Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Varnarefni í ávöxtum og grænmeti
Hlutfall sýna yfír
hámarksgildum
hefur hækkað
Á ÞESSU ári er áætlað að taka
um 400 sýni af grænmeti og
ávöxtum í vamarefnamælingu
en Hollustuvernd ríkisins tekur
sýni til slíkra mælinga í
hverri viku, bæði innlend
og erlend. Þetta kemur
fram í nýju fréttabréfí
Hollustuverndar og þar
kemur fram að það sem af
er ári hafi um 5,5% sýna far-
ið yfír hámarksgildi sem er
frekar hátt hlutfall miðað
við undanfarin ár.
I fréttabréfínu er
ennfremur skýrt frá
því að skimað sé fyr-
ir 41 vamarefni
sem fellur undir
skordýraeitur,
sveppalyf eða
illgresiseyði.
Sýnin em
tekin hjá 5
stærstu
dreifendum
á landinu.
Sala stöðv-
uð eða vör-
unni fargað
Soffía G. Magnúsdóttir mat-
vælafræðingur hjá Hollustu-
vemd ríkisins segir að mælist
sýni yfir hámarksgildum sé var-
an tekin úr sölu og annað sýni
tekið til að staðfesta fyrri niður-
stöður. Séu þau sýni einnig yfír
hámarksgildum er gripið til þess
að farga vöranni.
Þegar Soffía er beðin að
nefna dæmi um vörar sem
greinst hafi yfír hámarksgildum
að undanförnu nefnir hún að
appelsínur hafi greinst með of
mikið magn af sveppalyfjum
svo og sellerí og íssalat
(iceberg). Þá hefur ill-
gresiseyðir
mælst yf-
ir há-
marks-
gildi í
bökunar-
kartöflum.
Skolið
ávextina úr
volgu vatni
.Vamarefni era notuð við
ræktun matvæla s.s. ávaxta,
grænmetis og komvöru til að
koma í veg fyrir eða draga úr
skaða af völdum sveppa, illgres-
is, skordýra og annarra mein-
dýra.“
Þegar hún er spurð hvort al-
gengara sé að þessi efni mælist
yfir hármarksgildi í einni tegund
ávaxta eða grænmetis frekar en
annarri segir hún að algengara
sé að fínna vamarefni í ávöxtum
og þá fyrst og fremst í sítrasá-
vöxtum. „Efnin era þá aðallega í
berki ávaxtanna og ef fólk þvær
þá alltaf vel uppúr volgu vatni
má ná töluverðu af þeim
burtu.“
Morgunblaðið/Arnaldur
Kröfur til barnabflstóla í reglugerð
Barnabflstólar þurfa
að vera E-merktir
í NÝÚTKOMNUM breytingum á
reglugerð um gerð og búnað öku-
tækja eru í fyrsta sinn skilgreindar
kröfur til barnabflstóla sem notaðir
era hér á landi.
Um árabil hafa verið ákvæði í
umferðarlögum um að börn yngri
en 6 ára skuli í stað öryggisbeltis
eða ásamt öryggisbelti nota barna-
bflstól, beltispúða eða annan sér-
stakan öryggis- og verndunarbúnað
ætlaðan bömum.
Bergur Helgason hjá Aðalskoðun
hf. segir að nánari kröfur til bama-
bflstóla hafí vantað þó að flestir stól-
ar á markaðnum hafi uppfyllt evr-
ópska eða bandaríska öryggisstaðla.
„í 24. gi-ein reglugerðar um gerð
og búnað ökutækja segir nú:
„Barnabflstóll skal vera viður-
kenndur og E-merktur samkvæmt
ECE reglum nr. 44.03 eða viður-
kenndur samkvæmt viðeigandi
FMVSS stöðlum. ECE reglurnar
eru evrópskar, FMVSS bandarísk-
ar og CMVSS kanadískar. Akvæðin
um viðurkenningu og merkingu
gilda um barnabflstóla sem teknir
era í notkun eftir 1. september á
þessu ári.
Það er ólöglegt að flytja inn eða
selja aðra barnabflstóla en þá sem
era með E-merkingu eftir 1. sept-
ember og neytendur geta veitt að-
hald með því að fylgjast með því að
bflstólarnir séu með viðurkenndum
merkingum."
Bergur bendir á að í skoðunar-
reglum stjórnvalda sem bílar eru
skoðaðir eftir séu ekki ákvæði um
skoðun barnabílstóla við skyldu-
bundna skoðun. „Nokkuð algengt
er að fólk leiti álits skoðunar-
manna á því hvort barnastólar í
bílum þeirra séu rétt festir í bíl-
inn.
Ekki liggur ljóst fyrir hvort
skoðunarreglum verði breytt í kjöl-
far gildistöku reglnanna 1. septem-
ber en það mun koma í ljós er líður
á árið.“
Diskarekki
Tiiuaiið í sumarDústaðinn!
Diskaskápur
stóriæKKað uerð
Antíh, húsgögn og
spennandi gjatauara
Karl Kvaran
Höfiim hengt upp
nokkur glæsiverk
eftir Karl Kvaran.
TiJ sýnis oe sölu
Síðumúla 34
Sími 581 1000
>ið laugardag kl. 12-16
y sunnudag kl. 14-17
Aðeins um neioina!
Giæsiiegt sumarupphofl
Eftir hvern er þessi mynd sem seld
verður á sumaruppboðinu?
Svar berist til Gallerí Borgar,
nterkt Sumar/eikur, fyrir 3. júlí.
VINNINGAR
1. Sælulykill á Hótcl Örk
2. Úttekt í Gallerí Borg kr. 15.000
3. Úttekt í Gallcrí Borg kr. 10.000
Þessi mynd eftir Jóhann Briem verður
seld á sumaruppboðinu. Getum enn
bætt við nokkrum mynduni.
Nýtt kaffíhús
Franskar
kökur við
höfnina
NÝTT kaffihtís hefur verið opn-
að í Tryggvagötu 14 og ber það
nafnið La Cafet de France. Eins
og nafnið gefur til kynna svífur
franskur andi yfir vötnum, en
eigandi kaffihússins, Beatrice
Guido, er frönsk og hefur búið á
Islandi í sextán ár.
Beatrice hefur ásamt eigin-
manni sínum, John Sewell, rekið
verslunina La Baguette í Glæsi-
bæ, sem selur frosin brauð og
kökur frá fyrirtækinu Les
Grands Moulins de Paris í Frakk-
landi, ásamt bökum frá enska
fyrirtækinu Butcher & Baker. I
nýja kaffihúsinu er bæði hægt að
kaupa vörurnar úr frysti og baka
sjálfur heima eða setjast niður
með kaffíbolla og bragða á krás-
unum.
Bakkelsi og brauð
Hægt er að gæða sér á ýmsu
hjá Beatrice. Mikið úrval er af
alls kyns smjördeigsbrauðum
með fyllingum svo sem brauð
með skinku og osti, spínati,
sveppum og beikoni svo fátt eitt
sé nefnt. Brauðin eru borin fram
með salati og frönskum kartöfl-
i Tryg’gvag’ötu
Morgunblaðið/Árni
BEATRICE með sýnishorn af
veitingum staðarins.
um. Einnig er hægt að fá frönsk
langbrauð með margs konar
áleggi, langbrauð með pylsu,
hamborgara og enskar bökur
með kjötfyllingum.
Af sætabrauðinu er mikið úr-
val og auðvitað eru þekktustu
sætabrauð franskra eins og
súkkulaðibrauð og rúsínusnúðar
á boðstólum, en einnig tartalett-
ur með vanillukremi og ávöxtum
í miklu úrvali.
Kaffíhúsið tekur 26 gesti, og
opið er alla virka daga frá kl.
12-18 og á laugardögum frá kl.
14-17.