Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 17
MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 17 Fiskiðjusamlag Húsavíkur hf, , MilliuPDalör - 4 j wéuJ 1. sept. '97 - 28. febrúar '98 1/9 '97 til 28/2 '98 1/9 '96 til 28/2 '97 Rekstrarreikningur Mmjónir króna 1998 1997 Rekstrartekjur 1.267,2 987,9 Rekstrargjöld 1.096.8 849,9 Hagnaður fyrir afskriftir 170,4 137,9 Afskriftir 94,0 79,7 Fjármagnsgjöld umfram tekjur 58.7 95.5 Hagnaður (tap) af regluiegri starfsemi 17,7 (37,2) Hagnaður (tap) tímabilsins 39,0 (36,2) Efnahagsreikningur 28. febrúar 1998 1997 I Eignir: \ Milljónir króna Veltufjármunir 601,5 592,9 Fastafjármunir 2.185,7 1.417,5 Eignír samtals 2.787,2 2.010,4 I Skuidir og eigið fð:\ Milljónir króna Skammtímaskuldír 556,1 915,4 Langtímaskuldir 1,502,8 863,8 Eigið fé 728,3 231,2 Skuldir og eigið fé alls 2.787,2 2.010,4 Sjóðstreymi 1998 1997 Veltufé frá rekstri 110,4 50,4 Veltufjárhlutfall 1,08 0,64 200 millj. á ári til rannsókna 1999-2001 Nýjar áherslur í rannsóknum Á ÁRSFUNDI Rannsóknarráðs Islands sl. miðvikudag greindi Björn Bjarnason menntamálaráð- herra frá samþykkt ríkisstjórnar- innar við tillögu hans um aukið samstarf rannsóknastofnana á Is- landi. Samkvæmt henni er Rann- sóknarráði falið að gera tillögu til ríkisstjórnarinnar um það m.a. hvernig endurskipuleggja megi rannsóknarstofnanirnar til þess að auka hagræðingu og bæta þjón- ustu við íslenskt atvinnulíf. Akvörðunin er byggð á vinnu sam- starfshóps ráðuneyta frá öllum fagráðuneytum sem starfað hefur frá 1996. Þá þakkaði menntamálaráð- herra Rannsóknarráði fyrir að bregðast svo hratt við ósk hans um að setja fram hnitmiðaða áætlun um rannsóknir og þróun á sviði upplýsingatækni og umhverfís- mála. Þessi nýja áætlun gerir ráð fyrir sérstöku fjármagni til þess- ara verkefnaflokka. Áætlunin á ekki að raska öðrum áherslum í starfi RANNÍS. Hún tekur mið af stefnumótun ríkis- stjórnarinnar í upplýsingatækni og umhverfismálum. Meðal atriða í hinni nýju áætlun í upplýsinga- tækni eru: upplýsingatæknilegt uppeldi, upplýsingatækni í þágu menningar, samfélags og byggða- stefnu og upplýsingatæknifyrir- tæki. I áætluninni um umhverfis- mál ber hæst umhverfi og íslenskt atvinnulíf, hnattrænar breytingar, umhverfi og heilsu ásamt um- hvei-fisuppeldi. Menntamálaráðherra sagðist mundu beita sér fyrir því að áætl- unin næði fram að ganga og minnti í því sambandi á fyrri samþykkt ríkisstjómar um hlutfall af hagn- aði við einkavæðingu á vegum rík- isins. I áætlunum RANNIS er gert ráð fyrir um 200 milljónum króna til þessara málaflokka á ári á árabilinu 1999-2001. „Margir hafa komið að gerð þessara áætlana sem byggjast á nánu samstarfi aðila sem Rann- sóknarráð hefur kvatt til en hófst formlega með stefnumótun í Hveragerði síðastliðið haust,“ seg- ir Þorsteinn I. Sigfússon, formað- ur Rannsóknamáðs. „Eftir bréf menntamálaráðherra snemma í vor var stefnan hnitmiðuð frekar og hún að lokum kynnt sem „upp- lýsing og umhverfi" á ársfundin- um.“ Hið nýja Rannsóknarráð tók til starfa í ágúst á síðastliðnu ári. Landssíminn dreif- ir efni Stöðvar 2 LANDSSÍMINN og íslenska út- varpsfélagið hafa undirritað samn- ing um flutning og dreifingu á dag- skrám Stöðvar 2, Sýnar, Bylgjunn- ar og Stjörnunnar um landið. Landssíminn sér nú um allan flutn- ing á útvarps- og sjónvarpsefni fyr- ir Islenska útvarpsfélagið auk þess að sjá um rekstur á dreifikerfi fé- lagsins. Islenska útvarpsfélagið getur nú nýtt sér ljósleiðarakerfi Landssím- ans til að dreifa útvarps- og sjón- varpsefni um allt land og er gengið út frá því við gerð samningsins að flutningur muni aukast verulega frá því sem nú er, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Þjón- ustusvæði Sýnar og Bylgjunnar mun stækka á árinu og m.a. munu Vestfirðir og Snæfellsnes bætast í hóp þeirra svæða þar sem útsend- ingar félagsins nást. Munu Bylgjan og Sýn ná til 94% þjóðarinnar á næstu mánuðum. Samningurinn er til fjögurra ára með möguleika á framlengingu og er áætlað verðgildi hans um 150 milljónir króna á ári. Þar af eru greiðslur vegna leigulína um 70 milljónir króna og leigugreiðslur fyrir aðstöðu upp á 7-8 milljónir króna á ári. Aðrar greiðslur eru fyrir vinnu sem starfsmenn Lands- símans inna af hendi og þann bún- að sem festa þarf kaup á. VIÐSKIPTI 39 milljóna kr. hagnaður hjá Fiskiðjusamlagi Húsavíkur Skoða möguleika á sam- einingu við önnur félög FISKIÐJUSAMLAG Húsavíkur var rekið með 39 milljóna króna hagnaði fyrstu sex mánuði rekstrar- ársins, það er að segja frá 1. septem- ber sl. til 28. febrúar. Er það mun betri árangur en á sama tímabili ár- ið á undan en þá var 36 milljóna króna tap. Unnið hefur verið að breytingum á rekstri Fiskiðjusamlagsins. Ný- lega var dótturfélagið Náttfari ehf. sameinað Fiskiðjusamlaginu. Telja stjómendur félagsins að uppstokk- un á eignum þess á síðasta ári og sameining útgerðar og vinnslu hafi lagt grunninn að aukinni veltu og bættum rekstri. Veiðiheimildir hafi nýst betur og fjármagnskostnaður minnkað. Fram kemur í fréttatil- kynningu frá Fiskiðjusamlaginu að áætlun rekstrarársins gerir ráð fyr- ir 66 milljóna kr. hagnaði, að teknu tilliti til hagnaðar af sölu eigna. Ein- ar Svansson framkvæmdastjóri tel- SÖLUSAMBAND íslenskra fisk- framleiðenda hf., SÍF, hlaut út- flutningsverðlaun forseta fs- lands árið 1998. Gunnar Örn Kristjánsson framkvæmdstjóri SÍF veitti verðlaununum, sem nú voru veitt í tiunda skiptið, við- töku fyrir hönd fyrirtækisins við athöfn á Bessastöðum í fyrra- dag. Fyrir aftan þá standa Einar Már Guðmundsson myndlistar- maður, sem bjó til verðlauna- gripinn, og Páll Sigurjónsson í úthlutunarnefnd. „Þetta er fyrst og fremst hvatning til stjórnar og starfs- fólks fyrirtækisins og viður- kenning á því að vel hafi tekist 10 stærstu h Fiskiðjusa Húsavíki 24. apríl 1998 Milljónir króna luthaf imlac irhf. ar |S Eignar- hluti Nafnviröi hlutafjár Húsavíkurbær 201,3 32,5% Kaupfél. Þingeyinga 86,4 14,0% Mastur ehf. 62,0 10,0% Trygging hf. 56,2 9,1% Hlutabréfasj. íshaf hf 56,1 9,1% Olíufélagið hf. Esso 46,4 7,5% íslenski fjársj. hf. 21,0 3,4% Verkal. Húsavíkur 11,8 1,9% Reginn hl. (Landsb.) 10,2 1,6% Samvinnulífeyrissj. 9,2 1,5% til við að sanna tilverurétt fé- Iagsins eftir mikinn breytinga- tíma. Þetta mun berast til okkar viðskiptaaðila erlendis og hjálp- ar til í markaðssetningu okkar víða um heim,“ sagði Gunnar Örn í samtali við Morgunblaðið. Verðlaunin eru veitt í viður- kenningarskyni fyrir markvert framlag til eflingar útflutnings- verslunar og gjaldeyrisöflunar íslensku þjóðarinnar. f áliti út- hlutunarnefndar segir að SIF hf. hafi sýnt gott fordæmi um hvernig félag getur með góðri stjórn aðlagað sig breyttum ytri aðstæðum og sé mjög vel að verðlaununum komið. ur útlit fyrir að áætlunin standist þótt sjómannaverkfall hafi skaðað félagið um 20-40 milljónir króna í vinnslustöðvun og hækkuðu hráefn- isverði. Netagerð auglýst til sölu Á síðari helmingi rekstrarársins er gert ráð fyrir frekari breytingum á rekstri með sölu netagerðar fé- lagsins og ýmissa hlutabréfa. Munu skuldir lækka um 70-100 milljónir kr. við það. Netagerðin hefur verið auglýst til sölu. Fram kemur að til greina kemur að selja netagerðina í heild, sameina hana öðrum rekstri eða stofna sjálfstætt hlutafélag um starfsemina. Unnið er að endurskipulagningu bolfiskvinnslu Fiskiðjusamlagsins með það markmið að leiðarijósi að rekstur hennar skili hagnaði. Fram kemur að einföldun í fullvinnslu og ný tækni sem þar hefur verið inn- leidd muni lækka kostnað verulega, auka nýtingu og bæta afkomu. Fiskiðjusamlagið á rúmlega 2.000 tonn af þolfiskkvóta sem það notar til hráefnisöflunar fyrir bolfiskdeild- ina en honum hefur ekki verið ráð- stafað fyrir næsta rekstrarár. Einar Svansson segir að nú sé verið að at- huga hvaða leiðir séu hagkvæmastar til hráefnisöflunai- en kostum hafi fækkað við nýsett lög um leikreglur í sjávarútvegi. Verið sé að leita að samstarfsaðila til að veiða bolfisk- kvótann og komi sameining við önn- ur sjávarútvegsfyrirtæki fyllilega til greina. Einnig sé hugsanlegt að leggja kvótann sem hlutafé inn í annað fyrirtæki eða kaupa skip til að veiða kvótann. Stefnt er að því að rækjuverk- smiðjan á Húsavík fái umhverfis- vottun samkvæmt nýjum staðli, ISO 14001, á yfirstandandi ári. Telja stjórnendur félagsins að það geti styrkt markaðsstöðu félagsins og aukið hagnað að verða fyrst út- vegsfyrirtækja til að fá þessa vott- un. Tveir stærstu hluthafarnir í FH, Húsavíkurbær og Kaupfélag Þing- eyinga, hafa minnkað hlut sinn í Fiskiðjusamlaginu eins og fram hef- ur komið. Eiga þeir saman tæp 47% en áttu áður 58%. Mastur ehf., sem er eignarhaldsfélag Olíufélagsins hf. (Esso), Islenskra sjávarafurða hf. og Samvinnulífeyrissjóðsins, er orðið þriðji stærsti hluthafinn eftir að fé- lagið keypti 10% hlut af bænum og Fiskiðjusamlaginu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Útflutningsverðlaun til SÍF Sambands íslenskra viðskiptabanka Halldór J. Krisijánsson kjörinn formaður HALLDOR J. Kristjánsson, banka- stjóri Landsbanka íslands hf., var í gær kjörinn formaður Sambands ís- lenskra viðskiptabanka og tekur við formennsku af Val Valssyni, banka- stjóra íslandsbanka hf., sem setið hefur í tvö ár. Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbanka Islands hf., var kjörinn varaformaður. Halldór og Bjöm Líndal, fram- kvæmdastjóri í Landsbankanum, tóku í gær sæti í sambandinu í stað Halldórs Guðbjarnasonar og Björg- vins Vilmundarsonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans. Sambandið er hagsmunasamtök viðskiptabankanna fjögurra, Búnað- arbanka, Islandsbanka, Landsbanka og Sparisjóðsbanka Islands hf. Beint flug til Þýskalands I Dusseldorf Flogið tvisvar í viku frá 18. júní til 31. ágúst. Sértilboð 18. júní til 28. júní og 20. ágúst tii 30. ágúst kr. 20.91 O Apex fargjald 25.910 kr., hámark einn mánuður, enginn bókunarfyrirvari. Munchen Flogið einu sinni í viku frá 26. júlí til 13. sept. Apex fargjald 27.910 kr., hámark einn mánuður, enginn bókunarfyrirvari. Flugvallargjöld eru innifalin. 25% afsláttur fyrir 12-21 árs. 50% afsláttur fyrir 02-12 ára. Upplýsingar um ferðir LTU eru veittar á næstu ferðaskrifstofu. LTU á íslandi, Stangarhyl 3a, 110 Reykjavík, sími 587 1919 Við fljúgum fyrir þig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.