Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Hita- og vatnsveita Akureyrar Rannsóknarholur bor- aðar í bæjarlandinu STJÓRN veitustofnana hefur geng- ið að tilboði frá Alvari ehf. í boranir á rannsóknarholum, svokölluðum hitastigulsholum, fyrir Hita- og vatnsveitu Akureyrar. Um er að ræða boranir á tveimur til fjórum 300-400 metra djúpum holum á Laugalandi á Þelamörk og hins veg- ar 20-35 holum, 50-100 metra djúp- um, á svæðinu Kjarnaskógi og norð- ur að Hörgá. Franz Arnason hita- og vatns- veitustjóri sagði ráðgert að bora vítt og breitt um bæjarlandið og of- an við bæinn norður að Hörgá. „Við höfum engar vísbendingar en erum að leita að mögulegum stöðum.“ Niðurdæling eykur orkumagn og aflgetu Rannsóknarholurnar á Lauga- landi á Þelamörk verða boraðar á þessu ári og hafist verður handa við borunina frá Kjamaskógi að Hörgá á árinu. Kostnaður við þessar fram- kvæmdir á þessu ári er 5-7 milljón- ir króna. Um leið og bærinn stækkar eykst vatnsnotkunin og eru afltoppar (há- marksvatnsnotkun) í miklum kulda- köstum komnir nokkuð nærri afl- getu veitunnar. N iðurdælingarverk- efnið í jarðhitasvæðið á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit hefur farið vel af stað. Þar er bakrásarvatni dælt nið- ur í holur og er tilgangurinn m.a. að nýta þann hita sem er í berggrunn- inum. Reiknað er með að niðurdæl- ingin auki orkumagn og aflgetu um- talsvert strax á þessu ári. í ársskýrslu Hita- og vatnsveitu Akureyrar kemur einnig fram að stefnt sé að því að tillögur að nýrri vinnsluholu liggi fyrir ekki síðar en árið 2000. Æskilegast væri að fyrir lægju tillögur að tveim vinnsluhol- um á mismunandi svæðum, því alltaf er nokkur óvissa um árangur þrátt fyrir að undirbúningsrannsóknir verði öruggari með hverju árinu. fAðalskipulag Akureyrar 1998—2018 Tillaga að aðalskipulagi Akureyrar 1998—2018 var auglýst samkvæmt ákvæðum skipulagslaga 14. mars 1998 og rann frestur til að skila athuga- semdum út 27. apríl. Alls bárust 24 athugasemdir, þar af voru nokkrir undirskriftarlistar. Vegna athugasemdanna gerði skipulagsnefnd nokkrar minni háttar breytingar á skípulagstillögunni. Vegna athugasemda við skipulagðar tengibrautir við Lundahverfi var götustæði Dalsbrautar sunnan Þingvallastrætis, götusvæði „Mjólkursamlagsvegar" austan Mjólkursamlags KEA og nýtt götustæði vestan þess afmarkað sérstaklega og skipulagi þar frestað. Gerðar verða nánari athuganir á þeim valkostum sem fyrir hendi eru um gatnamál á svæðinu og þeir bomir saman í samhengi við önnur umferðarmál og umhverfismál. Bæjarbúum verður gerð grein fyrir framvindu, valkostum, hugsanlegri framkvæmdaröð og tillögum áður en endanleg tillaga verður fullmótuð og auglýst sem hluti af aðalskipulagi Akureyrar 1998—2018. Bæjarstjóm Akureyrar tók tillögu að aðalskipulagi Akureyrar 1998—2018 meö ofan nefndum breytingum til lokaumræðu á fundi sínum 19. maí sl. og var hún samþykkt samhljóða. Tillagan hefur verið send Skipulagsstofnun og umhyerfisráðherra til staðfestingar. Bókun bæjarstjómar um athugasemdif og afgreiðslu þeirra hefur verið send þeim sem gerðu athugasemdir við skipulagstillöguna en einungis einum fulltnáa hvers undirskriftalista, Skipulagsstjóri Akureyrar. Fyrirlestur um skrímsli HARALDUR Ingi Haraldsson, for- stöðumaður Listasafnsins á Akur- eyri, flytur fyrirlestur fyrir erlenda ferðamenn í Deiglunni í Kaupvangs- stræti kl. 13 næstkomandi þriðju- dag, 30. júní. Verður hann fluttur á ensku og heitir „Icelandic monsters og mythical beasts“. Verð er 1.200 krónur. Fyrirlesturinn er á vegum Sumarháskólans á Akureyri. Sama dag stendur Sumarháskól- inn fyrir námskeiði í jurtatínslu og ullarlitun við Glerá sem Guðrún Hadda Bjarnadóttir hefur umsjón með. Mæting er við Háskólann á Akureyri, Sólborg, kl. 18. Gott væri ef fólk gæti komið með pott og prím- us en einnig flýtir það fyrir ef búið er að tína einhverjar jurtir, t.d. njóla, elftingu, lúpínu og birkilauf. Verð er 1.800 krónur og þátttöku á að skrá í háskólanum. -------------- Áhyggjur af bú- fénaði á vegum ATVINNUBÍLSTJÓRAR á lands- byggðinni hafa miklar áhyggjur af því hversu mikið af búfénaði er við og á þjóðvegum landsins. Ragnar Karlsson, bflstjóri á Akureyri, er einn þeirra mörgu sem aka um þjóðvegina flesta daga vikunnar. Hann sagði ástandið mjög alvarlegt og bílstjórar væru orðnir lang þreyttir. Ragnar sagði mikið um lausa hesta við þjóðveginn og ástandið væri sérstaklega slæmt í Norðurár- dalnum. Þá gera kindur bílstjórum lífið leitt á svæðinu frá Blönduósi og upp í Vatnsskarð og einnig í Vatnsdaln- um. Ragnar sagði bílstjóra allt of oft hafa orðið fyrir því að aka á kindur og eitthvað þyrfti að gera áður en alvarlegt slys hlytist af. Morgunblaðið/Kristján EKIÐ var á kind og tvö lömb í Víkurskarði um helgina. Hér hjóla erlendir ferðaiangar hjá. Morgunblaðið/Björn Gíslason Spilað í miðnætursól FRÆNDURNIR Björgvin Þor- steinsson og Björn Axelsson, Golf- klúbbi Akureyrar, og Bandaríkja- maðurinn Tyler Erickson voru efstir eftir fyrri keppnisdag og 18 holur af 36 á Arctic-Oþen-miðnæt- urgolfmótinu á Akureyri. Þeir léku á 72 höggum. Alls taka tæplega 140 kylfíngar þátt i mótinu og þar af um 35 er- lendir spilarar, víðs vegar að úr heiminum. Veðrið lék við kylfing- ana og sólin sýndi sig vel í kring- um miðnættið í fyrrinótt. Áttú margir erlendu kylfingarnir ýart orð til að lýsa þeirri sýn sem fyrir augu þeirra bar. Kylfingarníf hófu leik að nýju seinni partinn í gær en mótinu lauk undir morgun. I kvöld fer fram verðlaunaafhending í iokahófí mótsins í golfskálanum að Jaðri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.