Morgunblaðið - 27.06.1998, Side 1

Morgunblaðið - 27.06.1998, Side 1
92 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 142. TBL. 86. ÁRG. LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS flilutun í innan- ríkismál Kína Peking. Reuters. DEILA um handtöku þriggja kín- verskra andófsmanna virtist í gær ætla að varpa skugga á fyrsta leið- togafund Bandaríkjanna og Kína í níu ár sem haldinn verður í Peking í dag. Bill Clinton Bandaríkjaforseti lét í ljós óánægju með handtökurn- ar en kínversk stjórnvöld vísuðu gagnrýninni á bug sem íhlutun í innanríkismál Kína. Clinton, sem hefur verið gagn- rýndur í Bandaríkjunum fyrir að sýna Kínverjum of mikla linkind, sagði við blaðamenn að fréttir um að þrír andófsmenn hefðu verið handteknir bentu til þess að Kín- verjar væru ekki á réttri braut í mannréttindamálum. Samuel Berg- er, þjóðaröryggisráðgjafí Banda- ríkjanna, sagði að fréttirnar hefðu komið forsetanum í uppnám og hann hygðist ræða málið við Jiang Zemin, forseta Kína, á fundi þeirra í Peking í dag. James Sasser, sendi- herra Bandaríkjanna, hefði lagt fram formleg mótmæli en viðbrögð Kínverja hefðu ekki verið „allskost- ar fullnægjandi". Tveir andófsmenn Clinton fór til Peking í gær írá Xian, þar sem níu daga heimsókn forsetans hófst á fímmtudag. Nokkrum klukkustundum áður en Clinton hélt til höfuðborgarinnar voru tveir andófsmannanna látnir lausir. Fregnir hermdu að þriðji andófsmaðurinn væri enn í haldi lögreglunnar. Stofnun kínverskra kaþólikka i Bandaríkjunum skýrði ennfremur frá því að kínversk yfirvöld hefðu handtekið Julias Jia Zhiguo, biskup sem starfað hefur leynilega í Hebei- héraði. Clinton neitaði því að handtök- umar myndu grafa undan þeirri stefnu hans að bæta samskiptin við stjórnvöld í Kína. „Ein af ástæðum þess að ég kom hingað var að ræða bæði opinberlega og á lokuðum fundum um mál sem varða frelsi einstaklinga.“ ■ Clinton hæIir/25 Reuters FRANSKIR lögreglumenn liandtaka Englending sem kastaði flöskum á Iögregluna nálægt knattspyrnuleikvanginum í Lens. Lens. Reuters. TIL átaka kom milli enskra knatt- spyrnubullna og lögreglumanna fyr- ir leik Englendinga og Kolumbíu- manna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gærkvöldi. Englend- ingar sigruðu 2:0 og leika við Arg- entínumenn í 16 liða úrslitunum á þriðjudag. Tugþúsundir Englendinga voru í Lens í norðurhluta Frakklands, þar sem leikurinn fór fram, en flestir þeirra voru án aðgöngumiða. Hart- nær 100 Englendingar voru hand- teknir í Calais í Frakklandi og Ostend í Belgíu vegna óeirða eftir að knattspyrnuáhugamennimir komu þangað með ferjum á leið til Lens. Um 150 drukknar knattspyrnu- bullur gengu berserksgang í Ostend, brutu rúður í verslunum og veitinga- húsum og skemmdu tvo lögreglubíla. Beitt var hundum og vatnsþrýsti- byssum til að yfirbuga óeirðaseggina. Um 1.300 lögreglumenn fylgdust grannt með mannfjöldanum í Lens og handtóku 30 óróaseggi. Lögregl- an kvaðst staðráðin í að taka hart á knattspymubullum til að koma í veg fyrir frekari óeirðir. „Það er tíma- bært að þessir menn fái verðskuld- aða ráðningu,“ sagði Lionel Jospin, forsætisráðherra Frakklands. ■ Glæsilegur sigur/Bl SDLP fékk flest atkvæði á N-írlandi en UUP fleiri þingsæti Bandaríkjamenn gagnrýna handtöku kínverskra andófsmanna Sakaðir um Bullur í berserks- ham David Trimble verður líklega forsætisráðherra Belfast. Morgunblaðið. Reuters JOHN Hume, leiðtogi SDLP, og kona hans, Pat, fagna sigri hans í Foyle-kjördæmi, þar sem hann var kjörinn á nýja þingið á N-Irlandi. leystir úr haldi „Við erum andvíg því að erlend ríki noti mannréttindamál sem átyllu til íhlutunar í innanríkismál Kína,“ sagði talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins um gagnrýni Bandaríkjamanna. Kynferðisleg áreitni Málshöfð- un auð- velduð Washington. Reuters. HÆSTIRÉTTUR Bandaríkj- anna kvað í gær upp tvo úr- skurði, sem taldir eru marka tímamót og verða til þess að auðvelda málshöfðun vegna kynferðislegrar áreitni á vinnu- stöðum. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu í tveimur málum að vinnuveitendur gætu verið ábyrgir að lögum fyrir kynferð- islegri áreitni af hálfu starfs- manna sinna. Lögmenn Paulu Jones, sem hefur sakað Bill Clinton Banda- ríkjaforseta um kynferðislega áreitni, sögðu að niðurstaða dómstólsins yki „stórlega" lík- umar á því að áfrýjunardóm- stóll hnekkti úrskurði alríkis- dómara, sem hafði vísað máli Jones frá án réttarhalda. Lög- fræðingar Clintons sögðu hins vegar að niðurstaða hæstarétt- ar myndi ekki „grafa undan“ úrskurði alríkisdómarans þar sem um ólík mál væri að ræða. FLOKKUR hófsamra kaþólikka (SDLP) fékk flest atkvæði í fyi'sta sæti í þingkosningunum á N-íriandi og er í fýrsta skipti orðinn stærstur n-írsku stjómmálaflokkanna. John Hume, leiðtogi flokksins, fagnaði þessum tíðindum í gærkvöldi en vegna flókins hlutfallskosningakerfis var talið líklegt að Sambandsflokkur Ulster (UUP) fengi samt sem áður fleiri sæti á þinginu nýja sem kemur saman í fyrsta sinn á miðvikudag. Er því sennilegt að forsætisráðherra komi úr röðum UUP. Flokkar hlynnt- ir páskasamkomulaginu, sem sam- þykkt var með 71% atkvæða i þjóðar- atkvæðagreiðslu í maí, hlutu nú sam- anlagt um 73% fylgi. Andstæðingar páskasamkomu- lagsins innan raða sambandssinna, með stjórnmálaflokk Ians Paisley (DUP) í fararbroddi, geta samt sem áður talist nokkuð ánægðir með út- komuna og leit allt út fyrir að þeir fengju að minnsta kosti 25 sæti á þinginu en fyrirfram var hins vegar talið að þeir þyrftu fleiri en 30 tfl að geta haft starfsemi þingsins í hendi sér. Sinn Féin jók einnig fylgi sitt frá fyrri kosningum. Talning gekk hægt í gær og end- anleg úrslit verða ekki kunn fyrr en í dag eða jafnvel á morgun. Ljóst er hins vegar að SDLP hlaut 22,0% at- kvæða í fýrsta sæti, UUP 21,3%, DUP 18,1%, Sinn Féin 17,6%, Alli- ance 6,5% og aðrir flokkar saman- lagt 14,5%. Seint í gærkvöldi leit hins vegar út fyrir að vegna kosningakerfisins, þar sem máli skipti hvernig kjósend- ur röðuðu flokkum niður, fengi UUP 29 sæti á þinginu, SDLP 24, DUP og aðrir andstæðingar samkomulagsins 26, Sinn Féin 17, Alliance-flokkurinn 7 og aðrir flokkar minna. Hume sakar Paisley um fasisma Ef þessar spár rætast munu UUP og SDLP hljóta 4 menn hvor í sam- stjórn kaþólskra og mótmælenda og Sinn Féin og DUP 2 hver. Umdeilt er hins vegar enn hvort Sinn Féin eigi að fá að taka sæti sín í stjórn- inni að svo stöddu, á meðan afvopn- un IRA er ekki á döfinni. Frétta- skýrendur telja í raun erfitt að koma í veg fyrir það því ákvæði í páskasamkomulaginu tryggi Sinn Féin í raun þennan rétt. DUP mun hins vegar berjast til síðasta manns áður en flokkurinn sættist á þetta og hyggst hefta störf þingsins ef gerð verður tilraun til að hleypa Sinn Féin í ríkisstjórn. David Trimble, leiðtogi UUP, sagðist í gær nokkuð ánægður með útkomu flokks síns þrátt fyrir allt. „Við horfum samt upp á töluverð vandkvæði og sigur okkar var ekki eins afgerandi og við hefðum kosið." Ian Paisley, leiðtogi DUP, var víg- reifur og sagði Trimble búinn að vera sem forystumann í stjórnmálum á N- Irlandi. „Þetta er góður dagur fyrir N-írland því DUP hefur unnið sigra hvarvetna um N-Irland.“ John Hume, leiðtogi SDLP, gagn- rýndi Paisley hins vegar harðlega og spurði hvort klerkurinn umdeildi ætlaði nú að gerast fasisti og neita að virða lýðræðislega niðurstöðu kosninganna og gera tilraun til að hefta störf þingsins. „Staðreyndin er sú að íbúar N-írlands vilja sam- vinnu. Það er kominn tími til að við skiljum ofbeldi fortíðarinnar að baki og horfum tfl bjartari framtíðar. Það starf hefst nú.“ ■ Margir þingmanna/24

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.