Morgunblaðið - 27.06.1998, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Björn Arnarson
LÍKLEGA eru hér fundnar fornar bæjarrústir.
Fornt bæjarstæði
en ekki kuml
HJÁ Vagnsstöðum í Suðursveit
fundust í síðustu viku fornar
minjar sem líktust kumli eða
fornmannahaug. Björn G. Arnar-
son, safnvörður á Sýslusafni
Austur-Skaftafellssýslu, fann
rústirnar er hann var þarna að
vinna að umhverfismati fyrir
væntanlegt vegstæði.
Á fímmtudag fyrir viku fór
fulltrúi Þjóðminjasafnsins á vett-
vang og kannaði hauginn og kom
þá í ljós að iíklega er um gamalt
uppbiásið bæjarstæði að ræða.
Að sögn Guðmundar Ólafsson-
ar, deildarstjóra fornleifadeildar,
sem kannaði rústirnar, bendir
allt til þess að um fornt bæjar-
stæði sé að ræða. Rennir það
stoðum undir gamlar munnmæla-
sögur, en árangurlaus leit var
gerð að bæjarrústum á þessum
slóðum um síðustu aldamót.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um framhald rannsókna og
mun það væntanlega bíða þar til
sýni sem tekin voru hafa verið
aldursgreind.
Nýtt einkarekið
meðferðarheimili
NYLEGA var opnað meðferðar-
heimili í Reykjavík að Dugguvogi 12
og.er það hið fyrsta sinnar tegundar
á Islandi. Heimilið er ætlað ungum
fíkniefnaneytendum á aldrinum 17
til 20 ára og verður meðferðartími
sniðinn að þörfum hvers og<eins.
Að heimilinu, sem fengið hefur
nafnið Virkið, stendur Götusmiðjan
en innan hennar er hópur einstak-
linga sem hver og einn hefur reynslu
af heimi fíkniefna. Starfað er í anda
mannúðarsálfræði og 12 spora kerf-
isins þar sem nálgun er á jafningja-
grundvelli eins og segir í frétt frá
Vii’kinu. Einnig er lögð áhersla á
gagnkvæma virðingu milli starfs-
fólks og heimilismanna til að búa þá
sem best undir þátttöku í hinu dag-
lega lífí.
Islenskur tannlæknir verð-
launaður í Bandaríkjunum
Miðað er við að um 14 einstakling-
ar geti notið aðstoðar Virkisins í einu
en 9 manns munu sjá um rekstur
þess.
Að sögn Guðmundar Týs Þórar-
inssonar, eins aðstandanda Virkis-
ins, hafa fyrstu móttökur verið góðar
og þakkar hann það miklum hlýhug
þess fólks sem sýnt hefur málinu
áhuga.
í undirbúningi er söfnunarátak
sem landsmenn geta tekið þátt í og
verður stofnaður sérstakur sjóður
sem sjá mun um fjárgæslu og úthlut-
un til heimilisins.
ASGEIR Sigurðsson, sérfræðingur í
rótar- og kjálkaaðgerðum
(Endodontics), var sæmdur verð-
launum kennd við dr. Edward Oset-
ek 8. maí sl. Verðlaun þessi eru veitt
þriðja eða fjórða hvert ár, og er
þetta í fyrsta sinn sem útlendingur
hlýtur þau, þ.e. ekki Bandaríkjamað-
ur.
Dómnefnd ferðaðist milli allra
tannlæknaháskóla í Bandaríkjunum
sem kenna þetta fag, þ.e. Endodont-
ics, öðru nafni munnholsfræði, og
kannaði hæfni þeiira sem valdir
höfðu verið hæfasth- í hverjum há-
skóla fyrh- sig.
Að mati dómnefndar var Ásgeir
talinn hæfastur til þess að hljóta
verðlaunin að þessu sinni.
I mati dómnefndar segir: „Ostet-
ek-verðlaunin eru veitt sérfræðingi í
greininni sem hefur kennt í 6 ár og
hefur sýnt framúrskarandi hæfni
sem kennari að mati núverandi og
fyrrverandi nemenda. Aukið mikil-
vægi náms í munnholsfræði með því
að ávinna sér álits og virðingar jafnt
samkennara, stúdenta og starfsfólks
deildarinnar, sem hann kennir við.“
Hann hefur einnig verið beðinn
Þakdúkar og
vatnsvarnarlög
Þakdúkar og
vatnsvarnarlög á:
► þök
► þaksvalir
► steyptar
rennur
► ný og gömul hús
- unnið við öll veðurskilyrði
FAGTÚN
Brautarholti 8 • sími 562 1370
PCI lún og fuguefoi
I
I
íim
Stórhöfda 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Kanaríeyjaflakkarar
Sumarhátíð að Geysi í Haukadal 10.—12. júlí.
Svæðið opnað kl. 16 föstudag. Létt skógarferð kl. 13 laugardag.
Leiðsögumaður Arnór Karlsson í Arnarholti.
Boðið verður upp á útsýnisflug ef veður leyfir með félögum okkar
ur Kanaríeyjaflökkurum. Grillað sameiginlega kl. 5 e.h. Hver sér
um sig í mat og drykk. Góð tjaldstæði. Hver er í kassanum?
(leynigestur). Dansað og sungið undir bláhimni. Hljómsveitin Lýsa
— Siggi Hannesar, Arngrímur og Ingibjörg, Garðar Jóhannesson
og fleiri í Kanarístuði.
Allir velkomnir. Takið með ykkur gesti og góða skapið.
Örn — Hvammstanga s. 4512467, Sigurborg — Reykjavík s. 5535556, Siggi
og Rúna — Garðabæ s. 5656929, Kalli Ara — Keflavík s. 4216037, Gylfi —
Mosfellsbæ s. 8920042, Gerður — Hafnarfirði s. 5554960
um að halda fyrirlestra,
verkleg námskeið og
kynningu á munnhols-
fræðinni við aðra há-
skóla og rannsóknar-
stofnanir. Frammistaða
Ásgeirs á fyrrnefndum
sviðum réði því að hann
var valinn til þess að
hljóta þessi mikilsverðu
verðlaun.
Ásgeir er nú yfir-
maður deildar og sér
um skipulagningu náms
í sinni sérgrein við rík-
isháskóla Norður-Kar-
olínu, U.N.C. í Chapel
Hill. Ásgeir
Ásgeh- varð stúdent Sigurðsson
frá MR 1981, tannlækn-
ir frá Háskóla íslands 1988 og lauk
sérfræðinámi í munnholsfræði og
masters-prófí við U.N.C. í Chapel
Hill 1992.
Hann hefur kennt við sama há-
skóla síðan, bæði tannlæknanemum
og sérfræðinemum. Auk þess hefur
hann haldið fjölmarga fyrirlestra í
Bandaríkjunum, Suður-Ámeríku og
Evrópu. Viðfangsefni fyrirlestranna
er oftast sérgrein hans,
sem er meðferð á
áverkum á tennur og
kjálka sem verða við
slys. Hann er einnig yf-
irmaður hóps sem
stundar rannsóknir og
gerir tilraunir með
sársaukasvið (Sensory
Testing unit), þ.e.
skynjun og viðbrögð
heila og líkama við sárs-
auka. Eftir Ásgeir hafa
birst nokkrar vísinda-
greinar í fagtimaritum
og kaflar í kennslubók-
um sem hann ýmist
hefur samið einn eða í
félagi samkennara
sinna. Hann er félagi í
mörgum samtökum vestra sem
snerta starf hans og rannsóknar-
verkefni.
Foreldrar Ásgeirs eru hjónin
Gyða Jónsdóttir og Sigurður Jóns-
son vélstjóri.
Eiginkona Ásgeirs er Anna H. Jó-
hannsdóttir kerfisfræðingur og eiga
þau þrjú börn. Þau hafa verið búsett
í Chapel Hill síðastliðin níu ár.
Sértilboð
ui Barcelona
22. og 29. júlí
Irá kr. 29.532
Flugsæti
Flug og bíll
Flug og hótel
Tryggðu þér nú síðustu sætin til
Barcelona í júlí á hreint frábæru til-
boðsverði og kynnstu þessari heill-
andi borg sem á ekki sinn líka í
allri Evrópu. Hér getur þú notið
þess að búa í borginni sjálfri, eða
farið til strandbæjarins Sitges, þar
sem þú finnur fallega strönd og ein-
stakt mannlíf yfír sumartímann. Við bjóðum nú sértilboð á
Adagio hótelinu, einföldu en góðu hóteli í hjarta Barcelona, rétt
við Römbluna. Öll herbergi með sjónvarpi, síma og loftkælingu.
Einnig getur þú valið um að kaupa eingöngu flugsæti, flug og bfl,
eða flug og hótel.
Verð kr.
29.532
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, flug-
sæti eingöngu.
Verð kr.
39.960
M.v. 2 í herbergi, Adagio hótelið,
1 vika, 22. eða 29. júlí.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600