Morgunblaðið - 27.06.1998, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ÍESSICA LANGE
ICHELL PFEIFFER
GfilSHAM
■kWm w,
HASKOLABIO
9 »iTWb. MAiinTWfel .YUaiflTTIl £4Ail.ilUlbl MAAii.tíWbll J£4Atoftfc^Hbl
___^___________^ JIÝTTOGBETRA^
Hagatorgi, sími 552 2140
ÁRA AFMÆL!
ENDURHLJÓÐBLÖNDUÐ í
DIGITAL STEREO
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15.
PIPARKOKUKALLINN
.k ROBERT ALTMAN
★ HLMBL
★ tA ★ HKO’
cgmNAiriAj
. ...
^Sponnarití ’
hryrtfa-’ci*’
ByM^i “8“ R“th RenÍd'
Besta mynd Pedro Almodovar síðan
Konur á barmi taugaáfalls
Takið þátt í getraun á Sólon Islandus
Glæsileg verðlaun!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. b. l 14.
srvifwrr
Sýnd kl. 4.40 og 11. bi 14.
Sýnd kl. 6.50,
9 og 11.15. B114.
ÞUSUND
EKRUR
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK JANE SMILEY
Sýnd kl. 7 og 9.
Sýnd kl. 5. .
Sýnd kl. 10. B.i. 12.
Sýnd kl. 5
Sjáið alla leikina í 16 liða úrslitum á HM á stóru tjaldi
í boði Adidas. Stærsti myndvarpi á íslandi. j*r;1í i i’ I' 1 í*I,.
Takið þátt í HM getraun. Glæsiieg verðlaun: HM bolti, skór o.fl.
min
990 PUHKTf.
FEfíBU I Bió
BÍÓHO
NYTT 0G BETRA^
SAG4-I
Alfabakka S, simi 5S7 8900 og 567 8905
FRUMSYNING
nr.NNIS DANNY
QUAII) GLOYMR
Hajýrer
;í sffeö.
ÞAU GERÐU THE FUGITIVE. DIE HARD,
AUENS ÖG TERMINATOR
OG NÚ FÁUM VIÐ
SWITCHBACK
Sýnd kl. 5, 6.45, 9 og 11.15 bímMŒdigp.
IIMíliIflMD lÍptOlí
^3 Rítír 'vlku i
•'TWr*'m’þurfa þ-..<
jfcjf á frti ad halda!
1K jr
sixDays
SEVENNIGHTS
Sýnd kl. 2.50, 5, 7, 9 og 11.05. ■m*n*L
tfMttilHUN
Sýnd kl. 3, 5 og 7
LESLIE NIELSEN
Ratar þú i bíó?
Sýnd kl. 3 og 5. (sl. tal
Sýnd kl. 3 og 7.
Sýndkl. 9 og 11.15. u it
www.samfilm.is
Morgunblaðið/Halldór
ÞESSI piltur var einn af þeim sem keyptu kjól á tískusýningunni og hafði gaman af.
Kjólarnir keyptir utan
af sýningarstúlkum
I jaðri íslensks
tónlistarlífs
ÞAÐ er ekki á hverjum degi
sem gestum á tískusýningum
gefst kostur á að kaupa íotin
utan af sýningarstúlkum. En sú
var raunin þegar tískuverslun-
in Obsession á Laugavegi 103
hélt upp á vikuafmæli. „Okkur
langaði að gera eitthvað snið-
ugt og ákváðum því að enda
sýninguna á því að leyfa gest-
um að bjóða í kjólana sem sýn-
ingarstúlkurnar voru í, kaupa
þá á staðnum og klæða þær úr
þeim,“ segir Sóley Ingólfsdóttir
eigandi Obsession og bætir við
að undirtektir gesta hafi verið
mjög góöar. „Við vorum ekki
viss um hvernig áhorfendur
tækju þessari uppákomu og
tókum þannig nokkra áhættu
en svo heppnaðist þetta ótrú-
lega vel.“
TONLIST
Geisladiskur
LAGASAFNIÐ 6
LAGASAFNIÐ 6, safn laga ým-
issa flytjenda. Lög á disknum
ftytja Helga Jóhanna Úlfarsdóttir,
E1 Puerco, Guðrún Svava Sigur-
jónsdóttir og Þormar Jónsson,
Sandra Dee; Guðjón Guðmundsson
og Regína Osk Oskarsdóttir, Q4U,
Svartigaldur, Englabossar, Anus
Incana P.Ó. og Fester, Mjölnir,
Tómas Malmberg og Guðmundur
Guðfinnsson. Ymsir leika á hljóð-
færi. Stöðin gefur út. 56,14 mín.
ÝMSAR leiðir eru færar til að
koma fyrir augu og eyru almenn-
ings og hefur reynst mörgum vel
að syngja inn á plast. Lagasafnið
heitir safnplöturöð sem Stöðin gef-
ur út og síðasta útgáfan í þeirri röð
er sjötti skammtur laga ó- eða mis-
þekktra tónlistarmanna. Nokkuð
er reyndar liðið síðan sá diskur
kom út, en hefur ekki verið getið
sem skyldi.
Margir þeirra sem á lagasafninu
syngja hafa verið í jaðri íslensks
tónlistarlífs, átt þátt í lögum sem
hafa næstum því náð vinsældum,
sungið á krám og knæpum, eða
alltaf langað til en ekki haft sig af
stað. Jaðartónlist hefur reyndar
oftast verið notað um þá tónlist
sem fellur ekki að almannasmekk
sökum frumleika eða sérkennileg-
heita, en má eins nota um tónlist
sem er gersneydd frumleika eða
skemmtanagildi. Þeir eru líka inn á
milli sem ekki hafa fengið inni með
tónlist sína og því gripið til þess að
gefa út sjálfir. Víðast má reyndar
heyra hvers vegna svo er; tónlistin
og/eða flutningurinn stenst einfald-
lega ekki almennar gæðakröfur.
Sumt er vel gert á plötunni,
þannig eru lögin Bjartar vonir og
Einmana strá þekkileg, en gjalda
fyrir gervilegan flutning, sérstak-
lega það fyrmefnda sem hefði hljó-
mað betur ílutt af lifandi hljóð-
færaleikurum. Það á reyndar við
um fleiri lög; þó að vel geti gengið
að styðjast við skemmtara á balli
eða í öldurhúsi gengur það illa þeg-
ar komið er á plast, að ekki sé talað
um þegar þaulhlustað er á slíka
upptöku. Síðara lagið gengur betur
upp, meðal annars fyrir saxófón-
leikinn, en gervistrengir spilla
nokkuð. Guðrún Svana söngkona
kemst og vel frá sínu, nema þegar
hún rennir sér uppávið. Keyrir um
þverbak í lokalagi plötunnar, þar
sem öllum „fallegustu“ hljóðum
hljóðgervilsins er hrúgað í sykur-
leðjusull.
Gott dæmi um gervilega hljóma
eru rapplög Söndru Dee; sérkenni-
legt að heyra rappað um „homies
in the hood“ á íslenskri skífu og
það með billegum skemmtaratakti
í þokkabót. Víðar fara menn flatt á
að spara hljóðfæraleik, heyr til að
mynda Önnu Rósu Englabossanna,
sem líður að auki fyrir slakan söng,
Finn, tæpar fjórar mínútur af til-
gangsleysi. Svo eru þeir sem leika
á raunveruleg hljóðfæri, ekki bara
hljóðsmala og -sarpa, eins og
Mjölnir og hefðu betur látið það
ógert, þó aðvitnað sé smekklega í
Led Zeppelin.
Á safnskífum lagasafnsins eru
dæmi um að tónlistarmenn hafi lát-
ið til sín heyra sem gert hafa góða
hluti í framhaldinu. Af þeim sem
gefa sýnishorn á umræddri skífu
eiga ekki margir eftir að láta á sér
kræla í framtíðinni.
Árni Matthíasson
ÁHORFENDUR tóku óvæntum endalokum tískusýningarinnar vel.