Morgunblaðið - 21.04.1998, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 1998 61
FÓLK í FRÉTTUM
Konur á
tónleikaferðalagi
hlátri í staðinn... það er kannski
einmitt þess vegna sem atriðið fékk
ekki að vera með, en við skemmtum
okkur að minnsta kosti konung-
lega.“
-Hittirðu einhvern tímann putal-
ingana?
„Já, við hittumst einu sinni í
fyrsta samlestrinum, en síðan fóru
þau í stífa fímleikaþjálfun fyrir
hlutverkin (ég slapp) og eftir það
varð ég bara að leika út í loftið,
ímynda mér lítið fólk og tala við
leikara sem voru ekki til staðar,
stundum voru settar litlar dúkkur
sem ég gat snúið mér að. Best gekk
mér þó að leika með ímynduðum
verum. Þess vegna fannst mér
mjög gaman að sjá lokaútgáfuna af
myndinni, að sjá hvernig þessu var
öllu púslað saman með alls konar
tölvutæknibrellum."
-Hvers vegna gerðist þú leikari?
„Ég hef ekki hugmynd um það,
bara einhver sýniþörf, þetta var ein
leið til að draga að sér athygli, á
skólaárunum ætlaði ég að verða
stjarna í amerískum fótbolta, en
svo skaddaði ég á mér hnéð og
þurfti að taka mér árs leyfí frá bolt-
anum og það var þá sem ég ánetj-
aðist leiklistinni og það varð ekki
aftur snúið, ég spilaði ekki fótbolta
eftir það, heldur fór í leiklistar-
deildina þaðan sem ég útskrifaðist
með Kathleen Turner og fleiri góð-
um leikurum.“
-Heldurðu að stærð þín hafí eitt-
hvað með það að gera að þú færð
mestmegnis að fást við grínmyndir?
„Já, ég er ekki í nokkrum vafa
um það og það er ekki alveg þannig
sem ég hefði viljað hafa hlutina, ég
myndi miklu frekar vilja vera
grannur og spengilegur og hafa úr
íleiri hlutverkum að velja, það er
ekki hentugasti hlutur í heimi að
vera í mínum stærðarflokki."
-Hvað er framundan?
„Ekkert, ég ætla að taka mér
smáfrí, það er nýbúið að ljúka tök-
um á nýrri Coen-bræðra mynd með
Jeff Bridges í aðalhlutverki, ég leik
afskiptasaman vin hans úr Víetnam-
stríðinu, þar áður lék ég í nýju Blús-
bræðramyndinni, þar sem ég leik
gaur sem vinnur á bar þegar
Elmwood sem er leikinn af Danny
(Dan Acroyd) kemur og tekur hann
undir sinn verndarvæng og gerir að
nýjum Blúsbróður.“
-Syngurðu í þeirri mynd?
„Einungis vegna þess að mér var
hótað lífláti og limlestingum."
Hér hlær John svo innilega að
honum svelgist á kaffinu sínu.
-Nú söngstu „Goodgolly Miss
Molly“ íKing Ralph af mikilli innlif-
un.
„Ég þoldi ekki það atriði, leik-
stjórinn lét mig gera það aftur og
aftur, ég held að við höfum tekið
það minnst fimmtíu sinnum og ég
hélt ég myndi fá hjartaáfall eftir
hverja töku þetta voru svo mikil
átök.“
-Núna eru Iloseanne-þættirnir
endursýndir á annarri hverri sjón-
varpsrás úti um allan heim, horfírðu
á þá?
„Já, reyndar, ég kíki á þátt og
þátt ef ég rekst á þá, ég horfði
aldrei á þættina þegar við vorum að
vinna að þeim, en núna finnst mér
gaman kíkja á þetta, það rifjast oft
upp íyrir mér hvað var að gerast í
mínu lífi þegar upptökurnar voru
gerðar.“
-Hefurðu einhvem tímann komið
til íslands?
„Nei, en það er aldrei að vita, ég
veit að Reykjavík er „svalasti"
staðurinn á hnettinum í dag og ég
hef heyrt að þið kunnið að
skemmta ykkur langt fram á nótt
og það er eitthvað sem ég kann vel
að meta.“
SÖNGKONURNAR Bonnie
Raitt, Shawn Colvin, sem er
með barni, Sarah McLachlan,
Paula Cole og Meredith Brooks
stilltu sér upp á blaðamanna-
fundi, sem var haldinn til að
kynna „Lilith Fair“ farandtón-
leikana, sem verða haldnir í
rúmlega 40 borgum Bandaríkj-
anna í sumar. Eingöngu söng-
konur koma fram á tónleikun-
um og verður hluta ágóðans
varið til góðgerðarmála í borg-
unum. Fyrstu tónleikarnir
verða í Portland í Oregon fylki
19. júní.
1 ■ ■
lapraine : :
1 SWITZERLAND
Lúxusandlitsbað w.v •» . ; I' •• - •
Ávaxtasýruandlitsbað
Kavíarandlitsbað H'* • ’ r'W|
Gjafakort ' 1
KYNNING
Á morgun kl. 14-18 (
Fallegur kaupauki '/
Kynntar verða I
spennandi nýjungar og veitt fagleg ráðgjöf. Vertu velkomin Hfl G N E S|§:.,!
1*11 SNYRTISTOFA
j Listiúisinu Laugardal j ^imi 588 5022
þó það sé óneitanlega
stór plús ^
HYUHDIM
aifWWvRfw
Tæknival
Skeifan 17 • 108 Reykjavík • Sími: 550 4000
Reykjavíkurvegur 64 • 220 Hafnarfj. • Sími: 550 4020
Opnunartími: 9-19 virka daga og 10 - 16 laugardaga
heldur líka öryggi
og þjónustu!
Hyundai 200 mmx
Intel Pentium 200 MMX • 32 mb SRAM vinnsluminni • 512 kb
pipeline Burst Cach skyndiminni • 2.1 GB Ultra DMA hardur diskur •
16 bita hljóðkort • 24 hrada geisladrif • 50W hátalarar • 2mb ATI Machó4
skjákort • 3,5" disklingadrif * Hnappaborð og Logitec mús • Windows 95
33,6 „fax/voice” mótald • Internetáskrift í 4 mánuði
Fermingar
tilboð
aðeins kr.