Morgunblaðið - 30.06.1998, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚNÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Breytt eignaraðild í Fiskmiðlun Norðurlands hf. á Dalvík
Hilmar Daníelsson keypti hlut IS
BREYTINGAR urðu á eignaraðild í Fiskmiðlun
Norðurlands hf. á Dalvík nýverið. Hilmar Daníels-
son, einn af stofnendum féjagsins og aðaleigandi
þess, keypti þá allan hlut Islenskra sjávarafurða
hf. í félaginu, samtals 43,9%. Fyrir átti Hilmar
12,5% hlut og var nærststærsti eigandi á eftir ÍS.
Hann hefur nú jafnframt selt þeim Daníel
Hilmarssyni, Heiðu Hilmarsdóttur og Katrínu Sig-
urjónsdóttur hluti í félaginu.
Hagnaður síðasta árs 7 milljónir króna
Fiskmiðlun Norðurlands var stofnuð áiáð 1987 af
30 einstaklingum og fyrirtækjum, aðallega af Norð-
urlandi. íslenskar sjávarafurðir keyptu 40% í félag-
inu árið 1992 og voru upp frá því stærsti einstaki
eigandi, þar til áðurgreindar breytingar urðu.
Starfsemi Fiskmiðlunar Norðurlands felst í um-
boðssölu á sjávarafurðum, einkum skreið og haus-
um. Félagið hefur á undanförnum árum flutt mikið
út til Nígeríu með góðum árangri. Reksturinn hef-
ur gengið vel og skilaði hann 7 milljónum ki-óna í
hagnað á síðasta ári, eða sem nemur tæpum 18%
af tekjum. Þetta er jafnframt 170% hækkun miðað
við fyrra ár þegar hagnaðurinn nam 2,5 milljónum
króna.
Rekstrartekjur námu 39,5 milljónum króna en
rekstrargjöld 29,3 milljónum króna. Hagnaður fyr-
ir afskriftú og fjármagnsgjöld nam 10,2 milljónum
króna samanborðið við 8,2 milljónir árið áður. Af-
skriftir námu 452 þúsund krónum og lækkuðu um
58,7% milli ára. Fjármunatekjur minnkuðu hins
vegar 44,5% á milli ára og námu 1,2 milljónum
króna.
A aðalfundi félagsins fyrir skömmu var kosin ný
stjórn í samræmi við breytta eignaraðild. Stjórn-
arformaður er Hilmar Dáníelsson og aðrir í stjórn
eru Katrín Sigurjónsdóttir, Ottó Jakobsson, Valdi-
mar Bragason og Gunnai’ Sigvaldason. Fram-
kvæmdastjóri er Asgeir Ai-ngrímsson.
Hundasýning Hundaræktar-
félags fslands á Akureyri
Arthúr valinn
besti hundur
sýningarinnar
MÆÐGURNAR Valgerður Júl-
íusdóttir og dóttir hennar Vikt-
oría Jensdóttir, höfðu ástæðu
til að fagna vel og innilega á
árlegri hundasýningu Hund-
ræktarfélags fslands og svæða-
félags HRFÍ á Norðurlandi í
fþróttahöllinni á Akureyri um
helgina. Arthúr, tíbet-spaniel
hundur Valgerðar, var
valinn besti hundur
sýningarinnar og
Dreki, golden retriver
hundur sem Viktoría
sýndi, varð í öðru sæti
en hann er í eigu Þór-
unnar Hafstein.
Bensi, enskur setter
hundur í eigu Margrét-
ar G. Andrésdóttur,
varð í þriðja sæti og
Gildewangen’s Aramis,
þýskur fjárhundur í
eigu Hjördísar H.
Agústsdóttur í því
fjórða.
Eðal-Darri, írskur
setter, var valinn besti
öldungur sýningarinn-
ar en hann er í eigu
Magnúsar Jónatans-
sonar. Besti hvolpur
sýningarinnar var val-
inn Baron, enskur
springer spaniel hund-
ur í eigu Söru Heimis-
dóttur.
Ungir sýnendur eru
jafnan áberandi á
hundasýningum á
Akureyri og svo var
einnig að þessu sinni.
Margrét Osk Tómas-
dóttir var valin besti
Ungi Synandinn, Auður Morgunblaðið/Kristján
Sif Valgeirsdóttir MÆÐGURNAR Valgerður Júlíusdóttir og Viktoria Jensdóttir kampakátar með árangurinn á hundasýningunni.
hafnaði í öðni sæti, Svava Arn-
órsdóttir í þriðja sæti og Stein-
unn Þóra Sigurðardóttir í því
fjórða.
Að þessu sinni voru sýndir
alls um 130 hundar af 29 teg-
undum, auk 15 ungra sýnenda.
Dómari var Karl-Erik Johanns-
son frá Svíþjóð. MARGRÉT G. Andrésdóttir hafnaði í þriðja sæti með hundinn Bensa.
KEA hefur verslunar-
rekstur í Reykjavík
Sýningn
lýkur
GRAFÍKSÝNING Svein-
bjargar Hallgrímsdóttur á
Café Karólínu lýkur næsta
föstudag, 3. júlí.
Innblástur verkanna er
koma farfuglanna og gróand-
ans, um flugið sem virðist svo
leikandi létt og rómantíkina
sem ekki síst tengist þessum
árstíma birtu og gróðurs.
Sýningin er opin á afgreiðslu-
tíma staðarins.
KAUPFÉLAG Eyfirðinga tók í
gær, mánudag, við rekstri verslun-
arinnar Kaupgarðs í Mjóddinni í
Reykjavík.
KEA keypti fyrir nokkru hús-
næðið og mun reka þar matvöru-
verslun, sem til að byrja með verður
rekin í lítt breyttu formi. Júlíus
Guðmundsson, sem veitt hefur
KEA-Nettó á. Akureyri forstöðu,
hefur verið ráðinn verslunarstjóri.
Fram kemur í frétt frá KEA að
ákvörðunin hafi verið tekin að vel yf-
irlögðu ráði, en með þessu vilji félag-
ið freista þess að ná betri fótfestu á
höfuðborgarsvæðinu. Þar sé
langstærsti markaðurinn og útlit
fyrir mesta vöxtinn á komandi árum.
Fyrirtæki sem vilji vera samkeppn-
ishæft á sviði verslunar og þjónustu
á landsvísu verði að eiga aðild að
stærsta markaðnum á jafnréttis-
grundvelli. Til skoðunar er innan
KEA að opna fleiri verslanir á höfuð-
borgarsvæðinu í náinni framtíð.
Nýir verslunarstjórar hafa verið
ráðnir að verslun KEA-Nettó á
Akureyri, þær Kristín Ingólfsdóttir
og Laufey Ingadóttir sem báðar
hafa starfað í versluninni um árabil.
Lögreglan
á Akureyri
Fimmtíu
kærðir
fyrir hrað-
akstur
FIMMTÍU ökumenn hafa síð-
ustu daga verið kærðir á Akur-
eyri fyrir að aka of hratt.
Ökumaður vélhjóls var einn
þeirra, en hann ók á 94 kíló-
metra hraða um götur bæjar-
ins þar sem leyfður er 50 kfló-
metra hraði á klukkustund.
Margir hafa kvartað til lög-
reglu vegna vélhjóla sem
gjarnan er ekið mörgum sam-
an en af slíkum hópakstri hlýst
töluverður hávaði.
Ungur ökumaður var stað-
inn að mjög ógætilegum og
einkennilegum akstri á Þing-
vallastræti, en alls voru sex at-
riði í kæru lögreglunnar, m.a.
ók hann í svigi milli akreina,
gaf ekki stefnuljós auk þess að
gefa öfug stefnumerki.
Lögregla kærði einnig sjö
ökumenn fyrir að virða ekki
stöðvunarskyldu, fjóra fyrir
meinta ölvun við akstur, tvo
fyrir að nota ekki öryggisbelti,
tvo fyrir að hafa of margar far-
þega í bfl sínum, tvo fyrir að
aka gegn rauðu ljósi, einn fyrir
að virða ekki einstefnu auk
þess að áminna rúmlega fimm-
tíu ökumenn fyrir að leggja
bílum sínum öfugt.
Bifreið eyði-
lagðist í eldi
LÍTIL sendibifreið eyðilagðist
í eldi í Bakkaselsbrekku á
Öxnadalsheiði í gærmorgun.
Ökumaðurinn sem var einn á
ferð gat lítið aðhafst eftir að
eldurinn kom upp og þegar
slökkvililiðsmenn frá Akureyri
komu á staðinn var allt brunn-
ið sem brunnið gat.
Þá var slökkviliðið kallað að
fjölbýlishúsi við Víðilund
seinni partinn í gær en þar
varð fólk í nágrenninu vart við
að reykur kæmi út unysvala-
hurð á einni íbúðinnni. I íbúð-
inni var verið að fræsa niður
úr lofti og útblásturinn látinn
fara út um svalahurðina. Það
var því ekkert fyrir slökkvi-
liðsmenn að gera á staðnum.
Færeyskt
kvöld
FÆREYSKT kvöld verður um
borð í kútter Jóhönnu annað
kvöld, miðvikudagskvöldið 1.
júlí.
Lagt verður af stað frá Tor-
funefsbryggju kl. 19 og er
áætlað að ferðin taki um þrjár
klukkustundir. í boði verður
færeyskur matur; knettir, sem
er sérstök tegund af fiskiboll-
um með tilheyrandi súpu, salt-
að hvalspik, harðfiskur, beina-
kex og kaffi. Færeyskur söng-
ur og tónlist mun hljóma um
skútuna og hver veit nema
stiginn verði færeyskur dans á
þilfarinu.
Ferðin kostar 2.000 krónur
og er hægt að panta í síma
896-6853.
Gönguferð
um Akureyri
FRÆÐSLUFERÐ á vegum
Sumarháskólans á Akureyri
verður farin fimmtudaginn 2.
júlí næstkomandi kl. 17. Jón
Hjaltason sagnfræðingur segir
frá sögu Akureyrar í göngu-
ferð um bæinn. Mæting er við
Nonnahús við Aðalstræti og er
aðgangur ókeypis.