Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 35

Morgunblaðið - 28.01.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JANÚAR 1998 85- AÐSENDAR GREINAR/PROFKJOR Veljum Sigrúnu Elsu í prófkjöri Rey kj avíkurlistans Sú kynslóð sem nú er að skapa sér sjálfstæð- an vettvang í samfélag- inu er að öllum jafnaði betur menntuð en fyrri kynslóðir. En jafnframt er það fyrsta kynslóðin íslenska á þessari öld sem ekki sér fram á betri hag en foreldr- arnir nutu, jafnvel verri. Það unga fólk sem nú er við nám eða er nýbúið að ljúka námi, ber gjarnan þungar námsskuldir; á oft erfitt með að kaupa sér húsnæði vegna reglna um greiðslumat og jafnvel þótt því hafi tekist að eignast húsnæði, getur verið erfitt að halda því vegna strangra reglna um tekjutengingar bamabóta og vaxtabóta. Þetta unga fólk þarf oft í reynd að greiða 70-90% jaðarskatt af tekjum sínum þegar skattur og bótaskerðing leggst saman. Tillitsleysi valdhafa við ungt fólk á sér helst hliðstæðu í framkomu þeirra við öryrkja og gamalmenni. Það er stundum eins og talið sé að aðeins séu í landinu sæmilega stöndugir einstaklingar á aldursbil- inu 35-65 ára, enda koma valdhaf- arnir jafnan úr þeim hópi. Gísli Gunnarsson Sameining jafnaðarmanna Sjálfstæðisflokkur- inn er valdaflokkur ís- lands. Hann ræður mestu í atvinnulífinu svonefnda og í lands- stjórninni. Það er að mati mínu ekki heppi- legt fyrir valddreifing- una í landinu að flokk- ur þessi fái aftur stjóm Reykjavíkurborgar í hendur. Sú er sannfæring mín og margra ann- arra vinstri manna að mikilvæg ástæða fé- lagslegs óréttlætis hér á landi felist í sterkri stöðu öflugs hægri flokks í landinu samtímis því sem vinstri öflin eru veik í landsmálum, mest vegna sundrungar. íslenska vel- ferðarríkið er sannarlega vanþróað miðað við önnur Norðurlönd þar sem stórir flokkar jafnaðarmanna hafa ráðið mestu um gang mála á þessari öld. Náið samstarf jafnaðarmanna með sameiningu sem markmið er því brýn nauðsyn í íslenskum stjómmálum. Kalda stríðinu er lok- ið og þar með mikilvægum ástæðum núverandi flokkaskipunar á vinstri vængnum. Námsmenn og Reykjavík í nútímasamfélagi leggur ungt fólk áherslu á aðbúnað bama og stefha sveitar- félaga í þeim efnum getur ráðið úrslitum um það hvar fólk kýs að festa rætur. Reykjavík hefur kappkostað að búa vel að námsmönn- um og nægir þar að nefna dagvistarmálin. Fleiri leikskólarými Uppbygging R-list- ans í dagvistarmálum hefur komið sér vel fyr- ir alla hópa þjóðfélags- ins sem eiga þöm á leikskólaaldri. A valdatíma D-list- ans áttu fæstir foreldrar rétt á að sækja um heilsdagsvist fyrir böm sín en það var eitt af fyrstu verkum okkar í meirihluta R-listans að breyta því. í stjórn Dagvistar bama höfum við líka lagt áherslu á sam- vinnu við samtök námsmanna í því skyni að tryggja hagsmuni þeirra. Núverandi meirihluti beitti sér fyrir því fyrir um tveimur ámm að náms- mannaiýmum var fjölgað um 30% og varð sú ráðstöfun til þess að koma að fullu á móts við eftirspurn meðal námsmanna. Þannig er hug- að að framtíðinni og ungu kynslóð- inni því í henni býr orka og sköpun- armáttur sém við viljum gjarnan virkja til góðra hluta. Rekstrarsamvinna Á sama tíma var einnig gerður samningur við FS um byggingu og rekstur leikskóla á háskólasvæðinu. Félagsstofnun stúdenta tók þátt í byggingu leikskólans Mánagarðs og er því eigandi að húsnæði hans ásamt borginni en tók jafnframt við rekstrinum. Með því móti sýndi borgin stúdentum traust til að taka við afar viðkvæmum rekstri og ekki er annað að sjá en þeir hafi leyst það verkefni vel af hendi. Nú eru að hefjast viðræður milli Dagvistar barna og Byggingafélags náms- Árni Þór Sigurðsson manna um byggingu og rekstur á leikskóla við Háteigsveg í tengslum við Kennara- háskólann og nýskipu- lagt stúdentahverfi þar. Lægst náms- mannagjöld Nýlega kannaði Dagvist barna leik- skólagjöld í 12 sveitar- félögum. Þar kemur í ljós að Reykjavík býr vel að námsmönnum því aðeins eitt annað sveitarfélag veitir námsmönnum þar sem maki er ekki í námi afslátt, og þar sem báðir foreldrar eru í námi eru gjöldin lægst í Reykjavík. Ef báðir foreldrar eru í námi er gjald fyrir Reykjavík hefur í verki sýnt námsmönn- um stuðning og skiln- ing sem Arni Þór Sigurðsson telur vert að taka eftir. heilsdagsvistun 9500 krymán. í Reykjavík. Hæst er gjaldið í Kópa- vogi, um 20 þúsund eða rúmlega 100% hærra en í Reykjavík. Sé annað foreldrið í námi er gjald fyrir heilsdagsvistun í Reykjavík 13.500 kr. Enn er gjaldið hæst í Kópavogi, eða 50% hærra en í Reykjavík. Þá er Reykjavlk eina sveitarfélagið fyrir utan Reykjanesbæ sem greið- ir niður dagvistargjöld hjá dag- mæðrum. Ekki fer á milli mála að Reykjavík hefur í verki sýnt náms- mönnum stuðning og skilning sem vert er að taka eftir. Höfundur er borgarfulltrúi og tek- ur þátt i prófkjöri R-Iistans. íslenska velferðarkerf- ið er vanþróað, segir Gísli Gunnarsson, miðað við önnur Norð- urlönd, þar sem stórir flokkar jafnaðar- manna ráða ferð. Eðlilegur starfstími stjórnmálamanna Ég hef starfað í stjómmálum sem almennur flokksmaður í Alþýðu- bandalaginu og fyrirrennurum þess í 45 ár. Á þessum tíma hef ég séð marga forystumenn í flokknum koma og fara. Flestir dvelja þeir of lengi í forystunni, fara of seint. Margir hafa byrjað stjórnmálaferil sinn sem efnilegt ungt fólk en breyttust síðan í nýjungafælna ein- staklinga. Sigrún Elsa er góður fulltrúi kynslóðar sinnar Sigrún Elsa Smáradóttir er 25 ára háskólamenntuð kona og tveggja barna móðir. Hún vakti fyrst athygli lesenda Vikublaðs Al- þýðubandalagsins þegar hún birti þar greinar um það óréttlæti sem kynslóð hennar er beitt í skiptingu lífsgæðanna. Hún skipaði sér í sveit Birtingar-Framsýnar, þess alþýðu- bandalagsfélags sem hefur frá upp- hafi haft sameiningu jafnaðarmanna á stefnuskrá sinni. Hún var einn af stofnendum Grósku, félags ungs fólks úr mörgum stjómmálaflokk- um, sem vinnur að sömu markmið- um. Hvarvetna hefur hún vakið at- hygli fyrir skýra hugsun, kreddu- leysi og réttlætiskennd. Ef við viljum fá nýtt fólk í stjóm- málin þarf að vanda valið. Það þarf bæði vit og vilja til að koma á breyt- ingum til góðs. Sigrún Elsa Smára- dóttir ber þessa eiginleika í nægum mæli. Höfundur er háskólakennari í sagn- fræði. Með áframhaldi og endurnýjun Reykj avíkurlistinn hefur nú stjómað borg- inni í tæp fjögur ár undir farsælli forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Þennan tíma hefur Sjálfstæðis- flokkurinn haldið uppi málefnalegri stjórnar- andstöðu. Oddviti sjálf- stæðismanna, Árni Sig- fússon, nýtur nú meiri vinsælda en áður, ef til vill fyrst og fremst vegna starfa sem for- maður FÍB. Einnig nýtur borgarstjómar- Svanur flokkur Sjálfstæðis- Krisfjánsson flokksins sterkrar stöðu flokksins á landsvísu. Skoðanakannanir hafa ítrekað sýnt að flokkurinn hefur stuðning nær helmings kjósenda. Þama er um að ræða fylgisaukn- Eg vil því hvetja til stuðnings við sjónarmið áframhalds og endur- nýjunar, segir Svanur Kristjánsson, við þau ------------------7--------- Steinunni V. Oskars- dóttur og Hrannar Björn ArnarsSon. eða minna en helm- ingur af flokksbundn- um ingu Sjálfstæðisflokksins upp á 10%-11% miðað við síðustu alþing- iskosningar. I borgarstjómarkosningum þyrfti Sjálfstæðisflokkurinn ein- ungis að bæta við sig um 3% at- kvæða frá síðustu borgarstjómar- kosningum til að vinna kosningarn- ar. Það er því ljóst að í hönd fer tví- sýn og erfið kosningabarátta og úr- slitin í vor langt frá því að vera ráð- in. Undir þessum kringumstæðum skiptir skipan framboðslista og síð- an kosningabaráttan sköpum um örlög framboðanna í vor. Sjálf- stæðisflokkurinn í Reykjavík hefur þegar stillt upp sínum lista. Um 6500 tóku þátt í prófkjöri flokksins sjálfstæðismönn- um. Prófkjörið varð því ekki bindandi. Kjömefnd flokksins hafði því óbundnar hendur varðandi upp- stillingu listans og á honum vora gerðar nokkrar breytingar. Reyndar hefur komið fram í DV og Degi að kjömefndin hugðist gera meiri breytingar á efstu sætum en raunin varð. 31. janúar næst- komandi verður prófkjör Reykja- víkurlistans. Miklu máli skiptir fyr- ir sigurlíkur listans í komandi kosningum að vel takist til. Stuðn- ingsfólk R-listans þarf að hafa sér- staklega í huga að það ræður end- anlegri skipan sjö efstu sæta list- ans. Þannig er hugsanleg hætta á að skipting kynja á listanum verði ójöfn. Einnig væri óheppilegt að*—- endumýjun listans yrði of lítil eða þá að enginn borgarfulltrúi nái endurkjöri. Æskilegasta niðurstaða próf- kjörs Reykjavíkurlistans er að mínu mati framboðslisti þar sem hlutur kvenna verður jafnhár karla samfara töluverðri endurnýjun. I ljósi þessara sjónarmiða vil ég sem stuðningsmaður Reykjavíkur- listans vekja athygli á Steinunni V. Oskarsdóttur borgarfulltrúa sem skilað hefur einstaklega góðu verki«* á kjörtímabilinu sem formaður Iþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur (ÍTR) og jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar. Jafnframt hef- ur einn nýr frambjóðandi, Hrannar Bjöm Amarsson, vakið sérstaka athygli mína fyrir frjóar áherslur á samtvinnun einstaklingsframtaks og eflingu lýðræðislegra stjórnun- arhátta í borginni. Ég vil því hvetja til stuðnings við sjónarmið áfram- halds og endurnýjunar, við þau Steinunni V. Óskai-sdóttur og Hrannar Björn Amarsson. Að lok- um vil ég hvetja allt stuðningsfólk til þátttöku í prófkjöri Reykjavík- urlistans á laugardaginn. Höfundur er prófessor. Virkara lýðræði! Eitt mikilvægasta verkefni stjómmála- manna er að vinna að lýðræðislegra stjórn- skipulagi og stuðla að aukinni virkni hins al- menna borgara. Þetta á ekki síst við í sveitar- stjórnarmálum þar sem nánasta umhverfi fólks ræður oftast mestu um líðan þess og lífshamingju. Á yfir- standandi kjörtímabili hafa verið stigin mörg gæfuspor í þessa átt og ferskir vindar leika um stjómkerfi borgarinn- ar undir styrkri stjórn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Þróunarverkefnið í Grafarvogi vísar veginn í því efni, en þar hafa íbúar komist til meiri áhrifa í gegnum Miðgarð, sem sér- staklega sinnir þörfum hverfisins. Hverfastjórnir og neitunarvald Við þurfum að hraða þessari þróun og færa meira vald og áhrif til hverfanna. Á næsta kjörtímabili vildi ég t.d. sjá sérstakar stjórnir í öllum hverfum borgarinnar þannig að tilraunaverkefnið í Grafarvogi verði víkk- að út og allri höfuð- borginni skipt upp í einingar, hverfi, sem fái töluverða sjálfs- stjórn. Ég sé fyrir mér að neitunarvald verði fært til íbúanna þannig að þeir geti ráðið úrslitum um álitamál í gegnum hverfafundi eða með allsherjaratkvæða- gi’eiðslum í viðkom- andi hverfi. Þetta á ekki síst við um við- kvæm skipulagsmál hverfanna. Spennandi tímar í lýðræðismálum Reykjavíkurborg fer stöðugt stækkandi. Ibúum fjölgar, ný hverfi eru að byggjast og margvís- leg ný verkefni era að færast á ábyrgð borgarinnar. Það er því fjölmargt í lýðræðismálum sem bíður nú frekari úrlausnar. Við verðum að nýta þá gríðarlegu möguleika sem opnast hafa í lýð- ræðismálum samfara auknum áhuga fólks á umhverfi sínu og Hrannar Björn Arnarsson Eitt mikilvægasta verkefni stjórnmála- manna er, að mati Hrannars Björns Arnarssonar, að vinna að lýðræðislegra stjórnskipulagi og stuðla að aukinni virkni hins almenna borgara. nýrri tækni. Sú skylda hvílir á okk- ur í Reykjavíkurlistanum að flýta þeirri þróun eftir áratuga stöðnun á einveldisárum Sjálfstæðisflokks- ins. Framundan era spennandf*" tímar og ef rétt er á málum haldið getur Reykjavíkurborg orðið í far- arbroddi þeirra samfélaga heims- ins sem þróa vilja nýjar leiðir í lýð- ræðismálum. Höfundur er óflokksbundinn fram- bjóðandi ( prófkjöri Reykjavíkurlist-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.