Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Flutningur á úrani til Dounreay Sendiherr- ar í ráðu- neytið SENDIHERRAR Bandaríkj- anna og Bretlands voru kallaðir til fgndar í utanríkisráðuneyt- inu í gær, þar sem komið var á framfæri við þá alvarlegum áhyggjum íslenskra stjórnvalda vegna samkomulags Breta og Bandaríkjamanna um að flytja fímm kíló af auðugu úrani frá Tiblisi í Georgíu til endur- vinnslustöðvarinnar Dounreay í Skotlandi. Málið var rætt á fundi ríkisstjómarinnar í gær. „Það er okkar stefna að slík- ur úrgangur sé alls ekki við haf- ið. Við teljum að nóg sé komið af þvi að slík efni hafi lekið út í hafíð og teljum það í andstöðu við Ríó-samþykktimar sem mæla gegn því að kjarnorkuúr- gangi verði komið fyrir nálægt hafinu,“ sagði Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra. „Við teljum jafnframt að öll slík starfsemi skaði ásýnd þeirra afurða sem koma úr haf- inu og lítum þetta mjög alvar- legum augum,“ sagði Halldór ennfremur. Andlát ANNA BJARNA- SON ANNA Bjamason, blaðamaður, lést á Borgarspítalanum síðasta dag vetrar, 22. apríl, á 65. aldursári. Anna var fædd í Reykjavík 7. september 1933, dóttir hjónanna Önnu Guðrúnar Jónsdóttur Bjama- son húsmóður og Gunnars Bjarna- son skólastjóra Vélskólans. Hún varð blaðamaður við Morgun- blaðið 1951 að afloknu Verslunar- skólaprófí og starfaði fyrst í fullu starfí til 1955 en síðan í hlutastarfi til 1962. Síðar starfaði hún m.a. skrif- stofustjóri Vélskólans, læknaritari og blaðamaður á Vísi og við Dag- blaðið, þar sem hún var brautryðj- andi í skrifum um neytendamál. Hún var ritstjóri og útgefandi Mosfells- póstsins 1980-87, rak gestamóttöku fyrir íslendinga í Flórída 1989 til 1997. Anna flutti fjölmarga pistla í Ríkisútvarpinu og greinar hennar birtust í ýmsum blöðum og tímarit- um. Hún lét málefni neytenda sig miklu skipta og sat í stjóm Neyt- endasamtakanna um árabil. Hún var í hópi stofnenda Vinafélags Borgar- spítalans og sat í stjóm þeirra sam- taka um langt árabil og var varafor- maður Kvennafélags Mosfellssveitar um skeið. í Flórída var hún hvata- maður að stofnun íslendingafélags- ins Leifs Eiríkssonar 1991 og var forseti þess frá stofnun til 1997 er hún flutti aftur heim til íslands. Eftirlifandi eiginmaður Önnu er Atli Steinarsson blaðamaður. Þau eignuðust 4 börn og 9 bamabörn. Útför Önnu verður gerð frá Dóm- kirkjunni 30. apríl kl. 13.30. Morgunblaðið/Ámi Sæberg FJÖLDI fólks tók þátt í skrúðgöngu frá Melaskóla að Frostaskjóli á sumardaginn fyrsta. fyrsti dagur sumars Sólríkur SUMARIÐ gekk í garð með óvænt- um hlýindum, en landsmenn hafa löngum kvartað yfir skorti á veður- blíðu á sumardaginn fyrsta. Hitinn á fímmtudaginn fór upp í 13,5° C og var að öllum líkindum hlýjasti sumardagurinn fyrsti sl. fimmtíu til sextíu ár, að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings á Veðurstofu íslands. Hann sagði jafnframt að mikið hlýnaði frá degi til dags á þessum árstíma og því mætti búast við hlýindadögum sem þessum af og til, en það væri ein- skær heppni að hlýindin skyldi bera upp á sumardaginn fyrsta. Mikið var um skemmtanir og mannfagnaði að vanda þennan dag og tóku margir þátt í skrúðgöng- um sem lögðu upp frá ýmsum stöð- um í borginni. agurinn í ár bar nafn með rentu og fékk fólk til að draga fram sumarföt og sólgler- augu. Félag íslenskra rann- sóknarlögreglumanna Námstefna um tölvu- afbrot FÉLAG íslenskra rannsóknarlög- reglumanna gengst fyrir nám- stefnu á Hótel Örk í dag þar sem fjallað verður um afbrot sem tengj- ast tölvunotkun. Meðal fyrirlesara á námstefnunni er Mark Pollitt frá bandarísku aliTkislögreglunni. Karl Steinar Valsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn í Reykjavík, seg- ir að Pollitt sé yfirmaður Comput- er Analysis Response Team Unit sem staðsett er í höfuðstöðvum FBI í í Washington D.C., sem hef- ur með rannsóknir að gera sem tengjast tölvuafbrotum. Yfír 200 manns vinna í deild þeirri sem Pollitt stýrir en í Banda- ríkjunum eru glæpir af þessu tagi algengir. Pollitt mun fjalla um hvemig tölvur tengjast afbrotum og margvísleg afbrot sem tengjast netinu. Pollitt mun einnig hitta rík- islögreglustjóra að máli og ýmsa lögreglumenn sem tengjast rann- sóknum mála af þessu tagi hér- lendis. „Það sem fyrir okkur vakir með námstefnunni er að hefja ákveðna umræðu um þessi mál. Pollitt mun gefa okkur yfirsýn yfir stöðu mála í Bandaríkjunum og hvemig hans deild tekur á afbrotum af þessu tagi,“ sagði Karl Steinar. Nýtt útivistar- og skógræktarsvæði Reykvíkinga í Hvammsvík Keiko boðinn velkominn í Hvammsmörk í Hvalfírði HVAMMSMÖRK, nýtt útivistar- og skógræktarsvæði í Hvammsvík í Hvalfirði, var formlega tekið í notkun fyrir Reykvíkinga í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri gróðursetti við það tæki- færi fyrstu trjáplöntuna á svæðinu, íslenskt birki. Svæðið, sem ætlað er undir trjárækt, er 100 hektarar að stærð eða álíka og Öskjuhlíðin að Fossvogskirkjugarði meðtöld- um. Hvammsvíkin er í eigu Veitu- stofnana Reykjavíkurborgar og við formlega opnun svæðisins í gær kom fram í máli Alfreðs Þorsteins- sonar formanns þeirra að borgar- yfirvöld myndu taka því vel að fóstra hvalinn Keiko í Hvalfirði. I Hvammsmörk verða svokallað- ar landnemaspildur, sem ætlaðar verða einstakhngum, fyrirtækjum og félögum þar sem hægt verður að sinna trjárækt og uppgræðslu á komandi árum en skógræktarskil- yrði við innanverðan Hvalfjörð eru talin með því besta sem gerist á landinu. 10-15 þúsund tré gróðursett í sumar Fyrstu spildunum verður úthlut- að í upphafi sumars. Ræktunar- reitir verða afmarkaðir í samræmi við umhverfisskipulag en áhersla verður lögð á að svæðið allt verði umhverfisvænt útivistarsvæði. Væntanlegu skógræktarsvæði verður skipt í tvennt og svæðin hvort sínum megin við þjóðveginn, sem aðgengilegust eru fyrir al- menning, verða sett undir land- nemaspildumar. Áætlað er að Skógræktarfélag Reykjavíkur planti nú í sumar 10-15 þúsund trjám í landi Hvamms og Hvamms- víkur og er stefnt að því að full- plantað verði í svæðið á næstu ár- um. Veitustofnanir Reykjavíkur- borgar eignuðust jarðimar Hvamm og Hvammsvík árið 1996 en að uppgræðsluverkefninu standa Hitaveita Reykjavíkur og Skógræktarfélag Reykjavíkur. Hitaveita mun setja 3 milljónir króna í sumar í gerð skjólbelta, stígagerð og merkingar á land- nemaspildum og verður verkið unnið af vinnuflokki í umsjón Skógræktarfélagsins. Jarðimar Hvammur og Hvammsvík em um 600 hektarar að stærð og ná frá sjó í innanverð- um Hvalfirði og upp í rúmlega 400 metra hæð yfir sjávarmáli á Reyni- vallahálsi. A jörðunum em íbúðar- hús, veitingaskáli og aðrar bygg- ingar sem hafa verið nýttar í þágu útivistarstarfsemi um árabil. Enn- fremur er þar veiðitjöm, golfvöllur og siglingaaðstaða. Kemur Keiko í Hvalfjörðinn? Alfreð Þorsteinsson sagði í gær að svo kynni að fara að Hvamms- víkin yrði ekki aðeins vettvangur skógræktar- og útivistarfólks í framtíðinni heldur einnig frægasta hvals nútímans, Keikos. „Reykja- vík er einn þeirra staða sem em í athugun. Hinir em Eskifjörður og Vestmannaeyjar. Menn frá Keiko- samtökunum em að skoða sig um og ég hygg að þeir muni skoða Hvammsvíkina. íslensk stjómvöld hafa í sjálfu sér ekki tekið afstöðu til þess hvort Keiko geti yfirhöfuð komið hingað en Hvammsvíkin er sá staður sem helst kemur til greina ef leitað verður til Reykja- víkur. Borgaryfirvöld mundu taka því vel ef eftir því verður leitað að fóstra hann í Hvammsvíkinni í samvinnu við heimamenn í Kjósinni," sagði Alfreð. Morgunblaðið/Jóhannes Long INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarsijóri gróðursetti fyrstu trjá- plöntuna í nýju skógræktar- og útivistarsvæði í Hvammsmörk, Hval- firði. Henni til aðstoðar voru f.v.: Ólafur Sigurðsson, formaður Skóg- ræktarfélags Reykjavíkur, Ásgeir Svanbergsson, ráðsmaður hjá Skóg- ræktarfélagi Reykjavíkur, og Alfreð Þorsteinsson, formaður Veitu- stofnana Reykjavíkurborgar. Reynivai Neöriháls . " . '' ■ . . l axá í Kjói / Félagsgarður Umhverfisskipulag Hvammur og Hvammsvík Hugsanleg Núverandi ortofsdúsdbyggð sumarbústaðir /S"\ Þjónustumiðstöð tívammur rjHvammsvik Hvammi ^tUpphafsreitur VÍk skógræktar Landnemaspildur -----Jarðamörk Laxarvogur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.