Morgunblaðið - 25.04.1998, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Vorboðar lofts
og láðs
Er heilsuáróðurinn farinn að hafa öfug áhrif,
spyr Kristín Gestsdóttír, sem heyrði konu
segja um leið og hún saup á kókdósinni
að það væri sama hvað maður léti ofan
í sig, allt væri talið óhollt.
VISSULEGA þarf að fara var-
lega í þeim efnum. En líklega hef-
ur konan átt við öll þau aukaefni
sem bætt er í matvæli til að rot-
verja, skordýraverja og bæta
áferð og útlit. Það er erfítt að
sneiða hjá þeim aukaefnum. Ég
rækta mikið grænmeti á sumrin
og reyni að nota sem minnst af
eiturefnum og læt mig hafa það
að reita arfann, en ég treysti mér
ekki til að rækta rófur og kál an
þess að eitra gegn kálmaðki. ís-
lenskir gróðurhúsabændur nota
ekki lengur eitur við ræktun sína
heldur skordýr sem éta blaðlús
o.fl. slíkt. Enda er gróðurhúsa-
rækt okkar íslendinga mjög nátt-
úruvæn og við finnum mun á ís-
lenska grænmetinu og hinu er-
lenda. Nú er hið íslenska græn-
meti óðum að streyma inn, gúrk-
ur löngu komnar og nokkuð síðan
tómatar og paprikur komu á
markað. Athugið að tómatar
beint úr kæliskáp eru ekki nærri
eins góðir og þeir sem geymdir
eru við hærra hitastig. Islenska
salatið frá Lambhaga fæst allt ár-
ið en það er ræktað án eiturefna,
auk þess sem verð þess er nokk-
uð stöðugt allt árið. Frá Lamb-
haga koma fleiri tegundir en það
salat sem mest framboð hefur
verið af og við köllum Lambhaga-
salat, en á sér vafalaust annað
nafn. Hinar tegundirnar eru
Lollo Rosso og eikarlauf. Yfir sal-
atið má strá klipptum graslauk
og smátt klipptum hundasúru- og
fíflablöðum sem allt er farið að
gægjast upp úr jörðinni núna.
Aðrir vorboðar, farfuglarnir,
streyma inn frá útlöndum, dag-
lega sjáum við hér á Garðaholti
nýjar tegundir sem vekja okkur
með morgunsöng. Þrösturinn og
auðnutitthngurinn eru fyrij-
nokkru komnir úr skjóli húsanna
í Hafnarfirði, en stutt er siðan
músarindillinn lét í sér heyra eft-
ir vetrardvöl í fjörugrjótinu á
Alftanesi. Ekki eru margir dagar
þar til krían kemur úr sinni löngu
ferð yfir hálfan hnöttinn, þá verð-
ur kórinn fullskipaður.
Tómatsalat
_____5 meðalstórir tómatar
100 g mozzarellaostur
nokkur graslauksstrá eða 2
sneiðar salatlaukur
________5 msk. ólífuolía______
nýmalaður pipar
1. Þvoið tómatana og skerið í
sneiðar. Skerið ostinn í þunnar
sneiðai’. Raðið tómötum og osti á
víxl á fat.
2. Setjið olíuna í úðaglas, nota
má tómt kryddbox með gataloki.
Yrið olíunni yfir salatið, malið
pipai’ yfir, klippið graslauk yfir
eða skerið salatlaukinn í þunnar
sneiðar og leggið hringina ofan á.
Setjið filmu yfir og látið bíða á
eldhúsborðinu í 1 klst.
Papríkusalat
______1 meðalstór græn og______
önnur rauð papríka
nokkur lítil nýsprottin fíflablöð
2 harðsoðin egg
2-3 sneiðar beikon
________4 msk. matarolía_______
3 msk. hvítvínsedik
1 skvetta úr tabaskósósuflösku
1. Harðsjóðið eggin, takið af
þeim skumina og saxið.
2. Skerið beikonið smátt og
harðsteikið. Kælið síðan.
3. Þvoið papríku, fjarlægið
steina og skerið í fernt langsum
og síðan í þunnar sneiðar þvers-
um. Þvoið fíflablöð, klippið þvert í
þunnar ræmur og setjið saman
við papríkuna.
4. Þeytið saman matarolíu,
hvítvínsedik og tabaskósósu.
Hellið leginum yfir papríkuna,
blandið saman með gaffli, leggið
filmu yfir og látið standa í kæli-
skáp í 1 klst.
5. Blandið saman söxuðum
eggjum og beikoni, stráið yfir og
berið fram.
Blaðsalat með gúrku
nokkur blöð Lambhagasalat
eða annað salat
Vz lítil gúrka
nokkur túnsúrublöð
safí úr Vz lítilli sítrónu
Vi dl matarolía
1-2 tsk. hunang
skvetta úr tabaskósósuflösku
1. Rifíð salatið niður og setjið í
skál. Afhýðið gúrkuna og skerið
þunnt með ostaskera, klippið
túnsúrublöðin í ræmur. Setjið
saman við.
2. Hristið saman sítrónusafa,
matarolíu, hunang og tabaskó-
sósu og hellið yfir. Blandið saman
með tveimur göfflum.
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Varasamt hús
á Flórída
EIRÍKUR Ólafsson, Hlíð-
argötu 8, Fáskrúðsfii’ði
hafði samband við Velvak-
anda og segist hann hafa
séð í blaðinu um síðustu
helgi auglýsingu um hús til
leigu fyrir Islendinga á
Flórída, á Smirna-beach.
Vill hann eindregið vara
fólk við þessari auglýs-
ingu, sagðist sjálfur hafa
leigt hús af þessum aðila
sl. haust. Segir hann að
húsið standist engan veg-
inn þær kröfur sem Is-
lendingar gera um sumar-
leyfishús, það sé bæði í ná-
grenni við varasamt hverfi
og að verðið sé allt of hátt
miðað við aðbúnað. Segist
hann hafa flúið úr þessu
húsi eftir tvo daga, og
fengið sér húsnæði annars
staðar, þó hafi hann verið
búinn að borga leiguna
fyrirfram. Segist hann vita
um fleiri íslendinga sem
hafi flúið úr þessu sama
húsi.
Leiguhúsnæði
Rey kj avíkur b orgar
HULDA hafði samband
við Velvakanda og vildi
hún koma á framfæri íyr-
irspurn til þeirra sem
stjórna húsnæðismálum
Reykjavíkurborgar. Hulda
skrifaði gi’ein í Morgun-
blaðið 2. apríl þar sem hún
skrifar um það ástand sem
er að skapast í leigumálum
borgarinnar. Hulda spyr:
Hvað ætlar Reykjavíkur-
borg að gera í málinu?
Hvenær á að vinna í mál-
um leiguliða borgarinnar
þar sem við blasir að fjöldi
manns mun lenda á göt-
unni á næstunni. Á að
draga málið fram yfir
kosningar?
Tapað/fundið
Kvengleraugu
týndust
KVENGLERAUGU með
málmumgjörð týndust
laugardaginn 18. apríl við
Austurver, Háaleitisbraut
eða við Háteigsveg. Finn-
andi hafi samband í síma
561 8655 eða 588 2017.
Dýrahald
Símon er týndur
SÍAMS-kötturinn Símon
hvarf frá heimili sínu
Bakkastíg 1, 101 Reykja-
vík, mánudagskvöldið 20.
apríl. Símon er með tjós-
leitan feld, höfuð, lappir og
skott svart, merktur með
rauðu hálsbandi. Uppl. í
síma 551 0413.
Fress óskar
eftir heimili
FRESS um þriggja ára
gamall, bröndóttur, vanað-
ur og vel vaninn, óskar eft-
ir góðu heimili vegna
breyttra aðstæðna. Upp-
lýsingar í síma 588 5154.
Tveir kettlingar
óska eftir heimili
TVEIR kettlingar, Sambó
litli sem er svartur og með
hvíta sokka og bringu, og
Tiger sem er brúnbrönd-
óttur ljónsungi lítill. Þeir
eru 5 mánaða gamlir,
kassavanir og vel upp ald-
ir. Upplýsingar í síma
565 0780.
^ Morgunblaðið/Ásdís.
LITIL stúlka að leik í sandkassa.
Víkverji skrifar...
AD segir mikla sögu um ís-
lenskt veðurfar að það teljist
fréttaefni að vel hafi viðrað á sum-
ardaginn fyrsta. Flestir eru orðnir
vanir því að ganga um bæinn á
þessum degi í kulda og trekki og
kom það því flestum í opna skjöldu
að í ár skuli dagurinn í raun hafa
verið fyrsti dagur sumars og þá
ekki bara að nafninu til.
Þeir voru því margir sem drifu
sig í miðbæinn til að njóta veðurs og
skemmtiatriða, sem þar voru í boði.
Víkverji röltir reglulega um bæinn
með yngri borgurum og því miður
verður að segjast að það er ekki
ávallt hættulaust. Á Ingólfstorgi,
sem er sá staður í miðborginni þar
sem fólk kemur hvað helst saman á
góðviðrisdögum, eiga menn yfirleitt
fótum sínum fjör að launa vegna
unglinga á hjólabrettum, sem engar
reglur virðast virða og bruna um
torgið án tillits til annarra vegfar-
enda.
XXX
VÍKVERJI ætlar svo sem ekki
að amast yfir því að unglingar
skemmti sér á hjólabrettum enda
voru þau mikið í tísku á hans ung-
lingsárum. Það er hins vegar á eng-
an hátt viðunandi að borgaryfirvöld
láti það viðgangast að einu helsta
torgi miðborgarinnar sé breytt í
hjólabrettaskemmtigarð. Göngu-
brautir, við hlið trappna, sem ætlað-
ir eru fólki með kerrur og vagna eða
þá fólki sem bundið er við hjólastól
virðast vera í sérstöku uppáhaldi
hjá hjólabrettaliðinu, sem sýnir tak-
markaðan skilning og stundum
hreinan dónaskap er aðrir gerast
svo djarfir að ætla að nota þessa
stíga. Minnist Víkverji á þetta þar
sem í mannþvögunni á sumardaginn
fyrsta mátti sjá nokkra hjóla-
brettagarpa bruna um á milli fólks.
XXX
EN ÞÓTT veðrið hafi leikið við
landsmenn framan af degi fóru
hlutirnir í eðlilegt horf eftir því sem
leið á daginn. Það fór að blása, rigna
og kólna og hélt áfram að kólna eftir
því sem kvöldið nálgaðist.
Margir höfðu greinilega hugsað
sér gott til glóðarinnar fyrri hluta
dags og fjárfest í kolum og kjöti á
grillið en líklega runnu tvær grímur
á flesta grillmeistara þegar kom að
því að fara út í garð um kvöldmatar-
leytið. í nágrenni Víkverja virtust
hins vegar flestir bíta á jaxlinn,
gi’illilm lagði um hverfið og víða
mátti sjá kappdúðaða fjölskyldufeð-
ur stumra yfir kolunum staðráðna í
því að láta ekki íslenska sumarið
buga sig strax í upphafi.