Morgunblaðið - 28.01.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 21
ERLENT
Brundtland
næsti yfir-
maður WHO
Genf. Reuters.
GRO Harlem Brundtland, fyrrver-
andi forsætisráðhen’a Noregs, var
tilnefnd næsti yíirmaður WHO,
Heilbrigðisstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, á fundi framkvæmda-
stjómar hennar í gær.
Brundtland, sem er 58 ára að
aldri, naut stuðnings vestrænna
ríkja, þar á meðal Bandaríkjanna,
sem standa undir fjórðungi út-
gjalda WHO, en frambjóðendur í
embættið voru fimm. Mun
Brundtland taka við af Japananum
Hiroshi Nakajima, sem verið hefur
yfírmaður WHO í áratug og lengst
af mjög umdeildur.
Endanleg ákvörðun í maí
Framkvæmdastjórn WHO er
skipuð 32 mönnum en ákvarðanir
hennar verður að leggja fyrir þing
stofnunar, sem haldið verður í maí.
Getur það samþykkt þær eða hafn-
að en um það síðamefnda em eng-
in dæmi.
Við fjórðu atkvæðagreiðslu í
stjórninni fékk Brundtland 18 at-
kvæði, einu meira en þurfti, en Sir
George Alleyne frá Barbados, yfir-
maður WHO í Vesturheimi, fékk
10 og Indónesinn Uton Muchtar
Rafei fjögur atkvæði. Aðrir fram-
bjóðendur vora Nafís Sadik frá
Pakistan og Ebrahim Malick
Samba frá Gambíu.
Stofnun í tilvistarkreppu
Brandtland, sem hefur orð á sér
fyrir skörungsskap, er þriðja vest-
ræna konan, sem hreppir hátt
embætti hjá Sameinuðu þjóðunum
á skömmum tíma. Mary Robinson,
fyrrverandi forseti Irlands, var
skipuð yfirmaður Mannréttinda-
nefndar SÞ á síðasta ári og
kanadíska konan Louise Frechette
var skipuð aðstoðarframkvæmda-
stjóri SÞ.
Vegna þessa er talið líklegt, að
Chilemaðurinn Juan Somavia verði
skipaður yfirmaðui- Alþjóðavinnu-
málastofnunarinnar, ILO, í mai-s
Gro Harlem Brundtland
og taki við af Belganum Michel
Hansenne.
WHO, sem verður 50 ára á þessu
ári, hefur afrekað ýmislegt um
dagana en vestrænir sendimenn
segja, að stofnunin sé nú í tilvistar-
kreppu og hafi misst það forystu-
hlutverk, sem hún hafði áður. Það
muni því koma í hlut Brandtlands
að bæta starfsandann og endur-
heimta fyrri virðingu og stöðu
WHO.
Gagnrýnendur stofnunarinnar
saka hana um skriffinnsku og bruðl
og benda meðal annars á, að af
3.700 starfsmönnum hennar sé
þriðjungurinn í aðalstöðvunum í
Genf, einni af dýrastu borgum
heims. Hafi rekstur þeirra kostað
35% af fjárlögunum íyrir 1997/98
en þau era rúmlega 60 milljarðar
ísl. kr.
Blair ræðir við
leiðtoga N-Ira
London, Belfast. Reuters.
TONY Blair, forsætisráðherra
Bretlands, hóf í gær viðræður við
forystumenn norður-írsku fiokk-
anna, sem taka þátt í friðarviðræð-
um í London, til að reyna að fá þá
til að fallast á nýjar tillögur, sem
hafa valdið deilum milli kaþólikka
og mótmælenda á Norður-írlandi.
Fyrr um daginn höfðu ríkis-
stjórnir Bretlands og Irlands lagt
fram nýjar tillögur sem miða að því
að koma friðarviðræðunum á skrið.
Flokkar kaþólikka fögnuðu tillög-
unum en stærsti flokkur mótmæl-
enda hafnaði þeim.
Bresk og írsk stjómvöld lögðu til
að fyrirhugað ráðherraráð írlands
og Norður-írlands fengi vald til að
taka ákvarðanir í ýmsum málum.
David Trimble, einn af leiðtogum
mótmælenda, kvaðst ekki geta fall-
ist á tillögumar en John Hume,
leiðtogi flokks kaþólikka, sagði þær
skapa „góðan grundvöll til frekari
viðræðna um völd og samsetningu
ráðsins". Gerry Adams, leiðtogi
Sinn Fein, stjómmálaflokks írska
lýðveldishersins (IRA), tók einnig
vel í tillögumar.
Sluppu naumlega
Kaþólskir starfsmenn leigubif-
reiðastöðvar í Belfast sluppu með
skrekkinn þegar byssumaður gerði
misheppnaða tilraun til að skjóta á
þá snemma í gærmorgun. Maður-
inn kom inn á stöðina um klukkan
fjögur og beindi byssu að starfs-
fólkinu. Þegar hann reyndi að
hleypa af stóð byssan á sér og mað-
urinn hljóp á brott.
Fulltrúi bifreiðastöðvarinnar
sagði að samkvæmt upplýsingum
lögreglu væri árásartilraunin enn
eitt tilræðið af hálfu sambands-
sinna gegn kaþólskum leigubíl-
stjórum. Ofbeldi hefur færst í auk-
ana á N-írlandi að undanförnu og
hafa tíu manns fallið, þar af átta
kaþólikkar, frá því um jól.
Dómar yfir
ábyrgðar-
mönnum
skíðastaða
Montigny-Ie-Bretonneux. Reuters.
NÍU börn og kennari þeirra, sem
fórast í snjóflóði í Frönsku Ölpunum
í vikunni sem leið, voru borin til
grafar í París í gær að vistöddum
þúsundum manna. Tveir franskir
dómstólar kváðu í fyrradag upp
dóma yfir nokkrum starfsmönnum
og ábyrgðarmönnum skíðastaða,
sem sakaðir vora um trassaskap og
manndráp af gáleysi.
Mál Daniel Fortes, rúmlega fer-
tugs leiðsögumanns, sem bar ábyrgð
á ferð hópsins þegar snjóflóðið féll,
er nú til rannsóknar og er búist við,
að hann verði ákærður fyrir mann-
dráp af gáleysi. Er hann nú í fang-
elsi, að sögn vegna eigin öryggis, en
það er annars ekki venja, að menn
sitji inni meðan á rannsókn af þessu
tagi stendur.
Slysið hefur kynt undir umræð-
um, sem staðið hafa í Frakklandi ár-
um saman, um að herða á reglum
um öryggi skíða- og fjallgöngu-
manna.
Mútumál í fjármálaráðuneyti Japans
Ráðherrann seg-
ir af sér í dag*
Tdkýó. Reuters.
HIROSHI Mitsuzuka, fjármála-
ráðherra Japans, mun segja af
sér embætti í dag vegna mútu-
máls, sem snertir starfsmenn
ráðuneytisins. Tilkynnti
hann það í gær eftir fund
með Ryutaro Hashimoto
forsætisráðherra. Er
þetta mál enn eitt áfallið
fyrir efnahags- og fjár-
málalífið í Japan.
Afsögn Mitsuzuka kem-
ur ekki á óvart en síðustu
tvo daga hafa japanskir
saksóknarar staðið fýrir
rannsókn og skjalaleit í
skrifstofum fjármálaráðuneytis-
ins. Eru tveir starfsmenn þess
gi-unaðir um að hafa þegið mútur
frá nokkram bönkum og látið þá
vita í tíma af komu eftirlitsmanna
frá ráðuneytinu.
Alitshnekkir
Er þetta hneyksli mikill álits-
hnekkir fyrir japanska fjármála-
ráðuneytið, sem hefur verið
næstum einrátt um að móta
stefnuna i peninga- og fjármál-
um. Aldrei áður hafa starfsmenn
þess verið handteknir fyrir við-
líka sakir og ástandið í ráðuneyt-
inu mun hugsanlega tefja fýrir,
að stjóminni takist að fá afgreidd
á þingi aukafjárlög íýrir fjárlaga-
árið fram til 31. mars, sem henni
er þó nauðsynlegt.
Örðrómur er um, að líklegur
eftirmaður Mitsuzuka verði Sohei
Miyashita, fyrrverandi
vai-narmálaráðherra, en
ýmsir telja það ekki ótrú-
legt þar sem það gæti gaft
slæm áhrif á fjármála-
mörkuðunum. Þar er beð-
ið eftir manni, sem getur
látið hendur standa fram
úr ermum.
Gerð var húsleit í gær
hjá bönkunum fjórum,
sem grunaðir era um að
hafa mútað starfsmönnum fjár-
málaráðuneytisins, en forsvars-
menn bankanna hafa raunar ját-
að á sig sök og beðist afsökunar.
Ekki ókunnir hneykslismálum
Talið er, að Hashimoto forsæt-
isráðherra muni gegna fjármála-
ráðherraembættinu út vikuna en
hann gegndi því 1991 þegar hann
neyddist til að segja af sér vegna
hneysklis er varðaði banka og
verðbréfafyrirtæki. Mitsuzuka er
heldur ekki ókunnur hneykslis-
málum þótt hann hafi sloppið
hingað til. Fyrir nokkra viður-
kenndi hann að hafa þegið fé frá
kaupsýslumanni, sem síðar var
handtekinn fyrir skattsvik.
Hiroshi
Mitsuzuka
YOGA#
Ásmundur
Jóga gegn kvíða
með Ásmundi Gunnlaugssyni
þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 10. feb.
Örfá pláss laus
Heildarjóga (grunnnámskeið)
Námskeið fyrir þá, sem vilja kynnast jóga.
Kenndar verða Hatha-jógastöður, öndun,
slökun og hugleiðsla.
Einnig er fjallað um jógaheimspeki, mataræði
o.fl. þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 3. feþ.
Leiðþeinandi Daníel Bergmann.
Jógatímar alla virka daga kl. 12.10, 17.15,
18.25 og á laugardögum kl. 10.30.
Tækjasalur og pólunarmeðferð.
Daníel
STUDIO
Hátúni 6a,
sími 511 3100
‘CÍiiláA-
verslun fyrir
líkama og sál
ÚTSÖLUŒLmÍI
LOKAD G IRNIR B
40% afsláttur
Skipholti 1 9
Sími: 552 9800