Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 21
MORGUNB LAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 21
AT&T KAUPIR TCI
Símarisinn AT&T kaupir
kapalsjónvarpsrisann TCI
með hlutabréfaskiptum upp
á 48 milljarða Bandaríkjadala
Langlínu- útvarps- og netþjónusta
AT&T verður sameinuð kapal-,
fjarskipta- og netfyrirtækjum TCI og
stofnað verður nýtt dótturfyrirtæki,
AT&T Consumer Services.
TEKJUR, milljónir dollara:
0 10 20 30 40 50 60 70
1997 1 i i i i
1996 TT 1 '•
1 1 1 1
1995 ■■■= , ■ - 1
1994
i ~r i i
1993
i i i
f~lTCI QATST
80
HAGNAÐUFVTAP FYRIR SKATTA:
Milljónir dollara:
-10 -8 -6 -4 -2 0 2 4 6 8 10
Rússneskt
tilboð í
úkraínskt
súrálver
Moskvu. Reuters
FJORAR rússneskar álbræðslur
hafa samþykkt að koma á fót verk-
efnasamtökum til að bjóða í hlut í
Mykolayiv súrálverinu í Úkraínu
(MHZ) samkvæmt heimildum í
Moskvu.
Samtökin nefnast Ukrainski Gl-
inozyom og að þeim standa Kra-
snoyarsk, Bratsk, Novokuznetsk
og Volgograd álbræðslurnar. Önn-
ur rússnesk álbræðsla, Irkutsk
Aluminium, Kazakstan álfyrirtæk-
ið og umsvifamikill vestrænn
súrálsframleiðandi kunna að
ganga í samtökin.
Reiðubúinn að fjárfesta fyrir
200 milljónir dollara
I apríl ákvað Sibirskiy Alu-
miniy-hópurinn, þar á meðal þriðji
helzti álframleiðandi Rússlands,
Sayansk, að bjóða í Mykolayiv.
Hópurinn kvaðst reiðubúinn að
fjárfesta í úkraínska verinu fyrir
200 milljónir dollara.
í lok apríl sagði Oleksandr
Bondar, þá starfandi formaður
úkraínsku einkavæðingamefndar-
innar, að nefndin hefði komizt að
samkomulagi við MHZ um að selja
17% og 13% hlutabréfa í verinu í
tveimur útboðum. Síðan stöðvaði
þingið einkavæðingu versins.
Úkraínustjórn ákvað í febrúar
að halda í þrjú ár 26% hlut í ver-
inu, sem getur framleitt eina millj-
ón lesta af súráli á ári.
Starfsmenn eiga rétt á 30,97%
hlutabréfa, stjóm versins 5% og
um 3,5% hafa þegar verið seld.
Súrálframleiðsla Mykolayiv hef-
ur frá gamalli tíð verið seld inn-
lendum viðskiptavinum og er 20%
rússneska markaðarins.
VIÐSKIPTI____________
Enn dýrast að búa
í borgum Japans
London. Reuters.
ENN er dýrast að búa í borgum
Japans fyrir útlendinga búsetta er-
lendis þrátt fyrir veikleika Japans
samkvæmt könnun brezku upplýs-
ingaþjónustunnar Economist In-
telligence Unit.
Tókýó og Osaka tróna enn í efstu
sætum þessarar könnunar um
framfærslukostnað víðs vegar í
heiminum, en Hong Kong hefur
skotizt upp í þriðja sæti. Ósló er enn
dýrasta borg Evrópu og fjórða
dýrasta borg heims, en Ziirich fylg-
ir fast á eftir.
Vegna styrkleika pundsins hefur
London færzt upp í 6. sæti úr 14.
sæti fyrir ári og ekki verið eins of-
arlega á blaði í 20 ár.
Moskva hefur hrapað úr 4. sæti í
10. sæti, en í engri borg Evrópu er
ódýrara að búa en í Búdapest, þar
sem meðalverð er helmingi lægra
en í New York.
New York er dýrasta borg
Bandaríkjanna og hefur færzt upp í
16. sæti úr 22. sæti íyrir ári.
Beztu kjör í heiminum fást í
Djakarta, þar sem kostnaður hefur
hrunið um leið og rúpían. Af þeim
119 borgum, sem könnunin nær til,
er hvergi eins ódýrt að búa og í
Djakarta og er meðalverð þar inn-
an við þriðjungur meðalverðs í
Tókýó.
Hér fer á eftir listi yfir þær borg-
ir heims, þar sem dýrast er að búa
(tölur frá því í fyrra innan sviga): 1.
Tókýó (1), 2. Osaka (2), 3. Hong
Kong (5), 4. Ósló (3), 5. Ziirich (6), 6.
London (14), 7. Libreville (6), 8.
París (6), 9. Genf (10) 10. Moskva
(4).
Hjá okkur
er allt í blóma
Leiðin í Mörk
Opnunartímar:
Virka daga kl. 9-21
Umhelgarkl. 9-18
GROÐRARSTÖÐIN
STJÖRNUGRÓF18, SÍMI581 4288, FAX 581 2228
Sækið sumarið til okkar
• í»riú fræðslurit
bíoa ykkar
Glæsileg veggspjöld,
um skrautrunna,
lauftré og barrtré