Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.01.1998, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristj án STRARFSFÓLK Flugfélags íslands var í skemmtiferð í Eyjafirði um siðustu helgi og annar hópur frá félag- inu helgina áður. Oll afþreying var í höndum Sportferða og í Hlíðarfjalli var m.a. sett upp lauflétt vélsleða- keppni milli karla og kvenna. Mikill áhugi á vetrarferðum MIKILL áhugi er á vetrarferðum til Eyjaijarðar á vegum fyrirtækis- ins Sportferða. Að sögn Marinós Sveinssonar hjá Sportferðum hefur ferðamönnum fjölgað um einhver hundruð prósenta á milli ára en töluvert er um að sömu hóparnir komi ár eftir ár. Eyfirðingar hafa líka notið góðs af því hversu lítill snjór er á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni. Sportferðir eru með gistiþjón- ustu hjá Ferðaþjónustunni Ytri-Vík og Kálfsskinni á Árskógsströnd og stendur auk þess fyrir ýmiss konar ævintýraferðum á vélsleðum og jeppum. Einnig gefst ferðalöngum kostur á að fara í hvalaskoðun á Eyjafirði, svo og að kynnast svart- fuglsveiði og dorgveiði í gegnum ís, svo eitthvað sé nefnt. Óvissuferðir vinsælar Marinó sagði að alltaf væri verið að bæta við ferðum og auka fjöl- breytni, en mestur væri áhuginn á vélsleða- og jeppaferðum með dorgveiði. Einnig væri töluverður áhugi á svokölluðum óvissuferðum og það færðist í vöxt að fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu kæmu í slíkar ferðir norður með starfsfólk sitt. Hann nefndi að um aðra helgi væri t.d. von á tveimur stórum hópum í óvissuferðir norður. Erlendir ferðamenn hafa sér- staklega gaman af því að fara í jeppaferðir og þá jafnt sumar sem vetur. f vetur bjóða Sportferðir m.a. upp á jeppa- og vélsleðaferðir í Laugafell, þar sem m.a. er hægt að fara í bað í náttúrulegri laug, svo og vélsleðaferðir á Vindheimajökul, sem er í um 1.450 m hæð yfir sjó. Síðastliðið sumar var hópur af blindu fólki í skemmtiferð á Norð- urlandi á vegum Sportferða. Fólkið fór m.a. í hestaferð og á sjóstöng í Eyjafirði og í fljótasiglingu í Skagafirði. Ferðin vakti mikla at- hygli og fólkið skemmti sér mjög vel. Sagði Marinó að væntanlega yrði um að ræða frekari ferðir fyr- ir blinda og fatlaða nú í vetur. Markaðsátak Ferðamálamiðstöðvar Eyjafjarðar og Flugfélags Islands Akureyri, bær vetraríþrótta FE RÐ AMÁL AMIÐSTÖÐ Eyja- fjarðar og Flugfélag Islands hafa ákveðið að hafa með sér samstarf um sérstakt markaðsátak til að kynna þá fjölbreyttu möguleika sem Akureyri býður á sviði vetrar- íþrótta. Astæða þess að ráðist er í markaðsátakið nú er m.a. sú að mikið verður um að vera á næst- unni; Skíðalandsmót Islands fer fram í Hlíðarfjalli, alþjóðlegt skíða- mót verður haldið í Hlíðarfjalli, á Dalvík og í Ólafsfirði, líkt og und- anfarin ár má búast við að fjöl- menni sæki bæinn heim um páska til að stunda skíða- og skauta- íþróttir auk annarrar útivistar og þá má nefna að Andrésar andar- leikarnir verða haldnir í Hlíðar- fjalli í apríl. Óvenjugóð aðsókn hefur verið að skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli miðað við árstíma að sögn ívars Sig- mundssonar forstöðumanns og tel- ur hann að þrír þætti spili þar einkum inn í; lækkun lyftugjalda, árangur Kristins Bjömssonar og snjóleysi á skíðasvæðum víða um land. Góð færð á landi hefur í för með sér að mikið er um að að- komufólk skreppi á skíði til Akur- eyi’ar. Augljós ávinningur Thor Ólafsson, markaðsstjóri Flugfélags íslands, sagði sérstöðu Akureyrar mikla, einungis tæki 5- 10 mínútur að skjótast úr miðbæn- um og á skíðasvæðið, þar sem væri góð aðstaða, en í bænum væri fjöl- breytt afþreying í boði. Hann sagði félagið hafa augljósan ávinning af slíku samstarfi, flogið væri fimm sinnum í viku milli Reykjavíkur og Akureyrar og oftar suma daga, en janúar og febrúar væru að jafnaði rólegustu mánuðirnir í fluginu. „Það er mikill áhugi fyrir því, t.d. hjá starfsmannafélögum á höfuð- borgarsvæðinu, að fara í helgar- eða árshátíðarferðir til Akureyrar og mér sýnist að nokkur þúsund manns muni fari í slíkar ferðir í vetur,“ sagði Thor. Þórarinn E. Sveins- son dregur sig í hlé úr bæjarstjórn ÞÓRARINN E. Sveinsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar og bæjar- fulltrúi Framsóknarflokksins síðustu tvö kjörtímabil, hefur ákveðið að vera ekki með á framboðslista flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor, nema þá ef til vill neðarlega á listanum. Grýtubakkahreppur ver 26 milljónum króna í fjárfestingar á árinu Bygging sam- býlis fyrir aldr- aða tekur mest Morgunblaðið/Kristján STARFSMENN Olíufélagsins á fundi á Akureyri í vikunni. FJÁRHAGSÁÆTLUN Grýtu- bakkahrepps hefur nýlega verið samþykkt, en samkvæmt henni er gert ráð fyrir að tekjur hreppsins verði 54.968.000 krónur og eru rekstrargjöld áætluð 40.578.000 krónur, eða 73,8% af skatttekjum. Áætlað er að verja rúmlega 26 milljónum króna til fjárfestinga á árinu. Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri Grýtubakkahrepps sagði að bróð- urparturinn af þeirri upphæð sem ætluð væri til fjárfestinga færi í byggingu sambýlis fyrir aldraða sem nú væri unnið við, en í því húsi yrði einnig heilsugæslustöð. Bygg- ingin varð fokheld í nóvember síð- astliðnum og er nú unnið við inn- réttingar, en áætlað er að húsið verði tekið í notkun næsta haust. Alls mun hreppurinn verja 21.650.000 krónum í þetta verkefni á árinu, eða nánast öllum þeim fjármunum sem ætluð eru til fram- kvæmda. I sambýlinu verður pláss fyrir tíu manns og sagði Guðný að töluverður áhugi væri á því meðal eldri borgara í hreppnum að fá inni í nýja húsinu. Þar verður einnig heilsugæslustöð og greiðir ríkis- sjóður 85% af kostnaði vegna byggingar hennar, en sveitarfélag- ið afganginn. „í fjárhagsáætlun Grýtubakka- hrepps eru ekki nema 10 þúsund krónur settar undir liðinn óráðstaf- að. Helst þyrftum við raunar að nota hverja krónu tvisvar, en við ætlum að vanda okkur afskaplega vel þetta árið, enda má ekkert út af bregða," sagði Guðný. Styrkja framhaldsskólanema Gert er ráð fyrir í áætluninni að 500 þúsund krónum verði varið til að styrkja framhaldsskólanema úr hreppnum til náms, en á liðnu ári var samþykkt að styrkja þá íbúa sveitarfélagsins sem stunduðu nám í framhaldsskólum um 20 þúsund krónur hvern. „Við höfum líkt og aðrir á landsbyggðinni velt því fyr- ir okkur hvað það væri sem erfið- ast væri við að búa á svona stað og niðurstaða okkar varð sú að það væri dýrt að senda unglinga til framhaldsnáms. Þó upphæðin sem við gi’eiðum sé ekki há, teljum við að viðleitnin sé góð, við viljum styðja við bakið á okkar fólki í þessum efnum,“ sagði Guðný. Atvinna á Norður- löndum UNGU fólki á aldrinum 18 til 26 ára gefst nú tækifæri til að sækja um atvinnu á Norður- löndunum, svokallað „Nor- djobb“. Það er samvinnuverk- efni Norðurlandanna og að margra dómi eitt merkilegasta framlag norrænu félaganna til gagnkvæmra kynna ungs fólks á Norðurlöndun. Umsóknareyðublöð og nán- ari upplýsingar liggja frammi á Norrænu upplýsingaskrif- stofunni að Glerárgötu 26 á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 1. maí næstkomandi en því fyrr sem sótt er um, því meiri möguleikar. Starfsfólk ESSOá námskeiði STARFSMENN Olíufélagsins hf., Esso, á svæðinu frá Vopnafirði til Varmahlíðar, alls um 50 manns, komu saman á námskeiði á Foss- hóteli KEA í vikunni. Þar var m.a. farið yfir það helsta sem snýr að starfinu og að gagni má koma. Alls voru haldnir átta fyrirlestrar um hin ýmsu mál og var gerður góður rómur að. Áður hafa slík námskeið verið haldin á Suðurlandi og í Borgarnesi fyrir Vesturland og næst liggur fyrir að lióa umboðs- mönnum á höfuðborgarsvæðinu saman að sögn Sigurðar Sigfús- sonar svæðisstjóra. Síðar verður efnt til samskonar námskeiða fyrir starfsmenn á Austfjörðum og Vestfjörðum. Þórarinn var í þriðja sæti listans fyrir síðustu kosningar og í öðru sæti við kosningarnar þar á undan. Hann hefur setið í ýmsum nefndum og ráð- um á vegum flokksins, en hann hóf afskipti af bæjarmálum fyrir 14 ár- um og var um tíma formaður Fram- sóknarfélags Akureyrar. „Það má segja að nánast allur minn frítími síðustu 14 ár hafi farið í bæjarmálin og honum hefur að mörgu leyti verið vel varið," sagði Þórarinn, en hann vill nú rýma til á listanum fyrir nýju fólki. Hann er einn umsækjenda um starf forstjóra Osta- og smjörsölunn- ar en á sjöunda tug umsókna bárust um starfið. Umsóknarfrestur rann út um miðjan janúar en ekki hefur ver- ið ráðið í stöðuna. Þórarinn sagði að burtséð frá því hvort hann eða ein- hver annar hlyti stöðuna hefði hann nú ákveðið að draga sig í hlé. „Eg ætla ekki að lýsa því yfir að ég sé hættur öllum afskiptum af pólitík, ég held maður hætti aldrei í pólitíkinni, hún er lífið sjálft og á meðan maður er þátttakandi í því er ég til í allt,“ sagði Þórarinn. Að horfa á aðra stunda íþróttir Hann sagði aldrei að vita nema hann tæki á ný þátt í bæjarmálum og hann væri til í að vinna í nefndum væri til þess vilji innan flokksforyst- unnar. „Ég er sannfærður um að að því kemur að Eyjafjörður sameinist í eitt sveitarfélag og þá væri vissulega freistandi að taka þátt í stjórnmálun- um afta’,“ sagði Þórarinn. Framundan sagði hann að auk sinna aðalstarfa sem samlagsstjóri hjá Mjólkursamlagi KEA væri að sinna fjölskyldu og áhugamálum. Fyrir ut- an veiðistöng, hnakk og golfsett sem að mestu hefði legið óhreyft í bfl- skúrnum sagði Þórarinn að sitt aðalá- hugamál væri að horfa á aðra stunda íþróttir í sjónvarpi. „Og ég get vel hugsað mér að stunda það áhugamál í ríkari mæli en verið hefur.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.