Morgunblaðið - 19.10.1997, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 1997 B 15
Eitrun við ganga-
gerð breiðist út
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DAUÐAR kýr og vatn, sem er svo
eitrað að fólk má hvorki nota það
til að þvo sér um hendur né sem
baðvatn er orðin staðreynd í ná-
grenni við jarðgangagerðina á
Skáni. Eitrunin hefur breiðst út
og óttast er að eitrið hafi komist
í grunnvatnið. Bæði Sænsku járn-
brautirnar og verktakafyrirtækið
Skanska, sem sá um framkvæmd-
ina á vegum járnbrautanna, lýsa
sig ábyrg. Sænska stjórnin hefur
fyrirskipað rannsókn. Franska
fyrirtækið Rhone-Poulenc, sem
framleiðir þéttiefnið, sem eitrun-
inni olli, þvertekur fyrir að eitt-
hvað sé að efninu, sem notað
hafi verið í tvo áratugi án vand-
ræða.
Ottast að grunn-
vatnið sé mengað
Svo virðist sem þéttiefnið hafi
leyst upp í berginu í stað þess að
hlaupa saman í plastefni og þar
með hafa tvö eiturefni, acrylamíð
og methylolacrylamíð, leyst upp
og flætt út. Eitrunin kom í ljós
þegar kýr á beit þar sem vatn
streymdi úr göngunum lömuðust
og dóu. Á þessu svæði tekur fólk
neysluvatn úr eigin brunnum og
eins og er eru sjö brunnar á svæð-
inu álitnir eitraðir. íbúarnir hafa
nú fengið vatn annars staðar frá,
en ótti hefur gripið um sig, því
óljóst er hversu útbreidd eitrunin
er eða hve lengi vatnið hefur ver-
ið eitrað. Grunur leikur á að eitr-
ið hafi komist í grunnvatnið og
ef svo er getur eitrið verið í vist-
kerfinu í áratugi.
Enginn veit heldur hvert eitrið
hefur breiðst út og hver áhrifin
eru á íbúana og þá starfsmenn,
sem unnið hafa með efnið. Eitrið
getur valdið krabbameini, en einn-
ig lömun og erfanlegum erfða-
breytingum. Það getur því liðið á
löngu áður en að fullu verður ljóst
hver áhrifin verða. Göran Persson
forsætisráðherra hefur lofað að-
stoð ríkisstjórnarinnar svo að þeir,
sem eiga rétt á bótum þurfi ekki
að bíða þeirra.
TAKTU FLU6I-D
AAED OKKUR
BEINT NÆTURFLUS
TIL OS FRÁ KÖLN
Hraðflutningsdeild Pósts og síma hf. mun frá og með 20. október nk. bjóða
beint næturflug til og frá aðaldreifingarmiðstöð TNT Express í Köln í samvinnu
við Flugleiðir. Flogið verður til Kölnar 6 kvöld vikunnar, frá mánudegi til laugardags,
og komið til baka næsta morgun. Nú munu sendingar til og frá helstu stöðum I Evrópu
og Bandaríkjunum komast til skila næsta virkan dag.
Með fjölbreyttum flutningsleiðum og samningum við alþjóðlega flutningsaðila getur
Hraðflutningsdeildin boðið mismunandi hraða á sendingum til og frá landinu, allt eftir
óskum viðskiptavina.
Express Hraðflutningsdeildin er umboðsaðili fyrir TNT Express Worldwide sem
Worldwide er eitt ötiu9a5ta flutningafyrirtæki heims en flutninganet þeirra nær
til yfir 200 landa. TNT býður bæði hraðsendingar og fraktsendingar
til og frá landinu og hentar best þegar koma þarf sendingunni til skila
á fljótan og öruggan hátt.
HRAÐSENDING -F
FRAKTSENDING
DanTransport er öflugt fyrirtæki á heimsvísu með flutninganet um
allan heim og útibú I fjölmörgum löndum. Samvinnan við DanTransport
eykur enn á þá fjölbreytni sem viðskiptavinum Hraðflutningsdeildar
stendur til boða. DanTransport hentar vel þegar senda þarf stærri
sendingar I flug- eða skipsfrakt.
DanTransport
FRAKTSENDING J--
Hraðflutningsdeildin sér um sendingar fyrir EMS Express Mail Service
sem er hraðsendingaþjónusta póststjórna um allan heim. Þessi þjónusta
eykur enn frekar fjölbreytnina I hraðsendingum til og frá landinu.
HRAÐSENDING
Hafðu samband og kynntu þér Kölnarflugið nánar. Fyrsta vél fer 20. október nk.
Starfsfólk Hraðflutningsdeildar gefur allar nánari upplýsingar.
n
r.....
/
j
í /
A\
k
j
Góð Ijósmynd er lífstíðareign sem með tímanum getur reynst
ómetanleg. Ef þú veist hver þessi upprennandi fegurðar-
drottning á myndinni er skaltu rita nafn hennar á svarseöilinn.
Merktu hann þér og skilaðu honum til Kodak fagmanns.
Dregið verður úr innsendum svarseðlum 1. nóvember og fá
tíu vinningshafar barnamyndatöku í verðlaun.
10 BARNAMYN DATÖKUR
í VERÐLAUN!
Allir sem kaupa sér barnamyndatöku hjá Kodak
fagmanni fyrir 1. nóvember fá eina stækkun á
Ijósmynd (20 x 25 sm) í kaupauka.
Kodak fagmaður tekur ábyrgð á verkum sínum og ábyrgist ánægju viðskiptavina sinna.
Myndás Ijósmyndastofa
Aðalstrœti 33 400 ísafirði sími 456 4561
Ljósmyndastofa Péturs
Hólavegi 33 550 Sauðárkróki sími 453 6363
Ljósmyndastofa Páls A. Pálssonar
Skipagötu 8 600 Akureyri sími 462 3464
Nína Ijósmyndari
Grettisgötu 46 101 Reykjavik sími 551 4477
Ljósmyndastúdíó Höllu Einarsdóttur
Skólavegió 900 Vestmannaeyjum sími 481 1521
Nýmynd Ijósmyndastofa
Hafnargötu90 230 Keflavík sími421 1016
Ljósmyndastofa Oddgeirs
Borgarvegi 8 260 Njarðvík sími 421 6556
Ljósmyndarinn í Mjódd, Lára Long
Þarabakka 3 109 Reykjavík simi 557 9550
Svipmyndir / Fríður
Hverfisgötu 18 101 Reykjavík sími 552 2690
Ljósmyndstofa Sigríðar Bachmann
Garðastræti 17 101 Reykjavík sími 562 3131
Þátttökuseöill
Nafn
Heimillsfang
Sími
Svar viö spurningu
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA