Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
málmsíu í miðju vélarinnar er kaff-
inu komið fyrir. Bestur árangur
næst ef vélin er ekki sett á hæsta
hita og vatninu gefinn góður tími í
að hitna. Gufan stígur upp, þiýstist
í gegnum kaffið og upp í strokk í
efri hluta vélarinnar þar sem það
safnast saman. Samkvæmt ströng-
ustu skilgreiningum er þetta ekki
raunverulegt „espresso" heldur það
sem Italir kalla, café domestico.
Þótt kaffið sé gott næst ekki sami
árangur og í stórum vélum, til
dæmis ekki froðan ofan á kaffinu,
sem Italir kalla crema. Hún á að
vera þykk og þung og halda teskeið
af sykri án þess að gefa eftir.
Einn helsti kostur espresso-
kaffis er að kaffið verður mun
bragðmeira og sterkara en með öðr-
um aðferðum. Þrátt íyrii' það er
kaffið ekki koffein-ríkara, líkt og
flestir halda, þar sem vatnið er mjög
stutt í beinni snertingu við kaffið,
eða í um eina mínútu í domestico-vé 1
og í 25-35 sekúndur í espressovél.
Þá er vatnið ekki soðið heldur stígur
upp við 90-95 stiga hita.
Bragð kaffisins ræðst jafn-
framt af uppruna þess og vinnslu.
Tvær tegundir kaffibauna eru al-
gengastar, arabiea og robusto. Ara-
bica-baunir eru algengari og
mynda 75-80% heimsframleiðslunn-
ar. Flestar baunir koma frá Mið- og
Suður-Ameríku eða um 70%, 20%
frá Asíu og um 10% frá Afríku.
Kaffibaunir eru ristaðar, sem veld-
ur efnabreytingum í þeim. Ummál
þeirra eykst um 25-30% en þyngd
þeirra minnkar um 18-22%. Ristun-
artími og hitastig, ræður miklu um
bragðeiginleika baunanna. Yfirleitt
er talað um létt-, miðlungs- og
dökkristaðar baunir. Þeim mun
meiri ristun, þeim mun meira
bragð. I nýjustu og fullkomnustu
verksmiðjunum komast baunirnar
ekki í beina snertingu við hita-
gjafann heldur þjóta um í heitum
loftstraumi.
Fucci segir flesta ítali helst
vilja bragðmikið og dökkrístað
kaffi, með háu robusto-hlutfalli.
Það sama eigi einnig við um ítalska
innflytjendur í Bandaríkjunum,
ekki síst í New York. Á Norður-
Italíu sé hins vegar oft drukkið létt-
ara kaffí með háu arabica-hlutfalli.
I Frakklandi er espresso einnig
uppistaða kaffidrykkju en franska
espresso-kaffið er yfirleitt grófmal-
aðra en hið ítalska.
kort stikaði framhjá og sagði eitt-
hvað.“
Ráðning
Varðandi fyrri hluta bréfs þíns
um svefngöngur í æsku og þreytu
þeim fylgjandi þá tel ég að svona
göngur tengist annars vegar vöntun
einhvers konar eða leit til fyrra
skeiðs. Þessu fylgir þreyta sem fer
ekki þótt tíminn líði nema maður
komist fyrir örsökina og geti „geng-
ið“ út úr henni. Þetta hefur svo
áhrif á aðra þætti, svo sem drauma
þína í dag. Draumarnir tveir að ofan
tengjast fyn'nefndri þreytu. Sá
fyn-i gefur í skyn að þú eigir þér
tvíburasál og með tengingu við hana
vindir þú ofan af þreytunni. Nafnið
Pétur gefur í skyn áhættu sem
þessu fylgir en hin nöfnin tala um
mikinn ávinning (Pálmar) ef rétt
(Jónatan) er staðið að málum.
Seinni draumurinn sýnir afskipta-
leysi (póstkort og negri) þitt í þín-
um innri málum og hugsanlegar af-
leiðingar (óveðursskýin hrannast
upp) sé þeim ekki sinnt.
%Þeir lesendur sem vilja fá drauma sína
birta og ráðna sendi þá með fullu nafni,
fæðingardegi og ári ásamt heimilisfangi
og dulnefni til birtingar til:
Draumstafir
Morgunblaðið
Kringlunni 1
103 Reykjavfk.
LAUGARDAGUR 25. APRIL 1998
FYRIRSÆTAN Shalom Harlow og leikkonurnar Emmanuelle Béart og Demi Moore í kjólum Johns Galliano.
Rómantíkin
ræður ríkjum
Gæddu þér á ljúffengu
lambakjöti um páskana.
TISKUHÚS Christian Dior er rótgróið og virt í heimi hátísk-
unnar og stýrði hönnuðurinn Gianfranco Ferre því farsællega
í mörg ár. Það olli því nokkrum óróa þegar einn af óláta-
belgjum tískunnar var ráðinn til að feta í fótspor Ferre.
Það var hinn fjörugi og litríki John Galliano sem hafði vak- íf
ið athygli fyrir frumlega hönnun sína og sérstakt útlit sem 4
var falið að blása nýju lífi í hönnun Dior. Eftir nokkur
t * , tískutímabil hefur Galliano sannað að
bann er verðugur hönnuður tískuhúss- ÍD
ins og að hans frumkvæði er það róm- 'j™
antíkin sem ræður ríkjum á því tísku- ipj
M ý, 'HÆm. heimili. k
Einkenni Galliano um þessar
í. *k\ mundir er einmitt áhersla á kven- *
I* IHÉ legar og rómantískar línur þar
A veitingahúsum okkar
verður ferskt og ófrosið
lambakjöt í sérstöku
öndvegi dagana 7.-26
apríl. Njóttu þess að
sem
sniðum frá Viktoríutímabilinu,
Hollywoodglamúr og austurlensk-
um áhrifum er blandað saman.
Hl Blúndur, kögur og útsaumur
í ‘ á satíni og silki eru dæmi um
rómantíska hönnun Galliano
j | sem fyrirkonur um allan
I heim sækjast eftir að eignast.
borða betra lambakjöt í
hlýlegu umhverfi
Á meðfylgjandi myndum má
sjá nokkur dæmi um Ijöl-
breytta hönnun Johns Galli-
ano fyrir Dior tískuhiisið.
FYRIR-
SÆTAN
Claudia
Schiffer í
austur-
lenskum
Dior kjól.
GaUiano
madonn
A í útsaum-
aðri buxna-
dragt úr
1 satíni.
* LEIKKONAN
Nicole Kidman í hönnun Galliano,
PASKA
LAMBIÐ
hjá okkur
TILBRIGÖI TISKUNNÁR
Borðapantanir
Argentína 551 9555
Hótel Saga 552 9900
Lækjarbrekka 55« 445°
Óðinsvé 552 5090
Perlan 562 0203