Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 43< Endurtekin mistök í efnahagsstj órn? FYRIR rúmum ára- tug eða á árunum 1986- 1988 varð mikil þensla í íslensku efnahagslífí. Ríkisstjórnin reyndi lengi að hamla á móti með því að beita geng- ishækkun og háum vöxtum. Þessi milli- færsla fjármagns frá útflutningi, einkum sjávarútvegi, til þess að greiða niður innflutn- ing og halda þannig aft- ur af verðbólgu dugði ekki til lengdar og að endingu brast ríkis- stjórnarsamstarfið og Sjálfstæðisflokknum Kristinn H. Gunnarsson var beinlínis hent út úr stjórnarráð- inu. Ný ríkisstjóm varð að grípa til neyðaraðgerða til þess að afstýra stórfelldu hruni útflutningsatvinnu- veganna. Þá brást hagstjórnin und- ir forystu Sjálfstæðisflokksins, margar aðgerðir ríkisvaldsins bein- línis kyntu undir þenslunni og síðan virtist flokkurinn vera um of bund- inn í pólitískum kreddum sem komu í veg fyrir að gripið væri til viðeig- andi aðgerða. Þensla á nýjan leik A síðustu árum hefur efnahags- stjórnunin verið þannig að stefnt hefur beina leið í þenslu. Nú er ástandið orðið þannig að ríkis- stjómin verður að grípa til ákveð- inna aðgerða ef ekki á illa að fara og fjármálaráðherrann skynjar hætt- una og ritar í Morgunblaðið 13. júní sl. grein í því skyni að slá á ótta manna um að efnahagsmálin séu að fara úr böndunum. Ráðherrann boðar sölu á eignum ríkisins en jafnframt að ekki verði beitt niður- skurði á næsta ári umfram það sem nú er og tekur sérstaklega fram að útgjöld verði aukin til fjárfrekra málaflokka eins og velferðar- og menntamála. Þess‘ar aðgerðir eru ekki líklegar til þess að slá á þensl- una og vekja þá spurningu hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafí ekki kjark nú fremur en fyrir áratug til þess grípa til viðeigandi aðgerða í þensluástandi. Stefnt í óefni skiptahallinn er þegar orðinn það sem áætlað var að hann yrði allt árið og verðfag innan- lands fer hækkandi bæði á vörum og þjón- ustu. Útlán bankanna hafa aukist um 14% síðustu 12 mánuði og viðskipti með debet/kreditkortum hafa aukist enn meira eða um 20%. Með hækkun gengisins eru færðir peningar frá út- flutningsfyrirtækjum til þess að greiða niður innlenda verðbólgu. Þessi aðferð getur gengið til skamms tíma og hækkun á afurðaverði sjávarafurða um þess- ar mundir hjálpar til en til lengdar stefnir í óefni rétt eins og árin 1987- 88. Þarna hefur efnahagsstjórnin brugðist og öðru sinni á rúmum ára- tug er Sjálfstæðisflokkurinn að stefna efnahagslegum stöðugleika í voða. Athyglisvert er að nú eins og Ef ekki á illa að fara, segir Kristinn H. Gunnarsson, þarf að draga út úr hagkerfmu miklar fjárhæðir og slá þannig á þensluna. þá er Framsóknarflokkurinn sam- starfsflokkur Sjálfstæðisflokksins. Mistökin endurtekin? Við þessar aðstæður skipta sköp- um aðgerðir ríkisvaldsins i peninga- málum og fjármálum ríkissjóðs. Ef ekki á illa að fara þarf að draga út úr hagkerfmu miklar fjárhæðir og slá þannig á þensluna. Hægt er að beita þvinguðum sparnaði og stuðla að frjálsum spamaði með sérstök- um aðgerðum. Þá er hægt að hækka skatta, einkum þar sem þenslunnar gætir, svo sem á innflutningsvörum, og loks að fresta fyrirhuguðum skattalækkunum. Hægja þyrfti á fjárfrekum framkvæmdum sem fjármagnaðar eru með lánsfé. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn farið með stjórn efnahagsmála í 7 ár og það sem einkennir stjórn þeirra einkum síðustu 2-3 ár eru eftirfar- andi þrjú atriði: í fyrsta lagi mark- visst afnumin úr lögum ákvæði sem hvetja til sparnaðar. Skyldusparn- aður var afnuminn og einnig skattaívilnun vegna húsnæðissparn- aðarreikninga. Loks hefur verið dregið úr skattaívilnum vegna hlutafjárkaupa og henni verður hætt innan tveggja ára. Allt eru þetta skilaboð til almennings um að hætta að spara. Einkennileg stefna í þjóðfélagi þar sem spamaður er of lítill. í öðru lagi verulegar skatta- lækkanir. Tekjuskattur lækkar um 4% og iðgjöld í lífeyrissjóði, önnur 4% af launum, eru nú skattfrjáls. Efra þrep eignarskatts hefur verið fellt niður og tekjuskattur fyrir- tækja hefur lækkað úr 50% í 30% svo nefnd séu helstu dæmin. í þriðja lagi hefur gífurlegum fjárhæðum, einkum í formi erlends lánsfjár, verið dælt inn í efnahagslífið með framkvæmdum við stóriðju og orku- ver sem kalla á mikinn mannafla. Allt eru þetta aðgerðir sem stuðla aukinni eyðslu og þegar við bætist að á þessum tíma gætir einnig áhrifa kjarasamninga með umtals- verðum kauphækkunum umfram verðlagsbreytingar er efnahags- stjórnin ávísun á þenslu og erflð- leika í kjölfar hennar, háa vexti, við- skiptahalla og hækkandi gengi. Við- Það eru hins vegar hverfandi lík- ur til þess að gripið verði til nægi- lega ákveðinna aðgerða til þess að hamla móti þenslunni. Forysta Sjálfstæðisflokksins mun ekki vilja hverfa frá boðuðum skattalækkun- um á kosningaári og enn síður hækka skatta. í fjárlögum yfír- standandi árs voru settar i gang fjárfrekar framkvæmdir með lánsfé til viðbótar stóriðjuframkvæmdun- um svo ekki er líklegt að ríkis- stjórnin fresti framkvæmdum. Lýs- ir það óvenju ábyrgðarlausri fjár- málastjórn, en það voru líka kosn- ingar á þessu ári og uppsveifla í þjóðfélaginu með hraðri kaupmátt- araukningu er vænleg til þess skila ríkisstjórnarflokkum atkvæðum í kosningum. Stjórn efnahagsmála mun einkennast af því að of lítið verður gert of seint. Helst má vænta þess að seld verði hlutabréf í ríkisbönkunum, sem er ágætt út af fyrir sig en ófullnægjandi efnahags- aðgerð. Notuð verður gamla milli- færsluaðferðin frá síðasta áratug með háu gengi og háum vöxtum. Síðan vonast eftir því að útflutn- ingsatvinnuvegirnir þoli þetta ástand fram yfír næstu kosningar. Komin er upp svipuð staða og var fyrir áratug. Sjálfstæðisflokkurinn virðist ekkert hafa lært af mistök- unum frá 1986-1988. Höfundur er þingmaður Alþýðu- bandalagsins. Vakna íslenskir stjórnendur við vondan draum árið 2000? ÁRIÐ 2000 kallar fram galla í upplýs- ingakerfum og ýmsum stýribúnaði og mun því hafa afdrifarík áhrif á rekstraröryggi fyrirtækja ef ekkert er að gert. Vandamál- in leynast víða og get- ur ýmis búnaður verið í hættu. Á fundi Skýrslu- tæknifélagsins voru nýlega kynntar niður- stöður skoðanakönn- unar Gallup um áhrif ársins 2000 á rekstur íslenskra fyrirtækja. Niðurstöðurnar líta vel út við fyrstu sýn. Um 81% svarenda telur lítinn eða engan vanda framundan. Um 13% svar- enda telja að frekar eða mjög mik- il vandamál muni hljótast af ártal- inu 2000 í sínum fyrirtækum. Sambærileg tala er 42% í Svíþjóð. Þessi niðurstaða hjá okkur er ótrúleg og í engu samræmi við stöðuna í nágrannalöndum okkar. Annaðhvort er staða mála svona góð í íslenskum fyrirtækjum eða hér er um mikið þekkingar- og fyrirhyggjuleysi að ræða. Það lít- ur út fyrir það í dag að margir ís- lenskir stjórnendur ætli að sofa yfír sig. Vonandi vakna þeir ekki upp við vondan draum þegar árið 2000 rennur upp. Viðfangsefnið Þeir stjórnendur sem ekki hafa hafið fyrirbyggjandi aðgerðir í fyrirtækjum sínum ættu að hefj- ast handa strax. Verkefnið felst m.a. í upplýsingaöflun og gi'ein- ingu umfangs einstakra þátta er geta orsakað rekstrartruflun. Vekja þarf athygli allra helstu starfsstöðva fyrirtækisins á þeirri hættu sem árið 2000 getur boðið heim ef ekkert er að gert. I fram- haldi af því ætti að biðja starfs- menn um ábendingar um tölvu- kerfi eða búnað sem mögulega getur truflast. Með þessu móti fæst ágæt yfírsýn yfír umfang verkefnisins. Vinna þarf samantektir og yfir- lit yfir allan eigin hugbúnað, allan aðkeyptan hugbúnað, allan tölvu- búnað og þann vél- búnað, sérkerfí, stýri- búnað og fjarskipta- búnað sem talin er þörf á að yfirfara. Leggja þarf mat á umfang einstakra verkefna miðað við þær upplýsingar sem eru tiltækar og gera áætlanir um fram- kvæmdir. Flokka má verkefnin sem vinna þarf á næstu mánuð- um í eftirtalda megin- flokka: Hugbúnaður - eigin og aðkeyptur Fara þarf kerfisbundið yfir allan hugbúnað í notkun hjá fyrirtækinu og gera ráðstafanir sem tryggja rétta virkni m.t.t. ársins 2000. Verkefnið snertir allan rekstur fyr- irtækisins bæði hvaða varðar notk- Þeir stjórnendur sem ekki hafa hafíð fyrirbyggjandi aðgerðir í sínum fyrirtækjum, segir Gyifí Hauksson, ættu að hefjast handa strax. un eigin og aðkeypts hugbúnaðar og stýrikerfa. Vélbúnaður - tölvur Greina þarf allan vélbúnað og yf- irfara virkni hans m.t.t. ársins 2000. Fá þarf staðfestingar frá framleiðendum um virknina eða það sem til þarf til að tryggja virkni og staðfesta hana. Utvega þann búnað sem þarf til að prófa virkni. Greina hvaða búnaði þarf að skipta út. Móta þarf aðgerðarplan til að vinna eftir ef eitthvað gefur sig. Sérkerfi, tölvustýringar og fjarskipti Tryggja virkni vél- og stýribún- aðar sem stýrt er af iðntölvum og orðið geta fýrir truflun árið 2000. Einnig að allur fjarskiptabúnaður og öryggiskerfi séu virk og verði ekki fyrir truflun á þessum tíma- mótum. Gera breytingar eða lag- færingar þar sem þess er þörf. Samstarfsaðilar Tryggja þarf rekstraröryggi með því að fyrirbyggja mögulega truflun á tölvukerfum og tölvu- tengingum við önnur fyrirtæki vegna ársins 2000. Kerfi geta trufl- ast af gölluðum upplýsingum frá þriðja aðila. Með kerfisbundnurn^ hætti þarf að kanna virkni tölvu- búnaðar allra helstu samstarfsaðila m.t.t. ársins 2000. Aðföng Lágmarka truflanir á rekstri af völdum birgja sem ekki geta staðið við fyrírfram gefín loforð um af- hendingu á vöru eða þjónustu. Greina þarf hvaða þættir starfsem- innar eru viðkvæmir fyrir og háðir aðfóngum. Fá þarf staðfestingu frá helstu birgjum um stöðu þeirra og aðgerðir vegna ársins 2000. Einnig þarf að móta aðgerðir sem grípa þarf til bregðist mildlvæg aðföng til fyrirtækisins. Síma- og gagnasamskipti Tryggja virkni allra síma og gagnasamskipta hjá fýrirtækjum árið 2000. Raða þarf samskiptaleið- unum upp í mikilvægisröð og greina veiku hlekkina í hverri fyrir sig. Móta þarf aðgerðarplan til að styðjast við ef eitthvað gefur sig. Hefjist handa - vaknið! Viðfangsefnið er ekki tæknilega flókið, það krefst aðeins góðrajý, skipulagningar, tíma og peninga. Það þarf ekki langan tíma til að gera áætlanirnar og peningarnir eru eflaust til, en tíminn er naumur og verkefninu verður ekki frestað. Stjómendur fyrirtækja bera ábyrgðina fyrst og síðast. Þeir sem ekki hafa hafið fyrirbyggjandi að- gerðir taka áhættu varðandi rekst- urinn, það getur orðið illmögulegt að fá keypta þjónustu og aðstoð tengda árinu 2000 þegar nær dreg- ur aldamótum. Höfundur er dcililnrstjóri hugbún- aðarþróunai• Eimskips og nefhdar- maður í 2000-nefnd fjármálaráðu- neytis. Gylfi Hauksson Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00 1978-2.fl. 10.09.98 kr. 911.916,70 1979-2.fl. 15.09.98- 15.09.99 kr. 594.497,70 1986-l.fl.B 10.07.98 - 10.01.99 kr. 26.634,90** *) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur. **) Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis. Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, 27. júní 1998 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.