Morgunblaðið - 25.04.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 63
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Regnboginn er að taka til sýninga myndina Great Expectations, sem er
lauslega byggð á samnefndri skáldsögu Charles Dickens. I aðalhlutverkum eru Ethan Hawke,
Gwyneth Paltrow, Hank Azaria, Robert De Niro og Anne Bancroft.
ANNE Bancroft leikur frænkuna, sem heitir
Ms. Dinsmoor.
ROBERT De Niro er meðal aukaleikara.
GWYNETH Paltrow og Ethan Hawke leika Finn og Estellu í Great
Expectations.
mínu lífi. Til dæmis fór ég að leika
þegar ég var þrettán ára en ég átti
lítinn þátt í þvi sjálfur. Það er fólk
sem hefur verið mér ótrúlega gott
og hefur ráðið mestu um hvemig
líf mitt hefur þróast, rétt eins og
ókunnugt fólk i myndinni verður til
þess að breyta öllu lífi Finns.“
Drifkraftur í lífi Finns er hin
mikla og óendurgoldna ást sem
hann ber til Estellu. Gwyneth
Paltrow, úr Seven, Emma og
Moonlight and Valentino, og Ethan
Hawke hafa verið vinir lengi og
segjast hafa fagnað tækifærinu til
að vinna saman. „Estella er ís-
drottningin," segir Paltrow. „Hún
er fjarlæg en líka meðvituð um
sjálfa sig. Henni hefur verið kennt
að elska ekki.“
I hlutverki Ms. Dinsmoor er
Anne Bancroft, sú gamalkunna
leikkona sem vann til óskarsverð-
launa árið 1963 og hefur síðast
leikið í myndum á borð við G.I.
Jane, Home for the Holidays, og
Honeymoon in Vegas.
Robert De Niro leikur fangann
sem síðan kemur inn í líf Finns á
óvæntu augnabliki. De Niro er
óþarfi að kynna, einn mesti stór-
leikari siðustu áratuga, stjarna úr
myndum frá Deer Hunter og Taxi
Driver til Sitting Bull, Goodfellas,
Godfather, Wag The Dog og
Jackie Brown en tvær þær síðustu
.eru einmitt sýndar í íslenskum
kvikmyndahúsum um þessar
mundir.
Övænt ævintýri
úr safni Dickens
Frumsýning
LITLUM bæ í Flórída býr
hinn átta ára gamli Finn með
Maggie, systur sinni, og
„frændanum" Joe. Þau rétt
skrimta en Finn er listrænn og lif-
andi drengur sem nýtur þess að
lifa einföldu lífi og hefur yndi af því
að teikna myndir. Hann er hins
vegar sviptur sakleysinu þegai’
hann kemst óvænt í kynni við
fanga sem fær drenginn til að að-
stoða sig á flótta úr fangelsi.
Skömmu síðar er hann kallaður á
fund hinnar stórskrýtnu frú Noru
Dinsmoor, ríkustu konunnar í hér-
aðinu. Þar kynnist hann Estelle
frænku hennar og verður strax við
fyrstu sýn ástfanginn af henni.
Þessari sögu fylgir myndin í gegn-
um árin þar sem skiptast á skin og
skúrir, velgengni og niðurlæging
en fýrir ýmsar tilviljanir lífsins
lendir Finn í óvæntum ævintýrum
á vegferð sinni allt þar til hann er
búinn að týna sér í því að bíða eftir
að draumarnir miklu um hamingj-
una fari nú að rætast.
Þetta er sjötta enskumælandi
kvikmyndin sem byggð er á þess-
ari sögu Dickens. Hér er þó gengið
alllangt í því að breyta út af þræð-
inum hvað varðar áherslur sögunn-
ar sem eru mun tengdari tilfínn-
ingum en var hjá Dickens. Það má
hafa til marks um breytinguna að
söguhetjurnar, að Estelle frátaldri,
halda ekki þeim nöfnum sem Dick-
ens gaf sínum persónum. I stað
þess að heita Pip heitir aðalsögu-
hetjan Finn og hin ríka frænka
Estelle heitir ekki Miss Havisham
eins og í bókinni heldur Ms.
Dinsmoor.
Leikstjórinn Alfonso Cuarón er
nýliði í gerð Hollywood-kvikmynda
í fullri lengd. Myndir sem hann
hefur gert fyrir sjónvarp í Mexíkó
og Bandaríkjunum hafa hins vegar
vakið á honum athygli. Framleið-
andi myndarinnar er Art Linson,
en önnur mynd hans The Edge er
nú sýnd í Reykjavík. Hann hefur
einnig gert Melvin and Howard,
The Untouchables og Heat, svo
fátt eitt sé talið.
Ethan Hawke, sem er þekktur
úr myndum á borð við Alive og
Dead Poets Society, segir að hlut-
verk Finns hafi hentað sér vel og
hafi haft mikil áhrif á sig. „Stór
hluti af Great Expectations minnti
mig á mína eigin sögu,“ segir hann.
„Sú hugmynd að lítill ki-akki sé í
hringiðu stórra atburða, og það
hvernig Finn tekst á við velgengni
og hvernig hann þroskast sem ein-
staklingur era allt mikilvæg þema
fyi’ir mig; þetta er eitthvað sem
dró mig að þessu verkefni. Kjarni
sögunnar er sá að þrátt fyrir allt
ráðum við sjálf oft svo litlu um okk-
ar líf. Eg get tengt þau sannindi
FÖSTUDAGSMYNDIR SJÓNVARPSSTÖÐVANNA
Stöð 2 ►15.55 Brellumynd frá Disney, Dayo
(Dny-O, ‘92), segir af stúlku sem er lítilsmetin í
fjölskyldufyrirtækinu. Þá kemur „Dayo“ til
hjálpar. Með Elijah Wood og Deltu Burke.
IMDb: 8.4
Sýn ►21.00 Mynd kvöldsins: Leifturhraði
(Speed, ‘94) Sjá umsögn í ramma.
Sjónvarpið ► 21.30 Það skortir ekki stóru
nöfnin í Lagarefi (Legal Eagles, ‘86), róman-
tíska gaman- og spennumynd, sem stendur ekki
undir væntingum. Robert Redford leikur sak-
sóknara sem fellur fyrir verjandanum Debru
Winger undir réttarhöldum yfir Darryl Hannah.
Redford bjargar því sem bjargað verður í innan-
tómri en vel útlítandi og smekklega framleiddri
mynd í flesta staði. Leikstjóri er sá mistæki Iv-
an Reitman.
Stöð 2 ►22.50 Frumsýning á sálfræðitrylli,
Hvað sem það kostar (Homage, ‘95), byggð-
um á leikriti. Þjáningar fylgja kynnum þriggja
einstaklinga í smábæ í New Mexico. Með Blythe
Danner, Sheryl Lee og Bruce Davison. Leik-
stjóri Ross Kagan Matkes. AMG gefur
Sýn ►22.55 Á gelgjuskeiði (Mischief, ‘85) er
gamansöm unglingamynd sem fjallar mestan
hluta um nýuppgötvað kynlíf og kynlífsóra.
Ekki sem verst á sinn hátt. Doug McKeon, sá
sem fer með aðalhlutverkið, er löngu orðinn
undir í samkeppninni, einsog nánast allt ung-
leikaragengi myndarinnar, utan Kelly Preston.
★★
Sjónvarpið ► 23.25 Sakarstig. Síðari hluti
(Degree of Guilt II., ‘95)
Stöð 2 ►0.30 Því miður er ekki á ferðinni hin
upprunalega, sígilda vísindaskáldsögumynd
Dons Siegels, Líkamsþjófar (Body Snatchers,
‘94), er einkaútgáfu B-myndasjólans Abels
Ferrera (Bad Lieutenant). Hér daðrar hann við
ofsóknaræði, A-myndargerð og klassík með
sæmilegum árangri, sem þjónar þeim best sem
hafa ekki séð frummyndina né útgáfu Philips
Kaufman með Donald Sutherland. Með Gabr-
ielle Anwar, Meg Tilly og Forest Whitaker. Var
sýnd í kvikmyndahúsi hérlendis, einu fárra Evr-
ópulanda. ★★'/z
Stöð 2 ►2.00 Afdrifarík ferð (White Mile, ‘94)
Vond eftiröpun Deliverance með Alan Alda í for-
ystu fyrir vinnufélögum sem fara í bátsferð nið-
ur hvítfyssandi stórfljót. Þreytulegur leikhópur
telur m.a. Robert Loggia og Peter Gallagher. ★
Sæbjörn Valdimarsson
Missið ekki
af vagninum!
Sýn ^21.00 Ein af tímamótamyndum þessa áratugar
er spennumyndin Leifturhraði Speed, (‘94), ★★★/?,
framúrskarandi og framleg skemmtun á allan hátt.
Það er ekki lítið afrek að brydda upp á nýjungum í
slitnu spennumyndaforminu. Umhverfið gerir
gæfumuninn, lunginn af myndinni gerist um borð i
strætisvagni á götum Los Angeles. Brjálæðingur
(Dennis Hopper) hefur komið öflugri sprengju fyrir í
vagninum, sem springur í loft upp, troðfullur af far-
þegum, ef hann fer niður fyrir 50 km hraða. Hótar að
tortíma honum ef ekki verður gengið að peningakröf-
um hans. Nú era góð ráð dýr og sendir lögreglan
sprengjusérfræðing og ofurhuga (Keanu Reeves), til
að finna bombuna og bjarga fólkinu. Fær aðstoð frá
einum farþeganna (Sandra Bullock). Reeves er óvenju
tilþrifamikill, Bullock seiglast áfram og Hopper kann
þessar rallur utanað. Myndin er fyrst og fremst rós í
hnappagatið fyrir fyrrverandi kvikmyndatökustjóra og
landa Pauls Verhoevens, Jam De Bont, en Leiftur-
hraði er hans fyrsta leikstjómarverkefni. Hann skilar
því með eftirminnilegum árangri, það er ekki dauð
mínúta í myndinni. Missið ekki af þessum strætó!
Hljómsveitin Saga Klass
Frábær danstónlist frá kl. 23.30 með
hljómsveitinni Saga Klass og söngvurunum Sigrúnu
Evu Ármannsdóttur og Reyni Guðmundssyni
Laddi og félagar
fara á kostum í feröabransanum
GLEÐI, SÖNGUR OG FULLT
AF GRÍNI í SÚLNASAL
%
Raggi Bjarna og Stefán Jökulsson
sjá um stuðið á Mímisbar