Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Oddviti sjálfstæðismanna á Húsavík
Vill skoða sameiginlegt
framboð B- og D-lista
SIGURJÓN Benediktsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins á Húsavík, telur koma til greina að
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur bjóði
fram saman í sveitarstjómarkosningunum í vor.
Þetta hefur ekkert verið rætt við framsóknar-
menn enn sem komið er, en Stefán Haraldsson,
oddviti flokksins á Húsavík, segist ekld hafna
þessu fyrirfram.
„Eg hef sett fram þessa hugmynd. Því er ekki
að neita að ýmsar aðstæður hafa ýtt á að menn
skoði þetta í fullri alvöru. Minnihlutaflokkamir í
bæjarstjórn Húsavíkur em að renna saman í
eina fylkingu, að því er virðist. Ef menn em að
fara í kosningabaráttu með það að markmiði að
ná meirihluta og ætla ekki að starfa með öðram
þá er ekki óeðlilegt að keppinautarnir skoði
hvemig þeir geti bmgðist við,“ sagði Sigurjón.
Siguijón sagðist ekki hafa rætt þetta á form-
legum fundi í Sjálfstæðisfélagi Húsavíkur. Hann
sagðist hins vegar ætla að gera það og kanna
undirtektir. Ef þær yrðu jákvæðar sagðist hann
reikna með að leggja fram tillögu um að fram-
sóknarmönnum verði sent formlegt erindi um
viðræður.
Málið hefur ekki verið rætt
Sigurjón sagði að sjálfstæðismenn hefðu hafið
undirbúning fyrir komandi kosningar og hefðu
m.a. gert skoðanakönnun um fylgi við frambjóð-
endur.
Stefán Haraldsson sagði að engin umræða
um sameiginlegt framboð hefði farið fram meðal
framsóknarmanna á Húsavík. Hann sagðist
hafa heyrt af þessari hugmynd Sigurjóns, en
sagðist ekki sjá ástæðu til að bregðast við henni
með neinum hætti meðan ekki lægi fyrir hvort
einhver alvara lægi að baki. Aðspurður sagðist
hann ekki hafna hugmyndinni fyrirfram. Málið
væri einfaldlega órætt.
Framsóknarmenn em með þrjá bæjarfulltrúa
í bæjarstjóm Húsavíkur og mynda meirihluta
með tveimur sjálfstæðismönnum. I minnihluta
em þrír menn Alþýðubandalagsins og óháðra og
einn alþýðuflokksmaður.
Myndataka |
með aðstoð
lögreglu og
slökkviliðs i
NEMENDUM og kennurum
Menntaskólans í Reykjavík var
safnað saman fyrir utan skóla-
húsið í gærmorgun fyrir mynda-
töku fyrir skólablaðið.
Hugmyndaríkir ljósmyndarar
á vegum ritstjómar skólablaðs-
ins fengu lánaðan kranabíl
slökkviliðsins í Reykjavík og
létu hann hífa sig til lofts til að
geta fengið hentugt sjónarhom
á myndefnið. Lögreglan í
Reykjavík kom einnig til aðstoð- |
ar og stöðvaði almenna umferð
um Lækjargötu í þágu mynda-
tökunnar.
Ynrlæknir á Vogi segir skort á rýmum
fyrir skyndiþjónustu áfengissjúklinga
Allt að 300 sjúkl-
mgar á
„TIL okkar kemur oft fólk í and-
dyrið, örvita af drykkju, sem vill
leggjast inn og verðum við yflrleitt
að vísa því frá en þó kemur fyrir að
við tökum slíka sjúklinga beint inn,“
segir Þórarinn Tyrfingsson, yfír-
læknir á Vogi, sjúkrahúsi SÁÁ, í
samtali við Morgunblaðið. Hann
segir að á biðlista á Vogi hafi verið
allt að 300 manns en um þessar
mundir sé verið að skilgreina hann
nánar með tilliti til forgangsröðunar.
Allt að tveggja vikna bið
í meðferð
Þórarinn sagði að Vogur annaði
ekki þörf á þeirri skyndiþjónustu
sem iðulega væri þörf fyrir á höfuð-
borgarsvæðinu og sagði ástandið
hafa versnað frá árinu 1995. Fólk á
biðlista segir hann hafa verið skil-
greint þannig að sumir væm í mjög
brýnni þörf, aðrir í brýnni þörf og
enn aðrir í þörf. „Biðin getur verið
ein til tvær vikur hjá þeim sem em
að sækja um meðferð í fyrsta sinn
en lengri hjá þeim sem hafa verið
áður. Á Vogi em 60 sjúkrarúm og
eftir fyrstu meðferð þar era sjúkl-
ingar vistaðir ýmist á Staðarfelli,
Vík eða á göngudeild. Um tvö þús-
und innritanir eru á Vogi á ári
hverju. Þórarinn segir að um helm-
biðlista
ingur sjúklinga komi af sjálfsdáðum
eða fyrir brýningar fjölskyldunnar
en hluti hópsins kemur frá læknum
og enn aðrir koma eftir fyrstu dvöl
á öðmm spítala. Sagði Þórarinn hér
bæði um að ræða fólk í vanda vegna
áfengis og/eða annarra vímuefna.
Biðlisti líka
á Ríkisspitölum
Áfengis- og vímuefnasjúklingar
em einnig vistaðir á deildum Ríkis-
spítala og heimili Hvítasunnusafn-
aðarins, Hlaðgerðarkot, annast og
þjónustu við þá. Jóhannes Berg-
sveinsson, yfirlæknir á geðdeild
Ríkisspítala, tjáði Morgunblaðinu í
gær að meðferð færi fram á
nokkmm stöðum: Á deild 33A í geð-
deildarbyggingu Landspítala sem
væri 15 rúma afeitrunar- og fjöl-
kvilladeild, deild 32E sem væri
göngudeild, deild 16 eða Teigi þar
sem er dag- og kvöldmeðferð auk
10-12 rúma á sjúkrahóteli sem yfir-
leitt væm full, og á Gunnarsholti
færi fram langtímameðferð þar sem
dveldust að jafnaði 27-30 sjúklingar.
Yfirlæknirinn sagði reynt að hafa
biðlista sem allra stysta, enda væm
deildimar ekki stórar. Á ári hverju
fara nokkur hundmð manns í gegn
á deildunum samanlagt.
Morgunblaðið/Kristinn
Sjómannasambandið um hærri skiptahlut vegna olíuverðs
Lýsir lágkúrulegum
málflutningi LÍIJ
i
i
i
i
I
i
i
i
i
l
i
Blaðanefnd
lauk ekki
störfum
BLAÐANEFND þingflokkanna,
sem falið var að úthluta útgáfu-
styrkjum úr 130 milljóna króna
fjárveitingu til þingflokkanna, lauk
ekki störfum á fundi í gærkveldi
eins og stefnt hafði verið að.
Morgunblaðið náði ekki tali af
Kjartani Gunnarssyni, formanni
nefndarinnar, í gær en Egill Heið-
ar Gíslason, framkvæmdastjóri
Framsóknarflokksins, sem er einn
nefndarmanna, sagði að ákveðið
hefði verið að hittast að nýju á
fimmtudag og fara yfir málið.
Hann vildi ekki tjá sig um stöðu
þess að öðm leyti en því að vonandi
fengist niðurstaða á fimmtudag.
Eins og fram hefur komið hefur
Kvennalistinn gert ágreining um
það hvort Kristín Ástgeirsdóttir al-
þingismaður, sem sagði sig úr
Kvennalistanum, eigi rétt á 1.880
þúsund króna útgáfustyrk.
Tilbúinn
skíðasvæði
ísaQörður. Morgunblaðið.
LÍKT og aðrir landsmenn hafa
Vestfirðingar lítið orðið varir við
snjó það sem af er vetri. Flestir
þeirra era ánægðir með tíðarfarið
en aðrir, s.s. skíðaáhugamenn, era
orðnir þreyttir á ástandinu, enda
hafa þeir lítið sem ekkert getað
stundað skíðin í vetur.
Þrátt fyrir snjóleysið hafa
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
snjór á
Isfirðinga
starfsmenn skíðasvæðisins á Selja-
landsdal ekki gefist upp og hafa í
því sambandi fengið til liðs við sig
öfluga vél til framleiðslu á snjó.
Hefiir vélinni verið beint að þeim
stöðum við lyftur svæðisins þar
sem þörf er á miklum snjó, með
þeim árangri að nú hefur verið
hægt að opna svæðið almenningi.
SÆVAR Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands Islands, segir
málflutning LIU um hærri skipta-
hlut sjómanna vegna olíuverðs-
lækkimar lágkúmlegan. LIU taki
sögulegt lágmark skiptahlutar og
framreikni það til dagsins í dag.
Frá því samningar hafi verið gerð-
ir síðast, um mitt ár 1995, hafi
skiptahluturinn að jafnaði verið
mun lægri. Allt síðasta ár hafi
skiptahluturinn t.a.m. verið að
meðaltali 74,7%.
Sævar segir að þegar samningai-
vom undirritaðir 1995 hafi skipta-
hluturinn verið 76%. Þess vegna
megi allt eins halda því fram að
sjómenn hafi sætt um 8% lækkun á
launum á ámnum 1996 og 1997
þegar skiptahluturinn var að með-
altali 74,3% og 74,7%. Fyrir samn-
ingana 1995 komst skiptaverð
aldrei upp fyrir 76%. Þá var samið
um breytingu á dollaraviðmiðun og
segir Sævar það hafa leitt til þess
að sjómenn hafi í fjóra mánuði á
þriggja ára samningstímabili feng-
ið 77% skiptahlut.
Engin breyting
á kjörum sjómanna
„Framsetningin er lágkúraleg.
Breytingin á kjöram sjómanna
vegna olíuverðs er nefnilega engin
frá því síðustu kjarasamningar
vom gerðir. Jafnvel þótt tveir
fyrstu mánuðir þessa árs séu tekn-
ir með þá er fjarri lagi að ætla að
sjómenn hafi notið góðs af lækkun
olíuverðs. Ég veit ekki hvort sjó-
menn njóta nokkurn tíma 77% k
skiptahlutar fyrir febrúarmánuð
því það getur verið komið verkfall P
þá og skiptahluturinn kominn nið- |
ur í 72-73% vegna breytinga á olíu-
verði þegar um semst,“ sagði
Sævar.
1
i
\
i
L
Laugavegur
endurnýjaður
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt tillögu Innkaupastofn-
unar Reykjavíkurborgar um
að taka rúmlega 122,5 millj-
óna króna tilboði lægstbjóð-
anda, Istaks hf., í endumýjun
á Laugavegi milli Frakkastígs
og Barónsstígs.
Tvö fyrirtæki, ístak hf. og
Völur hf., tóku þátt í útboðinu,
sem var lokað, og er tilboð
ístaks 30,7% ýfir kostnaðar-
áætlun en tilboð Valar hf. 7%
hærra.