir glímu. Það er því ólíkt hugarfar sem við búum við í dag þar sem við teljum alla hluti svo sjálfsagða að við eigum erfitt með að setja okkur inn í það hugarfar sem ríkti á þeim dögum. Kynslóð afa var miklu sátt- ari við hlutskipti sitt 'en fólk í dag. Þó lasleiki hafi hin síðari ár gert vart við sig hjá afa þá var hann alltaf skýr. Afi hefur gengið í gegn- um mikla lífsreynslu og hefur orðið að horfa á eftir eiginkonu og fimm börnum kveðja þennan heim. En hann hefur uppskorið af því sem hann sáði og eru nú niðjar hans orðnir yfir 50 talsins. Með örfáum orðum vil ég þakka þér, afi minn, fyrir þær stundir sem við áttum saman og að sýna mér þá lífsýn sem helst er Jiægt að lesa um í bókum í dag. Ég vil einnig þakka þér fyrir þær gleðistundir sem við upplifðum saman og þá kímni sem í þér bjó. Ég veit það, elsku afi minn, að nú ertu kominn í góðar hendur og nýtur samvista við ömmu og börnin þín. Siguijón Haraldsson og fjölskylda. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, HÖLLU B. GUÐLAUGSDÓTTUR, Hjallaseli 55, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Seljahlíðar fyrir góða umönnun. Guðlaugur Stefánsson, Lilja Jóhanna Gunnarsdóttir, Halla V. Stefánsdóttir, Höskuldur Stefánsson, Stefanía Stefánsdóttir og aðstandendur. Lokað Fyrirtæki okkar verður lokað eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar ÞÓRU MARTEINSDÓTTUR. E.T. ehf, Klettagörðum 11. Höggvið nærri meti Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson SIGURBJÖRN vann enn einn sigur sinn í tölti á hinum marg- reynda Oddi frá Blönduósi. ERLING Sigurðsson er kominn með nýjan hest, Rökkva frá Fífl- holti, og þykja þeir til alls líklegir eftir sína fyrstu keppni saman. HESTAR Lokasprcttur * 9 7 Varmárbökkum, Mosfellsbæ LOKASPRETTUR Harðar var haldinn á Varmárbökkum í Mos- fellsbæ að þessu sinni þar sem keppt var í tölti og skeiði. Þátttaka var temmileg miðað við eins dags mót og gekk vel að framfylgja auglýstri dagskrá. Nú eins og und- anfarnar helgar voru Oddhólshjónin Sigurbjöm og Fríða á Oddi og Hirti í efstu sætum í töltinu en Erling Sigurðsson sem nýverið keypti hestinn Rökkva frá Fíflholti sem sló í gegn á íslandsbankamótinu á Akranesi varð þriðji. Einnig var keppt í opnum flokki sem þó bar ekki nafn með rentu því þeir sem höfðu náð 6,5 í ein- kunn á skráðum hesti fengu ekki að keppa í þeim flokki og flokkur- inn þar af leiðandi ekki opinn. Þá fengu aðeins þeir að keppa í meist- araflokki sem ekki höfðu náð þess- ari einkunn á skráðum hesti. Var nokkur óánægja með þetta fyrir- komulag og leiddi þetta til þess að margir þrautreyndir knapar voru í neðri flokknum þ.e. opna flokknum. Má þar nefna meðal annarra Sævar Haraldsson sem keppti á glæsilegri hryssu Glóð frá Hömluholti og nýbakaðan íslands- meistara Sigurð Sigurðarson á fimmgangsgæðingnum Prins frá Hörgshóli. Skemmst er frá því að segja að þessir tveir röðuðu sér í efstu sætin Sævar í því fyrsta og Sigurður í öðru sæti. Þess má geta að Erling Sigurðsson var undan- þeginn þessari 6,5-reglu, hefði með réttu átt að vera í opna flokknum. Styrkleikaflokkakerfið í geijun Þetta mót og önnur sem boðið hafa upp á styrkleikaflokka sýna glöggt að þörf er á fijórri umræðu um framhaldið á styrkleikaflokka- kerfinu, allir virðast sammála um að halda skuli áfram með þá. Fram hafa komið ýmis atriði sem þarf að endurskoða í ljósi fenginnar reynslu og er full ástæða fyrir Hestaíþróttasambandið að halda málþing um þessi mál í haust. Sá gamli í góðu formi Góðir tímar náðust í skeiðkeppni Lokaspretts. Snarfari gamli frá Kjalarlandi með Sigurbjörn við stjórnvölinn hjó nærri metinu í 150 metrunum, rann skeiðið á 13,85 sekúndum aðeins 0,05 frá gildandi meti. Þess má geta að Lúta frá Ytra Dalsgerði og Þórður Þorgeirsson jöfnuðu metið á Suðurlandsmótinu á dögunum. Ósk frá Litladal og Sigurbjörn voru í stuði í 250 metrunum, skeiðuðu á þeim skemmtilega tíma 22,22 sek. Viðar Halldórsson reyndi gæðing sinn Prins frá Hvít- árbakka í skeiðinu og sýndi að hann hefur ekki einungis fagurt skeiðlag því hann er skruggu fljót- ur. Rann hann skeiðið á 22,66 sek. á sama tíma og Elvar Sig frá Búlandi og Auðunn Kristjánsson náðu í þriðja sætið. Þórður Þor- geirsson og Kjarkur frá Ásmúla höfðu nokkra yfirburði á keppi- nautana í gæðingaskeiðinu. Verða metin slegin í Garðabæ? Keppendur í yngri flokkunum voru með prýðisgóðar sýningar í töltinu. Hinrik Þ. Sigurðsson sigr- aði í unglingflokki á Kolbaki og Sylvía í barnaflokki en þar vakti sérstaka athygli keppandi í öðru sæti, Sigurður Pálsson á Hugi frá Stykkishólmi, sem er góðkunnur gæðingur í röðum Harðarfélaga og naut klárinn sín sérlega vel hjá Sigurði og hlutu þeir sérstaka viðurkenningu fyrir. Lokasprettur lukkaðist vel að þessu sinni, veðrið slapp rétt fyrir horn, fór að rigna eftir síðustu úrslitin þannig að 250 metra -skeiðið fór fram í kalsa rigningu og tímarnir þar því ótrúlega góðir. Ástæða er til að setja út á skrána hjá Harðarfélög- um að þessu sinni því ekki var getið um fæðingarstað hrossanna í mótsskrá og ber úrslitaupptaln- ingin hér að neðan þess merki. Keppnistímabili hestamanna lýkur um næstu helgi með Metamóti á Kjóavöllum í Garðabæ. Það skyldi þó ekki fara svo að gamli jaxlinn Snarfari endi glæsilegan ferill þar með nýju meti í 150 metrunum? Gæti Sigurbjörn þá lagt honum með góðri samvisku ef það tækist. Talandi um met í 150 metrunum verður að minnast á Lútu, en ekki mun hún eiga minni möguleika. Þess ber þó að geta að hún greip á sig í skeiðmeistarakeppninni á Suðurlandsmótinu og óvíst hvort hún hafi náð sér eftir það en við sjáum hvað setur á Kjóavöllum. Úrslit Lokaspretts urða annars sem hér segir: Tölt - meistarafiokkur 1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Oddi frá Blönduósi, 7,73/7,84 2. Fríða Steinarsdóttir, Fáki, á Hirti frá Hjarðarhaga, 6,90/7,53 3. Erling Sigurðsson, Fáki, á Rökkva frá Fíflholti, 6,87/7,33 4. Hugrún Jóhansdóttir, Gusti, á Blæ frá Sigluvík, 6,80/7,03 5. Vignir Siggeirsson, Sleipni, á Hvönn frá Torfunesi, 6,70/6,88 Tölt - opinn flokkur 1. Sævar Haraldsson, Herði, á Glóð frá Hömluholti, 7,03/7,28 2. Sigurður Sigurðarson, Herði, á Prins frá Hörgshóli, 6,40/6,73 3. Halldór Svansson, Gusti, á Byr, 6,63/6,63 4. Sigurður Ævarsson, Sörla, á Þokka, 6,17/6,19 5. Sigurður Kolbeinsson, Mána, á Ögra, 5,83/5,88 Tölt - unglingar 1. Hinrik Þ. Sigtirðsson, Sörla, á Kolbaki, 6,65 2. Sigurður R. Sigurðsson, Fáki, á Baldri frá Hörgshóli, 6,20 3. Þórarinn Orrason, Andvara, á Gjafari, 5,97 4. Sigurður Halldórsson, Gusti, á Krapa, 5,81 5. Jóna M. Ragnarsdóttir, Fáki, á Eyrarrauð, 5,63 Tölt - börn 1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Djákna frá Litla Dunhaga, 6,21 2. Sigurður Pálsson, Herði, á Hugi frá Stykkishólmi, 6,16 3. Bryndís K. Sigurðardóttir, Sörla, á Skruggu frá Hala, 5,48 4. Kristján Magnússon, Herði, á Garra, 5,40 5. Skúli S. Vilbergsson, Mána, á Dögun, 5,31 Gæðingaskeið 1. Þórður Þorgeirsson, Geysi, á Kjarki frá Ásmúla, 8,58 2. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Snarfara frá Kjalarlandi, 8,11 3. Auðunn Kristjánsson, Fáki, á Hvassa, 7,80 4. Viðar Halldórsson, Fáki, á Prins frá Hvítárbakka, 7,75 5. Eiríkur Guðmundsson, Geysi, á Asíu, 7,58 Skeið 150 metrar 1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Snarfara frá Kjalarlandi, 13,85 sek. 2. Þórður Þorgeirsson, Geysi, á Áka, 14,25 sek. 3. Logi Laxdal, Geysi, á Hraða, 14,69 sek. 4. Sigurður Matthíasson, Fáki, á Hrafnfaxa, 14,73 sek. 5. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Frama, 14,75 sek. Skeið - 250 metrar 1. Sigurbjörn Bárðarson, Fáki, á Ósk frá Litladal, 22,22 sek. 2. Viðar Halldórsson, Fáki, á Prins frá Hvítárbakka, 22,66 sek. 3. Auðunn Kristjánsson, Fáki, á Elvari Sig frá Búlandi, 22,66 sek. 4. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Glað frá Sigríðarstöðum, 22,68 sek. 5. Ragnar Hinriksson, Fáki, á Hirti, 22,93 sek. Valdimar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.