Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 FRETTIR MORGUNB LAÐIÐ VIÐ erum að kanna aðstæður, mættum við aðeins kíkja á pleisið?. Ársskýrsla Amnesty International Mannréttindabrot fram- in í 141 landi á síðasta ári Morgunblaðið/Jim Smart FORMAÐUR og stjórnarmenn í íslandsdeild Amnesty International, frá vinstri: Huld Magnúsdóttir, Jóhanna Eyjólfsdóttir, Guðrún Ólafs- dóttir formaður, Ásbjörn Ólafsson og Sigurður Einarsson ÍSLANDSDEILD mannréttinda- samtakanna Amnesty Intemational kynnti helstu atriði nýútkominnar ársskýrslu samtakanna á frétta- mannafundi en skýrslan í ár er helguð öllu því fólki sem berst í þágu mannréttinda. Stærstu verkefnin á árinu voru málefni ílóttamanna og mannrétt- indayfírlýsingin. I máli Guðrúnar Olafsdóttur, for- manns Islandsdeildarinnar, kom fram að eitt af aðalmarkmiðum ís- landsdeildarinnar í flóttamanna- herferðinni hefði verið að vekja at- hygli fólks á aðstæðum flótta- manna, ástæðum fyrir því að það leggur á flótta og að þrýsta á ís- lensk stjómvöld að breyta lögum þannig að réttur flóttafólks sé tryggður á íslandi. Hefur íslands- deildin náð miklum árangri í þeirri baráttu sinni. Að sögn Guðrúnar er það hvetj- andi fyrir félagsmenn þegar starf þeirra ber árangur og lausn fæst í einstökum málum sem hópar hér berjast í, oft ár eftir ár. Sem dæmi um árangur af starfí deildarinnar er mál sýrlenskra lækna sem leyst- ir voru úr haldi en hópur 2 hafði unnið að því máli í 14 ár. Samkvæmt ársskýrslunni vom mannréttindabrot framin í 141 landi á siðasta ári. Aftökur án dóms og laga vom framkvæmdar í 55 löndum og dauðadómum fullnægt í 40 löndum og í að minnsta kosti 70 löndum bíða fangar aftöku. Samviskuföng- um er haldið í fangelsum í 87 lönd- um og staðfestar heimildir em fyrir þvðí að pyntingar fari fram í 117 löndum. I 41 landi leiddu slæmar aðstæður í fangelsum til dauða fanga. Mannshvörf vora í 31 landi og í 34 löndum situr fólk bak við lás og slá eftir óréttláta dómsmeðferð. í 53 löndum er fólk í haldi án ákæra og dóms. I máli Guðrúnar Olafsdóttur kom fram að mannréttindi era enn virt að vettugi í mörgum löndum þrátt fyrir að stjómvöld um alian heim hafi skrifað undir mannréttindayf- irlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem í ár er 50 ára gömul. Samtökin lýsa áhyggjum yfir afstöðu sumra yfír- valda til Mannréttindayfirlýsingar- innar sem reyna að túlka hana á eigin forsendum. A meðal þess helsta sem áunnist hefur í mannréttindamálum á síð- asta ári er að dauðarefsingar hafa verið afnumdar í nokkram löndum og dauðadómum breytt. Á meðal þeirra landa sem þetta hefur verið gert er Georgía. í Kína hefur dauðarefsing yfir ungmennum ver- ið afnumin. í Alsír er ástand mannréttinda- mála slæmt og þykir samtökunum alþjóðasamfélagið bregðast lítt sem ekkert við því sem þar fer fram. I skýrslunni kemur fram að ástandið í Mið-Austurlöndum er ekki að skána og samviskufangar era í haldi í nær öllum löndum þar. Refsingar í „miðaldastíl" í álfunni era áhyggjuefni og í Jemen vora til dæmis tveir fangar teknir af lífi með krossfestingu á síðasta ári. í Suður-Ameríku er vitað um illa meðferð fanga í 20 löndum. Tvær aftökur vora í álfunni á síðasta ári. I Bandaríkjunum vora 74 fangar teknir af lífi og 3300 fangar bíða þar aftöku. Kaflinn um Afríku er langur í ársskýrslunni enda ástand þar víða slæmt. í Rúanda og Búrúndí halda fjöldamorð og mannréttindabrot áfram. Fram kom að pyntingar era mjög algengar í álfunni og léleg læknisþjónusta í fangelsum er stórt vandamál. Eitt aðalvandamálið, að mati Amnesty, er þó refsileysið. Islandsdeildin hefúr beitt sér fyrir bót á því vandamáli og barist fyrir því að íslensk yfirvöld lýsi op- inberlega yfir stuðningi við stofnun óháðs glæpadómstóls og að þau samþykki 16 atriði sem þurfa að vera í stofnsamningnum. Samkvæmt skýrslunni er Island ekki meðal þeirra landa þar sem mannréttindabrot hafa verið fram- in en bæði Danmörk og Sviþjóð komast á blað, einkum vegna harð- ræðis lögreglu. Árþúsundastefna á Þingvöllum Tekið á þeim vanda sem ógn ar mannkyni APrestastefnu Is- lands sem haldin var fyrr í þessari viku hélt dr. Gerald O. Barney fyrirlestur þar sem hann kynnti hug- mynd sína um að halda hér á landi alþjóðlega ár- þúsundastefnu á Þingvöll- um árið 2000. Þar yrðu saman komnir helstu trú- arleiðtogar heims svo og ýmsir forsvarsmenn al- þjóðastofnana, stjórn- mála- og vísindamenn svo og fjölmiðlafólk sem tæki á þeim vanda sem að okk- ur steðjar á nýrri öld og fyndi leiðir til úrbóta. Gerald O. Bamey er stofnandi og forsvarsmað- ur Millennium Institute í Bandaríkjunum en það er stofnun sem fæst við framtíðarvanda heimsbyggðar- innar. Hún veitir ríkjum einnig aðstoð við að gera áætlanir um sjálfbæra þróun. Stofnunin er 15 ára og tilurð hennar má rekja til þess að Jimmy Carter þáverandi Bandaríkjaforseti fól dr. Gerald O. Bamey að taka saman og rit- stýra skýrslu um árþúsunda- skiptin, „Global 2000 Report to the President". - Hvers vegpa að halda árþús- undastefnu á Islandi? „ísland á að baki einstæða sögu og skipar alveg sérstakan sess í samfélagi þjóðanna. Hér hafa verið haldnir sögulegir fund- ir þjóðarleiðtoga og íslenska þjóðin á sér enga óvini. Um árþúsundaskiptin fagnið þið einnig þúsund ára afmæli kristnitöku. Eg hef i starfi mínu ferðast til 45 landa og hvergi í heiminum rekist á aðra eins nátt- úrufegurð og er á Islandi. Það væri engu líkt að geta haldið aldamótafund sem þennan á Þingvöllum." Gerald leggur áherslu á að það sé afar nauðsynlegt að nota þessi tímamót, árið 2000, til að auka vitund alþjóða samfélagsins um þær hættur sem að okkur steðja og ná fram skuldbindingu stofn- ana til að takast á við þær. Það er enginn annar staður í heiminum betur fallinn til þessa fundar en ísland.“ - Yrði þetta trúarstefna krist- innamanna? „Ég legg árherslu á ábyrgð og forystuhlutverk kristinna manna í þeim vanda sem blasir við okkur en hugmyndin er að árþúsunda- stefnan verði samkoma trúarleið- toga og einstaklinga sem hafa getið sér orð fyrir framsýni og innsæi í þann vanda sem blasir við alþjóðasamfélaginu. Þar á ég til dæmis við einstak- linga á borð við Vaclav Havel for- seta Tékklands og Gro Harlem Brandtland fyrrverandi forsætis- ráðherra Noregs." ------------- -Hver eru helstu Yrði einstakt vandamál sem al- ag halda slíkan þjóðasamfélagið mun d á fs|andi ghma við a næstu ara- tugum? „í heiminum búa núna sex milljarðar manna. Fjórir af Dr. Gerald O. Barney ► Dr. Gerald O. Bamey er fæddur árið 1937. Hann lauk doktorsprófi frá Háskólanum í Wisconsin og starfaði við rannsóknir á sviði umhverfismála, lýðfræði og orkustefnu við Harvard og MIT. Hann stofnaði Millennium stofnunina í Bandaríkjunum ár- ið 1983 en hún fæst við framtíð- arvanda heimsbyggðarinnar og veitir ríkjum ráðgjöf um sjálf- bæra þróun. Hann kynnti á prestastefnu hugmyndir sínar um að halda hér á landi alþjóðlega árþús- undastefnu og hefur þegar vak- ið máls á hugmyndinni við for- ráðamenn þjóðarinnar. Eiginkona hans er Carol A. Bamey og eiga þau þijú böm. jarðarinnar í okkar notkun, við höfum aukið koltvísýringsmeng- un um þrjátíu prósent, eytt um helmingi allrar jarðolíu heimsins og nýtt okkur helming aðgengi- legs yfirborðsvatns á jarðar- kringlunni. Þar á ofan er áttundi hluti plönturíkisins í útrýmingarhættu vegna okkar og jafnvel enn stærri hluti dýraríkisins.“ Hann segir að því sé augljóst að þessa götu getum við ekki gengið mikið lengur. - Hvernig er hægt að bregðast við mannfjöldasprengingunni og menguninni? „Við sjáum það í hendi okkar að vistkerfið þolir það ekki að þörfum allra jarðarbúa sé full- nægt. Efnahagslegt réttlæti er því óhugsandi án annarra ráð- stafana. En án aukins efnahags- legs réttlætis er tómt mál að tala um friðvænlega þróun í alþjóð- legum samskiptum. Hann bendir á að lausnin á mótsögninni felst annars vegar í sjálfbærri þróun og hins vegar í hófstillingu. Þriðja atriðið er að --------- stöðva mannfjölgun- ina eins fljótt og auðið er. - Hvað áttu við með hófstillingu og sjálf- bærri þróun? hverjum fimm lifa í fátækt eða við þaðan af verri aðstæður. Haldi þessi þróun áfram munum við verða 10-12 milljarðar á næstu öld og níu af hverjum tíu eyða ævinni í fátækt. Ef við ætlum að framfæra all- an þennan fjölda þyrfti hagkerfið að tífaldast og vistkerfi jarðar- innar þyldi ekki slíka stækkun. Á síðustu 50 árum höfum við tekið 30 til 50 prósent af öllu þurrlendi „Sjálfbær þróun felur i sér að draga úr auðlindanýtingu og mengun þannig að ekki sé gengið á vistkerfi jarðarinnar. Ef við takmörkum umfram- notkun okkar á auðlindum jarðar og jöfnum lífsgæðum væri hægt að koma þorra jarðarbúa yfir fá- tæktarmörkin.“ - Verkefnið er stórt. „Já, það er eitt erfiðasta verk- efni sem mannfólkið hefur þurft að takast á við en það er ekki ómögulegt."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.