Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 7 6 ára maður dæmdur fyrir leiguakstur án leyfis HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt 76 ára gamlan mann fyrir að hafa á síðasta ári brotið lög um leigubifreiðir með því að aka far- þegum í leiguakstri án tilskilins atvinnuleyfis, en samkvæmt lagaákvæðum um aldurstakmörk leigubifreiðastjóra féll atvinnuleyfi mannsins úr gildi þegar hann náði 75 ára aldri. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa gerst brotlegur í sex tilgreind skipti og var hann dæmdur til að greiða 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs eða sæta átta daga varðhaldi hafi sektin ekki verið greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dóms- ins; Akærði, sem upphaflega fékk atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar árið 1965, var áður dæmdur sekur um samskonar brot 17. mars 1997, en ekki gerð refsing í það sinn. Sækjandi í málinu lagði áherslu á það við málflutning að öryggissjónarmið, þ.e.a.s. þeir hagsmunir almennings að gamlir menn væru ekki í leigubílaakstri, lægju að baki þeim lagaá- kvæðum um aldurstakmörk leigubifreiðastjóra sem ákært er samkvæmt. Slíkir almannahags- munir hlytu að ganga fyrir hagsmunum ein- stakra manna og einstakra stétta. Það aldurs- hámark sem hér væri um að ræða væri mjög hátt, allt að 75 ára aldri. Það væri ekki eins- dæmi að atvinnustéttum væri sett aldurshá- mark og nefndi hann sem dæmi flugstjóra og skipstjóra. Verjandi kvað atvinnuleyfi ákærða til leigu- bifreiðaaksturs njóta verndar samkvæmt 72. gr. stjómarskrárinnar nr. 33/1944, sbr. 10. gr. laga nr. 97/1995 og einnig 1. gr. I. viðauka, sbr. 14. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, lög nr. 62/1994 og hefði því ekki verið heimilt að fella úr gildi atvinnuleyfi hans til leigubifreiðaakst- urs með lögum um leigubifreiðir nr. 61/1995, sbr. áður lög nr. 77/1989. Þá væri ekki heimilt að mismuna bifreiðastjórum að því er varði nið- urfellingu réttinda vegna aldurs. Réttindi sem njóti stjómarskrárvemdar verði ekki skert nema með almennum lögum og að því tilskildu að tilteknar ástæður væm fyrir hendi. I dómi héraðsdóms kemur m.a. fram að með lögum nr. 77/1989 um leigubifreiðir, sem fella lög nr. 36/1970 úr gildi, sé í 1. mgr. 9. gr. kveðið svo á að atvinnuleyfi skuli falla úr gildi við 70 ára aldur leyfishafa, en samkvæmt 4. mgr. 14. gr. sömu laga má þó veita þeim sem era 66 ára eða eldri við gildistöku laganna heimild til að halda leyfi sínu í fimm ár til viðbótar að öðram skilyrðum laganna uppfylltum. Atvinnuleyfi verði þó ekki framlengt lengur en til 75 ára ald- urs leyfishafa, og þannig séu atvinnuréttindi leigubifreiðastjóra sem höfðu ótímabundið leyfi endanlega felld niður við greindan aldur leyfis- hafa. Fram kemur að sambærileg ákvæði um ald- urshámark sé að finna í lögum um skipulag á fólksflutningum með langferðabifreiðum nr. 53/1987, sbr. lög nr. 67/1995, og þannig hafi bæði leigubifreiðastjóram og langferðabifreiða- stjóram verið sett sambærileg skilyrði með lög- um. Ekki er fallist á það með ákærða að stórn- arskrárvarinn réttur hans hafi verið afnuminn á ólögmætann hátt. Dóminn kvað upp Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari. Af hálfu ákæravaldsins fór Þor- steinn Skúlason, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík, með sókn málsins, en verjandi ákærða var Brynjar Níelsson hdl. Framkvæmdastjóri hljóðvarps Fjórir sækja um stöðuna FJÓRAR umsóknir um starf framkvæmdastjóra hljóð- varps hjá Ríkisútvarpinu höfðu borist menntamála- ráðuneytinu síðdegis í gær en umsóknarfrestur um stöðuna rann út á mánudag. Umsækjendur era Freyr Þormóðsson, framkvæmda- stjóri í Bandaríkjunum, Hall- dóra Ingvadóttir, skrifstofu- stjóri á skrifstofu útvarps- stjóra, Margrét Oddsdóttir deildarstjóri menningarmála hjá Ríkisútvarpinu, og Sig- urður G. Tómasson, fyrrver- andi dagskrárstjóri Rásar 2. Menntamálaráðherra skip- ar í stöðuna á næstunni að fenginni umsögn útvarpsráðs. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson SPESSI gerir sig kláran fyrir eina veltuna. Spessi í konuleit ísafjörður. Morgunblaðið. LJÓSMYNDARINN Spessi, eða Sigurþór Hallbjörnsson, er um Jjessar mundir í konu- leit á Isafirði. Reyndar er Ijósmyndarinn ekki að leita að kvonfangi fyrir sjálfan sig, heldur í myndaseríu sem hann er að vinna að um kjarnakonur á Vestfjörðum. Milli mynda hefur Spessi æft listir sínar á kajak undir leiðsögn trúbadorsins Sigga Bjöms og vora meðfylgj- andi myndir teknar við það tækifæri í sundlauginni á Flateyri. OG hér er kappinn koniinn á hvolf undir vatnsborðið. 45% telja afbrot mjög mikið vandamál Fjöldi líkamsárása staðið í stað ÚR VIÐHORFSKÖNNUNUM 1989,1994 og 1997 Telur þú að afbrot séu mikið eða lítið vandamál hér á landi? [ ; Mjög lítið □ Frekar lítið I 1 Frekar mikið □ Mjög mikið 1989 I 1994 31% 12% 56% 1997 8% 47% Telur þú refsingar við afbrotum hér á landi of strangar, hæfilegar eða of vægar?_____________________ i Allt of 13 Helst til □ Hæfilegar □ Helst til □ Allt of vægar vægar refsingar strangar strangar Forstjóri Skeljungs Samningar oft tengdir heimsmark- aðsverði KRISTINN Bjömsson, forstjóri Skeljungs, segir algengt að útgerðar- félög hér á landi séu með samninga um oliukaup sem tengist beint heims- markaðsverði á olíu, og útgerðimar geti auðveldlega fylgst með því hvort verðið sem þær greiða fyrir olíuna sé ekki í takt við heimsmarkaðsverð á hverjum tíma. „Eg fullyrði að þeir samningar sem mörg fyrirtæki hafa gert við sitt olíufélag taka fullkomlega mið af þeim breytingum sem hafa orðið á heimsmarkaði, og ef menn halda öðru fram þá bara vita þeir ekki bet- ur,“ sagði Kristinn í samtali við Morgunblaðið. I Morgunblaðinu í gær var haft eft- ir Þórði Friðjónssyni, forstjóra Þjóð- hagsstofnunar, að þrátt fyrir að olíu- verð hafi lækkað um 35% frá því í jan- úar í fyrra til þessa dags hafi sú lækk- un ekki skilað sér inn í þjóðarbúið. Kristinn segir að breytingar hafi orðið á lögum um olíuverð þannig að nú þurfi ekki lengur að vera sama verð hvar sem er á landinu, og hann telji að það sé orðið mun algengara en menn geri sér grein fyrir að hinar einstöku útgerðir hafi samið um kaup og Igör á olíuvörum sínum við það ol- íufélag sem þær eiga viðskipti við, og einstök útgerðarfélög hafi mjög marga og misjafna samninga við sitt félag. Verðskrár aðeins viðmiðunarplagg Hann sagði að útgerðarfélög sæju það mætavel á samningum sínum við olíufélögin um kaup og kjör hvort þeir séu í takt við heimsmarkaðs- verðið. Hjá Skeljungi hefði til dæmis fyrirtækjum verið boðið upp á það að tengjast heimsmarkaðsverðinu beint, þannig að verðið á hverjum tíma mið- ist við heimsmarkaðinn eftir ákveðn- um formúlum. „Þetta höfum við boðið viðskipta- vinum okkar í langan tíma, og það að segja að þess sjái ekki stað þá er spumingin einfaldlega á hvað menn séu að horfa. Ef menn eru að horfa á einhverja opinbera verðskrá þá hef ég oft áður lýst yfir að slík verðskrá er ekkert annað en viðmiðunarplagg sem lagt er til grundvallar við form- lega breytingu á verði, en hefur ekk- ert gildi gagnvart einstökum útgerð- um. Þetta veit LÍÚ og getur stað- fest,“ sagði Kristinn. ÞEIM íslendingum hefur fjölgað mjög á síðustu árum sem telja að afbrot séu mjög mikið vandamál hér á landi og að sama skapi hefur þeim fjölgað sem telja refsingar við afbrotum allt of vægar. Þetta kemur fram í við- horfskönnunum sem Helgi Gunn- laugsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Islands hefur gert í sam- vinnu við Félagsvísindastofnun HI í þrígang á síðustu átta árum, nú síðast í nóvember síðastliðn- um, en frá þessu er skýrt í nýút- komnu hefti tímaritsins Lifandi vísindi. í könnuninni í nóvember 1997 töldu 45% aðspurðrá afbrot mjög mikið vandamál hér á landi, sam- anborið við 32% 1994 og 12% árið 1989. Þá töldu 52% refsingar allt of vægar hér á landi, en samsvar- andi hlutfall árið 1994 var 39% og árið 1989 21%. Að því er fram kemur í blaðinu hefur innbrotum, fyrst og fremst í bíla og fyrirtæki, fjölgað vera- lega, en fjöldi þjófnaða hafi ekki vaxið með sama hætti. Hins vegar hafi dregið úr annars konar auðg- unarbrotum, svo sem fjársvikum, skjalafalsi og tékkasvikum. Þá kemur fram að fjöldi líkamsárása og líkamsmeiðinga hefur staðið í stað á síðustu árum og frekar minnkað heldur en hitt. Fátt bendi til þess að fjöldi afbrota hafi farið veralega úr böndunum á síð- ustu árum og enn séu afbrot á Is- landi hlutfallslega fátíðari en í flestum vestrænum löndum. í rannsókninni kemur fram að ein hugsanleg ástæða þess að fólk hefur meiri áhyggjur af ofbeldi nú en áður sé sú að tilviljanakennd- ara og jafnvel grófara ofbeldi án sýnilegrar ástæðu milli ókunn- ugra hafi ef til vill fjölgað frá því sem var. Jafnframt kemur fram að umfjöllun fjölmiðla um afbrot sé mun meiri og jafnvel hasar- kenndari á þessum áratug en ára- tugina þar á undan. Jafnframt kemur fram að al- mennt séð hafi rannsóknir sýnt fram á að uppljóstranir brota og áreiðanleiki viðurlaga hafi að jafn- aði meiri fælni í för með sér gagn- vart afbrotum en eingöngu áhersla á hertar refsingar. f !. I f í I i f I » f. I ! I » » » I I i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.