Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 1
104 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
144. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bill Clinton ávarpar kínverska námsmenn í Peking
Mannréttindi verði
heiðri í Kína
Lögregla sökuð um kynþáttahatur
höfð í
Peking. Reuters.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, skoraði á Kinverja að virða
mannréttindi og hvatti til „nýrra
tengsla" milli ríkjanna í ávarpi sem
hann flutti í Peking-háskóla, þar
sem fjöldamótmæli kínverskra
námsmanna hófust árið 1989.
Avarpið var sýnt í beinni útsend-
ingu í kínverska sjónvarpinu, sem
nær til hundraða mOljóna manna,
og þetta er í annað sinn sem Clinton
fær tækifæri til að tala til kínversku
þjóðarinnar um mannréttindi.
Námsmenn í Peking-háskóla, þar
sem margir af helstu embættis-
mönnum Kína hafa menntast, fengu
tækifæri til að spyrja forsetann
spurninga. Námsmennimir voru
ekki allir ánægðir með ávarp forset-
ans og einn þeirra spurði hvort vin-
gjamlegt bros hans hyldi leynileg
áform um að „halda Kína í skefj-
um“, koma í veg íyrir að landið yrði
að stórveldi á borð við Bandaríkin.
Clinton neitaði þessu og svaraði
spumingu annars námsmanns um
hvort mannréttindi væm alltaf höfð
í heiðri í Bandaríkjunum með því að
ræða eiturlyfjavandann, glæpi og
kynþáttamismunun í landi sínu.
„Við emm ekki enn fullkomin,"
sagði hann.
„Frelsið eflir
stöðugleikann"
Clinton minntist ekki á blóðuga
árás hersins á kínverska náms-
menn á Torgi hins himneska friðar
árið 1989 en ræddi aðallega um
framtíðartengsl ríkjanna og mikil-
vægi þess að frelsi almennings í
Kína yrði auldð. „Frelsið eflir stöð-
ugleikann," sagði hann.
Námsmennirnir stóðu upp og
klöppuðu fyrir og eftir ræðuna en
viðbrögð þeirra við svömm forset-
ans vom blendin. „Sum svörin vom
í lagi, en ég hef efasemdir um önn-
ur,“ sagði laganeminn Ge Shao-
hong. Hann bætti við að bandarísk
stjórnvöld hefðu engan rétt til að
predika yfir Kínverjum um mál
eins og deilurnar um Tíbet og Tæv-
an.
Síðar um daginn fór Clinton til
Shanghai og hugðist svara spurn-
ingum hlustenda útvarpsstöðvar í
borginni.
■ Deilt um orðaskiptin/24
FRESTA varð opinberri rann-
sókn á starfsaðferðum bresku
lögreglunnar í London í gær, er
til átaka kom þar sem yfirheyrsl-
ur fara fram. Lögregla hefur
verið harðlega gagnrýnd fyrir
rannsókn á morði á ungum,
svörtum manni, Stephen
Lawrence, sem myrtur var árið
1993, að því er virtist eingöngu
vegna litarháttar síns. Fimm
hvítir menn voru handteknir,
sakaðir um morðið en málsóknin
á hendur þeim rann út í sandinn
og var ekki dæmt í málinu. Þátt-
ur lögreglunnar er hins vegar til
rannsóknar og áttu fimmmenn-
ingarnir að bera vitni í gær. Það
reyndist hins vegar ekki unnt,
þar sem um 200 manns efndu til
mótmæla við réttarsalinn. Bað
móðir Lawrence, Doreen, mann-
fjöldann um að sýna stillingu en
allt kom fyrir ekki og þurfti lög-
regla að beita táragasi til að
dreifa hópnum.
Mál Lawrence hefur komið illa
við marga Breta, sem þykir það
óhugnanleg áminning um að kyn-
þáttahatur Iifí enn góðu lífi þar í
landi, auk þess sem það sé áfellis-
dómur yfir lögreglu, sem var
sökuð um kynþáttahatur í mót-
mælunum í gær.
Reuters
Enn ein atlaga Serba að albönskum skæruliðum í Kosovo
ESB hafnar þátttöku
KLA í viðræðum
Á lífi eftir tvo
sólarhringa
KONA fannst á lífi í rústum íbúð-
arhúss í borginni Ceyhan í Tyrk-
landi í gær, tveimur dögum eftir
að öflugur jarðskjálfti reið yfir.
Konan er lítið slösuð en björgun-
armenn heyrðu hana berja í vegg
er þeir Ieituðu í rústunum. Dag-
inn áður hafði ellefu ára drengur
fundist á lífí í sama húsi. Að
minnsta kosti 119 manns fórust í
skjálftanum en vonir um að fleiri
finnist á h'fi fara dvínandi.
■ Fannst á lífi/22
Viagra
varasamt?
New York. Reuters.
BANDARÍSKA matvæla- og
lyfjaeftirlitínu hafa verið tíl-
kynnt þrjátíu dauðsfoll sem rak-
in eru til Viagra-lyfsins fræga
sem um tvær milljónir karl-
manna hafa nýtt sér gegn getu-
leysi síðan það kom á markað í
apríl. Auk dauðsfallanna hafa
verið tilkynntar ýmsar aðrar
aukaverkanir, hjartsláttar-
óregla, svimi og sjóntruflanir,
alls í kringum 100 tilfelli.
Er talið að í einhverjum til-
fellum hafi viðkomandi verið á
blóðþrýstingslyfjum. Haft er
eftir Raymond Woosley, for-
seta lyfjafræðideildar George-
town-háskólans, að þar sem Vi-
agra geti lækkað blóðþrýsting
sé hættulegt að blanda því
saman við lyf gegn háum blóð-
þrýstingi, niðurstaðan geti orð-
ið of hátt blóðþrýstingsfall.
Pfizer-lyfj aframleiðandinn
hefur tekið skýrt fram að ekki
eigi að taka Viagra ef menn eru
jafnframt á nítratlyfjagjöf. Tal-
ið er hins vegar að dauðsföllin
veki spurningar um hvort yfir-
höfuð megi taka nokkur önnur
lyf með Viagra.
Pristina, Lundúnum. Reutcrs.
SERBNESKAR öryggissveitir
efndu í gær til viðamikillar hernað-
araðgerðar gegn skæruliðum að-
skilnaðarsinnaðra Kosovo-Albana,
en í gær höfnuðu ráðamenn Evr-
ópuríkja tillögu Bandaríkjamanna
um að fulltrúum skæruliða yrði boð-
ið að taka þátt í friðarsamningavið-
ræðum.
Vopnaðar sveitir lögreglu beittu
bryndrekum til að loka öllum leiðum
að bænum Belacevac, um 10 km
vestur af héraðshöfuðborginni Prist-
ina, og í gærkvöld tókst þeim að ná
aftur með áhlaupi kolanámunni við
bæinn, sem hefur séð nálægu raf-
orkuveri fyrir eldsneyti, en það hef-
ur séð stórum hluta Suður-Júgó-
slavíu fyrir rafmagni. Skæruliðar
náðu námunni á sitt vald í síðustu
viku og tóku serbneska starfsmenn
þar í gíslingu.
Evrópuveldin vilja ekki ýta
undir aðskilnað
Nú hafa skæruliðar Frelsishers
Kosovo (KLA) náð á sitt vald nærri
þriðjungi héraðsins, sem tilheyrir
Serbíu. Hefur það flækt mjög af-
stöðu vestrænna ráðamanna til
átakanna, þar sem þeir vilja ekki að
hótanir sínar um loftárásir ýti undir
frekari upplausn Júgóslavíu.
Utanríkisráðherrar Evrópusam-
bandsins, sem funduðu í Lúxem-
borg í gær, tóku ekld undir banda-
rískar tillögur um að fulltrúum
KLA yrði leyft að taka þátt í friðar-
viðræðum, sem Vesturveldin eru að
reyna að koma af stað. Hvöttu utan-
ríkisráðherrarnir til þess að
Kosovo-Albanir kæmu sér saman
um sameiginlega fulltrúa, sem
samið gætu fyrir þeirra hönd, bæði
herskáa og hófsama.
Weizman gerir
atlögn að Netanyahu
Kosið
verði sem
fyrst
Jerúsalem. Reuters, The Daily Telegraph.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðheiTa Israels, vísaði í gær á bug
áskorun frá Ezer Weizman, forseta
landsins, um að leggja stefnuna í
friðarmálum í dóm kjósenda með
því að boða til kosninga fyrr en
seinna.
Netanyahu hefur verið legið á
hálsi, bæði heima og erlendis, fyrir
að standa friðarumleitunum við Pa-
lestínumenn fyrir þrifum. Hann
sagði í gær að stjórn sín myndi
sitja út kjörtímabilið, sem lýkur
árið 2000.
Weizman þykir orðhvatur og
hefur oft lent í sennum við Net-
anyahu vegna friðarumleitana við
Palestínumenn. Forsetaembættinu
fylgja lítil völd, en tillaga
Weizmans í gær er enn ein atlagan
að pólitískum trúverðugleika Net-
anyahus.
Weizman sagði að friðarumleit-
anirnar væru „haltrandi“ og því
fyrr sem gengið yrði til kosninga
því fyrr myndi liggja ljóst fyrir
hvað almenningi þætti um stefnu
forsætisráðherrans.
Fallið frá þjóðar-
atkvæðagreiðslu
Netanyahu féll um helgina frá
þeirri hugmynd að efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu um frekara landa-
afsal á Vesturbakkanum, að því er
haft var eftir ráðherrum í stjórn-
inni. Astæðumar voru sagðar vera
hversu flókið slíkt yrði í fram-
kvæmd og einnig var því haldið
fram að Shas-flokkur heittrúaðra,
sem á aðild að stjóm Netanyahus,
hefði hótað að fella hana ef efnt
yrði til atkvæðagreiðslu.