Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 48
>íi8 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Vinur okkar, JÓHANN GESTSSON (BOBBI) rakari, New York, lést 22. júní. Bálför hefur farið fram. Fyrir hönd vina og ættingja. Svava Gunnarsdóttir, Björn Kristjánsson, Efstalandi, Ölfusi. t Okkar ástkæra KRISTBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR, Grenigrund 28, Akranesi, er látin. Sigurður Villi Guðmundsson, Dagbjört Friðriksdóttir, Guðmundur Þórir Sigurðsson, Jóhanna S. Sæmundsdóttir, Pálína Sigurðardóttir, Sigurður Páll og Vilhjálmur Sveinn. + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLIN f. JÓNSDÓTTIR, Lindarbrekku, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, mánu- daginn 29. júní kl. 13.30. Auður Ingibjörg Theodórs, Sigurður H. Björnsson, Arndfs Gná Theodórs, Ingvar S. Hjálmarsson, Elín Þrúður Theodórs, Guðmundur S. Pálsson, Ásgeir Theodórs, Björg Kristjánsdóttir, Þorbjörn Garibaldason og barnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, FJÓLU GUÐMUNDSDÓTTUR frá Flatey á Breiðafirði. Guð geymi ykkur öll. Kristín Kolbrún Guðmundsdóttir, Samúel Guðmundsson, Valey Guðmundsdóttir, Guðmundur Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, Ingi Vigfús Guðmundsson, Unnur Guðmundsdóttir, Svavar Valdimarsson, Ólína Steinþórsdóttir, Inga L. Þorsteinsdóttir, Guðjón Þ. Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur, VALGERÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Víðivöllum 21, Selfossi. Sérstakar þakkir færum við Kvenfélagi Selfosskirkju. Bjarni Dagsson, Guðmundur Bjarnason, Þórlaug Bjarnadóttir, Karl Þórir Jónasson, Bjarni Dagur og Valgerður Ósk, Guðfinna Guðmundsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Unnur Margrét Guðmundsdóttir. HELGI EINARSSON + Helgi Einars- son, múrara- meistari, fæddist á Sperðli, V-Land- eyjum, Rangár- vallasýslu 31. júlí 1926. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur aðfaranótt 20. júní síðastliðins. Foreldrar hans voru Hólmfríður Jónsdóttir, húsmóð- ir á Sperðli, f. 26. jan. 1889 í Krók- túni, Hvolhreppi, Rang., d. 4. okt. 1980, og Einar Einarsson, bóndi á Sperðli, f. 2. nóvember 1887 á Krossi, A-Landeyjum, d. 8. nóv- ember 1967. Systkini Helga eru: Kjartan, húsasm.meistari á Hvolsvelli, f. 22. maí 1923, d. 31. des. 1961, Jón, fyrrv. bóndi á Sperðli, f. 16. maí 1929, og Anna Elín, húsmóðir í Garðabæ, f. lO.júlí 1931. Helgi kvæntist 15. janúar 1955 Guðrúnu Aðalbjörnsdótt- ur, húsmóður og verkakonu, f. 10. febrúar 1928 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Þor- björg Grímsdóttir, húsmóðir, f. 8. júlí í Litla-Seli í Reykjavík, d. 3. ágúst 1993, og Aðalbjöm Stefánsson, prentari; f. 28. des. 1873 á Garðsá, Óngulst.hr., Eyjafirði, d. 18. júní 1938. Böra Helga og Guðrúnar eru: 1) Ein- ar, múrarameistari á Hvolsvelli, f. 27. nóv. 1954, kvæntur Sigríði Guðrúnu Þorgilsdóttur, hár- greiðslumeistara, f. 24. apríl 1959. Börn þeirra eru Helgi og Þorgils Bjarni. 2) Aðalbjörg Katrín, húsmóðir í Reykjavík, f. 18. mars 1959, gift Gísla Ant- Föðurbróðir minn, Helgi Ein- arsson, múrarameistari á Hvols- velli, lést á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur aðfaranótt 20. júní sl. eftir erf- ið veikindi nokkur undanfarin misseri. Helgi fæddist og ólst upp að Sperðli í V-Landeyjum, annar í röðinni af fjórum börnum þeirra ömmu og afa, Hólmfríðar Jóns- dóttur og Einars Einarssonar, sem þar bjuggu árin 1925-1964. Sá sem þetta ritar, þá borgar- barn, naut þeirra forréttinda að vera sendur í sveit að Sperðli að- eins fímm ára að aldri og eftir það öll sumur til fjórtán ára aldurs. Á ekkert skólastarf skal hallað þótt ég fullyrði, að betri skóla og undirbúning til að takast á við lífið hefði undirritaður vart getað kosið sér en hjá skyldfólkinu á Sperðli. Bænir og söngur ömmu að morgni og kveldi, skilvirk kennsla í lestri og góð ráð um lífsins gildi var það fóður sem gefíð var fólki sem þar dvaldi, smáu sem stóru, skyld- mennum sem öðrum. Úr þessum r Blóma Cíarðskom . v/ 1~ossvogsl<i»*l<jw0ai*3 , XwSímb 554 0500 1 CjrficfryÁÁjur VEISLUSALURINN SÓLTÚNI 3 p AKOGESHÚSIÐ slml 562-4822 i Biynjar Eymundsson matreiðslumelstarl tík Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir 1 smurbrauðs|ómfrú 1 VEISLAN iA mFm VEITINGAELDHÚS Frábærar veitingar Síml: 561 2031 Fyrirmyndar þjónusta onssyni, húsasmið, f. 28. sept. 1954. Bam þeirra er Gísli Grímur. 3) Hólm- fríður Kristín, hús- móðir á Hvolsvelli, f. 25. jan. 1961, gift Sigmari Jónssyni, iðnverkamanni, f. 15. apríl 1957. Börn þeirra eru Elísabet Rut og Jón Ægir. 4) Drengur, andvana fæddur, 9. mars 1967. Eftir farskólanám í V-Landeyjum fór Helgi til vertíðarstarfa í Vest- mannaeyjum nokkra vetur og stundaði sveitastörf á sumrin. Því næst vann hann almenn byggingarstörf í Reykjavík þar til hann hóf nám í múraraiðn árið 1956. Helgi útskrifaðist frá Iðnskólanum í Reykjavík í bók- legum greinum og lauk sveins- prófi árið 1960 og meistararétt- indi hlaut hann árið 1963. Hann var félagi í Múrarafélagi Reykjavíkur 1960-1965 og síð- an í Múrarafélagi Suðurlands þar sem hann sat í stjóra um árabil. Helgi flutti ásamt íjöl- skyldu sinni til Hvolsvallar árið 1965, þar sem hann vann við iðn sína í Rangárþingi og víðar eft- ir það, bæði einn og með öðrum, og síðast með syni si'num, Ein- ari. Helgi tók þátt í félagsstörfum og var m.a. virkur félagi í Stangaveiðifélagi Rangæinga og Rauðakrossdeild Rangár- vallasýslu. Utför Helga verður gerð frá Stórólfshvolskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. jarðvegi var Helgi Einarsson sprottinn ásamt þeim systkinum, Kjartani, Jóni og Ónnu Elínu. Erfitt var um skólagöngu í sveitinni á þessum árum, en eftir farskólanám sótti Helgi vertíðar- störf í Vestmannaeyjum og síðan byggingarvinnu í Reykjavík. Faðir minn Kjartan, bróðir Helga, hafði þá um árabil verið búsettur í Reykjavík þar sem hann nam húsasmíði, en þar kynntist hann móður minni, Katrínu Aðalbjörns- dóttur. Mál æxluðust svo á þann veg, að Helgi kynntist móðursystur minni, Guðrúnu Aðalbjömsdóttur, og gengu þau í hjónaband árið 1955. Þau eignuðust fjögur börn og eru þrjú þeirra á lífi. Margar minning- ar á ég um Helga úr sveitinni, en ein er mér einna minnisstæðust, er hann einhverju sinni kom í heim- sókn að Sperðli og var hann þá með takkaharmonikku í fartesk- inu. Fannst mér það meiri háttar upplifun að hlusta á hann spila á ^ÁVEXITR Austurveri, sími 588 2017 Sérfræðingar í bIómaskrevtingum við öii iækifæri mblómaverkstæði f§ INNA 1 Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090 slíkan undragrip. Nikkuna skildi hann eftir, og lagði talsvert að heimilisfólki að grípa í hljóðfærið ef færi gæfist. Var það óspart gert af okkur Nonna frænda milli þess sem gafst til heyskapar. Árið 1956 hóf Helgi nám í múr- araiðn og sótti hann bóklegt nám í Iðnskólanum í Reykjavík. Þar lauk hann sveinsprófi árið 1960 og fékk meistararéttindi árið 1963. A þess- um árum hófu þau Helgi og Guð- rún búskap í Reykjavík og bjuggu þau íyrst á Skólavörðustíg 26 og síðar í Ferjuvogi 19. Eiginleg kynni mín af Helga hófust fyrst fyrir alvöra árið 1961, þegar faðir minn, þá verkstæðis- formaður í trésmiðju Kaupfélags Rangæinga á Hvolsvelli, fékk Helga til að taka að sér múrverk að hluta í nýbyggðu félagsheimili á staðnum og þótti honum affara- sælla að fá mig til að handlanga hjá bróður sínum en að bera út póst í Reykjavík, en það hafði und- irritaður tekið sér fyrir hendur í skólafríi. Samstarfið við Helga í múrverkinu var lærdómsríkt og ánægjulegt. En segja má, að óvænt og ótímabært fráfall föður míns þetta ár, þá aðeins 38 ára gamals, hafi orðið til þess að styrkja vináttuböndin enn frekar. Helgi og Gunna frænka reyndust okkur fjölskyldunni vel, enda syst- urnar góðar vinkonur í orðsins fyllstu merkingu. Það var síðan ár- ið 1965, að kynnin urðu enn betri þegar frændfólkið flutti á Hvols- völl og hóf skömmu síðar byggingu íbúðarhúss að Stóragerði 12. Þetta gaf að sjálfsögðu tilefni til vinnu- skipta á múrverki og tréverki hjá okkur frændum. Helgi stundaði síðan iðn sína í Rangárþingi og víðar, bæði einn og með öðram og síðast með syni sínum Einari, múrarameistara á Hvolsvelli. Á tímabili upp úr 1970 tók Helgi sér öðru hvora frí frá múrarastörfum og lagði undirrit- uðum lið í hans atvinnurekstri, en þá voru að koma á markaðinn þéttilistar fyrir glugga og hurðir. Var svo mikil eftirspurnin, að ekki hafðist undan. Helgi gerðist þar liðtækur mjög og held ég að hann hafi bæði haft gaman af tilbreytn- inni og ekki síst að fá smáhvíld frá erfiðri vinnu í múrverkinu. Margs er að minnast í sam- fylgdinni við Helga. Við vorum saman félagar í Stangaveiðifélagi Rangæinga þar sem við fórum stöku sinnum en þó allt of sjaldan í veiðitúra í Rangárnar og víðar. Hann var einn af þeim félögum sem tóku þátt í samskiptum við veiðifélaga í Þýskalandi sem hann heimsótti tvisvar. Þá var hann einn ötulasti félagi í Rauðakross- deild Rangárvallasýslu. Mikið yndi hafði hann af músík og söng- maður var hann góður þótt hann tranaði sér lítt fram í þeim efnum. Sem nágranni var hann ljúfur, skapferlið alltaf á léttu nótunum og ég man hann hreinlega aldrei í vondu skapi. Helst að ég man hann gefa óþægilegar skipanir í sveitinni í gamla daga, en það er í bamsminni og hlýtur þá að hafa verið ærin ástæða til. Veikindum sínum tók hann með miklu æðra- leysi. Gunna mín, guð veiti þér og þín- um styrk í sorgum ykkar. Við Dúna og fjölskyldan í Stóragerði 10 þökkum samfylgdina við frænda okkar og nágranna. Blessuð sé minning Helga Ein- arssonar og megi hann hvfla í friði. Aðalbjörn Kjartansson. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðal- línubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.