Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 2

Morgunblaðið - 30.06.1998, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX Prdfessorar án leiðréttingar eftirlauna í 2V2 ár Kjaranefnd kærð til umboðsmanns Alþingis Folald á sólskins- degi FOLÖLDIN eru ekki lengi að fóta sig í þessum heimi. Þessu rauða folaldi, sem fæddist á sól- skinsdegi í Skagafirði um helg- ina, varð að minnsta kosti ekki fótaskortur þó það sé rétt komið úr móðurkviði og viti fátt annað um heiminn en hvar mjólkina er að finna, en þangað er stefnan tekin eins og sést á meðfylgjandi mynd. ------------- Formaður Alþýðu- bandalagsins Samfylking- artillaga á föstudag MARGRÉT Frímannsdóttir, for- maður Alþýðubandalagsins, mun strax við upphaf aukalandsfundar Alþýðubandalagsins næstkomandi fóstudag leggja fram tillögu varð- andi sameiginlegt framboð félags- hyggjuflokkanna. Margrét vill í engu greina frá innihaldi tillögunnar. í gærkvöldi var haldinn síðasti fundur framkvæmdastjómar AI- þýðubandalagsins iyrir aukalands- fundinn og er orðið ljóst að ekki verður lögð fyrir landsfundinn til- laga um samfylkingarmálin í nafni framkvæmdastjómarinnar. GÍSLI Jónsson prófessor hefur sent umboðsmanni Alþingis kæm þar sem hann telur að kjaranefnd hafi gróflega brotið ákvæði 9. grein- ar stjómsýslulaga. Gísli telur að óheyrilegur dráttur hafi orðið á störfum nefndarinnar þvi liðið sé tæplega eitt og hálft ár síðan lög tóku gildi sem fólu kjaranefnd að ákveða laun prófessora en enginn úrskurður hafi enn verið kveðinn upp. Þá telur Gísli sig eiga rétt á að fá upplýsingar frá nefndinni um væntanlegan úrskurð skv. stjórn- sýslulögum. Gísli er í forsvari i þessu máli fyr- ir hóp prófessora sem komnir era á eftirlaun en í yfirlýsingu sem níu fyrrverandi prófessorar samþykktu 24. apríl sl., segir m.a. að sá mikli dráttur sem orðið hafi á störfum kjaranefndar, sé tvímælalaust brot. á 9. grein stjómsýslulaga og hafi hann að öllum líkindum valdið mörgum prófessoram emeriti fjár- hagslegum erfiðleikum ofan á óhæfilega lág eftirlaun. „Kjara- nefnd ber samkvæmt sömu laga- grein að upplýsa málsaðila um það, hvenær vænta megi úrskurðar," segir i yfirlýsingunni. Gísli hefur hvað eftir annað farið þess á leit við formann kjaranefnd- ar að fá upplýsingar um ástæður tafanna sem orðið hafa á því að ákveða laun prófessora og hvenær ákvörðunar væri að vænta. Fyrsta bréfið ritaði hann 29. desember sl. en fékk þá m.a. þau svör frá Guð- rúnu Zoega, formanni kjaranefnd- ar, að nefndin hefði átt í viðræðum við og væri í stöðugu sambandi við viðræðunefnd sem prófessorar hefðu valið sem fulltrúa sína í um- ræddu máli. „Kjaranefhd lítur svo á að aðilar máls séu upplýstir um gang mála og ástæður þess að úr- skurður hefur ekki enn verið upp kveðinn. Nefndin vísar yður því á viðræðunefndina, en formaður hennar er Guðmundur Magnússon prófessor. Kjaranefnd mun leitast við að hraða ákvörðun, en getur ekki að svo stöddu sagt til um hvenær úrskurðar sé að vænta,“ sagði m.a. í svari formanns kjara- nefndar. Engin leiðrétting eftirlauna Umrætt ákvæði stjómsýslulaga sem Gísli vitnar til er svohljóðandi: „Þegar fyrirsjáanlegt er að af- greiðsla máls muni tefjast ber að skýra aðila máls frá því. Skal þá upplýst um ástæður tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta.“ Gísli sendi umboðsmanni kæra vegna málsins 29. maí sl. og rekur þar árangurslaus samskipti sín við formann nefndarinnar og segist telja orðið ljóst að formaður kjara- nefndar ætli að virða beiðni sína að vettugi. „Ekki þarf að orðlengja um þau óþægindi, sem hinn mikli drátt- ur á störfum kjaranefndar hefur valdið okkur, sem komnir eram á eftirlaun. Við höfum ekki fengið neina leiðréttingu eftirlauna okkar í a.m.k. 2 1/2 ár og eigum ekki von á neinum vöxtum á þá leiðréttingu, sem væntanleg er,“ segir Gísli m.a. í kæranni. í svarbréfi formanns kjaranefnd- ar til umboðsmanns vegna kærann- ar segir m.a. að skv. lögum um Kjaradóm og kjaranefnd skuli kjaranefnd ákveða laun og starfs- kjör prófessora, þ.e. þeirra sem gegni þeim störfum að aðalstarfi. Prófessorar sem komnir séu á eftir- laun heyri því ekki með beinum hætti undir ákvörðunarvald nefnd- arinnar. í bréfi sem Gísli sendi umboðs- manni Alþingis sem svar við þessu bréfi kjaranefndar er bent á að nefndinni beri lagaleg skylda til að ákvarða grann til útreiknings eftir- launa prófessora, sem hafa hafið töku lífeyris. Þeir eigi því lögvar- inna hagsmuna að gæta varðandi störf nefndarinnar og eigi því sama rétt til upplýsinga og prófessorar, sem enn era í starfi. Fékk sexfaldan lottóvinning Hæsti vinn- ingur á einn miða frá upphafí ÞEGAR úrslit í Lottó 5/38 vora kunn á laugardagskvöldið kom í Ijós að aðeins einn var með allar tölurn- ar 5 réttar. Fær sá alls 25,5 milljón- ir króna skattfrjálst í vinning og er það hæsti vinningur á einn miða frá því að leikurinn hófst. Að sögn Bolla Valgarðssonar, markaðsstjóra Is- lenskrar getspár, hefur vinnings- hafinn gefið sig fram og mun hann taka við vinningnum í lok vikunnar og verður hann greiddur út í einu lagi eftir mánuð. Vinningshafinn keypti miðann í versluninni Hominu á Selfossi eftir hádegi á laugardag en alls seldist um land allt rúmlega ein milljón raða fyrir dráttinn. Þetta er í þriðja sinn sem lottóvinningur er sexfald- ur en áður gerðist það í apríl 1997. Þá var hann 34 milljónir sem fimm manns skiptu á milli sín. Aftur gerð- ist það í ágúst sama ár en þá var hann 27 milljónir króna og vora fjórir með allar tölumar réttar. Alls fengu 9.900 raðir vinning síð- astliðinn laugardag en fyrir fjórar tölur réttar auk bónustölu gaf hver röð 211 þúsund krónur. Heildarupp- hæð vinninga sem greiddir vora út nam rúmum 35 milljónum króna en líkumar á því að fá allar 5 tölumar réttar era 1/502.000. ------*-♦-«---- Maður hrapaði í Litla-Höfða í Eyjum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. MAÐUR hrapaði og féll níu til tíu metra og lenti á moldarfláa norðan í Litla-Höfða í Vestmannaeyjum síð- degis í gær. Að sögn lögreglunnar í Eyjum var tilkynnt um slysið til hennar laust fyrir klukkan sex og var þá þegar hafist handa við björg- unaraðgerðir. Maðurinn hafði ásamt félaga sín- um siglt á gúmmítuðra austur fyrir Heimaey og höfðu þeir klifrað upp í Litla-Höfða þegar maðurinn rann til og féll niður. Félagi hans, sem var með farsíma, gat kallað eftir hjálp og fóru félagar úr Björgunar- félagi Vestmannaeyja á vettvang. Var búið um manninn en hann síðan fluttur með gúmmíbát út í ferða- mannabátinn PH Viking sem flutti hann til hafnar í Eyjum. Komið var með manninn til lands um klukkan hálfníu í gærkvöldi og var hann fluttur á sjúkrahúsið í Eyjum en síðan var hann fluttur með sjúkra- flugi til Reykjavíkur. Ekki lá ljóst fyrir hver meiðsl hans væra en talið var að hann væri mjaðmagrindar- brotinn. I > > I HIVl ’98 á Netinu www.mbl.is Á ferð með landsliði kvenna í handknattleik á Spáni / B8 Þjálfari Þýskalands vill breytingar á HM / B7 í dag ^ímtouiIBLE > i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.