Morgunblaðið - 27.06.1998, Síða 56
56 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Matur og matgerð
Ábætisréttir
úr rabarbara
Allt grær í kringum okkur þessa blíðu sumar-
daga, segir Kristín Gestsdóttir.
UM DAGINN vorum við hjónin
að reyta arfa í matjurtagarðin-
um. Bóndi minn er nokkuð
þunnhærður og hafði fluga sest
á nokkur hár sem stóðu upp úr
höfði hans. Skömmu síðar þegar
ég leit yfir til hans var kónguló í
óðaönn að spinna vef í kringum
fluguna. Hún ætlaði greinilega
að bæta úr hárleysinu. Þó ýms-
ar aðferðir séu til að auka hár-
vöxt hefi ég aldrei heyrt um
þessa. En fleira vex en hár
bónda míns, rabarbarinn bíður
þess að verða nýttur í sultu,
kökur, grauta og alls konar
ábætisrétti. íslendingar eru
ekkert mjög duglegir að nýta
rabarbara, líklega er hann of
auðveldur í ræktun. Hann Iætur
ekki drepa sig og má sjá breiður
af honum i yfírgefnum görðum.
Víða erlendis er hann kærkom-
inn á vorin og fyrri part sumars
áður en ber og ávextir þroskast.
Margir eru hræddir við oxal-
sýru í rabarbara, en hún bindur
kalkið í líkamanum. Hún er mis-
mikil eftir tegundum, mjög lítil í
rauðum rabarbara, en mest í
þeim græna grófa. Við þurfum
að borða mjög mikið af rabar-
bara til að þetta valdi okkur
skaða.
Rabarbaratrifli
handa 3-4
makrónukökur
3 msk. sherry, má sleppa
300 g rabarbari +1 dl sykur
3 eggjarauður + 2 msk. sykur
1 peli nýmjólk
2 tsk. maízenamjöl
'A tsk. vanilludropar
3 eggjahvítur + 3 msk. sykur
saxaðar möndlur eða heslihnetur
1. Notið eldfasta flátbotna skál
eða fat. Raðið makrónukökunum
þétt á það, hellið sherry yfír með
skeið.
2. Afhýðið rabarbarann og
skerið í þunnar sneiðar, setjið í
skál og sykurinn yfir. Hrærið
saman en látið síðan bíða í 10
mínútur, setjið þá ofan á mak-
rónukökurnar.
3. Setjið eggjarauður, sykur,
maízenamjöl og vanilludropa í
skál og þeytið saman með þeyt-
ara. Setjið svolítið kalt vatn í eld-
húsvaskinn. Hitið mjólkina að
suðu, hellið þá ögn af henni út í
eggjahræruna, hellið síðan öllu í
pottinn og látið rétt sjóða upp.
Skellið pottinum ofan í kalda
vatnið í vaskinum, hrærið vel í og
látið kólna örlítið, þá skilja eggin
sig ekki. Hellið þessu yfir það
sem er í skálinni.
4. Stífþeytið eggjahvíturnar
með sykri, setjið ofan á, stráið
hnetum eða möndlum ofan á.
Bakið í bakaraofni í 45 mínútur.
Hiti 200° C, blástursofn 180° C.
Berið fram heitt eða kalt með
þeyttum rjóma eða ís. Þegar
þetta kólnar fellur það saman.
Brauðbúðingur með
rabarbara og engi-
feri handa 5
5 franskbrauðssneiðar
1 dl sykur
1 msk. smjör
400 g rabarbari + 1 dl sykur
2-3 bitar sultaður eða sykraður engifer
(stem ginger)
3 egg + 2 msk. sykur
rifinn börkur af 'k sítrónu
'k tsk. engiferduft
1. Skerið brauðsneiðarnar í
bita á stærð við sykurmola.
2. Setjið sykur á pönnu og
brúnið örlítið, minnkið hitann og
setjið smjör saman við. Jafnið vel
en brúnið síðan brauðteningana
eins og þið væruð að brúna kart-
öflur. Setjið á eldfast fat eða í 5
eldfastar smáskálar.
3. Saxið engiferbitana mjög
smátt, bætið rabarbaranum í
þunnum sneiðum út í og blandið
sykri saman við. Látið bíða í 10
mínútur, hrærið vel saman. Setj-
ið ofan á brauðbitana.
4. Hrærið egg og sykur sam-
an, setjið rifinn sítrónubörk og
engiferduft út í. Hellið yfir. Bak-
ið í 20-30 mínútur.
Hiti 200° C, blástursofn 180°
C.
Athugið: Sultaður engifer fæst
víða í smákrukkum en sykraður í
smábitum í heilsufæðisbúðum.
Rabarbara/jarðar-
berjahlaup
handa 4-5.
200 g rabarbarl
200 g fersk jarðarber
1 pk. Toro jarðarberja- eða sítrónuhlaup
3 dl sjóðandi vatn (minna en
stendur á bréfinu)
1. Afhýðið rabarbarann og
skerið í sneiðar ásamt jarðar-
berjum og sjóðið í vatninu í 3-5
mínútur, hellið á sigti.
2. Hrærið hlaupduftið út í
safann, kælið að mestu en setjið
þá rabarbara- og jarðarberja-
sneiðarnar út í. Hellið í form og
látið stífna í kæliskáp.
Meðlæti: Þeyttur rjómi eða ís.
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í súna 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Seljavalla-
sundlaug
SL. FIMMTUDAG var
frétt í Morgunblaðinu um
að búið sé að loka sund-
lauginni á Seljavöllum. Það
á að banna fólki að fara í
laugina, bent á slysahættu,
því laugin sé án gæslu og
vatn í henni geti verið
heilsuspillandi. En ef þessi
laug er heilsuspillandi er
þá ekki laugin í Land-
mannalaugum líka heilsu-
spillandi? Þar fara útlend-
ingar í bað þegar þeim
dettur það í hug. Er það
ekki líka mál sem heil-
brigðisyfirvöld ættu að at-
huga. Veit ég einnig að það
eru margir staðir vítt og
breitt um landið þar sem
engin gæsla er; á þá ekki
líka að loka þeim?
Sundlaugargestur.
Um hönnuð
nýja jeppans
í SAMBANDI við fréttir
sem birtust um nýja jepp-
ann, Extreamer, sem
Steinn Sigurðsson hann-
aði, var sagt að hann hefði
smíðað fyrsta rafbílinn,
sem var kallaður Rafsa, en
þetta var ekki fyrsti bíllinn
sem hann smíðaði, því ég
man að þegar hann var
krakki, ca. 10-12 ára,
þeysti hann um allt á bíl
sem hann hafði smíðað þá.
Sólveig Pálmadóttir.
Tapað/fundið
Myndavél týndist
LÍTIL myndavél í gráu
hulstri týndist líklega á
bílastæði við Lönguhh'ð 13
sl. sunnudag. Skilvis finn-
andi hafi samband eftir
helgi í síma 554 1913.
Sundbolur tekinn
í misgripum
SUNDBOLUR var tekinn
í misgripum í Sundlaug
Reykjavíkur sl. þriðjudag.
Sundbolurinn er mjög sér-
stakur, svartur með
skálmum, hvítum saumum
og með tveimur vösum á
mjöðmum ásamt rennilás.
Skilvís finnandi skili boln-
um í Sundlaug Reykjavík-
ur.
Fjólublátt
fjallahjól týndist
FJÓLUBLÁTT fjallahjól
með hvítum hnakki og
tónabjöllu hvarf frá Aust-
urbæjarskóla sl. þriðjudag.
Þeir sem hafa orðið varir
við hjóhð hafi samband í
síma 898 4268, (Leikja-
námskeið ÍTR).
GSM-sími týndist
GSM-sími af gerðinni
Ericson 337 týndist á
Reykjavíkursvæðinu fyrir
u.þ.b. tveim vikum. Finn-
andi er vinsamlega beðinn
að hafa samband í síma
567 0010.
10.000 kr. fundarlaun
BLÁTT karlmannsfjalla-
hjól týndist í Bankastræti
sl. þriðjudag 24. júní. Það
er af gerðinni Giant og
jafnframt stendur á því
Stonebreaker. Ef einhver
hefur orðið var við svona
hjól í reiðileysi í nágrenni
sínu þá vinsamlega hringið
í síma 552 2569 eða
5514335 og spyrjið um
Óskar eða skiljið eftir
skilaboð. Fundarlaun eru
10.000 kr. fyrir hjóhð
óskemmt.
Dýrahald
Læða týndist
í Hafnarfirði
LÆÐA svört og hvít, með
Ijós í rófunni týndist föstu-
daginn í síðustu viku frá
Fögrukinn. Hún er með
bleika ól. Þeir sem hafa
orðið varir við hana hafi
samband í síma 565 1443.
Kettlingur
fæst gefins
TIU vikna grábröndóttur
högni óskar eftir heimili.
Upplýsingar eftir helgi í
síma 555 0125 eða Merkur-
götu 3, Hafnarfirði.
Kettlingar
fást gefins
FJÓRIR ketthngar fást
gefins, einn er skógarkött-
ur, mjög fallegur. Kassa-
vanir. Upplýsingar í síma
554 1676 og 898 8103.
ÚLFLJÓTSVATNSKIRKJA.
Morgunblaðið/RAX.
Víkverji skrifar...
I^AUGLÝSINGUM birtast for-
dómar auglýsendanna stundum
berstrípaðir. Þannig auglýsing birt-
ist í Morgunblaðinu á miðvikudag-
inn. Verið var að auglýsa þvottavél-
ar og í auglýsingunni segir ung
kona: ,Amnia og mamma eru enn
að nota sínar ... ég treysti þeim.“
Það er augljóst hvað auglýsandan-
um finnst um hlutverk kynjanna á
heimilinu; það eru bara konur sem
nota þvottavélar. í sama blaði var
auglýsing frá bókaforlagi um
fræðslurit um getnað, meðgöngu og
fæðingu. Tekið var fram að fjallað
væri um efnið „bæði frá sjónarhóli
móður og bams“. Nú vill svo til að
Víkverji hefur lesið bókina, sem
verið var að auglýsa, og veit að í
henni er líka fjallað um efnið frá
sjónarhóli fóðurins, þótt í stuttu
máli sé, en væntanlega finnst bóka-
forlaginu pabbinn ekki koma málinu
við - eða hvað?
XXX
I^MIÐVIKUDAGSBLAÐINU var
hins vegar þriðja auglýsingin, þar
sem kvað við annan tón. Þar var
verið að auglýsa hrærivél sem til-
valda brúðargjöf. Tekið var fram að
vélinni fylgdi ísaumuð svunta með
nöfnum brúðhjónanna og brúð-
kaupsdegi. Svo virðist sem innflytj-
andi hrærivélanna geri ráð fyrir að
hjónin muni bæði nota hrærivélina
og verður það að teljast nokkuð nú-
tímalegt viðhorf, miðað við hinar
auglýsingamar tvær!
xxx
SÉRA Bragi Skúlason skrifar
grein í Morgunblaðið á fimmtu-
dag, þar sem hann veltir því fyrir
sér hvers vegna sé ekki haldið upp á
feðradag á Islandi, þótt mæðradag-
urinn eigi sér langa hefð. Bragi tel-
ur feðradaginn mikilvægari til þess
að feður geti rætt saman um föður-
hlutverkið og ábyrgð sína í samfé-
laginu en sem tækifæri til að fá
blóm eða gjafir og þar er Víkverji
hjartanlega sammála honum. Hins
vegar furðar Víkverji sig á því að
íslendingar skuli ekki vera löngu
famir að halda upp á feðradag fyrir
tilstilli kaupmanna. Nú er til dæmis
farið að halda upp á Valentínusar-
dag (þótt fáir viti almennilega hver
þessi Valentínus er), eingöngu
vegna þess að kaupmenn tóku upp á
því að auglýsa Valentínusardags-
gjafir.
XXX
FEÐRADAGURINN var um síð-
ustu helgi í enskumælandi lönd-
um. Víkverji var staddur í Banda-
ríkjunum í síðustu viku og þar fór
ekki á milli mála að kaupmenn gera
út á feðradaginn. Sjónvarp og blöð
voru full af auglýsingum um feðra-
dagsgjafír og á laugardaginn voru
verzlanir fullar af konum og börn-
um - og jafnvel fullorðnum karl-
mönnum - í leit að feðradagsgjöf.
Kannski verður feðradagur tekinn
upp á íslandi að fmmkvæði kaup-
mannastéttarinnar. Svo mikið er
víst að auglýsingar, sem gera upp á
milli kynjanna eins og þær tvær,
sem nefndar voru hér í upphafi, ala
ekki bara á gamaldags fordómum.
Þær verða líka til þess að fyrirtæki
missa viðskipti, vegna þess að þau
reyna ekki að höfða til nema annars
kynsins.