Morgunblaðið - 25.04.1998, Side 64

Morgunblaðið - 25.04.1998, Side 64
' 64 LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM KVIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýninga kvikmyndina The Replacement Killers með kínversku hasarhetjuna Chow Yun-Fat og óskarsverðlaunaleikkonuna Mira Sorvino í aðalhlutverkum. Kínversk hetja í Hollywood FRUMSÝNING TVEIR ólíkir menningarheim- ar hittast í myndinni The Replacement Killers; Hong Kong og Hollywood. Einn frægasti kvikmyndaleikari Hong Kong kvik- myndanna Chow Fat-Yun leikur í sinni fyrstu Hollywood mynd ásamt einni efnilegastu ungu Hollywood- stjörnunni, óskarsverðlauna- leikkonunni Mira Sorvino. Myndin er meðal annars framleidd af John Woo en leikstjóri Replacement Killers heitir Antoine Faqua, og hefur hingað til aðeins leikstýrt tónlistarmyndböndum. Myndin fjallar um John Lee, kín- verskan innflytjanda til Bandaríkj- anna sem Chow Yun-Fat leikur. Hann er að reyna að snúa við blað- inu og segja skilið við ofbeldisfullt líf en lendir upp á kant við bófafor- ingjann Wei, sem ætlar að láta hann myrða fyrir sig mann. Lee fær hjálp frá skjalafalsaranum Meg Coburn (Mira Sorvino) til að kom- ast undan Wei og þar með eiga þau bæði reiði foringjans yfir höfði sér og þurfa að snúa bökum saman til að eiga við útsendara hans og forð- ast hefnd illmennisins. Þótt nafn Chow Yun-Fat sé óþekkt að mestu í vestrænum kvik- ^►myndahúsum hefur maðurinn verið súperstjarna í Asíu í 20 ár og leikið þar í fjölmörgum myndum, þar á meðal þremur af þekktustu mynd- um John Woo. Woo er einmitt flutt- ur til Hollywood og farinn að gera bandarískar myndir. Síðast gerði hann Face/Off og Woo framleiðir þessa mynd. Leikstjórinn Antoine Faqua er efnilegur leikstjóri sem hér fær að leikstýra í fyrsta skipti eftir að hafa slegið í gegn við gerð tónlistarmyndbandsins við lag Coolios, Gangsta’s Paradise. Faqua segir að Chow hafi reynst vera sannkölluð stórstjarna og hafi skapað ótrúlega gott andrúmsloft við tökur myndarinnar. „Hann er gífurlega einbeittur og áhugasamur leikari og andlega þenkjandi mað- ur. Hann lifir í núinu og er tilfinn- ingalega meðvitaður. Það var ekki óvenjulegt að hann kveikti á kín- versku reykelsi á bílastæðinu okkar til þess að jákvæð orka héldi vernd- arhendi yfir myndinni og öllum sem unnu við gerð hennar. Hann byrj- aði alla daga á því að heilsa hverj- um einasta samstarfsmanni sínum, bæði leikurum og tæknimönnum, og minna þá á að án þeirra gæti hann ekki gert þessa mynd. Það segir sig sjálft að svona vinnubrögð og afstaða skapar jákvætt and- rúmsloft á vinnustað." Mira Sorvino er hins vegar upp- alin í kvikmyndaheiminum í Amer- íku og þótt hún sé með háskólapróf frá Harvard í kínversku og hafi bú- ið í Beijing í eitt ár undirbýr sig á annan og árásargjarnari hátt en hinn kínverski mótleikari hennar. Sorvino byrjar vinnudaginn á því að boxa og berja boxpoka sundur og saman og þegar hlé varð á upp- tökum notaði hún tækifærið, fór af- síðis og öskraði af lífs og sálai- kröftum til að halda einbeitingu. Sorvino hlaut óskarsverðlaun fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir leik sinn í Mighty Aphrodite eftir Sumrinu fagnað HORNALEIKARAR tóku þátt í skrúðgöngu um götur Ziirich í Sviss á dögunum. Skrúðgangan var hluti af hefðbundinni hátíð sem er haldin í lok vetrar. Upphaf sumars er greinilega fagnaðarefni víðar en á ís- landi. Mariah Carey í kvikmyndum ► MARIAH Carey virðist vera að springa úr athafnagleði eftir að hún skildi við eiginmann sinn Tommy Mottola. Samningavið- ræður eru nú á lokastigi um að hún taki að sér aðaikvenhlut- verk á móti Chris Tucker í uijósnamyndinni „00-Soul“. Hún hefur einnig verið orðuð við aðalhlutverk í myndinni „All That Glitters" sem byggð er á ævi hennar sjálfrar. Mun hún að öllum líkindum taka þátt í að framleiða þá mynd. „00-Soul“ er gamanmynd sem fjallar um ungan leyniþjónustu- mann, sem leikinn er af Tucker. Hann er hækkaður í tign eftir að allir frammámenn leyniþjónust- unnar er þurrkaðir út. Carey verður í hlutverki stjúpdóttur skúrksins í myndinni. Fréttamiðlar í fríi SJÓNVÖRP eru að hluta til fréttamiðlar og taka á sinn eyk að vera fjórða valdið í þjóðfélaginu ef maður má trúa orðum þeirra sjálfra. Það mun þó einkum vera sérkennilegasta fréttablað lands- ins, DV, sem lítur á sig sem fjórða valdið. En þar sem það er ekki út- varps- eða sjónvarpsmiðill mun ekki fjallað um þetta skrítna og sérviskulega fjórða vald hér. Lengi höfðu lesendur og áheyi-- endur frétta sóst eftir því að geta fylgst með atburðum, sem gerast erlendis. Þá var ekki komin til hin drýgingalega skoðun montprika í blaðamennsku, að fjölmiðlar ættu að gegna hlutverki fjórða valds í þjóð- félaginu. Blöð og útvarp sögðu einfaldlega fréttir og þar við sat. Hlegið var að slæmum skilningi- á erlendum háttum og þýðingu sérlegra orða, eins og þegar fréttamaður í er- lendum sagði þýskar fréttir á stríðsárunum og nefndi til sögu þýska hershöfðingjann General Stab. Fleira slíkt var á döfinni og gerði ekki til og einnig sú venja sem helst í dag að ritstýra frétt- um með þögninni. Það mun eink- um hafa þótt henta í pólitík og gerir enn. Sjást þess nokkur merki nú, þegar nær líður sveit- arstjórnarkosningum. Ríkissjón- varpið hafði fyrir sið að steypa yf- ir sig heilagsandahjúpi fyrir hverjar kosningar en úr því hefur dregið fyrir sakir frjálslyndis að því að sagt er. Hinsvegar hefur þessu fjórða valdi lærst að þegja í fréttum ef þær þykja ekki nógu hentugar innan áhugasams starfsliðs. Komi svo upp einhver frétt, sem þykir vond fyrir and- stæðingana, er lagst við stjóra og hamast dag eftir dag á sama við- fangsefninu löngu eftir að allt hefur verið sagt sem hægt er. Stærsta blað landsins er opið fyr- ir almenning hvar sem hann ann- ars stendur pólitískt séð og er stundum broslegt að líta yfir allan þann vettvang. Þeir sem fylgjast með erlend- um fréttastöðvum sjónvarps geta ekki séð á efnisvali frétta, eða þeim þagnargildum fréttaflutn- ings, sem þar örlar á, hverjar skoðanir starfs- fólksins við útsend- ingu eru, allt frá fréttastjóra og nið- ur í sendisvein. Aft- ur á móti má sjá þessar skoðana- línur í fréttatímum sjónvarpanna íslensku, sem unnir eru og sendir út af fólki sem kallar sig frétta- rnenn. Þetta er hvimleitt við sam- anburð, 'sem auðvitað er sama og ekkert stundaður hér á landi, en sýnir hvað sjónvarpsfréttamenn hér eru lítið menntaðir og póli- tískir miðað við erlent starfslið á bak við erlenda skjái. Þá býr fólk hér við allskonar duldir og tabú í fréttum, sem minnir ekki á neitt, sem viðgengst annarsstaðar í heiminum, svo sem myndbirting- ar af slysum, að ekki sé nú talað um myndir af látnum frægðar- mönnum góðum eða vondum eftir atvikum. Þulir hér í sínum al- kunna séríslenska heimóttarskap. biðja jafnvel um að börn séu fjar- lægð frá skjánum sé verið að sýna hvernig símastaur brotnar í óveðri. Þetta digurbarkalega fjórða vald ljósvakafjölmiðlanna er langáhrifaríkast, þegar það hefur upp einskonar vandlæt- ingarraust og snýr sér næstum beint að almenningi með einskon- ar hvatningu. Ekki má líða dagur áður en tekið er undir með skoð- anakönnunum þar sem einn eða annar er rekinn úr starfi með yfir sextíu prósent atkvæða, þótt svo komi á daginn í öllum flýtinum, að öll kurl voru ekki komin til graf- ar. Svona fréttamennska á sér hvergi stað nema á íslandi eða þá í Timbúktú, ef sá staður býr við fjórða valdið. Fyrir nokkrum dögum barst sú frétt um heimsbyggðina, að helsti slátrari og einræðisherra seinni tíma, Pol Pot í Kampútseu, væri látinn. Fréttastöðvar sendu út myndir af honum látnum í kof- aræksni við landamæri Tælands og æviágrip í gömlum kvikmynd- um. Jafnframt var talið upp helsta frægðai’verk hans, morðið á þjóð hans og birtar myndir af beinamusterum landsins, þar sem hauskúputurnar gnæfa til himins. Hann hélt því sjálfur fram, að hann hefði ekki drepið þetta fólk og vékst undan því að vera talinn fimmti mesti fjöldamorðingi ald- arinnar ásamt þeim Hitler, Lenín, Stalín og Mao. Hér heima sætti andlát Pol Pots engum tíðindum og fréttir af því bárust ekki í gegnum ljósvakamiðla fyrr en síðar og þá án þess að geta ævi- ferils hans nema að litlu leyti. Hugsjónabræður Pol Pots mega una sæmilega þessum málalok- um. Indriði G. Þorsteinsson SJONVARPA LAUGARDEGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.