Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 32
Coo, MENN í MftNV*TT!*
32 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
PENTIUM II
¥£RÐ
SPRENGíft
■ Góður turn kassi
■ 15" Targa skjár
■ 32 MB SDRAM
■ MaxtorDiamond 3.2 MB
Ultra-DMA diskur
■ Ðiamond Stealth 4000 AGP
3D skjákort
■ 32x hraða geisiadrif
■ 16 bita hljóðkort
■ 280W hátalarar
DVD drif með leikjum,
tengingum og öllu tilneyrandi
Win 95 lyklaborð og mús,
Windows '95 uppsett
33.6 fax mótald með símsvara
á netinu.
Sími: 550-4444 • Skeifan 11
Póstkröfusíminn: 550-4400
A Time
To Kill
Batman
& Robin
xuffiS
Tin Cup
Mars
Attacks
Fræðsla, skemmtun og auglýsing
Margmiðlun er til
margs brúkleg; nota
má hana til að fræða og
skemmta eða einfald-
------:----------9----
lega að auglýsa. Arni
Matthíasson skoðaði
tvo ólíka íslenska
margmiðlunardiska.
ÍSLENSK fyrirtæki eru sífellt að
átta sig betur á möguleikum marg-
miðlunar og útgáfa á slíku efni á
geisladiskum eykst í samræmi við
það. Þannig hafa íslensk fyrirtæki
gefið út auglýsingar- og kynning-
arefni, vöruskrár, leiðbeiningar
ýmiss konar eða hreinræktaðar
auglýsingar. Seint á síðasta ári gaf
tryggingafélagið Sjóvá-Almennar
þannig út umferðarfræðsludisk
sem er í senn auglýsing fyrir fyrir-
tækið og bráðgagnleg fræðsla um
umferðarmál. Skammt er svo síðan
Flugleiðir sendu frá sér disk sem
dreift verður í vélum félagsins og
inniheldur kynningu á íyrirtækinu
og íslandi.
í umferðinni
Geisladiskur Sjóvár-Almennra,
sem er seldur í flestum tölvuversl-
unum og víðar, kallast I umferð-
inni. Honum er skipt í fimm megin-
hluta:
Vátryggingar, sem fjallar um
tryggingarmál og skýrir meðal
annars hvers vegna nauðsynlegt sé
að tryggja bílinn. Akstur og um-
ferðarvenjur, sem segir frá því
helsta sem skiptir máli við akstur.
Umferðarmerkin, en þar er að
finna myndir af öllum umferðar-
merkjum sem í gildi eru hér á landi
og þau skýrð, Ungir ökumenn, sem
rekur meðal annars helstu tjón
sem ungir ökumenn lenda í og loks
Krossapróf, sem er, eins og nafnið
gefur til kynna, próf úr öku-
kennslu.
Mikið er lagt í diskinn, margir
koma að verkinu og ekkert er til
sparað. Það hefur og tekist bráðvel
að koma efninu til skila, myndbönd
eru ýmist teiknimyndir eða kvik-
myndaðar, framsögn Ki-istófers
Helgasonar vel skýr og svo mætti
telja. Einfalt er að setja forritið inn
og einfalt að nota það; notandinn
þarf aldrei að velta því fyrir sér
hvað eigi að gera næst eftir að
hann hefur á annað borð áttað sig á
stýringu á disknum sem tekur ör-
skotsstund.
Gloppótt þekking á umferðar-
reglum og -merkjum
Samkvæmt því sem kemur fram
á umslagi disksins er hann gefinn
út sem liður í forvamastarfi Sjó-
vár-Almennra og nýtist eflaust
prýðilega til slíks og almennt nota-
gildi íyrir þá sem eru að læra á bíl
er augljóst.
Þannig er ýmis fróðleikur sem
viðkomandi þarf að kunna skil á vel
fram settur og skýr, aukinheldur
sem krossaprófið er skemmtilegt
og kemur eflaust mörgum á óvart
hversu gloppótt þekking þeirra er
á umferðarreglum og -merkjum
þegar á reynir. Diskurinn ætti því
að nýtast öllum þeim vel sem eru
að læra, eins og getið er, en þeir
sem sjóaðri eru og hafa jafnvel ver-
ið með bflpróf í mörg ár eða ára-
tugi geta einnig lært sitthvað, eða í
það minnsta komist að því hversu
áfátt kunnáttunni er.
Kynning íslands
Skammt er síðan út kom marg-
miðlunardiskur á vegum Flugleiða,
sem er allfrábrugðinn diski Sjóvár-
Almennra, ekki síst fyrir það að
hann er ekki til sölu heldur er hon-
um dreift til þeirra sem fljúga á
viðskiptafarrými Flugleiða, svo-
nefndu Saga Class. A disknum er
að finna ýmsar upplýsingar um fé-
lagið og þjónustu þess, sagt er frá
helstu áfangastöðum, gefin upp
símanúmer og heimilisföng skrif-
stofa, sagt frá vefsetri félagsins,
hægt er að skoða þrjár auglýsingar
sem Flugleiðir hafa gert fyrir sjón-
varp og hlusta á íslenska tónlist.
Tónlistinni er skipt í tvennt, ann-
ars vegar það sem kalla má milli-
tónlist og svo nýgræðing. í milli-
tónlistinni, sem þeir Flugleiða-
menn kalla Icelandair Grand
Melodies, er að finna lögin Ég bið
að heilsa sem Björgvin Halldórs-
son flytur með karlakórnum Fóst-
bræðrum, fslandslag sem Sigrún
Hjálmtýsdóttir syngur, Þú eina
hjartans yndið mitt sem Björgvin
syngur einnig og loksVegir liggja
til allra átta í nýrri útsetningu sem
Björgvin syngur. Öll eru lögin áður
útgefin utan það síðasttalda sem
hefur ef til vill verið tekið upp sér-
staklega fyrir diskinn. Það er og
sísta lagið, í flatri og leiðinlegri út-
setningu, og sérkennilegt að hún
skuli heldur hafa verið valin en
upprunaleg útgáfa.
Nýgræðingur
Nýgræðingurinn, Icelandair
Fresh Spirit, er lög með Subterran-
ean, My Style in Freaky, Súi-efni,
Disco, og Woofer, Look. Allt prýði-
leg lög og ágæt dæmi um það sem
er að gerast í íslenskri popptónlist.
A meðan hlustað er á lögin sýnir
forritið myndir frá íslandi, svona
rétt til að espa með mönnum löng-
un til að heimsækja landið.
Kostur er að forritið, sem unnið
er í Macromedia, keyrir beint af
disknum, ekki er neitt sett inn á
harðan disk notandans og því þarf
ekki að henda neinu út þegar lokið
er við að skoða diskinn. Minnihátt-
ar böggur er í forritinu, því ef
reynt er að komast út úr auglýs-
ingunum á meðan þær eru í gangi
frýs það. Sé aftur á móti horft á
auglýsinguna til enda er allt í lagi.
Þessi margmiðlunardiskur er
Flugleiðum til sóma, vel heppnaður
og lipurlega saman settur. Eina
sem finna má að er að lesefni
mætti vera meira, til að mynda
hefði verið gaman að hafa á diskn-
um þjóðsögur eða brot úr íslend-
ingasögum, en einnig hefði verið
snjallræði að láta fylgja með skjá-
svæfu, svona rétt til að treysta ís-
landsböndin enn frekar.
Stafræn-
ir tónar
FLESTIR netvanir kannast
við MP3-skjöl, sem eru lög sem
pakkað er með sérstöku al-
grími kenndu við Frauenhofer.
Þeir sem fengist hafa við tölvur
og tónlist þekkja þann vanda
hversu mikið rými fer undir
hvert lag, enda þarf um mínúta
af víðómshljómslagi um tíu
megabæti. Með MP3 má aftur
á móti pakka svo vel saman að
þjöppunin verður uppí 12:1 án
þess að hljómur skerðist að
ráði og þannig má koma hefð-
bundnu popplagi fyrir á hálfu
þriðja megabæti.
Þessi staðreynd á eftir að
hafa gríðarleg áhiif á dreifingu
og sölu á tónlist á netinu á
næstu árum, ekki síst í ljósi
tækja eins og Mpman, sem
kóreska fyrirtækið Saehan
kynnti á CeBIT sýningunni í
síðasta mánuði. Það byggist á
örlitlu tæki með svonefndu
Solid State-minni, en það er
minni sem lesa má í upplýsing-
ar sem haldast þar til þeim er
beinlínis breytt. Fyrir vikið er
ekkert sem hreyfist í tækinu og
rafhlöður endast von úr viti, en
á hvert 64 megabæta minnis-
spjald má koma rúmum 70 mín-
útum af MP3-pakkaðri tónlist,
eða heilum geisladisk og ríflega
það. Á slóðinni http:/Avww.
mpman.com/eng /main.html má
meðal annars lesa um tækið, en
þar kemur fram að heildsölu-
verð sé í kringum 30.000 krón-
ur sem gerir það fulldýrt í smá-
sölu. Ef fleiri fara þessa leið er
eins víst að dagar snældunnar
og ferðageislaspilara séu taldir,
nema hvað.
■ EIN vinsælasta vefslóð heims er heimaslóð
Microsoft og þar má sækja ýmislegan hugbúnað
frá fyrirtækinu, kynningarútgáfur, ókeypis við-
bætur og hugbúnað eins og nýjustu útgáfur af
Internet Explorer vafranum. Þar má einnig
sækja flestar þær viðbætur sem verða í Windows
98, rekla og fleira, en nýjast á slóðinni er glæný
útgáfa af Microsoft Outlook póstforritinu. Slóðin
er http://www.microsoft.com/msdownload/
■ Eitt besta safn deilihugbúnaðar og ókeypis
hugbúnaðar fyrir Windows 95 er að finna á vef-
setrinu Winfiles.com. Það er gríðarlegt magn af
hugbúnaði og mikii umferð með þeim afleiðing-
um að stundum getur verið þungt að sækja þang-
að skrár. Þeir sem ekki hafa nennu til þess að
bíða eða treysta ekki tengingunni geta þá keypt
hugbúnaðarsafn á geisladisk,en þeir Winfiles-
menn hafa safnað á íjögurra diska sett um 2
gígabætum af 32 bita hugbúnaði fyrir Windows
95 sem hægt er að kaupa á staðn-
um og fá í pósti. Vefsetrið hét í
eina tíð Win95.com, en var breytt
í winfiies.com, meðal annars til að
ná einnig yfir Windows NT og
CE. Slóðin er http://www.wmfi-
les.com/ en ekki er bara hugbún-
aður þar því finna má ýmislegar
leiðbeiningar og fróðleik.
ið. Á Cnet er hægt að lesa fréttir og fjármála-
upplýsingar, spá í leiki og fleira. Þar er og mik-
ið safn af deilihugbúnaði flokkað niður eftir
notagildi og skírskotun. Þannig er slóðin Build-
er.com, http://www.cnet.com/Content/Builder/,
ætluð þeim sem fást við vefnað og viðhald á net-
setrum, Download.com, http://www.down-
load.com/, fyrir almennan hugbúnað,
Shareware.com, http://www.shareware.com/,
uppfullt með deilihugbúnaði, Browsers.com,
http://www.browsers.com/, er
ætluð fyrir nýjustu útgáfur
vafra og viðbætur, og Acti-
vex.com, http://www.acti-
vex.com/, er fyrir ActiveX við-
bót Micrsoft.
■ Ekki er bara deilihugbúnaður
á netinu því þar má einnig finna ókeypis hug-
búnað ýmiss konar. Slíkur hugbúnaður er oft
frumstæður og jafnvel gallaður, en hann getur
líka verið bráðgóður og handhægur og margir
nota ekki nema ókeypis hugbúnað og komast vel
af. Á vefsetri The Free Site er þannig að finna
safn af allskyns ókeypis hugbúnaði, flokkað nið-
ur eftir því til hvers viðkomandi hubúnaður er
brúklegur. Slóðin er
http://www.thefreesite.com/.
■ Netið er vitanlega gráupplagt: til að sækja
deilihugbúnað, þ.e. hugbúnað sem notendur
geta sótt og prófað til að ákveða hvort þeir vilji
kaupa hann eða ekki, og fjölmargir hafa sankað
að sér slíku og veita aðgang að því. Meðal helstu
slóða sem dreifa deilihugbúnaði er Cnet-vefsetr-
■Simtel er með elstu hugbúnaðarsöfnum og var
komið í gang löngu áður en veraldarvefurinn
kom til sögunnar. Einfalt er að leita á slóðinni,
http://www.simtel.net/simtel.net/, en hjá Simtel
er að finna ýmist deilihugbúnað eða ókeypis hug-
búnað.