Morgunblaðið - 25.04.1998, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Meintur morðingi
Kings látinn
Hætt við að handtaka stríðsglæpamann á síðustu stundu
Frakkar neita því að
hafa varað Karadzic við
FRÖNSK stjórnvöld neita alger-
lega fullyrðingum sem Washington
Post hefur eftir bandarískum emb-
ættismönnum, að hætt hafí verið á
síðustu stundu við að handtaka
Bosníu-Serbann Radovan Karadzic,
sem ákærður er fyrir stríðsglæpi,
þar sem franskur majór hafi varað
Karadzie við. Talsmaður franska
varnarmálaráðuneytisins viður-
kennir þó að samband majórsins við
Bosníu-Serba hafi þótt vafasamt og
að hann hafi verið kallaður heim til
Frakklands. Blaðið fullyrðir að mál-
ið hafi spillt mjög samskiptum ríkj-
anna.
Majórinn, Herve Gourmelon,
hafði yfirumsjón með tengslunum
við Bosníu-Serba og átti m.a. að
reyna að telja þá á að gefa sig fram.
Fullyrt er í Washington Post að
franska vamarmálaráðuneytið hafi
játað að Gourmelon og Karadzie
hafi hist, þótt ráðuneytið viðurkenni
það ekki opinberlega enda myndi
slíkur fundur brjóta í bága við regl-
ur Atlantshafsbandalagsins
(NATO). Segir blaðið að Frakkar
hafi fullyrt að Gourmelon hafi ekki
farið að skipun yfirmanna sinna er
hann hitti Karadzic og að yfirvöld
hafi lofað að hann yrði kallaður fyrir
herrétt. Sú varð hins vegar ekld
raunin og eru Bandaríkjamenn æfir
vegna þess.
I frétt Washington Post segir að
ætlunin hafi verið að taka Karadzic
höndum í september en hætt hafi
verið við það á síðustu stundu er
stjórnendur aðgerðarinnar höfðu
veður af því að Karadzic kynni að
hafa frétt af fyrirætlunum þeirra.
Ekki er ljóst hvenær böndin bárust
að Gourmelon en mörg hundruð
þungvopnaðir hermenn úr sérsveit-
um bandaríska og franska hersins
áttu að taka þátt í aðgerðinni. Hafði
hún verið skipulögð í smáatriðum
en ákveðið var að hætta við hana til
að stefna ekki lífi hermannanna í
óþarfa hættu.
Vel fylgst með Karadzic
Franskir hermenn fylgjast með
svæðinu í kringum Pale, þar sem
höfuðstöðvar Karadzic eru. Kara-
dzic er sagður eiga sjö hús og íbúðir
í borginni og nokkrar íbúðir utan
hennar. Skiptir hann reglulega um
dvalarstað. Opinberlega viðurkenn-
ir NATO ekki að það hafi vitneskju
um ferðir Karadzic en Washington
Post fullyrðir að vel sé fylgst með
honum, m.a. af bandarísku leyni-
þjónustunni, CIA. Þá hafi hermenn
NATO hrellt fjölskyldu hans, m.a.
konu og dóttur, með því að elta þær.
Frakkar hafa löngum verið sak-
aðir um slælega framgöngu í því að
ná stríðsglæpamönnum, hafa að-
eins handtekið einn en Bretar og
Bandaríkjamenn hafa handsamað
tuttugu menn sem eftirlýstir eru
fyrir stríðsglæpi. Eini maðurinn
sem Frakkarnir hafa handtekið
hugðist gefa sig fram við franska
herinn en vika leið áður en Frakkar
ákváðu að taka hann höndum, eftir
að hafa kannað hvort stjórn Bosn-
íu-Serba hefði nokkuð við það að at-
huga.
Þá hefur varnarmálaráðherra
Frakklands, Alain Richard, lýst því
yfir að yfirmenn franska hersins,
sem voru boðaðir í vitnaleiðslu fyrir
mannréttindadómstól Sameinuðu
þjóðanna, myndu ekki fá leyfi til að
taka þátt í „réttarfarslegum skrípa-
leik“. Louise Arbour, aðalsaksókn-
ari við dómstólinn, brást við hart og
ritaði bréf í Le Monde þar sem hún
segir að fjölmargir stríðsglæpa-
menn séu á svæði Frakkanna í
Bosníu og að „þeir séu öruggir um
sig“ þar sem þeir viti að þeir verði
ekki handteknir.
Washingfton. The Daily Telegraph.
JAMES Earl Ray, sem afplánaði 99
ára fangelsisdóm fyrir morðið á
bandaríska blökkumannaleiðtogan-
um Martin Luther King fyrir 30 ár-
um, lést á sjúkrahúsi í Nashville í
Tennessee á fimmtudag.
Ray, sem var sjötugur, var með
skorpulifur og fleiri tengda sjúk-
dóma og hafði legið í dái á sjúkra-
húsinu frá því á þriðjudag. Hann var
dæmdur fyrir morðið á King í
Memphis í Tennessee 4. apríl 1968.
Hann flúði en var handtekinn í
London. Hann kvaðst sekur um
morðið þegar réttað var í málinu í
mars 1969 en nokkrum dögum eftir
að dómurinn féll tók hann að halda
því fram að hann væri saklaus og
kvaðst hafa verið neyddur til að játa
morðið á sig til að komast hjá dauða-
SAMTÖKIN sem berjast fyrir því að
Danir neiti að samþykkja Amster-
dam-sáttmálann í þjóðaratkvæða-
greiðslu í lok maí hafa leitað á náðir
Breta um fjárstuðning við baráttu
sína.
Undir yfirskriftinni „The Danish
Referendum Appeal" birtu samtökin
{JuniBevægelsen og Folkebevægel-
dómi. Ray barðist
fyrir því að réttað
yrði aftur í málinu
og naut stuðnings
fjölskyldu Kings,
m.a. ekkju hans,
Corettu, sem hélt
því fram að Ray
hefði ekki verið
nógu greindur til
að skipuleggja
morðið og flóttann
upp ó eigin spýtur og hann hefði
tekið þátt í viðamiklu samsæri
hvítra kynþáttahatara. Hún harm-
aði í gær dauða Rays. „Bandaríkja-
menn fá nú aldrei að njóta góðs af
nýjum réttarhöldum yfir Ray, sem
hefðu leitt til nýrra afhjúpana um
morðið.“
sen mod EF-Unionerí) auglýsingu í
These Tides Magazine þar sem farið
er fram á fjárframlög til stuðnings
ái-óðursherferðinni gegn Amsterdam-
sáttmálanum i Danmörku. Talsmaður
samtakanna, Poul Gerliai'd, segir í
samtali við Jyllands-Posten að ekkert
sé athugavert við að leita fjárstuðn-
ings erlendis frá við slíka herferð.
Danskir ESB-andstæðingar
leita erlends fjárstuðnings
James
Earl Ray
Nígería
Umdeildar
þingkosn-
ingar
Lagos. Reuters.
NÍGERÍUMENN ganga að
kjörborði í dag til að kjósa
nýtt þing en flokkar stjórnar-
andstöðunnar hafa skorað á
kjósendur að neyta ekki at-
kvæðisréttar síns í mótmæla-
skyni við Sani Abacha hers-
höfðingja og forseta herfor-
ingjastjórnarinnar.
Kosningabaráttan var dauf
vegna áhugaleysis almennings
og vegna þess að kjörstjórnin
birti ekki nöfn þeirra sem fá að
vera í framboði fyrr en í gær.
Lýðræðisáætlun Abaehas hef-
ur einnig mælst misvel fyrir
meðal almennings.
Mohammed Yusufu, fyrrver-
andi lögreglustjóri sem barðist
fyrir því að verða frambjóðandi
í forsetakosningum í ágúst, tók
undir áskorun stjórnarandstöð-
unnar. „Nígeríumenn ættu að
sitja heima og láta herinn um
að kjósa.“
Þýzka þingið samþykkir
stofnun myntbandalags
Bonn. Reuters.
SAMBANDSRÁÐIÐ, efri deild
þýzka þingsins, samþykkti með yf-
irgnæfandi meirihluta í gær að
heimila ríkisstjóminni að gefa
grænt ljós fyrir Þýzkalands hönd á
stofnun Efnahags- og myntbanda-
lags Evrópu, EMU. Atkvæða-
greiðslan í Sambandsráðinu, sem
fulltráar sambandslandanna 16 eiga
sæti í, fylgdi í kjölfar þess að neðri
deildin, Sambandsþingið, sam-
þykkti áformin um stofnun EMU
með jafnafgerandi hætti í atkvæða-
greiðslu á fimmtudag.
I efri deildinni greiddi eingöngu
Kurt Biedenkopf, forsætisráðherra
Saxlands, flokksbróðir Helmuts
Kohls kanzlara og gamall andstæð-
ingur hans, atkvæði gegn EMU-
áformunum.
Þingmenn allra helztu þingflokka
á Sambandsþinginu studdu ákvörð-
unina. Að lokinni tæplega níu
klukkustunda langri umræðu
greiddu með nafnakalli 575 þing-
menn atkvæði með stofnun EMU,
*****
EVRÓPA^
35 á móti og fimm sátu hjá. Allir 30
þingmenn PDS, arftaka austur-
þýzka kommúnistafiokksins,
greiddu atkvæði á móti.
Með þessari niðurstöðu heimilaði
þingheimur ríkisstjórninni að sam-
þykkja stofnun EMU með ellefu að-
ildarríkjum 1. janúar 1999, en til
stendur að leiðtogar allra ESB-ríkj-
anna gangi formlega frá þessari
ákvörðun á sérstökum fundi í Brus-
sel 2. maí nk.
Þessi afgerandi niðurstaða í þing-
inu er í hrópandi misræmi við þá
staðreynd, að meirihluti almennings
í Þýzkalandi er samkvæmt skoðana-
könnunum uppfullur tortryggni
gegn því að þýzka markinu verði
skipt út fyrir evróið, hina sameigin-
legu Evrópumynt.
Helmut Kohl kanzlari lýsti því yf-
ir að Þýzkaland gengi í myntbanda-
lagið „með augun opin“ og að engin
hætta væri á því að Þjóðverjar
kæmu til með að sitja uppi með
verðminni gjaldmiðil. „Myntbanda-
lagið er ekki að neinu leyti óút-
reiknanleg áhætta,“ sagði hann og
reyndi að kveða niður efasemd-
araddir, sem lýsa áhyggjum af því
að verðbólga fari af stað með hinni
nýju mynt. „Eg er sannfærður um
að alveg jafnsjálfsagt þyki að
nokkrum árum liðnum að taka við
evróinu eins og markinu nú.“
Umræðurnar buðu upp á fyrstu
kappræður Kohls og keppinautar
hans um kanzlarastólinn í kosning-
um í haust, jafnaðarmannsins Ger-
hards Schröders. Hinn síðarnefndi
gagnrýndi Kohl fyrir að líta fram
hjá áhyggjum venjulegs fólks vegna
EMU-áformanna og að breiða yfir
þá hættu sem fælist í þeim á auknu
atvinnuleysi.
Reuters
GERHARD Schröder, forsætis-
ráðherra Neðra-Saxlands og
keppinautur Helmuts Kohls um
kanzlarastólinn í kosningum í
september, Ieggur áherzlu á
orð sín í umræðum um EMU-
áformin í neðri deild þýzka
þingsins. Kohl fylgist með.
— ■ ■ *
. Trust TÖLVUBÚNAÐUR Enn neti íi r ii i ri L
Trust PW 2000
Pentium II 233 MMX
135.900
lAhdssíh.h«
Itriggjo mónodo Internetóskriít
hió Londssímonum í koupbœti!
Enlight ATX turn
Intel Pentium II 233 MIVIX örgjörvi
Abit LX6 móðurborð - Intel 440 LX kubbasett
Besta Pentium II móðurborð í heimi!
32 Mb SDRAM minni
4.3 Gb Quantum Fireball harður diskur
24 hraða geisladrif
2 Mb S3 Trio 64 V2 skjákort
Sound Blaster AWE 64 hljóðkort
300 W 3D hátalarar
15" Trust Precision Viewer skjár
33.6 baud utanáliggjandi mótald
3 mánaða Internetáskrift hjá Landssímanum
Mús - Win95 lyklaborð
Windows 95 uppsett og á CD
TOLVUKJDR
Faxafeni 5 - 533 2323
tolvukjor@itn.is
i
►
I
>
\
I
)
>
i
)
>
)
)
)