Morgunblaðið - 25.04.1998, Page 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Freddi
Sandur og
grjótá
nýju sumri
KOMA sumars er formlega stað-
fest á dagatalinu og jafnframt er
harpa gengin í garð, fyrsti sum-
armánuðurinn samkvæmt gömlu
íslensku tímatali. Drengurinn
sem ljósmyndari rakst á við leik
í Reykjavflí var þó skynsamlega
klæddur miðað við óútreiknan-
legt veðurfarið og undi glaður
við sitt, teljandi sandkornin og
grjótið. Kannski var hann að
reikna það út í huganum hversu
langur tími mun Iíða uns sumar-
ið kemur í raun og veru með sól
ogyi-
----------------
Slys á Akureyri
Sex ára
dreng haldið
sofandi
SEX ára drengur fannst meðvit-
undarlaus á botni Sundlaugar
Akureyrar um miðjan dag í gær.
Sundlaugargestur fann drenginn
og kom honum upp á sundlaugar-
bakkann. Þar voru gerðar á
drengnum lífgunartilraunir af
gestum og starfsfólki en hann náð-
ist ekki til fullrar meðvitundar.
Drengurinn var fluttur á gjör-
gæsludeild FSA og haldið þar sof-
andi. Að sögn Veigars Olafssonar
svæfíngalæknis verður honum
haldið sofandi um hríð og ekki er
hægt að spá fyrir um batahorfur
drengsins fyrr en hann er kominn
úr dáinu.
Að sögn Guðmundar Svanlaugs-
sonar rannsóknarlögreglumanns
voru tildrög slyssins óljós.
Skoðanakönnun Fé-
lagsvísindastofnunar
R-listi
fengi níu
borgar-
fulltrúa
R-LISTINN fengi 60,9% atkvæða en
D-listi sjálfstæðismanna 39,1% at-
kvæða ef gengið væri til borgar-
stjórnarkosninga á morgun, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem Félags-
vísindastofnun hefur gert fyrir
Morgunbiaðið.
Samkvæmt þessum tölum fengi R-
listi 9 borgarfulltrúa en D-listi 6
borgarfulltrúa.
10,6% kváðust óákveðnir um hvað
þeir mundu kjósa. 8,6% neituðu að
svara spurningunni.
Samkvæmt könnuninni fengi R-
listinn fylgi 68,8% kvenna en 50,9%
karla. Sjálfstæðisflokkurinn fengi
31,2% atkvæða kvenna en 49,1% at-
kvæða karla.
■ R-listi fengi/6
Banaslys
í Eyjum
FIMMTÍU og sex ára gamall
maður lést við vinnu sína í Vest-
mannaeyjum í gærkvöldi. Verið
var að afferma tengivagn með
stálbitum þegar slysið varð og
er talið að einn bitinn hafi sleg-
ist í manninn, með fyrrgreind-
um afleiðingum.
Slysið var við nýbyggingu
fiskimjölsverksmiðju í Vest-
mannaeyjum, en um stálgrind-
arhús er að ræða. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu voru
nokkrir starfsmenn við bygg-
inguna að afferma tengivagn
með stálbitum um klukkan
20.30 í gærkvöldi. Þegar festing
var losuð af farminum valt einn
bitinn af vagninum og slóst í
manninn. Talið er að hann hafí
látist samstundis.
Ekki er hægt að birta nafn
mannsins að svo stöddu.
* >
Læknafélag Islands og læknadeild Háskóla Islands
vilja fresta frumvarpi um gagnagrunn
Sagt ógæfa nái frum-
varpið fram að ganga
Leifur Þórarinsson
tónskáld látinn
LÆKNAFÉLAG íslands sendi í gær frá sér harðorðar athugasemdir
við frumvarp heilbrigðisráðherra um gagnagrunna á heilbrigðissviði
og segir óskiljanlegt að Alþingi ætli að keyra frumvarpið í gegn í vor,
þrátt fyrir mótmæli fagaðila. Um sé að ræða frumvarp sem sé „mein-
gallað og það yrði ógæfumál ef það næði fram að ganga. Afleiðing þess
yrði að glatast myndu mikil verðmaeti, jafnt mannréttindi, vísindaum-
hverfi sem fjármagn."
Þá samþykkti læknadeild HÍ í
gær ályktun þar sem beint er „þeim
eindregnu tilmælum til Alþingis ís-
lendinga að afgreiðslu frumvarps
um gagnagrunna á heilbrigðissviði
verði frestað til næsta þings.“
Samrýmist ekki
samþykktum
LEIFUR Þórarinsson
Jónskáld lést á sjúkra-
húsi í Reykjavík í gær,
63 ára að aldri. Leifur
var í röð fremstu tón-
skálda landsins og ým-
is verka hans eru ekki
síður þekkt erlendis en
hér heima.
Leifur var fæddur í
Reykjavík 13. ágúst
1934, sonur Öldu Al-
vildu Möller leikkonu
og Þórarins Kristjáns-
sonar, símritara.
Eftir nám við Tón-
“istarskólann í Reykja-
vík hélt Leifur utan til náms í tón-
smíðum um miðjan sjötta áratug-
inn og nam m.a. hjá Hans Jelinek í
Vín og Múnchen. 1959 fór hann til
náms í Bandaríkjunum og var þar
við nám til ársins 1965, m.a. hjá
Walinford Riegger og Gunther
Schuller.
Leifur samdi fjölda kammer-
verka, m.a. Afstæður
fyrir fiðlu, selló og pí-
anó, og strengjakvart-
ett. Meðal hljómsveit-
arverka hans má nefna
sinfóníur frá 1963 og
1997, konsert fyrir
fiðlu og hljómsveit og
konsert fyrir óbó og
hljómsveit. Hann vann
að óperu við eigin texta
sem til stóð að flytja í
vor en tókst ekki að
ljúka henni vegna veik-
inda. Þá starfaði Leifur
mikið í leikhúsi og
samdi tónlist fyrir um
það bil 50-60 leiksýningar.
Hann starfaði af og til hjá Ríkis-
útvarpinu, í gegnum árin, bæði
sem þulur og dagskrárgerðarmað-
ur.
Eftirlifandi eiginkona Leifs Þór-
arinssonar er Inga Bjarnason leik-
stjóri. Hann lætur eftir sig þrjú
uppkomin börn.
í athugasemdum Læknafélags
íslands segir m.a. að hugsanlegt sé
að stuðningsmenn frumvarpsins
telji að snögg afgreiðsla leiði til
minni deOna og að andstæðingar
þess sætti sig við orðinn hlut, en
líklegt sé að niðurstaðan verði
þveröfug. Félagið segir frumvarpið
ekki samrýmast mörgum ákvæð-
um í samþykkt Evrópuráðsins frá
því í febrúar í fyrra um vernd
heilsufarslegra upplýsinga og
einnig stangist það á við samþykkt
UNESCO frá því í nóvember í
fyrra og yfirlýsingu Mannerfða-
mengisstofnunarinnar um viðeig-
andi verkiag við erfðarannsóknir.
Félagið bendir og á að í alþjóð-
legum tímaritum á sviði líftækni
hafi undanfarnar vikur birst um-
fjöllun um áætlanir um gagna-
grunn þar sem komi fram furða á
að þjóð skuli tilbúin til að setja
saman slíkan gagnagrunn „og láta
hann síðan vera gjöf til að styrkja
rannsóknir einkafyrirtækis, einka-
fyrirtækis sem hefur það að mark-
miði að selja aðgang að þessum
viðkvæmu upplýsingum," segir í
athugasemdum félagsins.
Vitnað er í umfjöllun í aprílhefti
tímaritsins Nature Biotechnology
og sagt að þar sé bent á að Islensk
erfðagreining hyggist m.a. láta
ókeypis lyf í staðinn fyrir erfða-
rannsóknir sínar. „Um slíka lausn
á samspili þjóðar og erfðarann-
sóknafyrirtækis verður þó að segj-
ast að hún minnir helst á það þeg-
ar indíánum voru gefnar glerperl-
ur fyrir gull,“ er vitnað í tímaritið.
Vilja mat á verðmæti
Félagið kveðst telja að verði
frumvarpið að lögum muni skerð-
ast verulega möguleikar óháðra
vísindamanna til að stunda mann-
erfðarannsóknir. Gert sé ráð fyrir
að vísindamenn megi skoða
sjúkraskrár en ekki setja upplýs-
ingar úr þeim í gagnagrunn sem
myndi þýða að rannsóknir óháðra
aðila legðust af og einokun starfs-
leyfishafa kæmist á.
,Áður en verðmæti af þessari
stærðargráðu eru gefin einkaaðila
er sjálfsagt og eðlilegt að fá óháða
ráðgjafa tii að meta virði gagn-
anna,“ segir í athugasemdunum.
„Samdráttaraðgerðir í heObrigðis-
kerfi, allt frá lágum launum starfs-
fólks til skerðingar á framboði
þjónustu eins og hjartaþræðinga,
fá holan hljóm ef með því á að
spara tugi til hundruð mdljóna en
hedbrigðiskerfið gefur á sama
tíma frá sér verðmæti sem kannski
skipta tugum milljarða króna.“