Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 25
Clinton hælir lýðræðistil-
raun í kínverskum þorpum
Reuters
BILL Clinton Bandaríkjaforseti skoðaði í gær terrakotta-Ieirstyttur
frá dögum Qin-keisaradæmisins í Kína.
Enginn
árangur af
ferð Hol-
brooks
RICHARD Holbrook, sendi-
fulltrúi Bandaríkjastjórnar á
Balkanskaga, varaði við því í
gær að svo gæti farið að NATO
flýtti áætlunum sínum um
hernaðaraðgerðir vegna deil-
unnar um Kosovo enda hefði
fjögurra daga ferð hans til Jú-
góslavíu engan árangur borið.
„Báðir deiluaðilar ættu að vera
meðvitaðir um það að næstu
meiriháttar átök milli þeirra
geta haft sorglegar afleiðing-
ar,“ sagði hann.
Norðmenn
greiða skaða-
bætur
STJÓRNVÖLD í Noregi
ákváðu í gær að greiða þeim
sem komust lífs af úr helför-
inni, afkomendum þeirra og
stofnunum Gyðinga andvirði
rúmlega 4,5 milljarða íslenskra
króna í skaðabætur. Aud-Inge
Aure dómsmálaráðherra segir
að Noregur eigi að taka á sig
hluta ábyrgðarinnar á því sem
gerðist í landinu á tímum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Með
þessu verða Norðmenn fyrstir
þeirra þjóða sem hernumdar
voru af Þjóðverjum til að
greiða Gyðingum skaðabætur.
Papala skot-
inn í Varsjá
MAREK Papala, fyrrum yfir-
maður pólsku lögreglunnar,
var skotinn til bana þar sem
hann sat í bíl fyrir utan heimili
sitt í Varsjá á fimmtudags-
kvöld. Papala, sem hafði lagt
sig fram um að berjast gegn
skipulagðri glæpastarfsemi,
var leystur frá störfum í janúar
og var sagður í þann mund að
taka við starfi á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
„Ein þjóð“
valdalaus
VERKAMANNAFLOKKN-
UM hefur loks tekist að mynda
samsteypustjóm í Queensland
í Astralíu og þar með útiloka
að Ein þjóð, flokkur Pauline
Hanson, komist þar í lykil-
stöðu.
Líbýa óttast
árás
LÍBÝUSTJÓRN ásakaði í gær
stjórnvöld í ísrael og Banda-
ríkjunum um að undirbúa árás
á landið. I yfirlýsingu stjórnar-
innar segir að ríkin tvö standi í
þeirri meiningu að Líbýa hafi
komist yfir gereyðingarvopn
frá Irökum en að það sé al-
rangt.
Hague á
sjúkrahús
WILLIAM Hague, leiðtogi
stjómarandstöðunnar í Bret-
landi, gekkst í vikunni undir
aðgerð þar sem stíflaðar ennis-
holur voru hreinsaðar. Hague
hefur að undanfömu þjáðst af
flensu.
Peking. Reuters.
KÍNVERSK stjórnvöld hafa lítið
umburðarlyndi gagnvart pólitískum
hópum og einstaklingum er setja sig
upp á móti stefnu Kommúnista-
flokksins. Fjölmiðlar lúta ströngum
aga og meira að segja pólitískar um-
ræður á netinu em ritskoðaðar.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
heimsótti hins vegar í gær þorpið
Xia He, eitt hundrað þúsunda smá-
þorpa þar sem undanfarinn áratug
hefur verið gerð tilraun með lýðræð-
islegt stjómarfar á sveitarstjórnar-
stigi og frjálsar kosningar. ,Árang-
ur ykkar sýnir umheiminum öllum
hverju staðbundið lýðræði hefur
skilað Kína,“ sagði Clinton er hann
ávarpaði þúsund þorpsbúa er höfðu
safnast saman til að hlýða á hann í
Xia He.
Þá settust Clinton og eiginkona
hans, Hillary, niður með sex þorps-
búum og ræddu þær breytingar sem
orðið hefðu með auknu lýðræði.
Vora þorpsbúar á því að flestar
breytingamar væra til batnaðar.
Þrátt fyrir að Clinton hafi hælt
þessari lýðræðislegu tilraun nær
lýðræðið einungis til hluta stjórn-
kerfisins, jafnvel í smáþorpum. Ein-
ungis fulltrúar í þorpsráði og þorps-
formaður era kosnir beinni kosn-
ingu. Fulltrúar Kommúnistaflokks-
ins, er fara með hin raunveralegu
völd, þurfa ekki að leggja verk sín í
dóm kjósenda.
Bandarískir sérfræðingar, sem
fylgst hafa með kosningum í kín-
verskum þorpum undanfarin ár, ít-
reka þó að þetta sé ekki einungis
bragð til að slá ryki í augu Vestur-
landabúa. Um alvarlega tilraun sé
að ræða er hafi skilað merkilegum
árangri.
Frjálsar kosningar fara nú fram í
60% hinna 930 þúsund þorpa Kína
en ekki hefur enn verið reynt að
taka upp svipaðar aðferðir í stór-
borgum landsins. Vegna takmark-
aðrar fjölmiðlaumræðu vita jafn-
framt fæstir borgarbúar af því sem
Reuters
Allir
látnir
SUÐUR-KÓRESKIR hermenn
bera á land eitt níu líka sem
fundust um borð í norður-
kóreskum kafbáti í hafnarborg-
inni Donghae í S-Kóreu í gær. S-
Kóreumenn tóku kafbátinn, sem
talinn er hafa verið í njósnaleið-
angri, fyrr í vikunni, en hann
sökk er verið var að draga hann
til hafnar. FuIItrúar S-Kóreu
sögðu í gær að allir í áhöfninni
hefðu verið skotnir og svo virtist
sem þeir hefðu fyrirfarið sér.
Talsmaður s-kóreska hersins
sagði að af skotsárunum að
dæma hefðu ekki aliir áhafnar-
meðlimirnir verið sáttir við þessi
endalok. Útlit væri fyrir að fjórir
þeirra hefðu skotið hina fimm og
síðan framið sjálfsmorð. Um borð
í kafbátnum hefðu fundist tveir
Kalashnikov-rifflar, tvær vél-
byssur, tvær skammbyssur, tvær
handsprengjur og færanlegur
rakettuskotpallur.
verið hefur að gerast í sveitum
landsins.
Robert Pastor, sem íylgst hefur
náið með tilrauninni fyrir hönd
Carter-stofnunarinnar, segir vís-
bendingar um að stjórnvöld í Peking
hafi hug á að reyna kosningar í kín-
verskum borgum. Vestrænir stjórn-
arerindrekar segja að markmið Kín-
verja með frjálsum kosningum sé
ekki fyrst og fremst að auka lýðræði
heldur líti þeir svo á að kosningar
séu besta vopnið í baráttunni gegn
spillingu.
Fjölmiðlar fáorðir
Viðbrögð kínverskra fjölmiðla við
heimsókn Clintons einkenndust af
varkárni og umfjöllun þeirra byggð-
ist á staðlaðri forskiift. Dagblað al-
þýðunnar, málpípa kínverskra
stjórnvalda, sagði frá komu Banda-
ríkjaforseti á forsíðu en birti jafn-
framt fréttir af ýmsum öðram mál-
efnum, s.s. baráttunni gegn eitur-
lyfjum og herferð til að auka sam-
kennd í samfélaginu. Stærsta fyrir-
sögn síðunnar var með frétt af mál-
efnum æskulýðsfylkingar Kommún-
istaflokksins. Flest önnur blöð fjöll-
uðu um heimsóknina á þann hátt
sem hefð er fyrir í Kína þegar opin-
berar heimsóknir era annars vegar.
Greint er frá komutíma hinna opin-
beru gesta, nöfnum þeirra er vora í
föruneyti Clintons og í hópi kín-
verskra embættismanna er tóku á
móti honum.
Lítið var vitnað í ræðu Clintons
en öll blöð tóku fram að þetta var
fyrsta heimsókn Bandaríkjaforseta í
áratug. Enginn fjölmiðill minntist
þó á atburðina á Torgi hins
himneska friðar í því sambandi.
Tævanar órólegir
Málefni Tævans komu einnig til
umræðu á fyrsta degi Kínaheim-
sóknar Clintons og grannt er fylgst
með heimsókninni á Tævan. Banda-
ríkjastjórn rauf stjórnmálasamband
við Tævan í kjölfar þess að sam-
skipti vora tekin upp við Kína árið
1972. Samstarf þjóðanna hefur þó
áfram verið náið. Óttast sumir
Tævanar samt sem áður að Banda-
ríkjamenn muni nota Tævan sem
skiptimynt í samningaviðræðum við
Kína um aukin samskipti.
„Clinton er greinilega að reyna að
koma sér í mjúkinn hjá Jiang Zemin
[Kínaforseta]. Það væri bamalegt að
treysta á Bandaríkjamenn. Þeir
munu velja þá leið er hentar þeirra
hagsmunum best,“ sagði einn fjöl-
margra Tævana er höfðu safnast
saman til mótmælafundar við
Bandarísku stofnunina í Tapei.
Clinton lýsti því yfir við frétta-
menn í Kína í gær að stefna Banda-
ríkjanna væri óbreytt og að svo yrði
áfram.
GRIPIÐ TÆKIFÆRIÐ!
TVÖFALDUR
McOstborgari
m,-h
Lokadagur 9. júlí.
? m
McDonaias
Austurstræti 20
Suðurlandsbraut 56