Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
RTHRWir
HlíðarFjalli
- næstu 4973 árin!
Víð óskum til hamingju
þeim stálheppna Akureyringi sem vann
tœpar 45 milljónir í Víkingalottóinu
síðasta miðvikudag. Fyrir þá
upphceð er til dœmis hægt að kaupa
skíðaárskort til ársins 6971.
í kvöld er dregið í Víkingalottóinu
um tugi milljóna króna!
Fáðu þér miða fyrir kl. 17 í dag.
25
FÓLK í FRÉTTUM
ARFTAKI túlipanasláarinnar er
með lengri ermar en áður og
hægt er að fá pottlok í stfl.
FYRIRSÆTUR frá Eskimo
Models sýndu ullarlínuna sem
er hönnun á bæði kynin.
'
SUMAR peysurnar er hægt að
fá með treflum, vettlingum og
húfum í stfl.
VIÐ seljum mest hérna heima
í ferðamannaverslunum en
ég er að markaðssetja flík-
urnar þannig að við getum selt þær
í verslunum sem Islendingar versla
í. Ég held því fram að það séu
margar peysur í línunni okkar sem
eiga ekki síður erindi inn á íslensk-
an markað fyrir hinn almenna neyt-
anda. Þetta er ekki allt bara fyrir
ferðamennina en okkur gengur
hálfilla að koma íslensku ullinni inn
í þær verslanir sem eru með fatnað
fyrir dömur og herra,“ sagði Anne
Helen Lindsay hjá M.A. Eiríkssyni
hf. sem selur ílestum verslunum á
Islandi, sem tengjast ferðamanna-
iðnaðinum, ullarfatnað.
Fyrirtækið selur einnig á erlenda
markaði og þá helst til Þýskalands
og Japans. „Við seljum töluvert af
hestapeysum til Þýskalands sem má
líklega rekja til áhugans á íslenska
hestinum þar, en á öðrum mörkuð-
um er ekkert sérstakt munstur eða
snið sem er vinsælla en annað,“
sagði Anne Helen. „Við erum að
reyna að efla útflutningin hjá okkur
því við þurfum á því að halda. Það
er ekkert íyrirtæki sem lifir á ferða-
mönnum 3 mánuði á ári. Við erum
því alltaf með hugmyndir og að-
gerðir til að efia útflutninginn.“
Ásta Björnsdóttir hefur hannað
fyrir Floss-vörumerkið í nokkur ár
en ný lína er kynnt í upphafi hvers
árs. „Asta er mjög fær í að útfæra
sérstaklega flíkur sem eru svolítið
óvenjulegar. Til dæmis peysurnar
með dýralífsmjmdunum og slárnar
með stóru laufblöðunum sem eru
svolítið sérstakar. Þar hefur henni
tekist mjög vel upp. Þetta eru
skrautlegar flíkur en þær hafa
selst mjög vel,“ sagði Anne Helen.
„Fyrir utan nokkrar flíkur sem
seldust vel í fyrra er þessi línan al-
gjörlega ný af nálinni. Við höfum
aðeins reynt að breyta hönnuninni
svo hún höfði frekar til Islendinga
en þar á meðal eru nokkar einlitar
peysur."
JAKKAPEYSUR eru alltaf vin-
sælar en þetta abstrakt munstur
er nýjung og frávik frá blóma-
og bekkjamunstrum.
„Ekki hannað
einungis fyrir
ferðamenna
Tískusýning var haldin fyrir skömmu á ull-
arfatnaði sem er framleiddur undir merkinu
Floss. Um er að ræða íslenska hönnun og
framleiðslu fyrirtækisins M.A. Eiríksson hf.
VESTIN hafa verið vinsæl
en þessi tegund er til í
þremur litum.
HÖNNUÐINUM Ástu Björns- ÞESSI litríka peysa er afbrigði
dóttur þykir hafa tekist sérstak- af söluhæstu peysu fyrirtækis-
legavel við hönnun dýramynda. ins síðustu tvö árin.