Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 1
100 SÍÐUR B/C/D
STOFNAÐ 1913
92. TBL. 86. ÁRG.
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Allsherjarverkfall hefst 1 Danmörku aðfaranótt mánudags
Nyrup segir laga-
setningu útilokaða
Kaupmannahöfn. Morgunhlaðið.
POUL Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, sagði síðdegis
í gær að stjórnin myndi ekki setja
lög til að koma í veg fyrir að allsherj-
arverkfall skelli á aðfaranótt mánu-
dags. Tilkynnti forsætisráðheiTann
þetta eftir fund með forystumönnum
deiluaðila, að því er Jyllandsposten
greindi frá í gær.
Nyrup sagði að danska alþýðusam-
bandið (LO) og samtök atvinnurek-
enda (DA) bæru meginábyrgð á þvi
alvarlega ástandi sem vofði nú yfir.
„Ríkisstjómin lætur sig ekki dreyma
um að gefa þeim átylíu til að víkjast
undan þeirri ábyrgð."
Stórir flutningabílar settu svip sinn
á götulífið í Kaupmannahöfn og öðr-
um bæjum í Danmörku í gær eftir
orðróm í morgunfréttum um að ný-
gerðir samningai- 400 þúsund laun-
þega hefðu líklega verið felldir. Vildu
greinilega sem flestar verslanir birgja
sig upp til vonar og vara. Niðurstaðan
Hafna af-
skiptum
af Kosovo
Belgrad, London. Reuters.
YFIRGNÆFANDI meirihluti
Serba hafnaði afskiptum erlendra
ríkja af Kosovo-deilunni í þjóðarat-
kvæðagreiðslu á fimmtudag. Kosn-
ingaþátttaka var um 73%, og
greiddu um 95% atkvæði gegn er-
lendum afskiptum. Stjómmálaleið-
togar á Vesturlöndum sögðu niður-
stöðuna marklausa og lýstu jafn-
framt yfir áhyggjum vegna átaka
sem hafa blossað upp að nýju í hér-
aðinu. Albönsk yfirvöld sögðu í
gær að um 1.000 manns hefði flúið
frá Kosovo yfir til Albaníu.
Albanir í Kosovo hunsuðu kosn-
ingamar, sem Slobodan Milosevic,
forseti Júgóslavíu, sambandsríkis
Serbíu og Svartfjallalands, boðaði
til. Fullvíst er talið að Milosevic
muni bera vilja þjóðarinnar fyrir
sig, er hann reynir að koma í fyrir
tilraunir Bandaríkjanna og ýmissa
Evrópuríkja til að fá Serba til að
bæta stöðu Albana í Kosovo.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, og embættismenn hjá
Atlantshafsbandalaginu (NATO),
sögðu í gær að Vesturlönd íhuguðu
að fjölga mjög í gæsluliði NATO á
landamæram Serbíu að Albaníu og
Makedóníu til að koma í veg fyrir
að átökin í Kosovo breiddust út.
Serbneski herinn felldi að
minnsta kosti nítján albanska
skæraliða á miðvikudag er til átaka
kom milli hermanna og um 200 AI-
bana sem reyndu að lauma sér yfir
landamærin frá Albaníu.
I gær létu serbneskur lögreglu-
maður og Albani lífið í árás al-
banskra skæruliða á lögreglustöð á
Klinicina. Þá sögðu sömu heimildir
að Albanir hefðu varpað sprengj-
um á þorp skammt frá vatnsveitu
sem júgóslavneski herinn ræður.
Flugleiðir reyna
að greiða úr
vanda farþega
kom hins vegai- kaupmönnum jafn-
mikið á óvart og stjómmálamönnum
og viðbúnaðurinn ekki sem skyldi.
Síðdegis tilkynnti sáttasemjari svo
að samningarnir hefðu verið felldir
með 56,84 prósentum. Ef ekkert
breytist skellur verkfallið á á mið-
nætti á sunnudagskvöld, og mun
lama þjóðlífið á innan við viku og
hafa áhrif langt út fyrir verkfalls-
hópana, meðal annars af því að bens-
ín verður ekki keyrt út.
Eftir hörð samningaátök og svo
samninga í mars virtist verkfallshót-
un gengin yfir. Samningamenn
verkalýðsfélaganna virðast hins veg-
ar ekki hafa áttað sig á mikilli óá-
nægju fólks eftir væntingar þess til
NEÐRI deild rússneska þingsins,
Dúman, staðfesti í gær útnefningu
Sergeis Kíríjenkos í embætti for-
sætisráðherra er greidd voru at-
kvæði um hana í þriðja og síðasta
sinn. „Þetta er sigur fyrir þig og
okkur sameiginlega," sagði Borís
Jeltsín, forseti, við Kíríjenko er úr-
slit lágu fyrir. Það var forsetinn
sem tilnefndi Kíríjenko til embætt-
isins. Hefði Dúman hafnað Kíríjen-
ko hefði Jeltsín neyðst til að leysa
þingið upp og boða til kosninga.
Urslit atkvæðagreiðslunnar voru
fráleitt tvísýn, Kíríjenko hlaut
stuðning 251 þingmanns en einung-
is 25 vora á móti. 39 sátu hjá. Þetta
er mun meiri stuðningur en Kíríjen-
samninganna. Afdrifaríkast er talið
að í stað heillrar fríviku í viðbót sem
krafist var fékkst víðast aðeins að
aðfangadagur yrði frídagur, sem
hann reyndar er þegar í mörgum
fyrirtækjum.
Ársæll Harðarson, svæðisstjóra
Flugleiða í Kaupmannahöfn, dregur
ekki fjöður yfir að vegna verkfallsins
muni flug félagsins um Kastrup
leggjast niður. Reynt verður að bæta
við aukaflugi á sunnudag og koma
farþegum til Bandaríkjanna um
Osló. Verkfallið hefur kostnað í fór
með sér bæði fyrir félagið og far-
þega. Farþegar þurfa sjálfir að bera
kostnað af að koma sér til annarra
flugvalla, ef þeir halda þangað eftir
að verkfall skellur á til að ná flugvél-
um félagsins, en Ársæll sagði að
Flugleiðir myndu reyna að greiða úr
vanda þeirra, sem vilja aflýsa ferð-
um sínum, þótt þeir séu með miða
sem félagið endurgreiðir ella ekki.
ko hlaut í fyrri atkvæðagreiðslum
þegar honum tókst ekki að fá tilskil-
inn stuðning.
Kommúnistar höfðu beitt sér
harðast gegn útnefningu Kíríjenkos
og sagt hann of ungan og skorta
reynslu til þess að geta leyst þann
gífurlega efnahags- og þjóðfélags-
lega vanda sem við er að etja í
Rússlandi nú. Jeltsín hafði hins veg-
ar hvergi hvikað frá þeirri skoðun
að Kíríjenko, sem er fyrrverandi
bankastarfsmaður og orkumálaráð-
herra, væri rétti maðurinn til þess
að fara fyrir nauðsynlegu umbóta-
starfi.
Urslit atkvæðagreiðslunnar í gær
eru mikill sigur fyrir Jeltsín, sem
Minning
um þorp
TUGIR Palestínumanna gengu
fylktu liði um götur Ramallah á
Vesturbakkanum í gær og
minntust arabíska þorpsins Um-
Khaled sem lagt var í rúst 24. maí
1948 í Palestínustríðinu. Báru
göngumenn fána Libanons og
Jórdaníu, auk palestínska fánans,
til marks um þau svæði sem
flóttafólk frá þorpinu leitaði til.
Dennis Ross, sendifulltrúi
Bandaríkjastjórnar fyrir botni
Miðjarðarhafs, mun eiga fundi með
deiluaðilum nú um helgina og
kvaðst hann reikna með að gengið
yrði endanlega frá því hversu
stórum svæðum á Vesturbakkanum
Israelar myndu skila til
heimastjórnar Palestínumanna.
Tilkynnt var í Hvíta húsinu í
gærkvöldi að A1 Gore, varaforseti,
muni eiga fund með Yasser Arafat,
forseta Palestínumanna, í Ramallah
2. maí nk. og mun Gore einnig fara
til Israels.
James Rubin, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins
sagði í gær „erfitt að vera
bjartsýnn" á árangur í
fyrirhuguðum viðræðum
Madeleine Albright,
utanríksráðherra, við Netanyahu
og Arafat, sem fara eiga fram í
London 4. mai.
mun í samráði við hinn nýja forsæt-
isráðherra tilnefna ráðherra í nýja
ríkisstjórn. Kíríjenko sagði í gær að
hann myndi kynna ráðherralista
sinn fyrir Jeltsín á þriðjudagskvöld.
Jeltsín vék ríkisstjórn Viktors
Tsjemómýrdins frá fyrir um það bil
mánuði á þeim forsendum að hún
hefði ekki staðið sig sem skyldi við
nauðsynlegar umbætur.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi
kommúnista í Dúmunni, fór ekki
leynt með óánægju sína er úrslit
lágu fyrir í gær. „Ég sé enga
ástæðu til gleði,“ sagði hann stuttur
í spuna. „Það ætti að breyta stefnu
stjórnvalda." Atkvæðagreiðslan í
gær var leynileg og telja sumir
Reuters
Nál í kött
Á ACACIA-dýraspítalanuin í
Tókýó í Japan beitir Norko
Shimizu dýralæknir nál-
arstungum við Iæknismeðferð,
í bland við kínversk jurtalyf og
moxbruna, sem er aldagömul
asísk lækningaaðferð er felst í
því að jurtir eru brenndar á
eða nálægt húðinni.
Yilmaz
hættir
Ankara. Reuters.
STJÓRNARKREPPA blasir við á
Tyrklandi eftir að Mesut Yilmaz, for-
sætisráðherra landsins, tilkynnti í
gær að hann hygðist hverfa úr emb-
ætti seinna á árinu og að boðað yrði
til þingkosninga snemma á næsta
ári.
Akvörðun Yilmaz kemur í kjölfar
samkomulags sem hann gerði við
Deniz Baykal, leiðtoga vinstri stjórn-
arandstöðunnar, sem tryggir stuðn-
ing Baykals við stjórn Yilmaz en
gerir einnig ráð fyrir kosningum í
mars næstkomandi, 20 mánuðum á
undan áætlun, og að Yilmaz láti
óháðum manni eftir forsætisráð-
herradóminn þangað til.
Ráðherrar í samsteypustjórn
Móðurlandsflokksins og Lýðræðis-
flokks Tyrklands lýstu í gær óá-
nægju sinni með ákvörðunina. Yasar
Topcu atvinnumálaráðherra sagði
hana „afar ranga“ og haft var eftir
Isin Celebi, ráðherra ríkisáætlana og
viðskipta við útlönd, að þetta væri
langt frá því að vera framfaraskref
fyrir Tyrkland. Báðir gagnrýndu
samkomulag Yilmaz við Baykal.
fréttaskýrendur að það hafi ráðið
úrslitum þar eð þingmenn gátu
greitt atkvæði burtséð frá flokkslín-
um. Mörgum þingmanninum hafi
ekki litist á þann kost að hætta
þingsæti sínu, og þeim hlunnindum
sem því fylgja, með því að efnt yrði
til kosninga.
Bandarísk stjórnvöld brugðust
vel við staðfestingunni á útnefningu
Kíríjenkos. „Við hlökkum til og
væntum náins samstarfs við hann,
rétt eins og við höfum átt við for-
vera hans, Tsjernómýrdin," sagði
Mike McCurry, fréttafulltrúi í
Hvíta húsinu.
■ Kíríjeukó reyndist/25
Reuters
Kíríjenko hlýtur afgerandi stuðning Dúmunnar í embætti forsætisráðherra
Jeltsín segir staðfesting-
una „sameiginlegan sigur“