Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 36
t36 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR Styðjum Guðrúnu * Agústsdóttur í fyrsta sætið VIÐ Guðrún eram búnar að þekkjast lengi. Við unnum m.a. saman í Rauðsokka- hreyfingunni. Þar var t.d. sett fram krafan um næg og góð barna- heimili fyrir öll börn og **eíengum við að heyra það ijóst og leynt að við vildum bara hafa börn- in á stofnunum af því að við nenntum ekki að passa börnin okkar. Nú í dag er sem betur fer búið að viðurkenna þessa kröfu okkar og mikið átak hefur verið unnið einmitt síðastlið- in fjögur ár af Reykjavíkurlistanum til að koma þessu sjálfsagða máli til betra horfs. Enginn efast lengur um Reykj avíkurlistinn w þarf á því að halda, segir Sigríður Kristins- dóttir, að fólk með reynslu sé í fararbroddi á listanum. að leikskólar séu nauðsynlegar upp- eldisstofnanir fyrir börnin okkar. Guðrún var í stjóm og samninga- nefnd Starfsmannafélags ríkisstofn- "tina á áttunda áratugnum. Þá var mikil gerjun í jafnréttismálum kvenna í stéttarfélög- unum, en mjög fáar konur áttu þá sæti í stjórnum og nefndum innan samtaka launa- fólks. Því var mjög erfitt fyrir þær konur, sem þar störfuðu, að koma fram með sjónar- mið kvenna á þeim ár- um. Þessi verkefni leysti Guðrún vel af hendi og víkkaði sjón- deildarhring þeirra sem störfuðu á vett- vangi þessara samtaka. Guðrún hefur einnig starfað í Kvennaat- hvarfinu. Það er stofn- un sem var umdeild á sínum tíma en hefur nú sýnt og sannað tilverarétt sinn. Eins og kunnugt er hefur Guð- rún setið um árabil í borgarstjórn Reykjavíkur og unnið þar gott starf enda þekkir hún borgarmálin út og inn. Þessi upptalning er aðeins lítið brot af því sem Guðrán hefur unnið við en alstaðar, þar sem hún hefur starfað, hefur hún starfað með það að leiðarljósi að jafna rétt kvenna og karla og það er enn þörf á að vinna að frelsis- og jafnréttisbaráttu kvenna. Reykjvíkurlistinn þarf á því að halda að fólk með reynslu í þeim málum sé í fararbroddi á listanum. Styðjum Guðránu Agústsdóttur í fyrsta sætið. Höfundur er framkvæmdastjtíri Miðstöðvar fólks i atvinnuleit. Sigríður Kristinsdóttir Frumkvæði til framtíðar AÐ EIGA sé hugsjón virðist nær útdauð íþrótt. I dag virðist hverjum manni nægja að draga fram þær tekj- ur sem þarf til að borga símann, rafmagnið og mframflevta börnunum og í raun er það svo ær- inn starfi að ekki er hægt að ætlaset til meira af nokkurri manneskju. Mannlegu gildin gleymast í amstri hversdagsins og einn daginn stendur maður uppi andlega snauður og veltir því fyrir sér til hvers maður hafi staðið í þessu. Það stendur ekkert eftir. Það er þó enn til fólk sem rembist við að hafa mótandi áhrif á um- hverfi sitt, t.d. með þátttöku í stjómmálum. Endurnýjun og framfarir Prófkjör Reykjavíkurlistans er opið öllum og það er mikilvægt að sem flestir mæti til að móta framtíð borgarinnar, og þegar fólk gengur að kjörborðinu er mikilvægt að það HUGBÚNAÐUR FYRIR WINDOWS Einföld lausn á flóknum málum SKERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun geri sér grein fyrir því um hvað er verið að kjósa. Þegar þú kýst er mikilvægt að greiða þeim atkvæði sem era líklegastir til að móta stefnu til framtíðar, stefnu sem tekuð mið af þörfum einstak- lingsins en ekki hags- munum hinna fáu. Fólki sem er tilbúið að hafa framkvæði að skynsamlegri stefnu- mótun í borgarmálum. Hrannar Bjöm Arn- arsson er sá maður. Ábyrg stefnumótun Það vill oft brenna við að þeir sem standa í stjómsýslu borgarinn- ar gleymi amstri hversdagsins. Þeir muna ekki eftir því basli sem fylgir Hrannar Björn er maður, segir Kolbeinn Stefánsson, sem er líklegur til að móta stefnu til framtíðar. því að koma sér þaki yfir höfuðið og að ala upp böm og hafa enga tilfinn- ingu fyrir því hvemig er að vera ungur í íslensku samfélagi nútím- ans. Því er það sérlega mikilvægt að ungt fólk fjölmenni á kjörstaði í prófkjöri Reykjavíkurlistans og tryggi ungu fólki í framboði, eins og Hrannari Bimi, stuðning inn á lista Reykjavíkurlistans og inn í borgar- stjóm. Höfundur er formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Hevkjavfk. Kolbeinn Stefánsson 60. HOOGOVENS IVIOTIÐ Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN. RÖÐ: 1 Kramnik, Rússlandi 2.790 1 1 1 0 1/2 0 1/2 1/2 1 514 2.-5. 2 Nijboer, Hollandi 2.590 o i 0 0 1/2 1/2 1/2 1/2 y2 1 314 9.-13. 3 Adams, Englandi 2.670 0 1 1/2 0 0 1 1 y2 y2 414 8. 4 Gelfand, Hvíta-Rússl. 2.675 0 1 y2 1/2 1/2 1 1/2 y2 y2 414 6.-7. 5 Shirov, Spáni 2.710 1 1/2 1 1/2 1/2 0 1/2 y2 1 514 2.-5. 6 Timman, Hollandi 2.620 1/2 1/2 1 1/2 y2 1/2 1/2 1 1/2 514 2.-5. 7 Van Wely, Hollandi 2.605 1 /2 0 1/2 0 0 1/2 0 1/2 3 14. 8 Salov, Rússlandi 2.680 1/2 1/2 0 0 1/2 0 1 y2 314 9.-13. 9 Anand, Indlandi 2.770 1/2 1/2 1 1 1 0 1 1/2 y2 6 1. 10 Topalov, Búlgaríu 2.740 1/2 1/2 1 1 0 y2 1/2 1 0 5 6.-7. 11 Júdit Polgar, Ungvl. 2.670 0 1 1/2 1/2 % 1 1/2 1 1/2 514 2.-5. 12 Van der Sterren, Holl. 2.555 0 1/2 1/2 0 1 1 0 1/2 öl 314 9.-13. 13 Karpov, Rússlandi 2.735 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1/2 0 314 9.-13. 14 Piket, Hollandi 2.580 0 0 i/i 1/2 0 1/2 1/2 1 1/2 I 3 y2 9.-13. Karpov í kreppu SKAK Wijk aan Zee, Hollandi, 16.-31. janúar 1998 HOOGOVENS STÓRMÓTIÐ Anand tapaði fyrir Júdit Polgar en heldur samt naumri forystu. Kar- pov er heillum horfinn. STIGAHÆSTI keppandinn á mótinu, Rússinn Vladímir Kramnik, hefur ekki teflt af eins miklu öryggi og venjulega og tap- að tveimur skákum. Hann mætir Karpov í síðustu umferð og þá má búast við snarpri baráttu. Á Hoogovensmótinu hefur það óvenjulega gerst að sjálfur FIDE- heimsmeistarinn er sá eini sem ekki hefur unnið skák. Enginn keppenda er taplaus. Það má bú- ast við æsispennandi lokaumferð- um. Helmingur keppenda á ennþá möguleika á sigri. Við skulum iíta á tvær lærdóms- ríkar skákir frá mótinu. Júdit Polgar hefur verið frægust fyrir harðar sóknarlotur og snjallar brellur, en það var natni í rólegri stöðubaráttu sem færði henni sig- urinn yfir Anand. Hún náði valdi á d5 reitnum og tókst að koma ridd- ara þangað eftir miklar tilfæring- ar. Eftir tap í fyrstu umferð hefur hún teflt ijómandi vel á mótinu. Hvítt: Júdit Polgar Svart: Anand Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - a6 6. Be3 - e5 7. Rf3 - Be7 8. Bc4 - 0-0 9. 0-0 - Be6 10. De2 - b5 11. Bb3 - Bxb3 -12. axb3 - Rbd7 13. Hfdl - Dc7 14. Bg5 - Hfc8 15. Rel - Db7 16. Bxf6 - Rxf6 17. Rd5 - Rxd5 18. Hxd5 - Hc5 19. Hadl - Hxd5 20. Hxd5 - Hc8 21. c3 - b4 22. c4 - g6 23. g3 - Hc5 24. Hdl - a5 25. Rc2 - Kg7 26. Dd3 - Hc6 27. Re3 - Dc8 28. Kg2 - De6 29. De2 - Bd8 30. Rd5 - Hc5 31. De3 - Be7 32. Hd3 - Bd8 33. Dd2 - Hc6 34. Ddl - Kg8 35. h4 - Kg7 36. h5 - Bg5 37. Df3 - Hc8 38. Hdl - Hc6 39. De2 - Hc8 40. Hhl - Kg8 41. f3 - Hb8 42. Df2 - Hb7 43. hxg6 - fxg6 Sjá stöðumynd 1 44. c5 - dxc5 45. Dxc5 - Bd8 46. Hcl - Kf7 47. De3 - Kg7 48. Hc4 - Hd7 49. Dcl - h5 50. Hc6 - Hd6 51. Hc8 - Dd7 52. Dc5 - Kh6 53. Hb8 - Bf6 54. De3+ - Bg5 55. f4 - Sjá stöðumynd 1 exf4 56. Hh8+ og Anand gafst upp, því 56. - Kg7 er svarað með 57. Dd4+. Við skulum líta á fyrri tapskák Karpovs. Hann tefldi byrjunina mjög ónákvæmt, eyddi of miklum tíma á drottningarvæng og náði ekki að hróka. Salov refsaði hon- um fyrir þetta með glæsilegri tafl- mennsku: Hvítt: Salov Svart: Karpov Drottningarindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. Rf3 - b6 4. g3 - Ba6 5. Rbd2 - Bb7 6. Bg2 - c5 7. e4 - cxd4 7. - Rxe4? 8. Re5 - Rc3? 9. Dh5 - g6 10. Dh3 og hvítur vinnur, er þekkt byrjanagildra. 8. 0-0 - d6 9. Rxd4 - a6 10. Hel - Dc7 11. a4 - Rc6 12. Rxc6 - Bxc6 13. a5! - Hb8 Eftir 13. - bxa5 14. Rb3 - a4 15. Rd4 vinnur hvítur peðið til baka með yfirburðastöðu. 14. axb6 - Dxb6 15. He3! - Rd7 16. Hb3 - Da7 17. Hba3 - Bb7 18. b4 - Db6 19. Da4 - Be7 20. Bb2 - Bf6 Sjá stöðumynd 2 21. e5! - Bxe5 22. c5 - Dc7 23. Bxe5 - dxe5 24. Bxb7 - Hxb7 25. c6 - Rb6 26. Dxa6 - Dxc6 27. Rc4! - Hb8 28. Rxb6 - 0-0 29. Rc4 - De4 30. He3 - Dd5 31. Rxe5 - Hfc8 32. Dd3 og Karpov gafst upp. Skákþing Reykjavíkur Sjöunda umferð á Skákþingi Reykjavíkur var tefld sunnudag- inn 25. janúar. Línur eru lítið farn- ar að skýrast í baráttu efstu manna og það eykur enn á óviss- una að mörgum skákum var frestað á sunnudaginn. Frestuðu skákirnar verða tefldar þriðjudag- inn 27. janúar og áttunda umferð verður tefld á miðvikudag. Helstu tx.. . Júdit Polgar úrslit í sjöundu umferð urðu þessi: Sævar Bjamason - Jón V. Gunnarss. fr. Bragi Þorfinnss. - Dan Hansson 0:1 Bergsteinn Einarss. - Páll A. Þórarinss. fr. Helgi E. Jónatanss. - Stefán Kristjánss. 1:0 Davíð Kjartanss. - Sigurður D. Sigfúss. fr. Halldór Garðarss. - Kristján Eðvarðss. 0:1 Jóhannes Ágústss. - Sigurj. Sigur- björnss.^ 1:0 Vigfús Ó. Vigfúss. - Sigurbjörn Bjömss. 0:1 Magnús Magnúss. - Arnar E. Gunnarss. 0:1 Agúst Ingim.s. - Jóhann H. Sigurðss. 0:1 Hrannar Baldurss. - Halldór Pálsson fr. Röð efstu manna er þessi: 1.-2. Dan Hansson (2.205), Helgi E. Jónatansson (1.980) 6 v. 3. Jón Viktor Gunnarsson (2.475) 5'á v. og frestuð skák 4. -6. Bergsteinn Einarsson (2.175), Páll Agnar Þórarinsson (2.180), Sævar Bjamason (2.315) 5 v. og frestuð skák. 7.-14. Amar E. Gunnarsson (2.150), Bragi Þorfinnsson (2.235), Jóhannes Agústsson (2.215), Kristján Eðvarðsson (2.225), Sigurbjöm Bjömsson (2.180), Jóhann Helgi Sigurðsson (2.055), Baldur Möller (1.730), Eiríkur K. Bjömsson (1.990) 5 v. Það er ánægjulegt að sjá Dan Hansson standa sig svona vel á mótinu, en hann hefur lítið teflt undanfarin ár. Svipað má segja um Jóhannes Ágústsson, sem fyr- ir nokkrum árum var mjög virkur og vann ötullega að barna- og ung- lingamálum skákhreyfingarinnar. Margeir Pétursson Daði Örn Jónsson Félagsfundur Umsjónarfélags einhverfra UMSJÓNARFÉLAG einhverfra heldur almennan félagsfund fimmtudagskvöldið 29. janúar kl. 20.30 á Laugavegi 26, 4. hæð. Kristín Ásta Halldórsdóttir, for- stöðumaður heimilis einhverfra í Trönuhólum 1, og Kristinn Guð- mundsson, starfsmaður á sama heimili, munu kynna námsferð sem þau fóru til Belgíu í nóvember sl. Þar heimsóttu þau m.a. Opleid- ungscentrum sem er þekkingar- miðstöð í málefnum einhverfra og hefur getið sér gott orð. Þar fer fram þjálfun fagfólks í vinnu með einhverfa. Haldin eru styttri og lengri námskeið sem fólk sækir hvaðanæva úr heiminum. Einnig heimsóttu þau sambýli fyrir ein- hverfa, vinnustað og síðast en ekki síst foreldra- og hagsmunafélag einhverfra. Að kynningu lokinni verða al- mennar umræður og fyrirspumir. Kaffiveitingar verða á boðstólum á vægu verði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.