Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 37.
1
«
I
«
«
)
«
«
!
«
«
«
«
«
Í
«
«
«
«
«
«
«
«
«
«
«
«
«
4
MINNINGAR
HALLDÓR MAGNÚS
SIG URGEIRSS ON
+ Halldór Magnús
Sigurgeirsson
fæddist í Hafnar-
flrði 27. október
1902. Hann lést á
Hrafnistu í Hafnar-
firði 8. nóvember
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Hafnarfjarðar-
kirkju 14. nóvem-
ber.
Við hjónin vorum
stödd á Kanaríeyjum
(Gran Canaria), er við
fregnuðum andlát móðurbróður
míns og ástkærs vinar um árabil,
sama dag og útför hans var gerð.
Okkur setti hljóð um stund. En mið-
að við það, sem á undan var gengið,
fann ég til nokkurs léttis vegna þess,
að er við heimsóttum hann á Hrafn-
istu, skömmu fyrir brottfor okkar af
landinu og í nokkur skipti áður, hafði
hann mörg orð um það, hversu leiður
hann væri orðinn á lífinu, sér í lagi
eftir að Magga, hans ástkæri lífs-
förunautur, var hrifin á brott frá
honum, í orðsins fyllstu merkingu,
því þegar hún varð nær ósjálfbjarga,
hálfblind og þekkti hvorki hann né
aðra, var hún færð á sérstaka um-
önnunardeild, einni hæð ofar. Eftir
það átti hann kost á að sjá hana
tvisvar á dag og halda í hönd hennar,
án nokkurra tjáskipta. Þessi Ijúfí og
fyrrum lífsglaði maður var skyndi-
lega orðinn bitur og fann lífinu allt til
foráttu, kaus helst að fá hinstu hvíld-
ina, eftir langa og ham-
ingjuríka ævi.
Fyrir mörgum árum,
er þau Magga bjuggu
enn á Norðurbraut 13 í
Hafnarfírði, þessu hlý-
lega og fallega heimili,
heimsóttum við hjónin
þau nokkuð oft,
fullsjaldan þó, en þar
var okkur ævinlega tek-
ið með hlýju viðmóti og
rausnarskap. Konan
mín hreifst af því, hve
allt var þar fágað og
snyrtilegt og áttu þær
Magga margt sameigin-
legt á þeim nótum. En eftir að þau
fluttu yfir á Hrafnistu var eins og fót-
unum væri kippt undan þeim, gátu
seint eða aldrei vanist breytingunni,
sem varð á högum þeirra. Nokkrum
sinnum hafði Dóri orð á því, að nær
hefði verið að leyfa þeim að vera
áfram á Norðurbrautinni og útvega
konu til að annast þau þar, jafnvel
hjúkrunarkonu, þá hefði þeim liðið
miklu betur. En það verður að segj-
ast eins og er, að húsið þeirra er illa
hannað fyrir mjög aldrað fólk, kjall-
ari, hæð og svefnherbergin uppi í
bröttu risi, en þangað upp er þröngur
og brattur stigi. Eg veit, að þau áttu
margar og ljúfar minningar frá þessu
húsi, sem Dóri hugsaði alltaf vel um,
alltaf bónað og pússað að innan og
vel málað að utan. Er hann var kom-
inn á níræðisaldur sást hann vera
einn að mála þetta bratta þak og
þótti þá flestum nóg um.
Bæði fyrir og eftir að Magga var
færð upp á efri hæðina heimsóttum
við hjónin þau nokkrum sinnum á
Hrafnistu og stöldruðum þar við
góða stund. Það var gaman að ræða
við Dóra um hvað sem var, hann var
margfróður um menn og málefni,
minnið var í góðu lagi og frásagnar-
gleðin slík, að ekki var hægt annað
en hrífast með. Þótti mér það þó
merkilegast, hversu minnisgóður á
öll mannanöfn hann var, alveg fram
tíl þess síðasta.
Fyrir allmörgum árum, á meðan
þau Magga bjuggu enn á Norður-
brautínni og hann hættur að aka bíl
sjálfur, sóttum við hjónin þau heim,
einu sinni á sumri, og ókum þeim um
öll Suðumesin og höfðu þau ákaflega
gaman af því, sér í lagi Dóri, sem
þekkti hvem hól, hvert moldarbarð,
hverja laut í hrauninu, jafnvel hveija
þúfu, síðan hann var drengur, en þá
vann hann með fóður sínum (afa
mínum) við að leggja fyrsta ökufæra
veginn, frá Hafnarfirði til Keflavík-
ur. Þá fræddi hann okkur um margt,
sem við vissum ekki áður, og var þá
sem við ækjum um ókunnar slóðir,
þótt við hefðum búið í Keflavík í
hartnær 40 ár.
Með þessum fátæklegu orðum
minnist ég ástkærs frænda míns og
góðs vinar, sem fyrr á ámm var æv-
inlega hrókur alls fagnaðar í afmæl-
is- og skímarveislum okkar hjóna.
Lengi munum við sakna nærvem
hans í okkar jarðlífi, en huggum okk-
ur við það, að andi hans mun ávallt
fylgja okkur, jafnt sem hans nánustu
ættingjum. Minningamar um þenn-
an ljúfa og ástríka frænda minn
munu alltaf ylja okkur um hjaita-
ræturnar.
Megi Dóri frændi hvíla í friði um
ókomnar aldir.
Sigurgeir Þorvaldsson,
Keflavík.
SIGRUN
FINNSDÓTTIR
+ Sigrún Finnsdóttir fæddist í
Skriðuseli í Aðaldal 19. jan-
úar 1920. Hún lést á Sjúkrahúsi
Reykjavfkur 6. janúar síðastlið-
inn og fór útför hennar fram
frá Áskirkju 13. janúar.
Fallin er frá yndisleg manneskja,
Sigrún Finnsdóttir. Sigrún lagði
ævinlega mikla áherslu á að búa
sérstaklega vel að fjölskyldu sinni.
Hún vildi alltaf allt fyrir alla gera,
vildi öllum vel og hallmælti aldrei
nokkurri manneskju.
Sigrún var ein besta vinkona
ömmu minnar, Sigríðar Guðjóns-
dóttur og kynntist ég Sigrúnu þeg-
ar ég var lítil stelpa í pössun hjá
ömmu. Ég minnist þeirra tíma þeg-
ar þær sátu tvær saman við eldhús-
borðið hennar Siggu ömmu, dmkku
kaffí og auðvitað var spáð í bolla.
Frágangur
afmælis-
og minn-
ingar-
greina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt, að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textameðferð og
kemur í veg fyrir tvíverknað. Þá
er enn fremur unnt að senda
greinarnar í símbréfi (569 1115)
og í tölvupósti (minning@mbl.-
is) — vinsamlegast sendið grein-
ina inni í bréfinu, ekki sem við-
hengi.
Auðveldust er móttaka svokall-
aðra ASCII skráa sem í daglegu
tali em nefndar DOS-texta-
skrár. Þá em ritvinnslukerfin
Word og WordPerfect einnig
nokkuð auðveld úrvinnslu.
Ég man að mér þótti þessar konur
stórmerkilegar, jafnvel göldróttar,
að hafa þessa kunnáttu að geta spáð
fram í tímann. Ég man líka eftir
heimsóknum með ömmu til Sigrún-
ar og alltaf var eitthvert góðgæti á
boðstólum. Það var líka alltaf svo
mikið líf og fjör heima hjá Sigrúnu,
enda áttí hún mörg börn og bama-
böm.
Ég hugsa að vinkonurnar hafi ver-
ið ánægðar með að Alli sonur Sig-
rúnar og Helga, dótturdóttir ömmu,
felldu hugi saman, en í dag em þau
gift og eiga saman þrjár yndislegar
dætur.
En nú emm við búin að missa
báðar þessar kjarnakonur, og er
það mikill missir fyrir þá sem eftir
sitja.
Kæra Sigrún, nú er komið að
kveðjustund, en það er huggun að
þú þarft ekki að þjást lengur. Það
er skrýtið að hugsa til þess að Sigga
amma skyldi birtast þér svo oft,
stuttu fyrir andlát þitt. En hún hef-
ur ömgglega viljað vera hjá þér
þegar þú kvaddir þennan heim og
viljað fylgja þér yfir í Himnaríki,
þar sem þú ert laus við allar þínar
þjáningar.
Elsku Alli, Helga, Guðrún, Heið-
dís og Heiðrún, þið hafið misst mik-
ið en minningin um yndislega konu
mun lifa að eilífu. Ég vil fyrir hönd
nánustu ættingja Helgu, votta fjöl-
skyldu Sigrúnar okkar innilegustu
samúð.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú munt
sjá, að þú grætur vegna þess, sem
var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.)
Minning þín lifir.
Helga Heiða Helgadóttir.
4
Eiginmaður minn,
SÆMUNDUR ÞÓRÐARSON
kaupmaður,
Merkurgötu 3,
Hafnarfirði,
er látinn.
Fyrir mína hönd og barna okkar,
Guðlaug Karlsdóttir.
4
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR K. GUÐMUNDSSON
bifreiðastjóri,
Skúlagötu 40,
Reykavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni þriðju-
dagsins 27. janúar.
Elín Vilhjálmsdóttir, Halldór Sigurðsson,
Erla Vilhjálmsdóttir, Friðbjöm Berg,
Ingibjörg Bettý Bustillo,
Vilhjálmur Ingi Halldórsson,
Svava Halldórsdóttir,
Karen Erla Kristófersdóttir.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
tengdamóðir og amma,
STELLA JÓNSDÓTTIR,
Faxabraut 66,
Keflavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans að morgni
laugardagsins 24. janúar.
Stella verður jarðsungin frá Landakirkju, Vest-
mannaeyjum, laugardaginn 31. janúar kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Benóný F. Færseth,
Jón Gísli Benónýsson, Annika V. Geirsdóttir,
Geir Jónsson,
Hafþór Benónýsson,
Sævar Benónýsson,
Óðinn Benónýsson,
Halldóra S. Hallbergsdóttir, Jón Ingólfsson.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÞÓREY BIRNA RUNÓLFSDÓTTIR,
Hjallaseli 55,
Reykjavík,
áður Hvassaleiti 12,
lést sunnudaginn 25. janúar sl.
Sigurður Guðmundsson,
Björg Sigurðardóttir, Ásgeir Einarsson,
Sigfríð Sigurðardóttir, Tómas Ólafsson,
Hjördís Sigurðardóttir, Óskar Björgvinsson,
Sævar Sigurðsson, Halldóra Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
HJÖRTUR BJARNASON
frá Stapadal,
Hlíðarvegi 8,
fsafirði,
lést mánudaginn 26. janúar sl.
Svanfriður Gísladóttir,
Hjördís Hjartardóttir, Viðar Hjartarsson,
Sigurður B. Hjartarson, Hilmar Hjartarson,
Gísli Hjartarson.
+
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi,
GÍSLI ÁRNASON,
Garðatorgi 17,
Garðabæ,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi,
þriðjudaginn 27. janúar.
Helga Einarsdóttir,
Einar Gíslason, Hanna Ólafsdóttir,
Gfsli, Ásgeir og Helgi Einarssynir.
+
Eiginmaður minn,
GUNNAR B. LOFTSSON,
Víðilundi 20,
Akureyri,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Seli mánu-
daginn 26. janúar.
Sigríður Guðmundsdóttir.
+
Systir mín og frænka okkar,
GUÐVEIG BRANDSDÓTTIR
frá Fróðastöðum,
Kleppsvegi 120,
lést á Landakotsspítala mánudaginn 26. janúar.
Sveinbjörg Brandsdóttir
og systkinabörn.