Morgunblaðið - 01.03.1998, Page 8

Morgunblaðið - 01.03.1998, Page 8
8 B SUNNUDAGUR 1. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ vegna þess sem býr innra með þér. Það þýddi ekkert fyrir mig að taka þátt í eltingarleiknum við fegurðar- stuðla því þá missti ég takið á raun- veruleikanum og það vildi ég aldrei gera. Þá væri ég komin út í eitthvað sem ég hef alltaf sagt að ég mundi aldrei gera.“ Og síðar segii' hún: „Samt skil ég hvernig sumt af þessu verðm- til. Það erfíðasta við að starfa við kvik- myndirnar og sérstaklega í Los Angeles er að þú lifir í einhverjum ævintýraheimi allar stundir. Allt er gert fyrir þig. Þú átt þér ekkert líf utan vinnunnar. Þegar svo tökum er lokið er þér ýtt aftur út í raunveru- leikann og þú þarft aftur að hugsa um þig sjálf. Ég hef mikla ánægju af því að komast út úr ævintýraheimin- um. Öðrum þykir það ekki.“ Skiptir sér ekki af miðasölunni „Ég lít ekki svo á að ég sé neitt sérstaklega góð eða aðlaðandi leik- kona,“ segir Winslet, „og ég er mjög meðvituð um það hvernig maður getur brunnið út í þessum bransa ... Og svo eru ungir leikarar svo of- boðslega uppteknir af því hvemig myndunum þeh-ra vegnar í miðasöl- unni. Græðgi er slæm. Ég er viss um að það er mjög auðvelt fyrir leikara að falla fyrir græðginni þegar þeir fá það sem þeir vilja á silfurfati og geta valið úr öllum réttunum. Einu sinni spurði Hugh Grant mig að því hvernig Himneskum verum hefði vegnað í miðasölunni. Ég sagðist ekki hafa hugmynd um það og hann trúði ekki sínum eigin eyrum.“ Nú þegar Titanic er myndin sem allir verða að sjá hef- ur kvikmyndatilboðunum rignt yfir Winslet. Hún hef- ur misst af nokkrum myndum á síðustu þremur árum sem hana hefur langað til að vera í eins og Rómeó og Júlíu og I deigl- unni. Einnig hitti hún einu sinni Woody Allen að máli vegna hlut- verks í mynd hans. „Það var mér mikill heiður að hitta Woody Allen,“ segii- hún. „Hann brosti og spurði mig nokkurra spurninga og tók af mér polaroidmynd." Næsta mynd hennar er „Hideous Kinky“ sem byggð er á skáldsögu eftir barnabarn Sigmunds Freud en í henni leikur Winslet hippamömmu sem flutti með börnunum sínum til Marokkó snemma á áttunda ára- tugnum. „Mér leiðist öll kaupsýslan í kringum kvikmyndirnar. Það er ein helsta ástæðan fyrir því af hverju ég vil ekki eingöngu fara með aðalhlut- verk í stórum og dýrum myndum eða leika sterkar kvenpersónur. Ég er hæstánægð með hlutverk í smæm myndum ef mér líkar hand- ritið, ef efnið er gott.“ Breska leikkonan Kate Winslet á eflaust nokkurn þátt í hinum stórkostlegu vinsæld- um Titanic um allan heim. Arnaldur Ind- riðason skoðaði feril hennar en hún lék í sinni fyrstu mynd 17 ára gömul og vakti strax athygli fyrir mikla leikhæfileika ’ ATE Winslet kemur úr leikarafjölskyldu í Bret- landi. Faðir hennar er leik- í bænum Reading. Móðir hennar er einnig leikari og er sjálf dóttir leikarahjóna. Kate var send í leiklistarnám 11 ára að aldri og 13 ára hafði hún fengið sitt fyrsta hlutverk. Hún hefur leikið alla tíð síðan. Fyrsta hlutverk hennar í kvik- myndunum var í nýsjálensku mynd- inni Himneskar verur eða „Heavenly Creatures" eftir Peter Jackson. 175 aðrar leikkonur sóttu um hlutverkið. Hún var aðeins 17 ára. Tævanski leikstjórinn Ang Lee var fljótur að ráða hana eftir þá mynd í hlutverk yngri systur Emmu Thompson í Vonum og væntingum eða „Sense and Sensibility" og eftir það kom „Jude“ eftir Michael Winterbottom og loks réð Kenneth Branagh hana í hlutverk Ófelíu í maraþonútgáfu sína af Hamlet. Þegar Winslet kom til álita í hlutverk Rósu í Titanic var leikstjórinn, James Cameron, ekki á því í fyrstu að hún væri réttí hlut- verkið því hún hafði verið í öllum þessum myndum sem gerðust í for- tíðinni áður. Hann leitaði að leikkonu sem aldrei hafði komið nálægt bún- ingadrama. En eftir að hún las upp fyrir hann skipti hann um skoðun og sér varla eftir því. Kate Winslet hef- ur reynst geyma hjartað og sálina í Titanic og á ekki minnstan þátt í því að hún er á góðri leið með að verða vinsælasta mynd allra tíma. Engar væntingar Hún er 22 ára og segist ekkert varða um það að vera orðin kvik- myndastjama. „Ég veit að ég hljóma hrokafull og kaldhæðin þegar ég segi það,“ hefur kvikmyndatímaritið Movieline eftir henni. „Ég er mest undrandi að vera komin í þá stöðu sem ég er í. Þegar ég fór fyrst að hugsa um að mig langaði til þess að gerast leikkona, og ég man ekki eftir mér öðruvísi, gerði ég mér engar væntingar um frægð og frama. Ég hafði gaman af að leika og hugsaði með mér að ég skyldi taka fyrir einn dag í einu og vona að ég héldi áfram að skemmta mér og öðrum við leik- inn. Á undanförnum tveimur árum ég hef haft óhemju mikið að gera og oft hefur það hvarflað að mér hvers vegna í ósköpunum ég er að fást við þetta. Það reynir mikið á mig and- lega. Ég er oft dauðþreytt. Ég sé aldrei fjölskyldu mína. Þetta er ekk- ert líf. Ég hef ekki einu sinni tíma til þess að öðlast lífsreynslu til þess að byggja á í mínu starfi. Það er ekki gott að hugsa þannig um starfið sem maður hefur valið sér.“ Hún talar ákaflega vel um flesta þá leikstjóra sem hún hefur unnið með. Nýsjálenski leikstjórinn Peter Jackson er í sérstöku uppáhaldi en hann náði öllu þvi besta fram í henni þegar hún lék táningsstúlku í Himn- eskum verum sem duflaði við sam- kynhneigð og varð á endanum morð- ingi. „Ég treysti strax Peter sem er eins og guðfaðir minn. Hann er mað- ur sem stendur með leikurunum sín- FJÖGUR góð hlutverk: Winslet í „Jude“, Titanic, Vonum og væntingum og Himneskum verum. um sama á hverju gengur.“ Það kom til álita að hún léki á móti Kenneth Branagh í ákaflega misheppnaðri mynd hans um Frankenstein en á endanum vildi hann hana ekki í hlut- verkið. Annað var upp á teningunum þegar hann gerði Hamlet. „Ég var miður mín að fást við Shakespeare," segir hún. „En Kenneth sagði við mig: Julie Christie óttast Shake- speare milljón sinnum meira en þú. Þá varð mér Ijóst að við öll, Julie Christie, Derek Jacobi og meh'a að segja Kenneth, vorum öll á sama báti. Ég róaðist aðeins við það.“ Samstarfíð við Cameron unum sem allar eru glæsilegar hor- renglur og sjá fegrunarfræðingum fyrir nægum verkefnum. Winslet hugsar öðruvísi, bústin og sælleg eins og hún er. „Lýtalækningar og brjóstastækkanir eru ágætar fyrir fólk sem er fyrir þvílíkt og því líður betur. En það gerir sérstaklega leik- ara að ævintýraverum sem eiga heima í ævintýralandi. Leiklistin snýst um að vera raunverulegur og heiðarlegur. Það er ekki úrslitaatriði fyrir áhorfendur hvort þú ert falleg eða hvort botninn á þér er stór eða lítill. Þeir verða að hrífast af þér Og svo er það Cameron en sögur af honum sem harðstjóra á tökustað eru margar og kunnar og svo hart gekk hann fram við gerð Titanic að litlu munaði að Winslet drukknaði. Hún hafði ekki farið fögrum orðum um leikstjórann og myndgerðina meðan á henni stóð. Hún lýsti þeim „raunum“ sem hún upplifði og sagði að hún „óttaðist“ það sem hún kallaði „skapofsa" leikstjórans. Og loks: „Suma daga vaknaði ég og hugsaði með sjálfri mér: Góði guð, láttu mig deyja!“ Hún hefur mjög linast í afstöðu sinni til leikstjórans eftir vinsældir myndarinnar og lofsamlegar um- sagnir gagnrýnenda. „Hann er snillingur og hann er bilaður," segir hún núna. „Snillingur hvað það varðar að fylgja eftir sannfær- ingu sinni og bilaður hvað varðar að ná því fram sem hann vill. En það ber að virða hann fyrir það sem hann gerir því það hlýtur að vera stórfenglegt að stjórna einhverju eins ofboðslega umfangsmiklu verki og kvikmyndun Titanic. Hann rugl- aði mig stundum í ríminu því ég vissi ekki hvað hann var að fara en svo rann það upp fyrir mér að maðurinn hefur ekki hugsað um annað í tvö ár og það hjálpaði mér að skilja hann.“ Það kostaði heilmiklar fómir af hálfu Winslet að leika í Titanic en hún er hæstánægð með útkom- una. „Mér fannst frábært að sjá myndina í allri sinni dýrð, það fylgdi því léttir og ánægja, hún kom mér svo gersamlega á óvart. Ég trúði því ekki að þetta væri ég þarna uppi á tjaldinu. Ég meina, ég kem frá smábæ skammt frá London, hvað er ég að gera í þessari mynd?“ Og hvað er hún að gera í Hollywood? Eitt af því sem vinnur með henni er að hún er gjörólík ungu Hollywoodleikkon- Hæst- ánægð með hlut- verk í smærri myndum ef efnið er gott; Kate Winslet. „Hvað er ég að gera í þessari mynd?“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.