Morgunblaðið - 19.10.1997, Qupperneq 7
MORGUNB LAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 B 7
LEIKFIMIFLOKKUR Iðunnar á landsmótinu í Reykja-
vík 1911.
STIGAHÆST í sundi á landsmótinu 1957, Inga
Árnadóttir, UMFK, og Valgarður Egilsson, HSÞ.
KEPPT er í íþróttum og á fleiri sviðum á landsmótum, hér er mynd
frá kúadómum 1965.
Prjár kynslóðir í
ungmennafélagi
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
GUÐRUN Blöndal heldur á Árnýju, Kristján Frímannsson og Jenný, lengst t. h. er Dagný.
BREIÐAVAÐI, rétt austan við Blönduós,
búa þrjár kynslóðir ungmennafélaga, Guð-
rún Blöndal, sonur hennar Kristján
Frímannsson, eiginkona hans, Stefama
Egilsdóttir og dætur þeirra, þær Dagný,
Jenný og Árný. Guðrún, Kristján og Dagný
liafa keppt fyrir sitt ungmennafélag og ung-
mennasamband en Jenný er að stíga sín
fyrstu spor í íþróttunum. Yngsta stúlkan,
Árný, keppir að vísu ekki ennþá enda bara
tveggja ára en hún er engu að síður félagi í
ungmennafélaginu í sinni sveit sem heitir
Vorboðinn; Stefanía situr í stjórn hans. Það
mun vera siður í sveitinni að fólk er skráð í
félagið nánast við fæðingu.
Eldri ungmennafélagsarmurinn á bænum
var sammála um það að þátttakan í ung-
mennafélagi væri annað og meira en æfa
bara íþróttir, félagslegi þátturinn væri ekki
minna virði. Guðrún, amman á bænum,
minntist þátttöku sinnar í landsmóti ung-
mennafélaga á Þingvöllum 1957 er hún
ræddi við fréttaritara Morgunblaðsins á
Blönduósi, Jón Sigurðsson.
Guðrún fór í þessa ferð vitandi það eitt að
þetta væri skemmtiferð og íþróttir voru
ekkert á dagskránni hjá henni. En þegar á
Þingvelli var komið með rútu beið þeirra
vaskur ungmennafélagsmaður, Pálmi nokk-
ur Jónsson frá Akri og sagði að fólk væri
seint á ferðinni. Hann dreif fólkið
til æfinga.
Þarna átti fyrir Guðrúnu að liggja að taka
þátt í 5 sinnum 80 metra boðhlaupi kvenna
og setti sveitin sýslumet sem stendur enn og
ólíklegt að falli nokkurn tíma því löngu er
hætt að keppa í þessari grein. Ekki getur
Guðrún fullyrt hvar sveit Ungmennasam-
bands Austur-Húnavatnssýslu lenti í þessari
keppni en minnir þó að þær hafi náð þriðja
sætinu.
Hringt daginn áður
Kristján tók undir með móður sinni um
það að stífar æfingar hefðu ekki alltaf legið
á bak við undirbúning móta heldur hefði oft
verið hringt daginn áður eða jafnvel með
styttri fyrirvara og menn beðnir um að
mæta á mót. Að sjálfsögðu var brugðist við
því með jákvæðu hugarfari því að heiður fé-
lagsins var að veði. „Og það er einmitt
þetta“, sögðu þau, „sem einkennir ung-
mennafélagsandann."
Dagný er að verða tólf ára. Hún hefur
keppt í nokkur ár fyrir félag sitt og þá aðal-
lega í kastgreinum og tók í sumar í fyrsta
sinn þátt í meistaramóti. Þá keppti hún fyrir
USAH.
Jenný, sem er sjö ára, byrjaði að æfa
íþróttir í sumar og keppti á barnamóti
USAH. Jenný sagði að hún hefði mest gam-
an af Iangstökki og einnig fannst henni
skemmtilegt að hlaupa. Aðspurð um getu
sína í hlaupum svaraði Jenný með því að
taka snarpan sprett á ganginum og sagði
hann meira en mörg orð.
Tii sölu MercedeS Benz 300E 4 matic, árgerð 1992, ekinn
119.000 km., dökk grænn m/þjónustubók, sjálfsk., AB5, 2 airbag,
álfelgur, fjórhjóladrifinn, splittað drif, hleðslujafnari, 6 cyl. 180
hö, rafdrifnar rúður og topplúga, leðurinnrétting, viðarklæðn-
ing m/rótaráferð, 4 hauspúðar, 2 armpúðar, hiti i sætum, sam-
læsingar, rafdrifin gardina, slökkvitæki og fleira. Verð 3,1 millj.
Nánari upplýsingar í síma 896 4697.
Umhverfísmál
og ræðumennska
MEIRI áhersla er lögð á um-
hverfismál í starfi ungmenna-
félaganna og skipar skógrækt þar
stóran sess. Umsvifin í Þrastaskógi
er mikilvægur kafli í sögu UMFÍ en
Tryggvi Gunnarsson, alþingismað-
ur og bankastjóri, gaf á sínum tíma
félaginu landareignina til að efla
skógrækt.
UMFÍ gaf út sérrit Skinfaxa,
Umhverfið í okkar höndum, fyrir
tveim árum til að leggja umhverfis-
vernd lið. Eru þar m.a. greinar um
siðfræði náttúrunnar, heimilisúr-
gang, fyrirtækin og umhverfið, haf-
ið, landið, stefnu stjórnvalda og
tengsl Islendinga við alþjóðleg um-
hverfismál. Yfir 10.000 manns tóku
á sínum tíma þátt í að dreifa lé-
reftspoka sem nefndist Græni
hirðirinn og hafði að geyma rusla-
poka og ritling með fróðleik um
umhverfismál.
Starfssviðið er fjölbreytt en oft í
anda þjóðrækni. Arið 1994 var efnt
til svonefnds Lýðveldishlaups í til-
efni af 50 ára afmæli lýðveldisins og
tóku um 25.000 manns þátt í því.
Þeir sem höfðu tekið þátt í hlaup-
inu, gengið eða hlaupið þrjá kfló-
metra, alla 95 dagana áttu kost á
happdrættisvinningi, ferð til Banda-
ríkjanna fyrir tvo. Dregið var úr
pottinum og öldruð kona úr Skíða-
dal, sem liggur inn af Svarfaðardal í
Eyjafirði, hreppti vinninginn.
„Menn tóku þetta mjög alvar-
lega,“ segir Sæmundur Runólfsson,
framkvæmdastjóri UMFÍ. „Einn
hringdi í mig og spurði hvort hann
gæti fengið stimpil í sendiráðunum.
Hann var á leið til útlanda og vildi
ekki missa úr neinn dag. Ég sagði
honum að ef hann sviki ekki sjálfan
sig fengi hann stimpil þegar hann
kæmi heim.“
Margir hlupu á sólarströndum og
öðrum ferðamannastöðum erlendis,
einnig á hlaupabrettum um borð í
skipum; skipstjórinn staðfesti þátt-
tökuna með stimpli.
Oft hafa um 1.000 manns tekið
þátt í námskeiðum félagsmálaskóla
UMFÍ á einu ári og fengið þar sína
fyrstu þjálfun í að standa upp og
halda ræðu. Notast er við fundar-
sköp Alþingis.
í staifi UMFÍ fer aldrei neinn
fulltrúi með meira en eitt atkvæði,
enginn getur sýnt bréf og sagt að
hann hafi umboð til að greiða at-
kvæði fyrir tíu manns eða fleiri eins
og oft tíðkast í fjöldahreyfingum.
Menn verða að mæta sjálfir til að
hafa áhrif.
tsso
Við drögum i hverjum manuði.
Olíufélaglflhf
helgarferd fyrir tvo
Kristín Sigríður Friðriksdóttir,
Reykjavík vann helgarferð til
Dublin fyrirtvo með
Samvinnuferðum-Landsýn
þegar dregið var úr
Safnkortspottinum síðast.
í hvert skipti sem þú notar
Safnkortið fer nafnið þitt í
Safnkortspottinn. Vertu með!