Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 03.09.1997, Qupperneq 51
MORGUNB LAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1997 51 imu Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. B.i. 16. LOST HIG H WA. Y H i Fliui l) ★ ★ ★ 1/2 o v w in 11\< ii /#) \\ II) I l\( II mu ni 11 \i \ \ ER RAUNVERULEIKINN DRAUMUR EÐA ER DRAUMURINN KANNSKI VERULEIKI AogQuiEnnEi MAGNAÐ BfÓ JDDJ skáta LOKAHÁTIÐ var haldin í Húsdýragarðinura í Laugardal á sunnudag og var ýmislegt gert til að skemmta ungum sein öldnum. Um daginn var haldin skemmtun þar sem leikrit var sett upp, Skari skrípó töfraði og sprellaði og ýmis önnur skemmtiatriði lífguðu upp á þessa síðustu helgi sumarins í Húsdýragarð- inum. Um kvöldið voru skátar í Reykjavík fenguir til að halda kvöldvöku og sköpuðu stemmningu af bestu gerð. Varðeldur var kveiktur og flugeldasýning haldin auk þess sem gleði og söngur léttu mönnum lund til klukkan níu um kvöldið. Á myndunum má sjá að skemmtilegt var um að litast hjá skátunum. Eftir lokahátiðina breytist sá tími sem Húsdýragarðurinn verður op- inn en f vetur verður opið alla daga frá klukkan 10 til 17 en lokað á mið- vikudögum. Leiktækin í Fjölskyldugarðinum verða sömuleiðis lokuð yfír vetrartímann. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Síðustu sýningar Sýnd kl. 5, 7, 9 og . i. 12. Daniels Michael Richards Sprenghlægileg mynd með þeim Jeff Daniels (úr Dumb and Dumber) og Michael Richards (Kramer úr Seinfeld). Mynd um tvo tjónaða vini sem koma sér í ótrúlega klemmu eftir ævintýralegt steggjapartý. Skelltu þér á eina bestu grínmynd sumarsins. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. LOKAHÁTÍÐ HÚSDÝRAGARÐSINS □□ DIGITAL DIGITAL Sími H X SKÁTAR kveiktu varðeld í Húsdýragarðinum um síðustu helgi. KÁTT var á hjalla þegar skátarnir hófu upp raust sína og skemmtu viðstöddum af mikilli innlifun. LOKAHÁTÍÐ Húsdýragarðsins heppnaðist vel og mátti sjá bros á vörum margra. Hildur Sverrisdóttir ræðir um forvarnastarf Jafningjafræðslu framhaldsskólanna Morgunblaðið/Þorkell HILDUR Sverrisdóttir vinnur gegn vímuefnaneyslu með Jafningja fræðslu framhaldskólanna. GRAFÍKLISTAMENNIRNIR Kjartan Páll Sveinsson, tílfur Chaka, Andrea Helgadóttir, Trausti Skúlason, Ólafur A. Breiðfjörð og Karl Davíðsson gerðu bakgrunninn í sviðsmynd umræðuþáttarins. Hér eru íjögur þeirra fyrir framan verkið. KVÖLD kl. 21.00 verður sýnd í samtengdri dagskrá sjónvarps- stöðvanna heimildarmyndin Fikt, sem fjallar um ferð Jafningjafræðslu framhaldsskólanema til Norður- landa. Eftir á verður umræðuþáttur um forvarnarstarfsemi í vímuefna- eyslu hér á landi. Ranghugmyndir „Jafningjafræðsla framhaldsskóla- nema er hópur ungs fólks sem hefur það sameiginlega áhugamál að vera á móti fíkniefnaneyslu," segir Hildur Sverrisdóttir í samtali við Morgun- blaðið. „Síðasta vetur fórum við í 99 heimsóknir í 26 framhaldsskóla, og er áætlað að við höfum talað við um 6 þúsund nemendur. í sumar töluðum við við 3 þúsund krakka í vinnuskól- anum. Okkar forvarnai’aðferðir felast í að vera ekki með hræðsluáróður, en okkur finnst mikið um misskilning meðal ungs fólks, t.d. að hass sé ekki eiturlyf, og að það sé í lagi að taka e- pilluna ef maður drekkur nógu mikið vatn með. Krakkar tala um þessi efni sín á milli og tala bai’a um það góða. Við erum jafningjar þeirra, vinir og kunningjar og fræðum þau um dekkri hliðar málsins. Við viðurkennum að það er eitt- hvað jákvætt og spennandi við fíkni- efni, því annars myndi ekki allur þessi fjöldi að prófa þau. En okkur finnst hins vegar það sem á eftir kemur og aldi-ei er talað um ekki þess virði að prófa einu sinni. Jafn- ingjafræðslan er fyrsta stigs for- vörn. Við erum aðallega í því að segja þeim að prófa ekki, en ekki að skipa þeim að hætta, því við erum ekki sérfræðingar, heldur ungt fólk sem er á móti vímuefnum." Það er miklu flottara að segja nei „í myndinni Fikt, sem frumsýnd verður 1 kvöld, verður sýnt þegar við fórum að hitta ýmsa forvarnar- aðila, lögregluna og fyrrverandi fíkla í Ósló og Kaupmannhöfn, til þess að kynnast nýjum forvarnar- leiðum. I því neyslusamfélagi sem við lifum í er oft verið að bera okkur saman við Norðurlöndin í hinu og þessu, og við vildum gera það í sam- bandi við fíkniefni og sjá hvar við stöndum þar. Reykheróín Upphaflega ætluðum við að gera þátt um reykheróín sem er orðið mjög algengt. Þeii’ sem eru að hefja neyslu í Noregi, byrja alveg eins að reykja heróín eins og hass, því það er svo ódýrt. Margir halda að það sé ekki jafn skaðlegt og að sprauta sig, en fólk verður alveg jafn skemmt, það sleppur bara við sprauturnar og forðast þannig smitsjúkdóma. Reyk- heróín hefur orðið að tískubylgju síð- ustu árin, sérstaklega í Kaupmanna- w höfn. Það er reyndar mjög lítið um það hér á íslandi. Fyrrverandi fíklar segjast hafa haft löngun til að prófa reykheróínið, en vitað að þeir yrðu háðir efhinu eftir fyrsta skipti og ekki getað treyst því að fá efnið hér þar sem mjög erfítt sé að smygla því til landsins. í kvöld viljum við því varpa fram þeirri spurningu hvort ísland sé hólpið fyrir reykheróíninu. í þættin- um er m.a. viðtal við konu á Islandi sem vann fyi-ir sér með vændi til þess að fjármagna heróínneyslu sína.“ Gagn og gaman „Það stendur hvergi skrifað á blaði að svo eða svo margir hafi tekið c mai’k á okkur, en við finnum að við erum að gera gagn. Unga fólkið sem við tölum við er mjög fáfrótt um eit- urlyf og hefur mjög miklai’ ranghug- myndir um þau. Einnig leita það mikið ráða hjá okkur, t.d. varðandi vini sem eru komir í vond mál, þá annað hvort á fundum eða með því að hringja í okkur. Gagnfræðaskóla- nemar taka sérstaklega vel á móti okkur, eru bæði einlægir og þakklát- ir. Okkur þykir sérstaklega vænt um að ná til krakkanna í 10. bekk, því þau standa á tímamótum. Þau eru að fara í framhaldsskóla þar sem jafn- vel má drekka á skólaböllum, og hafa áhyggjur af því að falla ekki inn í hópinn. Við segjum þeim að stað- reyndin sé sú að það sé miklu flott- ara að segja nei í dag þegar kemur að eiturlyfjum og þau eru okkur sammála,“ segir Hildur Sverrisdóttir að lokum, og hvetur sem flesta til að kveikja á sjónvarpinu í kvöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.