Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 27

Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 2 7 Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur rui* im tw Plast augnmaski GREINIR sf. hefur sett á markað- inn plast augnmaska. Augn- maskinn er látinn bíða í kæli í 10 til 20 mínútur áður en hann er lagður á augun. I fréttatilkynningu kemur fram að maskinn hafi góð áhrif á þreytt augu og fái bauga til að hjaðna. Maskinn rói höfuðverk og minnki slímmyndun. Ef maskinn er áður lagður í heitt vatn í 5 til 10 mínútur hefur hann góð áhrif á nefstíflur og höfuðverk. Plastmaskinn fæst í flestum apó- tekum. Seljum í dag og á morgun mikið af leirpottum með allt að 50% afslætti Gróðurmold 12 lítrar kr. 269,- Verð áður kr. 449,- ilkmdi fæimur ÞRJÁTÍU og níu fyrirtæki innan og utan Samtaka verslunarinnar skora á íslensk stjórnvöld að setja sérís- lenskar reglur um merkingu mat- væla og taka í reglunum sérstakt til- lit til gildandi umbúðareglna á markaðssvæðum utan EES. Á blaðamannafundi Samtaka verslun- arinnar kom fram að með reglugerð um matvælamerkingai- í tengslum við samninginn um Evrópskt efna- hagssvæði skapaðist hætta á því að einstakar tegundir bandarískrar matvöru hækkuðu um allt að 10% í verði eða jafnvel hyrfu alveg af ís- lenskum markaði. íslenskum inn- flytjendum er skylt að framfylgja reglugerðinni frá 1. maí næstkom- andi. Heimilt verður að selja mat- væli með eldri merkingum til 1. september. Hjá Baldvini Hafsteinssyni, lög- fræðingi Samtaka verslunarinnar, kom fram að Hollustuvernd og Heil- brigðiseftirlit hefðu lengi haldið því fram að fylgja bæri reglugerðum Evrópusambandsins um umbúða- merkingar í einu og öllu. Samtök verslunarinnar hefðu verið á önd- verðum meiði og fengið staðfestingu á því áliti sínu í tveimur nýlegum úr- skurðum EFTA-dómstólsins. Baldvin vék sérstaklega að dómi frá því í desember síðastliðnum. Með dóminum fengist staðfesting á því að í samningi EFTA-ríkjanna um Evrópskt efnahagssvæði hefði ekki falist framsal á fullveldi þjóð- anna eins og gerðist þegar þjóðir gengu í Evrópusambandið. Innflutn- ingur vara til EFTA-ríkja frá þriðja ríki væri því ekki háður reglunum um frjálst flæði heldur giltu reglur viðkomandi ríkja um innflutninginn. •MctiSií Bolta- og skrúfufrítt kerfi Hillukerfi fyrir lagerinn, bílskúrínn og geymsluna Auðvelt í uppsetningu Hagstætt verð Leitið tilboda ISOldehf. Umboös• & heildverslun Faxafeni 10 • 108 Reykjavík Sími5811091 • Fax 553 0170 Aðeins tveir d NEYTENDUR Séríslenskar reglur verði settar um merkingu matvæla €>. WEWSXSmK Hillukerfi 27aprfl Erindinu tekið vel Jón Ásbjörnsson, formaður, sagði að í framhaldi af dómnum hefði ver- ið farið á fund Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, til að skora á ís- lensk stjómvöld að setja séríslensk- ar reglur um merkingu matvæla. Með reglunum yrði tekið sérstakt tillit til gildandi reglna á markaðs- svæðum utan EES. Reglurnar yrðu látnar gilda samhliða evrópsku um- búðareglunum. Með því yrði látið reyna á hvort slíkt stæðist reglur ESB. Jón sagði aðspurður að Davíð hefði tekið erindinu vel. Hjá Jóni og Stefáni S. Guðjóns- syni, framkvæmdastjóra, kom fram að erfiðleikum gæti verið bundið að endurmerkja ýmsar bandarískar vörur eins og gera þyrfti samkvæmt evrópsku reglugerðinni, t.d. væri erfitt að líma merkimiða á Pillsbury- hveiti. Endurmerkingar væru þar að auki kostnaðarsamar og myndu væntanlega hafa í fór með sér allt að 10% verðhækkun á einstökum vöru- flokkum. Ekki væri heldur útilokað að vörurnar hyrfu af markaðnum. Fram kom að sumar vörur væru keyptar frá Bandaríkjunum en ekki Evrópu vegna kostnaðarmunar, t.a.m. væri þekkt tegund barnamat- ar 50% dýrari í Bretlandi þar sem vörumerkingar væru samkvæmt Evrópustöðlum heldur en í Banda- ríkjunum þaðan sem varan er flutt inn til íslands. ÞAÐ er fátítt að smit berist með laugarvatni í augu og valdi sjúkdóm- um. Sundgleraugu geta ekki varið augun fyrir slíku smiti. Hvaða gagn gera sund- gleraugu? MEÐ hækkandi sól er þess að vænta að fólk fari að stunda sund- laugamar af meira kappi en áður. Þeir sem ekki fara í sund á veturn- ar fara væntanlega að fálma eftir sundbolnum eða sundskýlunni aft- ast í hillu eða skúffu. Hvað með sundgleraugun, eru þau nauðsyn- leg þegar við förum í sund? Þessi spurning var lögð fyrir Þórð Sverr- isson augnlækni. Hann sagði að það væri hugsanlegt að smit gæti borist í augun í sundlaugum en það væri fátítt. Sundgleraugu gætu ekki varið menn slíku smiti. Menn notuðu þó sundgleraugu gegn óþægindum sem gætu skapast af klórnum sem væri í vatninu. Iílór- inn hefði ertandi áhrif á augun en hann hefði engin skaðleg áhrif á þau. Munið sölu afsláttarmiða vegna gistingar á Hótel Eddu í sumar. Sérstaklega skal tekið fram að afslátturinn gildir á öll Edduhótelin. Salan fer fram á skrifstofu SFR á Grettisgötu 89, miðvikudaginn 29. apríl og fimmtudaginn 30. apríl á milli kl. 16:00 og 18:00. Félagsmenn utan af landi geta hringt inn á sama tíma. Starfsmannafélag ríkisstofnana ’---------

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.