Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FIMMTÍU ár eru liðin um þessar mundir frá stofnun Bridgesambands íslands. Nú stendur yfír afmælismót og er keppni í tvímenningi lokið en í henni tóku um 150 manns þátt. Þá keppa yfir 50 sveitir í sveita- keppninni sem lýkur á morgun. Meðal keppenda er Vilhjálmur Sigurðsson frá Sigflufírði sem er eini núlifandi stofnfélagi sambandsins. Stofnfélög Bridgesambandsins voru sex, félaga- fjöldinn var kominn í 34 árið 1981 og þau voru 50 ár- ið 1987. Nú eru þau nokkru færri. Kristján Kristjáns- son er nú á þriðja ári sínu sem forseti Bridgesam- bands Islands. Byggja upp sterkt landslið „Nú liggur annars vegar fyrir að byggja upp sterkt landslið og hins vegar að fá fleiri til að vera með í bridsfélögum og yngja upp í félögunum,“ segir Krist- ján aðspurður um helstu verkefnin framundan. Rúm- lega tvö þúsund manns eru nú skráðir í félög innan Bridgesambandsins en Kristján telur að um fimm þúsund manns að minnsta kosti og jafnvel allt uppí um átta þúsund spili reglulega í heimahúsum. Hann segir að mikill fjörkippur hlaupi jafnan í starf bridge- félaga þegar íslenskum keppendum gengur vel á er- lendum mótum. „Þannig varð mikill fjörkippur eftir að íslendingar urðu heimsmeistarar árið 1991 á mót- inu í Japan.“ Kristján staðhæfír aðspurður að ekki sé svo erfitt að læra að spila brids sér til gamans en margt fólk kemur inn í félögin í gegnum Bridgeskóla Guð- mundar Páls Arnarsonar. „Mörgum þykir þetta tor- kennilegt og það er auðvitað margt sem ungt fólk getur tekið sér fyrir hendur. En brids er ekki svo flókinn Ieikur og menn geta auðveldlega lært að spila sér til gamans. Hins vegar þarf mikla vinnu ef Bridgesamband íslands 50 ára Yfir 2 þúsund félagar spila reglulega ÍSLENSKA sveitin sem náði heimsmeistaratitli i Japan 1991. Björn Eysteinsson hampar Bermúdaskálinni og við hlið hans eru Þorlákur Jónsson, Jón Baldursson, Örn Amþórsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Aðalsteinn Jörg- ensen og Guðmundur Páll Arnarson. menn ætla að ná árangri í keppni," segir hann og segir landsliðsmenn Islands jafnan hafa lagt mikla vinnu á sig. Næstu skref á erlendum mótum er þátt- taka Islands í Norðurlandamóti í sumar og Evrópu- móti árið 1999. Segir Kristján landsliðseinvald val- inn í haust og muni hann undirbúa lið fyrir næsta mót. Einn stofnfélagi á afmælismótinu Stofnfélögin voru á Siglufírði, Reykjavík, Akur- eyri, Hafnarfirði, Selfossi og Vestmannaeyjum. Fyrsti formaður var kosinn Lárus Fjeldsted í Reykjavík og var Vilhjálmur Sigurðsson frá Siglufirði í fyrstu stjórninni en hann er eins og fyrr segir meðal kepp- enda á mótinu um helgina. Hann var þá 22 ára gam- all og hefur hann sjálfur útskýrt kjör sitt þannig: „Ég hef sennilega fengið sæti í fyrstu stjórn BSI vegna þess hve kjaftfor ég var.“ Ari áður en Bridgesambandið var stofnað kom hingað bresk sveit sem keppti við Islendinga en hún var talin sterk. Töpuðu Bretarnir leiknum en þeir urðu Evrópumeistarar árið eftir. Islendingar hófu strax þátttöku í erlendum mótum og náðu árið 1950 þriðja sæti af 11 þátttökuþjóðum á Evrópumóti í sveitakeppni í Englandi. Voru þeir Einar Þorfínnsson og Gunnar Guðmundsson valdir af hálfu BSÍ til keppni í heimsmeistaramótinu í Bermuda með Svíum og keppti sveitin fyrir hönd Evrópu. Allar götur síð- an hafa íslenskir spilarar tekið reglulega þátt í Norð- urlanda- og Evrópumótum. Félagsheimili Bridgesambands íslands er við Þönglabakka í Reykjavík og þar eru flest mót sam- bandsins haldin enda segir Krislján aðstæður þar góðar. Einn starfsmaður sér um rekstur sambands- ins. Morgunblaðið/Ásdís HANDRIÐIÐ í Mýrarhúsaskóla sem lítil stúlka datt yfir fyrr í vikunni. Slys í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi Breyta handriði sem barn féll yfír BREYTINGAR á handriði í Mýrar- húsaskóla, sem lítil telpa datt yfir og féll niður þrjá til fjóra metra í vikunni, verða gerðar strax á næstu dögum að sögn Sigurgeirs Sigurðs- sonar, bæjarstjóra Seltjarnamess. „Við munum gera það sem til þarf til þess að slíkt endurtaki sig ekki, og breytingar á handriðinu verða gerðar á næstu dögum,“ sagði Sig- urgeir í samtali við Morgunblaðið í gær. Sigurgeir benti á að handriðið væri 10 cm hærra en byggingar- reglugerð segði til um og að í öðrum skólum landsins væri að finna hand- rið sem væru lægri en umrætt handrið en væru samt sem áður á þriðju til fjórðu hæð. Atvikið vekur því óneitanlega spumingar varð- andi öryggisreglur í skólum, eins og Herdís L. Storgaard bamaslysa- vamafulltrúi Slysavamafélags ís- lands benti á í frétt Morgunblaðsins á miðvikudaginn. Öryggisreglur í skólum falla und- ir reglugerð byggingarlaga sem til- heyra umhverfisráðuneytinu. Hrafn Hallgrímsson deildarstjóri bygging- ar- og skipulagsmála ráðuneytisins sagði að ekki hefði verið gripið til sérstakra aðgerða til að endurskoða öryggisreglur í skólum en mála- flokkurinn yrði þó tekinn til um- ræðu í nefnd, sem skipuð er af heil- brigðisráðherra og tekur til starfa nú í lok apríl. Hann sagði að nefnd- inni væri ætlað að skoða öryggi bama og unglinga og væri tilkomin að hluta til vegna skýrslu um örygg- ismál, sem kom út í fyrra og var unnin af nefnd á vegum Skipulags ríkisins, nú Skipulagsstofnunar, Vinnueftirlitsins og Hollustuvernd- ar. Nefndinni var ætlað að koma í veg íyrir að starfssvið stofnana á sviði öryggismála skaraðist og leiddi af sér skýrsluna um öryggis- mál. Hrafn sagði að eðlilegt væri að skoða öryggismál í skólum í kjölfar atburðarins í Mýrarhúsaskóla en hingað til hefði endurskoðun á þess- um málum ekki farið fram. „Ný byggingarreglugerð kemur út 1. júlí, en hún tekur ekki sérstaklega á eftirlitsþætti í rekstri á skólahús- næði svo dæmi séu tekin,“ sagði Hrafn. Stúlkan sem datt yfir handriðið handleggsbrotnaði og hlaut sprung- ur í andlitsbeinum og mjaðmagrind, og er talin mesta mildi að ekki hafi farið verr. Kosningabaráttan í Reykjavík að fara á fulla ferð Fagnaðarfundur og hug- myndir um hverfísbyltingu FRAMBJÓÐENDUR D-Iista sjálf- stæðismanna í Reykjavík verða á ferðinni í öllum borgarhverfum næstu daga þar sem þeir kynna stefnu sína í málefnum hverfanna og ræða við borgarbúa. Reykjavík- urlistinn efnir til svokallaðs fagnað- arfundar á Lækjartorgi og í gamla greifahúsinu við Austurstræti sunnudaginn 26. apríl kl. 14. „Kosningabaráttan hófst strax eftir kjördag fyrir fjórum árum og stendur alltaf á milli kjördaga. Það þýðir ekkert að heyja hana á síð- ustu vikunum fyrir kjördag heldur verður að gera það á fjórum árum,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri aðspurð um hvenær kosningabarátta Reykjavíkurlistans hæfist. „Lokahnykkurinn byrjar á sunnudag með kynningu á stefnu- málum Reykjavíkurlistans á Lækj- artorgi þar sem við verðum með uppákomu. Að öðru leyti erum við mjög aðhaldssöm í fjármálunum og munum halda kostnaði niðri eins og kostur er og ekki eyða í auglýsingar umfram það nauðsynlegasta," sagði Ingibjörg Sólrún. Hún sagði einnig aðspurð að frekari fundir og uppá- komur hefðu ekki enn verið skipu- lögð. „Við munum spila það af fingi-- um fram, það fer eftir eftirspurn- inni í þessum efnum.“ Kosningaskrifstofa Reykjavíkur- listans er í Hafnarstræti 20. Rekstr- arstjóm skipuleggur baráttu fram- boðsins og hefur hún þrjá starfs- menn. I bígerð er að dreifa síðar upplýsingariti til borgarbúa og rétt fyrir kosningar verður efnt til stór- fundar. Á fundinum á Lækjartorgi verð- ur kynnt stefna Reykjavíkurlistans í borgarstjómarkosningunum 1998 auk fjölbreyttrar dagskrár. Um kl. 14.30 stíga frambjóðendur á svið og kynna stefnu Reykjavíkurlistans. Sérstök ávörp flytja Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir, Helgi Hjörvar og Anna Geirsdóttir. Meðal dagskrár- atriða má nefna Stúlknakór Reykja- víkur, rakarasöngsveitina Brooklyn fæv og Hallgrím Helgason sem flyt- ur áður óbirt ljóð. Boðið verður upp á kaffi og vöfflur. Frambjóðendur sjálfstæðimanna verða í dag í Laugamesi og Grafar- vogi, á morgun, sunnudag, í Lang- holts-, Hlíða- og Holtahverfum og á Morgunblaðið/Golli Sjálfstæðismenn heim- sækja borgarhverfin FRAMBJÓÐENDUR sjálfstæðis- manna til borgarsljórnar Reykja- víkur voru á ferðinni í Mjóddinni í Breiðholti í gær og ræddu við borgarbúa. Arni Sigfússon, oddviti D-listans, segir málfiutningi þeirra hafa verið vel tekið en ætlunin er að heimsækja borgarhverfin eitt af öðru á næstu tveimur vikum. Með í för er Brassbandið sem kryddar málflutning sjálfstæðismanna með tónlist sinni. mánudag í Árbæjarhverfi. Auk frambjóðendenna sjálfra verður Brassbandið með í för og blandar tónlistarflutningi við kynningu frambjóðenda á stefnumálunum og boða sjálfstæðismenn hverfisbylt- ingu. Tveggja vikna útrás „Þessi útrás okkar mun standa næstu tvær vikurnar," sagði Árni Sigfússon, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjóm. Sagði hann að fram- bjóðendur myndu verða á fjölförn- um stöðum og heimsækja vinnu- staði og fólk heima við eins og tæki- færi gæfust. Oftast er byrjað á kosningaskrifstofum flokksins í hverfunum. „Markmiðið er að hitta íbúana með þessum hætti, banka upp á hjá þeim og kynna stefnumál sjálfstæð- ismanna. Það teljum við vænlegast til árangurs, við emm tilbúin að heimsækja íbúa í stað þess að bíða eftir að þeir komi til okkar á fundi sem við boðum," segir Árni. „Það sem hæst ber er skattalækkanir, aukið val foreldra með fjölskyldu- greiðslum og ný íbúðarsvæði með ströndinni og síðan erum við að skapa aðlaðandi íbúðarhverfi með hugmyndum okkar um hverfisbylt- inguna. í henni felst að tryggja íbú- unum betri þjónustu, aukið öryggi og meira lýðræði. Þetta aukna lýð- ræði er fólgið í því að menn fái að kjósa um meiriháttar breytingar á deiliskipulagi hverfis ef meira en fjórðungur íbúa óskar þess. Ef helmingur atkvæðisbærra tekur þátt mun sú niðurstaða gilda.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.