Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Kennslubók
í klækjum
„ Um mennina má yfirleitt segja, að
þeir séu vanþakklátir, hvikulir, lygnir
og hrœsnisfullir. Þeir eru hræddir við
hœttur og fégjarnir. “
Niccol’o Machiavelli
setti saman fræga
bók sem hann kall-
aði Furstann og
kom fyrsta útgáfa
hennar af mörgum út í Róm
1532. Árið 1557 var hún komin á
lista yfir bannaðar bækur.
Meðal annan-a bóka eftir
Machiavelli eru Hernaðarlist,
Saga Flórensborgar og
fræðiljóðin Vanþakklæti og
Metnaðargirnd, einnig leikrit og
skáldsaga. Síðastnefnda ljóðið
birtist 1516, sama ár og Utópía
Thomasar More.
Eins og Ásgrímur Albertsson,
þýðandi Furst-
VIÐHORF ans á íslensku
(Mál og menn-
Eftir Jóhann j 1987)
Hjálmarsson bendir
á hafa
menn litið á
Furstann sem „kennslubók í
stjórnmálarefjum og fláttskap"
og í því sambandi hefur orðið
machiavellismi verið notað.
Fursti Machiavellis er alvald-
ur og persónugervingur ríkisins.
Hagsmunir hans eru um leið
hagsmunir ríkisins. Furstinn
lýtur ekki samfélaginu, hann er
ekki bundinn reglum og siðum
hins almenna borgara. Hann
getur notað öll ráð, góð eða ill,
sjálfum sér í hag og til varnar.
Furstinn er ríkið, en borgararn-
ir annað. Ríkishagsmunir eru
fyrir mestu í merkingunni til-
gangurinn helgar meðalið og
nauðsyn brýtur lög.
Furstinn er ein þeirra bóka
sem lesa má og túlka með ýms-
um hætti. Menn geta sagt sem
svo að boðskapur Machiavellis
sé ekki jafn ógnvænlegur og
halda mætti. Hreinskilni hans er
aftur á móti afdráttarlaus og
getur skelft lesandann. Hana
ber þó að taka með nokkrum
fyrivara, einkum vegna þess
eins og fyrr segir að leggja má
út af orðum höfundarins á ýms-
an hátt.
Sautjándi kafli Furstans nefn-
ist Um harðýðgi og miskunn -
hvort betra sé að fursti sé elsk;
aður eða að menn óttist hann. I
þessum kafla er að fínna eftir-
farandi lýsingu á mönnum:
„Um mennina má yfirleitt
segja, að þeir séu vanþakklátir,
hvikulir, lygnir og hræsnisfullir.
Þeir eru hræddir við hættur og
fégjarnir."
Meðal þeirra fyriiTnanna og
um leið fyrirmynda sem Machia-
velli kallar til vitnis í kaflanum
er AJexander VI. páfí, en um
þann kostum prýdda mann seg-
ir:
„Alexandei' VI. páfi lék alltaf
þá list, sem átti hug hans allan,
að blekkja fólk, og það varð
aldrei skortur á mönnum sem
ginu við agni hans. Það hefur
aldrei verið til maður leiknari í
fortölum né reiðubúnari að
sverja eiða að því sem hann var
staðráðinn í að svíkja. Blekking-
ar hans báru samt alltaf tilætl-
aðan árangur, því hann gjör-
þekkti þessa hlið mannlífsins."
Það er til marks um skarpa
röksemdafærslu Machiavellis
hvernig hann ver harðýðgi um
Niccolo Machiavelli —
leið og hann brýnir miskunn-
semi fyrir furstum. Miskunn-
semi á að sýna þegar það á við.
En þegar að harðýðginni kemur
er dæmi Cesars Borgía nefnt.
Borgía hafði orð á sér fyrir að
vera gi-immlyndur, að sögn
Machiavellis: „Samt var það svo
að með hörku sinni tókst honum
að koma á umbótum í Romagna,
hann sameinaði hana og kom
þar á lögum og reglu. Séu málin
skoðuð í réttu samhengi þá
verður niðurstaðan sú að aðferð-
ir Cesares hafi falið í sér meiri
miskunnsemi en þá sem íbúar
Flórens sýndu þegar þeir vildu
komast hjá því að verða sakaðir
um harðýðgi, en liðu það að Pi-
stoja var lögð í rústir.“
Bækur á borð við Furstann
hafa verið skrifaðar fyrr og síð-
ar, stundum handa ákveðnum
mönnum, konungum og kon-
ungssonum. I þessum flokki er
til dæmis Konungsskuggsjá.
Húmanismi endurreisnartím-
ans, ekki síst í Flórens, fæðing-
arborg Machiavellis, leiddi af
sér menningu sem átti varla
sinn líka og naut liðsinnis auð-
manna sem hlúðu að andlegum
efnum, m.a. fornum og nýjum
bókmenntum.
Þetta átti sér að vísu ekki
alltaf menningarlegan tilgang,
en kom oftast að góðu gagni fyr-
ir menninguna.
Sá sem hefur fengið það í arf
að vera fursti eða verið kjörinn
til þess þarf vitanlega ekki að
hafa miklar áhyggjur af almenn-
ingi nema það gerist að blekk-
ingahæfileikinn minnki. Hann
skiptir mklu máli. Machiavelli
taldi að hefði fursta ekki tekist
að ná vinsældum bæri honum
samt að haga orðum sínum og
gerðum þannig að hann bakaði
sér ekki hatur. Um leið á furst-
inn að vekja mönnum ótta,
kennir Machiavelli. Hann leggur
afar mikla áherslu á óttann,
annars sé allt unnið fyrir gýg.
Machiavelli skrifar þessi athygl-
isverðu orð: „Er betra fyrir
furstann að hann sé elskaður af
fólkinu heldur en það óttist hann
- eða öfugt? Svarið er að
hvorttveggja væri æskilegast,
að fólkið elskaði hann og óttaðist
í senn. En þar sem þetta getur
trauðla farið saman, þá er miklu
tryggara að búa við ótta þess en
ást, ef ekki er hægt að að eiga
hvorttveggja.“
Ottinn er eins og allir vita
trygging þess að halda völdum.
„Mönnum verður minna fyrir að
gera á hlut þess sem þeim er
kær, en hins sem þeim stendur
ótti af.“
Machiavelli hafði lært margt
af hermennsku, enda var hann
kallaður til ef skipuleggja þurfti
stríð og sérstaklega til að semja
við óvininn. I því vann hann sér
margt til frægðar.
Það sem kemur sér aftur á
móti illa fyrir Machiavelli sam-
tímans er það lýðræði sem
heimtar að fólkið, almenningur
geti lagt eitthvað til mála. Þá er
gagnslítið fyrir furstann að
berja sér á brjóst og segja:
„Ríkið það er ég.“
Dagur Parkin-
sonsjúklinga
PARKINSONDAG-UR Evrópu-
samtakanna EPDA (The European
Parkinson’s Disease Association)
var 11. apríl síðastliðinn. Dagurinn
er fæðingardagur enska læknisins
James Parkinson
(1755-1824) en hann
varð fyrstur manna til
að lýsa einkennum
þessa hrörnunarsjúk-
dóms og er sjúkdóm-
urinn nefndur eftir
honum.
Parkinson-
sjúkdómurinn
Parkinsonsjúkdóm-
urinn þekktist áður
fyrr sem heldrimanna-
veiki, þar sem sjúk-
dómurinn lagðist oft á
presta. Það fer ekki á
milli mála að frægasti
parkinsonsjúklingur í
heimi í dag er einmitt heldrimaður,
Jóhannes Páll páfi annar.
Flestir sjúklingar eða um 75%
veikjast á árunum milli fimmtugs
og sjötugs en einnig veikist yngra
fólk. Sjúkdómurinn er nokkru al-
gengari hjá körlum en konum og í
dag eru um 450 íslendingar með
parkinsonsjúkdóminn. Sjúkdómur-
inn er talinn orsakast af skorti á
boðefninu dópamíni í heilanum, en
ekki er enn búið að finna orsökina
á þessum skorti. Ég mun stikla á
helstu einkennum sjúkdómsins,
meðferð og hlut aðstandenda, sem
getur haft áhrif á lífsgæði sjúk-
lingsins.
Sjúkdómseinkenni
Helstu sjúkdómseinkenni eru
stirðleiki í vöðvum, skjálfti í hönd-
um og allar hreyfingar verða hæg-
ari. Parkinsonsjúklingar hafa oft
sérkennilegt göngulag þar sem
höfuðið hallar fram á við, gangur-
inn er hægur og hendur sveiflast
ekki með, heldur liggja hreyfingar-
lausar meðfram líkamanum. Sjúk-
lingarnir eiga erfitt með allar fín-
hreyfingar og andlitið er oft svip-
brigðalaust. Sjúkdómurinn getur
haft áhrif á röddina og sjúklingar
eiga einnig oft við kyngingarörðug-
leika að stríða. Parkinsonveiki
leggst mjög misjafnlega á fólk, eitt
er þó sameiginlegt öllum parkin-
sonsjúklingum, að öll
einkenni aukast við
geðshræringu. Þetta
er ekki fullnægjandi
upptalning á einkenn-
um sjúkdómsins held-
ur þau algengustu.
Meðferð
sjúkdómsins
Meðferð sjúkdóms-
ins felst fyrst og
fremst í lyfjagjöf til að
draga úr áhrifum sjúk-
dómsins. Sjúkraþjálf-
un er einnig mjög mik-
ilvægur þáttur í með-
ferðinni. Mikilvægt er
að sjúklingurinn geti
verið sem mest sjálfbjarga, og
haldi líkamanum í þjálfun. Heila-
skurðaðgerðir hafa skilað nokkrum
árangiá og hafa nokkrir Islending-
Parkinsonsamtökin
aðstoða sjúklinga og
aðstandendur þeirra
við að leysa vandann
sem sjúkdómnum
_______fylgir. Alda_______
Sigurðardóttir stiklar
á helstu einkennum
sjúkdómsins.
ar farið í slíka aðgerð, en þær hafa
ekki enn verið íramkv ídar á Is-
landi. Hjúknm er aðanega fólgin í
andlegri uppöi'vun, mikilli þolin-
mæði og að fá sjúklinginn til að
hreyfa sig og vera meðal fólks.
Margir sjúklingar einangrast þeg-
ar einkenni sjúkdómsins fara að
ágerast, sérstaklega þegar fólk á
erfitt með að tjá sig og matast
meðal fólks. Þá er þunglyndi al-
geng afleiðing sjúkdómsins. Sjúk-
dómurinn hefur sjaldan áhrif á vit-
ræna starfsemi sjúklingsins.
Hlutur aðstandenda
Hinn 11. apríl á degi EPDA kom
út fræðslurit um parkinsonsjúk-
dóminn í íslenskri þýðingu sem
hægt er að nálgast hjá Parkinson-
samtökunum. Þetta rit er mjög
fróðlegt og hvet ég alla sem á ein-
hvern hátt tengjast parkinsonsjúk-
lingum til að lesa það. Við skilning
á sjúkdómnum lærist manni að
sýna þá virðingu sem nauðsynleg
er. Þolinmæði er nokkuð sem allir
aðstandendur parkinsonsjúklinga
verða að rækta með sér, svo ekki
sé minnst á sjúklinginn sjálfan.
Mikilvægt er að hvetja sjúklinginn
og uppöi-va til að hjálpa sér sem
mest sjálfur þó að það gangi hægt
og alls ekki reka á eftir honum.
Dagleg hreyfing og sjúkraþjálfun
er mikilvæg og ýmis hjálpartæki
geta reynst parkinsonsjúklingum
vel.
Það er sérstaklega mikilvægt að
sjúklingarnir séu í andlegu jafn-
vægi, því við allar geðshræringar
versna einkenni sjúkdóm^ins. Mikil-
vægt er að hrósa þeim þegar við á,
hvetja þá og örva. Gott er að gefa
sjúklingnum hugmyndir um tóm-
stundastörf, því þau eru nauðsynleg
og geta á margan hátt aukið sjálfs-
traust þein-a. Þegai' andlitsdrættir
verða svipbrigðalausir á sjúklingur-
inn erfiðara með að láta í ljós til-
finningar sínar. Þekking á þessu
einkenni gerir það auðveldara að
sýna þohnmæði og gefa sjúklingn-
um nægan tíma til að bregðast við.
Þeir sem gi-einast með parkinson-
veikina geta þó átt fjöldamörg góð
ár framundan áður en sjúkdómur-
inn fer að há þeim að nokkru marki.
Parkinsonsamtökin
Að lokum vil ég minna á Parkin-
sonsamtökin sem aðstoða parkin-
sonsjúklinga og aðstandendm-
þeii-ra við að leysa þann vanda sem
sjúkdómnum fylgir. Þjónustumið-
stöð Parkinsonsamtakanna er á
Laugavegi 26 og er opin á miðviku-
dögum milli kl. 17 og 19. Símanúm-
erið þar er 552-4440. Aðalfundur
Parkinsonsamtakanna verður i dag,
laugardag, í félagsheimili Áskirkju
og eru allir velkomnir.
Höfundur er aðstandandi
parkinsonsjúklings.
Alda
Sigurðardóttir
Styrktarfélag
vangefinna 40 ára
Árni Már Þórhildur
Björnsson Garðarsdóttir
HINN 23. mars síð-
astliðinn átti Styrktar-
félag vangefinna 40
ára afmæli. Á þessum
tímamótum ætla dag-
þjónustustofnanir fé-
lagsins að hafa opin
hús til að kynna starf-
semi sína og sögu og
að sjálfsögðu verður
heitt á könnunni. I
dag, 25. apríl, mun
hæfingarstöðin Bjark-
árás fyrst þessara
staða opna húsakynni
sjn fyrir almenningi
og eru allir velunnai'ar
Bjarkaráss og Styrkt-
arfélags vangefinna
velkomnit'.
Starfsemi hófst í Bjarkarási í nóv-
ember 1971 og var þjónustan í upp-
hafi ætluð fullorðnum þroskaheftum
einstaklingum án verulegrar líkam-
legrar fótlunai'. Á þessum tuttugu og
sjö árum hefur margt breyst og er sá
hópur sem sækir þjónustuna í dag
annar en hann var í upphafi. Nýir
starfsmenn eru yfirleitt meira fatlað-
ir en þeir sem útskrifast og hefur
það í för með sér aukna þjónustu-
þyngd. Reyndar á þessi þróun við
um flesta þá staði sem þjóna fötluðu
fólki. Starfsemi Bjarkaráss hefur því
verið í stöðugi'i þróun í áranna rás
með það að markmiði að mæta þörf-
um þeirra sem þangað koma.
Vinnutíminn í Bjarkarási er frá
níu til fjögur virka daga og eru fiest-
ir í fullu starfi en nokkrir koma hluta
úr degi. Þótt Bjarkarás sé hæfingar-
stöð eru þjónustuþegar ætíð nefndir
starfsmenn og er það hluti af þeirri
þjálfun sem þar fer fram. Um fimm-
tíu starfsmenn koma í Bjarkarás
daglega og hafa sér til aðstoðar
þroskaþjálfa og aðra leiðbeinendur.
Markmiðið með starfi Bjarkaráss
er að gera starfsmenn hæfa til
starfa á vernduðum vinnustöðum,
almennum vinnumarkaði eða öðrum
stöðum sem henta viðkomandi. Til
þess að ná því takmarki hefur meg-
ináherslan frá upphafi verið á fjöl-
breytta starfs- og félagsþjálfun.
Undirstaða þjálfunarinnar felst í
beinni vinnu við misflókin verkefni,
svo sem pökkun á blöðum, tímarit-
um, afmælisblöðrum og fleiru. Þar
er einnig unnið við merkingar á
ýmsum hlutum og fjölföldun tölvu-
forrita. Þessi fjölbreytni í Bjarkar-
ási væri ekki til staðar nema til
kæmi jákvætt og gott samstarf við
hin ýmsu fyrirtæki og vilji þein-a til
að nýta sér þjónustu Bjarkaráss.
Þjálfun í einföldum saumaskap fer
einnig fi-am í Bjarkarási og hafa
kokkasvuntur, bleiur, handklæði og
þvottastykki verið meðal þeirra
framleiðsluvara sem eru hvað vin-
sælastar. I gróðurhúsi staðarins sem
tekið var í notkun í janúai' 1993 er
ræktað og selt lífrænt grænmeti s.s.
paprikur, agúrkur, tómatar og hefð-
bundið útigiænmeti ásamt sumar-
blómum og taka starfsmenn virkan
þátt í ræktun þessara afurða.
Síðustu ár hefur aukin áhersla
MMkiMMaatiHaMw''