Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 11 FRÉTTIR Fyrsta skrefíð stigið í sameiningu Neskaupstaðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar Samræmt útsvar og fasteignaskattar BÆJARSTJÓRNIR Neskaupstað- ar og Eskifjarðar og hreppsnefnd Reyðarfjarðarhrepps hafa ákveðið að samræma álagningu opinbeiTa gjalda þegar á þessu ári en sveitar- félögin sameinast eftir næstu sveit- arstjórnakosningar. Unnið er að undirbúningi sameiningar og segir Smári Geirsson, forseti bæjai-- stjómar Neskaupstaðar, að mark- miðið með vinnunni sé að láta hana ganga þannig fyrir sig að íbúamir verði sem minnst varir við breyt- inguna. Ekki auknar álögur Eftir að sameining þessara þriggja sveitarfélaga var sam- þykkt í almennri atkvæðagreiðslu 15. nóvember sl. komu sveitar- stjórnimar saman til fundar og kusu sameiningarnefnd til að sam- ræma reglur í sveitarfélögunum og undirbúa sameiningu. Er hún skip- uð þeim mönnum sem vom í undir- búningsráði sameiningarkosning- anna, Smára Geirssyni, Sigurði Freyssyni á Eskifirði og Þorvaldi Aðalsteinssyni á Reyðai-firði, auk framkvæmdastjóra allra sveitar- stjórnanna. Nefndin lagði til að reynt yrði að samræma strax álagningu útsvars og annarra gjalda í sveitarfélögun- um þremur. Var það samþykkt og verður útsvarið 11,97%. Það þýðir að útsvarshlutfall hækkar heldur í Neskaupstað frá því sem orðið hefði að óbreyttu en lækkar á Eskifirði og Reyðarfirði. A móti kemur að vatnsskattur lækkar í Neskaupstað. Ekki vannst tími til að breyta holræsagjaldi á Reyðar- firði til samræmis við hina staðina vegna þess að breyta þarf reglu- gerð og frestast það því um ár. „Meginstefnan er að samræma gjöldin eins og hægt var, án þess að auka álögur á íbúana. Tekjur sveitarfélaganna lækka frá því sem orðið hefði, það er að segja ef útsvar hefði verið hækkað í takt við það sem eðlilegt er talið vegna aukins kostnaðar við gmnnskól- ann og öðrum gjöldum haldið óbreyttum,“ segir Smári Geirsson. Þótt álagning skatta hafi verið samræmd og sameining verði fyr- ir mitt ár gera sveitarfélögin fjár- hagsáætlanir hvert fyrir sig eins og verið hefur. Sameiningarnefnd- in fer yfir áætlanirnar og sam- komulag er um að sveitarfélögin verði rekin með svipuðu sniði og verið hefur og að ekki verði farið út í neinar nýjar fjárfestingar, sem ekki hefur verið rætt um í sameiningarviðræðunum. Ljóst er að mikið átak er framundan í skólamálum á þess- um þremur stöðum til að einsetja grunnskólana og verður hafist handa við skólabyggingar í Nes- kaupstað og á Eskifirði á þessu ári. Að sögn Smára er fyrirhugað að bæjarstjórnirnar selji hluta af hlutabréfaeign sinni í sjávarút- vegsfyrirtækjum til að fjármagna framkvæmdirnar að verulegu leyti. Bæjarsjóður Neskaupstaðar á sem kunnugt er hlut í Síldar- vinnslunni hf. og bæjarsjóður Eskifjarðar á hlutabréf í Hrað- frystihúsi Eskifjarðar hf. Undirbúningur fyrir nýja sveitarstjórn Sameiningarnefndin mun að sögn Smára fara yfir allar reglu- gerðir sveitarfélaganna og sam- ræma þær og hún þarf að semja tillögu að samþykktum um stjórn hins nýja sveitarfélags. Vinna þarf að samræmingu þjónustugjalda og fara yfir starfsmannamál, bið- launarétt, lífeyrisrétt og málefni stéttarfélaga. Nefndin mun fara yfir samninga um þjónustu sem ríkið veitir á stöðunum og hún þarf að ræða samninga við trygg- ingafélög og endurskoðendur svo nokkrir þættir séu nefndir. End- anlegar ákvarðanir verða síðan teknar af nýrri sveitarstjórn eftir kosningar. „Það er ekki ætlun okkar að svipta nýja sveitarstjóm völdum og áhrifum, heldur að auð- velda henni að taka við stjórn- inni.“ Borgarstjóri um lóðaúthlutanir á kjörtímabilinu Nægilegl framboð á íbúðalóðum Á KJÖRTÍMABILINU hefur verið úthlutað samtals 956 íbúðum í Reykjavík, þar af hefur Reykjavík- urborg úthlutað 675 íbúðum en aðrir aðilar 281 íbúð. Ef einnig eru taldar með þær íbúðir, sem koma til úthlut- unar á þessu ári þá verða íbúðirnar samtals 1.425. Að sögn borgarstjóra hefur verið nægilegt framboð á íbúðalóðum á kjörtímabilinu í Reykjavík en Árni Sigfússon oddviti Sjálfstæðisflokksins, sagði á fundi um skipulagsmál í Reykjavík, að um 1.100 íbúðum hafi verið úthlutað á kjörtímabilinu og að í Kópavogi hafi á sama tíma verið úthlutað 1.700 íbúðum. Borgarstjóri sagði að enginn skortur væri á íbúðalóðum í Reykja- vík. „Við eigum talsvert eftir af lóð- um í Víkurhverfi, sem koma til út- hlutunar á árinu og í Staðahverfi er talsvert af lóðum. Auk þess er gert ráð fyrir úthlutunum í haust í Graf- arholtinu á næsta nýbyggingasvæði og á Þróttarsvæðinu en þar er gert ráð fyrir nýrri íbúðabyggð,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Það hefur verið nóg framboð á íbúðalóðum á þessu kjörtímabili og við höfum getað svar- að allri eftirspurn. Það eina sem hef- ur skort á eru fjölbýlishúsalóðir en það er að hluta til vegna þess að í Víkurhverfi fengu byggingaraðilar úthlutað svæði, sem þeir hafa verið að byggja upp í takt við eftirspurn og eins var í aprfl 1994 gefið fyrirheit um fjölbýlishúsalóðir í Staðahverfi til byggingafyrirtækisins Gunnars og Gylfa og þær íbúðir verða byggðar á þessu ári. Þannig að það var búið að gefa fyrirheit og vilyrði um mikið af fjölbýlishúsalóðum. Þeir bygginga- meistarar, sem staðið hafa utan við Víkurhverfið hafa því átt í brösum með að fá fjölbýlishúsalóðir." Fer eftir landi sem í boði er Borgarstjóri sagðist telja að út- hlutanir gengju í bylgjum hjá sveit- arfélögunum. „Það fer eftir því hvernig land er til íbúðabyggða," sagði Ingibjörg Sóh'ún. „Munurinn er sá að lóðirnar sem Kópavogur hefur verið að úthluta eru meira miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Eg hugsa að það hafi ráðið miklu um.“ Benti hún á að þær lóðir sem væru til ráðstöfunar í Reykjavík væru ekki allar á vegum borgarinn- ar. Á Kirkjusandi hafi verið byggð- ar íbúðir og við Sóltún, Skúlagötu og Klapparstíg auk íbúða á vegum námsmannasamtakanna við Kenn- araháskóla íslands og Háskóla ís- lands og í Bryggjuhverfi í Grafar- vogi stæði til að reisa íbúðh' á árinu. „Það eru aðilar með þessar lóðir sem hafa fengið landnotkuninni breytt og byggt íbúðarhúsnæði," sagði hún. „Það verður að telja þær með líka því það er ekki sjálfsagt að allar lóðir séu á okkar vegum.“ Borgarráð Rúmar 81,6 milljónir fyrir Háteigsskóla BORGARRÁÐ hefur samþykkt til- lögu stjórnar Innkaupastofnunar um að taka rúmlega 81,6 milljóna króna tilboði Völundarverks hf. í viðbyggingu við Háteigsskóla. Tólf tilboð bárust í verkið og er tilboð Völundarverks hf. 75,39% af kostnaðaráætlun hönnuða. Næst- lægsta boð átti G-Verk hf., sem bauð 78% af kostnaðaráætlun, og þriðja lægsta boð kom frá Járn- bendingu ehf., sem bauð 81,17% af kostnaðaráætlun. Aðrir sem buðu voru Múr- og málningarþjónustan Höfn ehf., 87,31% af kostnaðaráætl- un, Eykt ehf., sem bauð 87,33%, ístak hf. bauð 89,19%, Ástmar Örn Arnarsson bauð 89,33%, Ástré ehf. bauð 89,83%, Magnús og Steingrím- ur ehf. buðu 90,71%, Húsanes ehf. bauð 92,90%, íbyggð ehf. bauð 95,69% og Þon’aldur Gissurarson bauð 100,91%. ------W-------- Vitni vantar LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eftir vitnum að óhappi sem varð við Shell-bensínstöðina á Reykjanes- braut miðvikudaginn 21. janúar sl. um klukkan 16.30. Svörtum Peugeot 406-bfl var ekið norður götuna og kom vörubfll úr gagnstæðri átt. Fauk spýtukubbur af vörubílnum á fólksbflinn og urðu á honum nokkrar skemmdir. Þeir sem kynnu að hafa orðið vitni að óhappinu eru beðnir að hafa sam- band við lögregluna í Reykjavík. IHUGflCAGUSUNDtt Stilltu a BROADWAY! Hljómsveitin SKÍTAMÓRALL leikur fyrir dansi AÐALSTÖDIN 14 manna hljómsveit undir stjórn Þóris Baldurssonar. ^ Margir af helstu \ söngvurum landsins koma f heimsókn. Kynnir er Jón Axel Olafsson. OPNUM FORMLCGA LAUGARDAGSKVOLDIÐ 31. JANUAR MEÐ NÝJU NAFNI. VERID VELKOMIN Á NÝJAN SKEMMTISTAD! HÓTEL ISLANDI Sýning allar helgar. Miða- og borðapantanir í síma 533 1100. Verð 4.900, matur og sýning. 2.200, sýning. 1.000, dansleikur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.