Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 10

Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 10
10 MIÐVTKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ásdís ÁSTA B. Þorsteinsdóttir, fyrsti varaþingraaður Alþýðuflokksins í Reykjavíkurkjördæmi, tók í gær fast sæti á Alþingi í stað Jóns Bald- vins Hannibalssonar, sendiherra Islands í Bandaríkjunum. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra á Alþingi í gær Frumvarp vegna lækniskostnaðar kynnt ríkisstjórn Alþingi kemur saman að nýju Ásta B. tekur sæti Jóns Baldvins ALÞINGI kom saman á ný síðdeg- is í gær eftir i-úmlega mánaðar hlé. Davíð Oddsson forsætisráðherra las í upphafí þingfundar upp úr for- setabréfi um að AJþingi skuli koma saman að nýju til framhaldsfunda. Bauð hann því næst forseta Al- þingis og alþingismenn velkomna til þingstarfa. Asta B. Þorsteinsdóttir, fyrsti varaþingmaður Alþýðuflokksins í Reykjavíkurkjördæmi, tók í gær fast sæti á Alþingi í stað Jóns Baldvins Hannibalssonar, sendi- herra Islands í Bandaríkjunum, sem afsalaði sér þingmennsku frá og með síðustu áramótum. Verður Ásta 15. þingmaður Reykjavíkur- kjördæmis, en Össur Skarphéð- insson 9. þingmaður Reykjavíkur- kjördæmis. Þá tók Ólafur Öm Haraldsson, þingmaður Framsóknarflokks, sæti sitt á Alþingi að nýju í gær. Auk þess tilkynnti forseti Alþingis mannaskipti í fastanefndum AI- þingis. Sighvatur Björgvinsson, þingflokki jafnaðarmanna, tók sæti í efnahags- og viðskiptanefnd, en hættir í sjávarútvegsnefnd og iðnaðarnefnd. Svanfríður Jónas- dóttir, þingflokki jafnaðarmanna, tók sæti í sjávarútvegsnefnd en hætti sem varamaður í utanríkis- málanefnd. Gísli S. Einarsson, þingflokki jafnaðarmanna, tók sæti í iðnaðarnefnd en hætti í um- hverfisnefnd og Ásta B. Þorsteins- dóttir tók sæti í umhverfisnefnd og verður jafnframt varamaður í ut- anrikismálanefnd. INGIBJORG Pálmadóttir heil- brigðis- og tryggingaráðherra lagði fram frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum um almannatrygging- ar á fundi ríkisstjórnar í gærmorg- un, en í því er lagt til að þeir sjúk- lingar sem hafi leitað til samnings- lausra sérfræðilækna vegna kjara- deilu þeirra fái læknisþjónustuna endurgreidda frá Tryggingastofn- un, í sama hlutfalli og áður, þegar samningar nást. Sjúklingar þeirra sérfræðilækna sem ekki semja við Tryggingastofnun fá hins vegar ekki endurgreitt, samkvæmt frum- varpinu. Þetta kom fram í máli heil- brigðis- og tryggingaráðherra við fyrir- spurn Jóhönnu Sigurðardótt- ur, þingflokki jafnaðarmanna, á Al- þingi í gær. Sagðist ráðhen-a gera ráð fyrir því að frumvarpið yrði lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Jóhanna taldi hins vegar að með því að koma ekki til móts við sjúk- linga þeirra lækna sem ekki myndu semja væri verið að bijóta lög um réttindi sjúk- linga. Auk þess væri verið að brjóta á stjórnar- skránni þar sem kveðið væri á um að öllum skuli tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika. Ennfrem- ur sagði Jóhanna, að óheimilt væri að mismuna sjúklingum eftir efna- hag. „Þess vegna tel ég að ráðherra þurfi að endurskoða þá afstöðu sína að sjúklingar sem leita til sérfræð- inga sem ekki nást samningar við skuli ekki fá neina endurgreiðslu,“ sagði hún. Ingibjörg Pálmadóttir Alþingi Oagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13.30 miðdegis. Fyrst eru teknar fyrir eftirfarandi fyrirspurnir til ráðherra. 1. Til utanríkisráðherra: Minnis- raerki um breska sjdmenn á Vestfjörðum. 2. Til heilbrigðisráðherra: Vasa- peningagreiðslur til lífeyris- þega. 3. Til heilbrigðisráðherra: Fjölda- takmarkanir við Háskdla Is- lands. 4. Til menntamálaráðherra: Fjöldatakmarkanir við lækna- deild Háskdla íslands. 5. Til menntamálaráðherra: Um- sdkn Friðar 2000 um leigu á skdlahúsnæði. Þá verða eftirfarandi mál á dagskrá: 1. Leiklistarlög. Frh. 1. umr. (At- kvgr.) 2. Framlialdsskölar. Frh. 1. umr. (Atkvgr.) 3. Nýbygging fyrir Framhalds- skdlann í Austur-Skaftafell- sýslu. Fj’h. fyri'i umr. (Atkvgr.) 4. Agi í skdlum landsins. Frh. fyrri umr. (Atkvgr.) 5. Styrktarsjöður námsmanna. Frh. fyrri umr. (Atkvgr.) 6. Miðstöð háskdla- og endur- menntunar á Austurlandi. Frh. fyrri umrJAtkvgr.) 7. Almannatryggingar. Frh. 1. umr. (Atkvgr.) 8. Þjönustugjöld í heilsugæslu. Frh. 1. umr. (Atkvgr.) 9. Almannatryggingar. Frh. 1. umr. (Atkvgr.) 10. Textun íslensks sjdnvarpsefnis. Fyrri umr. 11. Almannatryggingar 1. umr. 12. Fæðingarorlof. 1. umr. uiaumi stutt Lögbrot við gjaldþrot til kynnt lögreglustjóra LAGT hefur verið fyrir Alþingi frumvarp sem gerir ráð fyrir þeirri breytingu á lögum um gjaldþrota- skipti að skiptastjdra beri að til- kynna lögreglustjdra en ekki rfkis- saksdknara um atvik sem hann tel- ur geta gefið tilefni til rökstudds, gruns um að þrotamaður eða aðrir kunni að hafa gerst sekir um refsi- vert athæfi. í greinargerð með frumvarpinu segir að eðlilegt þyki að þeirri meginstefnu sé fylgt að kærum vegna refsiverðra brota sd beint til lögreglu og að skráning þeirra sd sem mest á einni hendi. „Sú skipan horfir til skilvirkari meðferðar mála þessarar tegundar," segir í greinargerðinni. Morgunblaðið/Ásdís Hugmyndir um fæðisgjald á spítölum gagnrýndar Ætla að ná 92 milljónum króna með gjaldinu Olafur • • Orn kom- inn heim MARGIR þurftu að ræða við Ólaf Örn Haraldsson, alþingis- mann Framsóknarflokksins, við upphaf þingfundar í gær, en OÍafur Orn er nýkominn af suð- urpdlnum ásamt félögum sinum Haraldi Ólafssyni og Ingþdri Bjamasyni. Ólafur G. Einarsson, forseti Álþingis, bauð Ólaf sér- staklega velkominn og minnti á að íslenskir ajþingismenn færu víða. Félagi Ólafs í Framsóknar- fiokknum, Jdn Kristjánsson for- maður fjárlaganefndar, var einnig ánægður með hvað vel Ólafi gekk á Suðurskautslandinu. ÁSTA R. Jóhannesdóttir, þingflokki jafnaðarmanna, gagnrýndi á Alþingi í gær, áform sem hún sagði nú vera uppi innan stjórna ríkisspítalanna um að leggja á svokallað fæðisgjald á sjúklinga spítalanna. Samkvæmt þeim hugmyndum ætti að leggja þúsund króna gjald á hvern sjúkling fyrstu tíu dagana sem hann lægi á sjúkrahúsinu. Sagði hún að sam- kvæmt þeim upplýsingum sem hún hefði undir höndum gerðu menn ráð fyrir því að fá um 92 milljónir króna í tekjur af þessu gjaldi. Forsætisráð- herra sagði í svari að málið hefði ekki verið rætt innan ríkisstjómarinnar og kvaðst ekki ætla að taka afstöðu til tillagna sem hann hefði ekki séð. Ásta hóf máls á þessum hugmynd- um í fyrirspurnartíma á Alþingi og spurði hvort þessar tillögur væru með vitund og vilja forsætisráð- herra. „Er það samþykkt stefna rík- isstjómarinnar að rukka sjúklinga um þúsund krónur á dag fyrir fæði sitt og það jafnvel þótt þeir séu fastandi," spurði hún meðal annars. Davíð Oddsson forsætisráðherra svaraði því til að þessi áform hefðu ekki verið rædd í ríkisstjórn. Þá spurði Ásta hvort forsætisráð- herra myndi beita sér fyrir því að koma í veg fyrir að „slíkur skattur yrði lagður á sjúklinga". Svaraði ráð- herra því til að það hefði aldrei gerst svo hann vissi tÖ að forsætisráðherra hefði haft afskipti af málum sem væru á undirbúningsstigi í stjórnar- nefnd ríkisspítalanna. Ásta fullyrti hins vegar að umrædd áform væru nánast komin á „afgreiðsiustig" í stjómarnefndinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.