Morgunblaðið - 18.04.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. APRÍL 1998 61 »
I DAG
A /\ÁRA afmæli. í dag,
laugard aginn 18.
apríl, verður fertugur Rún-
ar Antonsson, Morgun-
blaðinu á Akureyri,
Hvammshh'ð 5, Akureyri.
Rúnar verður að heiman í
dag.
BRIDS
Uinsjón (iuðmiiiidur
Piíll Arnarson
BYRJENDUM er kennt að
leggja alltaf mannspil á
mannspil. Reyndari spilarar
vita að það er ekki alltaf
rétt, en máttur vanans er
mikill. Zia Mahmood fékk á
sínum tíma verðlaun fyrir
heilræði þessu tengt: „Sá
sem leggur ekki á, hefur
ekkert til að leggja á!“
Vestur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ G52
V 1065
♦ Á106
♦ ÁDG7
Vestur Austur
♦ D8 ♦ 764
V Á72 lllll! V K983
♦ K98 Illlll ♦ G543
* K10963 Suður * 54
♦ ÁK1093
V DG4
♦ D72
+ 82
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull* Dobl Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
* Precision.
Spilið er frá annarri um-
ferð íslandsmótsins og víða
reyndu menn geim í NS,
fjóra spaða eða þrjú grönd.
Þorlákur Jónsson spilaði
flóra spaða eftir sagnirnar
að ofan. Hann fékk út lauf-
tíu og svínaði strax drottn-
ingunni. Spilaði svo spaða-
gosa úr borði og austur lét
lítinn spaða, umhugsunar-
laust. Þorlákur stakk þá upp
ás og lagði næst niður kóng-
inn. Drottningin féll fyrir
aftan, en Þorlákur taldi sig
ekki standa í neinni þakkar-
skuld við Zia. Vestur hafði
opnað í spilinu, en kom ekki
út með hjartaás, sem hann
hefði vafalaust gert með
AK. Ef austur átti annað
hjartamannspilið, hlaut
vestur að vera með spaða-
drottninguna fyrir opnun
sinni.
Þessi trompíferð tryggði
Þorláki tíu slagi, en hann
fékk þann ellefta með því
að þvinga vestur í láglitun-
um. Fyrst sótti hann siag á
hjarta, en síðan tók hann
síðustu trompin og neyddi
vestur til að fara niður á
tígulkónginn blankan.
Pennavinir
FIMMTÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á bók-
menntum og tónlist:
Maiko Shigemori,
f 2-1-40 Kitayoshizu-cho,
Fukuyama-shi,
Hiroshima,
720-0073 Japan.
Með morgunkaffinu
REYNDU bara ef þú þorir. EF blá Toyota bítur á hjá
þér, á ég hana.
HVENÆR lærir þessi heimski hundur að ég vil kaffi á
morgnana og te á kvöldin?
VEISTU ekki að rigning og kuldi gerir menn þunglynda
og hefur slæm áhrif á heilastarfsemina?
COSPER
TIL hamingju mamma. Þú getur aldrei giskað á
hvað ég er með handa þér.
STJÖRJVUSPA
eftir Frances llrake
HRÚTURINN
Aímælisbarn dagsins: Þú
átt auðvelt með að koma
fyrir þig orði, hvort heldur
er í ræðu eða riti. Þér vegn-
ar vel í starfi þar sem það
fær að njóta sín.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú hefur meira en nóg að
gera á heimilinu og þarft
ekki að gera allt einn. Láttu
aðra sjá um sitt.
Naut
(20. apríl - 20. maí) P+t
Þú hugsar um það eitt að
komast út og fá einhverja
tilbreytingu. Láttu það eftir
þér, annað má bíða.
Tvíburar . .
(21. maí - 20. júní) nA
Þú ert að glíma við eitthvað
nýtt og spennandi og skalt
ekki láta byrjunarörðug-
leika koma þér úr jafnvægi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú munt ekki sjá eftir því
að fara í stutta skemmtiferð
því þú kynnist áhugaverðu
og skemmtilegu fólki.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Eigir þú þess kost að kom-
ast í smáferðalag skaltu
ekki láta heimilisverkin
aftra þér. Þau geta beðið.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) vOSL
Ef þú lætur í minni pokann
gagnvart barni, muntu sjá
eftir því síðar. Vertu ákveð-
inn og stattu við orð þín.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Nú er rétti tíminn til að
velja sér tómstundaáhuga-
mál eða breyta til. Líkam-
leg áreynsla gerir þér gott.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú átt ekki í vandræðum
með að segja hlutina eins
og þeir eru og þarft að
segja vini þínum til synd-
anna.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) Sl
Þú hefur litið fjölskyldu-
meðlim hornauga vegna
löngu liðins máls, en nú er
tími til kominn að sætta
málin
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Þú ert á öndverðum meiði
við félaga þinn og nauðsyn-
legt að finna málamiðlun.
Fáðu hlutlausan aðila til
hjálpar.
Vatnsberi f
(20. janúar -18. febrúar) Gísffi
Þú ert ekki vanur að hlaupa
frá hlutunum og ástæðu-
laust að byrja á því nú.
Taktu afleiðingum gjörða
þinna.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) >4»»
Þrátt fyrir annir að undan-
fórnu ertu fullur af krafti
og kemur heilmiklu í verk.
Farðu snemma í háttinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Afmælismót Bridgesambands
Islands
VEGNA breytinga á upphaflegri
dagskrá hefur verið ákveðið að þriðja
lotan í tvímenningnum verði spiluð
fóstudaginn 24. apríl kl. 17.00-23.00.
Ný tímatafla lítur þá þannig út:
Tvímenningur:
1. lota fimmtudagur 23. apríl kl.
11.00-15.00
2. lota fimmtudagur 23. apríl kl.
17.00-21.00
3. lota föstudagur 24. apn'l kl. 17.00-
23.00
Sveitakeppni:
1,- 6. umferð laugardagur 25. april
kl. 11.0-20.15
7.-10. umferð sunnudagur 26. apríl
kl. 11.00-17.30
I tilefni afmælisins verður spilað um
4 gullstig í leik.
Verðlaun í mótinu verða alls kr.
1.000.000, þau skiptast þannig: Tví- menningur: A-úrslit
1. verðlaun 150.000
2. verðlaun 100.000
3. verðlaun 70.000
4. verðlaun 40.000
5. verðlaun 30.000
6. verðlaun Sveitakeppni: 20.000
1. verðlaun 200.000
2. verðlaun 120.000
3. verðlaun 80.000
4. verðlaun 60.000
5. verðlaun B-úrslit 40.000
1. verðlaun 50.000
2. verðlaun 30.000
3. verðlaun 20.000
Verðlaunaafhending fer fram í
Ráðhúsi Reykjavíkur sunnudag 26.
apríl kl. 18.30, þar sem Reykjavíkur-
borg býður þátttakendum til afmæl-
ismóttöku. Sérstök afmælissíða er á
heimasíðu BSÍ. Þar er líka hægt að
skrá sig í afmælismótin. Slóðin er
http:/Avww.islandia.is/@isbridge.
Ný sending
Stuttir og síðir kjólar, buxnadragtir, blússur
sloppar, sundbolir, inniskór
Hverfisgötu 50
1
Móttaka á notuðum STEINAR WAAGE
skóm til handa bágstöddum í verslunum okkar og öllum
Domus Medica 551 8519 Kringlunni 568 9212 PT"*I
gámastöðvum Sorpu I oppskórinn A Ingólfstorgi, sími 552 1212
Sálfræðistofa
Ég hef opnað sálfræðistofu,
Sálfræðiráðgjöfina í
Túngötu 5.
Bókun viðtala í
síma 897 3754.
Sálfræðileg ráðgjöf og
meðferð.
Ragna Ólafsdóttir
sálfræðingur.
Hefurðu kíkt í geymsluna nýlega? Er hún kannski
orðin full af kompudóti sem þú hefur engin not fyrir
og gæti gefið þér góðan pening í Kolaportinu.
.á dag fyrir þa sem selja kompudot um
TAKMARKAÐUQt
FJOLPI SOLUBASA
Hafðu samband og .......
tryggðu þér pláss í síma SM5WB
KOLAPORTIÐ