Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 29 / A lager, á kassa, í kjötborði og nú forstjóri Hann stendur á þrítugu og var í síðustu viku ráðinn forstjóri Hagkaups, Nýkaups og Bónuss. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir fór með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni út að borða í vikunni. ÚTI AÐ BORÐA MEP JÓNI ÁSGEIRI JÓHANNESSYNI JÓN ÁSGEIR Jóhannesson forstjóri Hagkaups, Nýkaups og Bónuss. Morgunblaðið/Golli V'IÐ förum auðvitað á Hard Rocksegir hann og kæfír strax athuga- semd mína um að erfítt verði að halda þar uppi samræðum undir háværri tónlist og segist munu sjá til að lækkað verði niður í henni. „Hvað segirðu um að- eins rólegri stað?“ spyr ég afar var- færnislega í símann. En það verður engu tauti við hann komið og á því er skýring. Þeir feðgar hafa um skeið átt 70% hlut í Hard Rock og hann er stoltur af staðnum sínum. Það fer ekki milli mála að Jón Ásgeir er fastagestur þar sem hann lítur varla á matseðilinn en pantar „Sunset strip“-kjúklingabringur með bakaðri kartöflu og frönskum kartöflum og vill fá kók í glerflösku með og kokkteilsósu. Maður er nú ekkert að gera sér leik að því að auglýsa fáfræði sína um matseðil- inn svo ég flýti mér að biðja þjón- inn um það sama nema ég sleppi frönskum og ‘ kokkteilsósu. „Heyrðu, við ætlum að fá beinlausa kjúklingavængi í forrétt," bætir hann við og ég kinka kolli til sam- þykkis. Er ekki matargat Jón Asgeir lítur á blaðið sem ég er að pára á og spyr hvort ég ætli nokkuð að láta hann líta út eins og matargat á síðum Morgunblaðsins þótt hann panti bæði franskar kart- öflur og bakaða kartöflu og bætir við að ástæðan sé sú að hann borði ekkert í morgunmat. „Eg byrja á morgnana að æfa í World Class og drekk síðan vatn fram að hádegi, en þá borða ég líka vel.“ Jón Asgeir hefur frá upphafí, ásamt föður sínum, stýrt Bón- usverslununum, sem hafa verið ímynd lágs vöruverðs í bráðum tíu ár. En hvað nú? Er hjartað hætt að slá með Bónusi með tilkomu Ný- kaups? „Nei, því fer fjarri, hjartað slær enn með Bónusi, enda byggðum við það fyrirtæki upp frá grunni. Margt úr rekstri Bónusbúðanna kemur til með að nýtast okkur í þessum rekstn sem ég er nú að takast á við. Ég hef verið að ein- falda yfírbyggingu fyrirtækjanna eins og hefur verið stefíian í Bónusi frá upphafi. Við höfum lækkað verð á um 7.000 vöruliðum í Hagkaupi og verðið í Nýkaupi er það sama og var í Hagkaupi fyrir breytingar." Breyttar áherslur í vöruvali Nýkaups -Það kom illa við marga neyt- endur að á einni nóttu breyttust fímm Hagkaupsbúðir í Nýkaup, ódýru gulu vörurnar hurfu úr hill- unum en aðrar urðu breytingarnar ekki nema að verðið lækkaði ekki eins og í Hagkaupi. Margir fullyrða að það hafi jafnvel hækkað til muna. „Neytendur munu sjá breyting- ar, það tekur bara tíma. Við mun- um leggja áherslu á þjónustu í Ný- kaupi og nú er til dæmis opið til klukkan 21 alla daga vikunnar. A næstu vikum munu viðskiptavinir sjá miklar breytingar á ávaxta- og grænmetistorgum Nýkaups. Við verðum með rauðustu eplin, fersk- ustu jarðarberin, glænýjar kartöfl- ur og svo framvegis. Þar munu við- skiptavinir einnig geta keypt nýj- ungar, við buðum um daginn upp á ferskan sverðfísk og verðum í næstu viku með eitthvað óvænt á grillið. Þá er ný lína væntanleg í Nýkaup þar sem boðið verður upp á mjög vinsælar vörur á lægra verði. Við munum líka bjóða ýmsa ferska rétti sem eru tilbúnir í ofn- inn eða á pönnuna og svo erum við búnir að setja upp matarbari í öll- um Nýkaupsverslunum.“ -Verðið á heita matnum hefur hækkað! „Við vorum með kynningarverð á heita matnum en nú er hann seldur á venjulegu verði.“ - Hvað með aðra matvöru. Hefur hún hækkað í Nýkaupi? „Nei, verðið er óbreytt frá því sem var í Hagkaupi fyrir breyt- ingu.“ - Þið eruð með sameiginleg inn- kaup. Mun Bónus þá selja þriðja flokks grænmeti, Hagkaup annars flokks og Nýkaup fyrsta flokks? „Nei, þjónusta og úrval er það sem viðskiptavinir munu aðallega sækja í Nýkaup svo og meira úrval af ferskri vöru en í hinum búðun- um. Neytendur eiga að geta af- greitt sig sjálfir í Hagkaupi og Bón- usi og fengið í staðinn hagstæðara verð.“ Grillar kjúkling - Ertu mikið fyrir eldamennsku? „Nei, ég get nú ekki hælt mér af því þó að ég vildi það gjaman. Ég er þó ágætur við grillið og oftast verður kjúklingur fyrir valinu. Ein- hverra hluta vegna vandast alltaf málið þegar ég er kominn að elda- vélinni. Þá fallast mér hendur.“ I þeim svifum kom þjónustu- stúlkan með beinlausu kjúklinga- vængina á borðið til okkar, en þeir eru bornir fram með gráðostasósu. Þeir bragðast frábærlega, eru bragðmiklir en gráðostasósan mild- ar aðeins kryddbragðið. Kjúklinga- vængjunum er velt upp úr sterkri kryddaðri tabaskósósu og þeir síð- an steiktir. Okkur gefst varla tími til að ljúka við forréttinn því starfsfólkið er á þönum í kringum okkur og ber brátt fram „Sunset strip“-kjúklingabring- urnar, sem eru sinnepsgljáðar og vel pipraðar, bornar fram með krydduðum hrísgrjónum, hrásalati, bakaðri kartöflu og í þessu tilviki líka frönskum kartöflum. Jón As- geir segist borða að minnsta kosti tvisvar í viku á Hard Rock og bætir við að starfsfólkið þekki orðið kenjarnar í sér eins og með frönsku kartöflurnar og kokkteilsósuna. Hann heldur mikið upp á sterkan mat og þessa stundina er hann mjög hrifinn af mexíkóskri matar- gerð. - En drekkur hann alltaf kók með matnum? Ég er viss um að neytendur myndu láta heyra í sér ef þeir þyrftu að borga á annað hundrað krónur fyrir mjólkur- lítrann út úr búð, en það er í raun það sem þeir borga með niðurgreiðslum til bænda í formi skatt- lagningar. Alltof mörg íslensk fyrirtæki eru illa rekin og ef við förum ekki að taka okkur á í fyrirtækjarekstri er hætt við að erlend fyrirtæki fari með sigur af hólmi á þessum markaði „Nei, alls ekki, en ég er ekkert mikið fyrir að drekka vín með mat. Það er helst að ég fái mér bjór við og við og rauðvínið er aðeins að vinna á.“ Hann bætir við að sér finnist í raun fáránlegt að viðskiptavinir skuli ekki geta keypt sitt rauðvín í matvörubúð eins og annars staðar í heiminum. „Við létum Félagsvís- indadeild gera könnun fyrir okkur um daginn og komumst þar að því að um 60% íslendinga vilja geta keypt bjór og léttvín í matvörubúð- um.“ Við höldum áfram að spjalla um verslanirnar sem hann ber ábyrgð á núna, en allt í allt eru þær 22 og starfsfólkið á fjórtánda hundrað. -Mega neytendur kannski eiga von á nýjum verslunum? „Ekki í bili, en við teljum okkur geta gert meira á sérvörusviði og viljum gjarnan auka markaðshlut- deild þar. Starfsfólk Hagkaups hef- ur mikla sérþekkingu og viðskipta- sambönd og það er um að gera að nýta það frekar en gert er.“ - Heyrst hefur að fólk af lands- byggðinni sé pirrað yfir því að póst- verslunin falli nú undir Nýkaup í stað Hagkaups. „Það er einungis millibilsástand og í framtíðinni mun póstverslunin falla undir Hagkaup." Fyrirtækið á að skila arði -Er enginn beygur í þér að takast á við jafn stórt verkefni og þetta? „Nei, alls ekki,“ segir Jón Asgeir og brosir sannfærandi. „Ég hef ver- ið í þessu síðan ég var polli og þekki allt ferlið, hef verið á lager, á kassa, unnið í kjötborði og raðað í hillur. Það kemur mér ekkert á óvart og það er enginn sem getur sagt mér hvernig hlutir virka og virka ekki í þessum geira atvinnulífsins. Að auki hef ég ráðið lykilstjóm- endur sem ég treysti fullkomlega. Þetta eru ungir stjórnendur og framsýnir. Framkvæmdastjórarnir þrír bera ábyrgð á sínum búðum og það er algjört lykilatriði, ef þessi rekstur á að ganga upp, að í þess- um fyrirtækjum sé markaðsleg að- greining. Ég hef lagt áherslu á að undir engum kringumstæðum mega framkvæmdastjórarnir bera saman bækur sínar og fram- kvæmdastjóra Hagkaups á t.d. að koma jafnmikið á óvart tilboð Bón- uss og Nýkaups og öðrum sem eru í samkeppni við þá.“ Jón Asgeir segir að fyrirtækið eigi að vera samanburðarhæft við það sem best gerist í nágranna- löndunum og skila arði. ,jUltof mörg íslensk fyrirtæki eru illa rek- in og ef við förum ekki að taka okk- ur á í fyrirtækjarekstri er hætt við að erlend fyrirtæki fari með sigur af hólmi á þessum markaði." - Heldurðu að þú sitjir í for- stjórastólnum eftir tíu ár? „Nei, þau mistök ætla ég að vona að ég eigi ekki eftir að gera. Það er engum forstjóra hollt að sitja í sæti lengur en 5-7 ár og það er eitt af því sem hefur háð íslenskum fyrir- tækjum hversu þaulsætnir margir forstjórar eru í stól sínum. Þai’ að auki hafa kraftar yfirmanna of oft snúist um valdabaráttu frekar en arðsemi. Ég vona bara að eftir tíu ár verði ég í góðu formi, tilbúinn að takast á við hvað sem er.“ - Heildsalai- hafa sagt að þú sért harður í horn að taka og neitir að taka inn vörar nema þær fáist á al- gjöra lágmarksverði? „Það er alveg klárt að innkaupa- félagið Baugur kaupir það mikið af heildsölum að það getur ekki sætt sig við annað en að fá lægsta verðið á markaðnum." Tiltekt í landbúnaðar geiranum Jón Asgeir segir að verð á land- búnaðarvörum sé alltof hátt. „Það er að hluta til skiljanlegt að vegna niðurgreiðslu á grænmeti í Holl- andi' fái grænmetisbændur hér á landi einhvern stuðning. En hvað snertir kjöt- og mjólkurframleiðslu þá era niðurgreiðslurnar farnar úr böndunum. Eg er viss um að neyt- endur myndu láta heyra í sér ef þeir þyrftu að borga á annað hund- rað krónur fyrir mjólkurlítrann út úr búð, en það er í raun það sem þeir borga með niðurgreiðslum til bænda í formi skattlagningar." Faðir í örum vexti -Þeir sem hafa unnið hjá þér segja að þú vinnir nánast allan sól- arhringinn. „Það er nokkuð til í því. Fyrstu árin í Bónus vann ég kannski átján tíma á sólarhring. Ég er hins vegar með árunum að átta mig á að það gengur ekki og það má segja að ég sé faðir í örum vexti. Ég á þrjú börn, Asu Karen sem er átta ára, Anton Felix sem er þriggja og Stef- án Frans sem er hálfs árs, og ég reyni að sinna þeim eftir bestu getu.“ Jón Asgeir heldui’ líka nánu sam- bandi við bemskuvini sína af Sel- tjarnamesi, þeir era fimm og einn þeirra er nýráðinn framkvæmda- stjóri Hagkaups, Jón Björnsson. Við eram langt komin með kjúklingabringurnar, sem svíkja ekki bragðlaukana. Jón Asgeir seg- ir þær í miklu uppáhaldi hjá sér og ég er ekki frá því að ég eigi eftir að gera mér ferð á Hard Rock til að fá mér Sunset strip. Við fáum okkur síðan vanilluís á eftir, en honum era ekki gerð jafngóð skil og kjúklingn- um, enda bara hádegi og dagurinn ónýtur í vinnu ef maður borðar yfir sig. Ný vei*slun á teikniborðinu? -Nú eigið þið óbyggða lóð í Smáranum. Einhver áform um verslunarbyggingu þar? Nú dregur Jón Asgeir seiminn, segir ha og sýgur upp í nefið áður en hann upplýsir íbygginn að lóðin muni eflaust nýtast þeim vel í fram- tíðinni. Af fyrri kynnum mínum af Jóni Asgeiri veit ég að eitthvað meira býr að baki þegar hann svarar á þennan hátt. Ég veðja á að þeir séu með nýja verslun á teikniborðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.