Morgunblaðið - 19.10.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.10.1997, Blaðsíða 22
** 22 B SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 DÆGURTONLIST MORGUNBLAÐIÐ A *. HELSTA nýbylgjurokksveit liðins áratugar var hljómsveit Franks Blacks sem hann kall- aði Pixies. Sú sendi frá sér tvær frábærar breiöskífur og tvær prýðilegar áður en Black leiddist þófið og ákvað að vera bara einn á ferð. on Pilgrim, og ári síðar Sur- fer Rosa sem almennt var tal- in besta breiðskífa ársins 1988. Ári síðar kom út helsta verk hljómsveitarinnar, Doolittle. Eftir það gaf Pixies út tvær breiðskífur til viðbót- ar, en Black var hættur að sem kom út fyrir skemmstu er kjörin til þess arna. Á Death to the Pixes er að finna sautján laga safn frá ferlinum öllum, flest af Doolittle, sem vonlegt er, en einnig lög sem einungis var hægt að fá á smáskífum á sin- Pixies snýr aftur kunna við sig í nýbylgjurokki og vildi á aðrar slóðir. Þrátt fyrir prýðilegar skífur hefur honum ekki tekist að ná sömu hæðum einn, kannski vegna þess að tíðarandinn er breytt- ur. Hvað sem því viðkemur þá er löngu kominn tími á Pixies- endurreisn og safnskífa sveit- arinnar, Death to the Pixies, um tíma. Á plötunni má glöggt heyra hversu mikil áhrif Pixies hafði þó ekki hafi hún náð milljónasölu eins og getið er. Þrátt fyrir það hafa fáar sveitir náð eins miklum vinsældum hér á landi og fróðlegt hvort eimi eftir af þeim vinsældum hjá nýrri kynslóð. FÁAR rappskífur hafa komið eins skemmtilega á óvart á und- anfórnum árum en fyrsta plata Gravediggaz. Þar var valinn maður í hverju rúmi og þó hætt sé við að slíkur stjörnufans verði andlaus var þar listilega siglt á milli ske'rs og báru. Gravediggaz var hugarfóstur Prince Pauls, sem hélt um upptökuvölinn hjá De La Soul á sínum tíma, en hann fékk til liðs við sig RZA, sem er helsti rapp- upptökustjóri heims um þessar mundir, Too Poetic og Fruitkwan úr Stetasonic. Fyrsta skífa Gra- vediggaz, Niggarmortis/Six Feet Deep, var mikið meistaraverk þar sem hryllingsmyndir gáfu inn- blástur í stað tuðs um dólga og byssur. (Eftirminnileg línan: Líf er ekkert annað en fjörgaður dauði.) Skömmu eftir að sú skífa kom út varð Wu-Tang Clan, sem RZA leiðir, að helstu rappsveit heims og Gravediggaz hvarf í skuggann. Sem betur fer tóku þeir félagar upp þráðinn sem heyra má á nýútkominni skífu, The Pick, the Sicle and the Shovel. Þar fara þeir á kostum líkt og forðum og velta fyrir sér hlutskipti litra með líkingum sem sóttar eru í hryllingssögur um magt myrkranna og ókræsileg ill- menni. Á skífunni nýju má heyra að þeir félagar kunna því vel að koma fram undir nýju nafni og ná býsna vel saman. RZA hefur ful- lítið gert af því að rappa undan- farið og frammistaða hans bendir til þess að væntanleg sólóskífa verði vel mögnuð. Pixies var inerkileg sveit, ekki síst fyrir það að þó hún hafi aldrei orðið veru- lega vinsæl um heim allan hafði hún mikil áhrif á fram- þróun óháðra rokksveita, sem kannski náði hámarki í Seattle-rokkinu sællar minn- ingar. Tíu ár eru síðan fyrsta Pixies-skífan kom út, Come PIXIES Frank Black, Kim Deal, David Lovering og Joey Santiago. Kópavogsklíkan Hljómsveitin Soðin fiðla. SOÐNAR FIÐLUR ÚTGÁFURÖÐ Smekkleysu sem kallast Skært lúðrar hljóma hefur gengið bráðvel það sem af er og fjölmargar afbragðsskífur eru komnar út. Síðasti skammtur í útgáfunni er stuttskífa hljómsveitar- innar Soðinnar fiðlu, sigursveitar síðustu Músíktilrauna. Sú leikur laglegt rokk og reyndar merkilegt að þær skífur fjórar sem komið hafa út eru allar rokkkyns, það er eins og íslenskir dansliðar séu ekki reiðubúnir í slaginn. Soðin fiðla er tæplega ársgömul, en liðsmenn hennar eru þraut- reyndir úr öðrum sveitum, en kjarninn er „gamla Kópavogsklík- an“ eins og þeir kalla það. Þeir hafa leikið í mörgum helstu bíl- skúrssveitum síðustu ára en segja að þrír félaganna, sem allir hefðu þekkst frá því í æsku, hafi byrjað að æfa saman sér til gamans og þá hafi streymt fram hugmyndir. „Það var engin sérstök pæling í gangi, við pældum ekkert í því hvað við ættum að spila, létum tónlistina bara flæða fram.“ Lögin á disknum eru sex, þar af eitt sem heyrðist á Músíktilraunum á sín- um tíma, og hin í eldri kantinum að þeim finnst, enda segjast þeir vera á kafi í að smíða nýja tónlist. „Við ætlum þó að fylgja þessum gömlu lögum vel eftir, því þau eru eftir Árna Matthiasson ný fyrir aðra en okkur.“ Upptökur hóf- ust í júní síðast- liðnum og miðaði svo áfram út sumarið, „við vorum að dunda okkur í allt sum- ar“, segja þeir og bæta við eftir smáhlé, „það var kannski ekki rétt að vinna þetta svo rólega, það reynir meira á að taka þetta upp smám saman og örugglega betra að taka upp á skemmri tíma, þó hljóðblöndun og frágangur séu unnin hægar. Meðal annars höf- um við lítið spilað í sumar vegna þess að við vorum alltaf í stúdíó- inu að okkur fannst og þar voru hljóðfærin og græjurnar sem gerði allt þyngra í sniðum. Það hefur þó ekki komið svo að sök, því við höfum frekar viljað taka fáa tónleika og góða en spila út um allt.“ Þeir félagar segjast hafa fullan hug á að brjótast áfram á íslensk- um markaði, að komast eins langt og komist verður. „Við ætlum að fara eins langt og við getum, leggja aðaláherslu á að gera góða tónlist og ekki síður að vera duglegir að vinna að sveitinni og öllu sem sinna þarf í kringum hana. Það var gam- an að taka upp þessa skífu, en nú er vinnan rétt að byrja," segja þeir ákveðnir að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.