Morgunblaðið - 30.06.1998, Síða 18

Morgunblaðið - 30.06.1998, Síða 18
18 PRIÐJUDAGUR 30. JIJNÍ 1998 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Norðlensk Ný skýrsla Þjóðhagsstofnunar um efnahagshorfur í ár félög leigja sláturhúsið í Borgarnesi FÉLAG í meirihlutaeigu Kaupfé- lags Eyfírðinga (KEA) á Akureyri og Norðvesturbandalagsins hf. (NVB) á Hvammstanga hefur tek- ið á leigu sláturhús Afurðasölunn- ar Borgarnesi hf. Nýja fyrirtækið tekur til starfa fyrir komandi slát- urtíð. Félag um reksturinn verður stofnað á næstu dögum og mun það bera nafnið Sláturfélag Vest- urlands hf. Hlutafé verður 40 milljónir kr. og munu KEA og NVB leggja fram 17,5 milljónir kr. hvort félag og Kaupfélag Borgfirð- inga leggur fram 5 milljónir í hlutafé. Eignarhlutur Kaupfélags Borgfírðinga verður því 12,5% en hinna félaganna samtals 87,5%. Framkvæmdastjóri hefur ekki verið ráðinn. Rekstrarerfíðleikar Afurðasölunnar Afurðasalan Borgarnesi hf. hef- ur átt í rekstrarerfiðleikum eins og fram hefur komið. Fyrirtækinu var skipt í þrennt um áramótin, kjötvinnslan fer fram í sérfélagi, slátrunin er sér og kjötmjölsverk- smiðjan sér. Nýja félagið sem norðlensku fyrirtækin stjórna kemur aðeins að slátrunarþættin- um. Akveðin óvissa hefur verið með sauðfjárslátrun í haust en Þórir Páll Guðjónsson, fráfarandi kaupfélagsstjóri í Borgarnesi, seg- ir að næstu daga verði unnið að kynningu á þessum breytingum á starfssvæði sláturhússins. Telur hann að breytingar verði litlar gagnvart einstökum bændum. Afram verði slátrað nautgripum, hrossum og svínum, auk sauðfjár. Hætta á verðbólgu verði ekki gripið til aðgerða Vöruinnflutningur janúar-apríl Verömæti Breyting 1997 1998 Verðm. Verð Magn Neysluvörur 13.191 15.480 17,4 0,9 16,3 Bifreiðar til einkanota 3.220 3.824 18,8 2,1 16,3 Aðrar neysluvörur 9.971 11.656 16,9 0,4 16,4 Fjárfestingarvörur 12.213 18.397 50,6 -1,0 52,2 Rekstrarvörur 14.738 18.328 24,4 -3,9 29,4 Eldsneyti og olíur 2.938 2.739 -6,8 -21,5 18,7 Til stóriðju 1.507 3.036 101,5 7,6 87,3 Hráfefni til fiskvinnlsu 362 802 122,0 19,3 86,1 Aðrar 9.931 11.751 18,3 -0,7 19,1 Samtals 40.219 52.281 30,0 -1,5 31,9 Almennur innflutningur 38.735 47.829 23,5 -1,6 25,5 Án stóriðju 37.229 44.794 20,3 -2,3 23,1 Án álframleiðslu 37.366 45.000 20,4 -2,3 23,3 Án eldsneytis og stóriðju 34.290 42.055 22,6 0,1 22,5 HÆTTA er á að verðbólga hér á landi aukist samhliða minnkandi hagvexti verði ekki gripið til ráð- stafana til draga úr eftirspum og þjóðhagslegur sparnaður aukinn. Þetta er mat forstjóra Þjóðhags- stofnunar í kjölfar nýs endurmats stofnunarinnar á efnahagshorfum fyrir árið 1998 sem út kom í gær. Samkvæmt skýrslunni er útlit fyrir að viðskiptajöfnuður á þessu ári verði neikvæður upp á 24,2 milljarða króna en í þjóðhagsspá sem út kom í mars sl. var gert ráð fyrir að hallinn yrði 16,8 milljarðar króna. Þá lítur út fyrir að þjóðarútgjöld muni vaxa hraðar en spáð hafði verið. Endurskoðuð spá sýnir 9,6% aukningu þjóðarútgjalda meðan hagvöxtur er nær óbreyttur frá fyrri spá, eða 4,7%. Þar vegur þyngst mikil aukning einkaneyslu. Atvinnuleysi hefur minnkað mun hraðar en áætlað var. í mars var gert ráð fyrir að 3,6% mannafla væru skráð atvinnulaus, en horfur eru á að sú tala verði einungis 3% auk þess sem útlit er fyrir að störf- um muni fjölga meira en spáð var. Spamaður ekki nægilegur Svipaða niðurstöðu má lesa úr nýrri úttekt hagfræðisviðs Seðla- bankans á efnahagsmálum og stöðu ríkisfjármála. Þar kemur fram að þrátt fyrir ýmis merki um hugsanlega ofþenslu sem raskað gætu verðstöðugleika þá haldist verðbólga í landinu lág og ekki verði séð að hún muni vaxa að ráði á allra næstu mánuðum. Vaxandi viðskiptahalli og ónógur þjóðhags- legur sparnaður bendi hins vegar til þess að auka þurfi aðhald ríkis- fjármála að innlendri eftirspurn, annaðhvort með hækkun skatta eða niðurskurði útgjalda. Fríðrik Már Baldursson, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, segir ljóst að sparnaður í landinu sé ekki nægilegur: „Útgjöldin eru að aukast tvöfalt meira en tekjurnar þótt raunar hafí þjóðartekjur auk- ist nokkuð meira vegna betri við- skiptakjara". Friðrik segir ljóst að auka þurfi þjóðhagslegan sparnað og það eigi við um alla aðila í hagkerfinu, ríki, sveitarfélög og einstaklinga: „Rík- ið hefur í raun staðið sig betur í þessu efni en sveitarfélögin sem hafa sennilega verið rekin með talsverðum halla í fyrra og í ár. Rekstur hins opinbera er nokkurn veginn á núOi á þessu ári, sem er auðvitað ekki nógu góður árangur þegar við erum að nálgast topp hagsveiflunnar. Sömuleiðis hafa heimilin greinilega aukið neysluna, a.m.k. jafnmikið og tekjurnar hafa aukist, sem veldur töluverðum vonbrigðum. Það þarf því að hvetja til töluverðs einkasparnaðar einnig,“ sagði Friðrik. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja versnaði milli áranna 1996 og 97 Afskriftir jukust um 30% og Unnið að hagræðingu Kolbeinn Þór Bragason, fram- kvæmdastjóri Norðvesturbanda- lagsins hf., sem til varð á síðasta ári með samruna nokkurra slátur- húsa á Norðurlandi vestra, í Dala- sýslu og á Ströndum, segir að Borgarfjörður sé eitt blómlegasta landbúnaðarhérað landsins og NVB sjái ýmis sóknarfæri þar. Telur hann að ágætis grundvöllur sé fyrir rekstri sláturhúss í Borg- arnesi en unnið verði að hagræð- ingu í rekstri þess. Líkur eru á að Sláturfélag Vest- urlands kaupi síðar sláturhús Af- urðasölunnar Borgarnesi hf. Þórir Páll Guðjónsson segir hins vegar að ekki hafi gefíst tækifæri á að ljúka samningum um þá hluti og ákveðið hafi verið að byrja rekst- urinn með því að taka sláturhúsið á leigu. fjármagnsgjöld um HAGNAÐUR og arðsemi sjávarút- vegsfyrirtækja á hlutabréfamarkaði drógust saman milli áranna 1996 og 1997. Afskriftir jukust mikið á síð- asta ári eða um 30% og fjármagns- gjöld hækkuðu um 68%. Fastafjár- munir fyrirtækjanna jukust um 18 milljarða og þrátt fyrir lakari heild- arafkomu hækkaði eiginfjárhlutfall í tæplega 35% í árslok 1997 en var rúmlega 31% í árslok 1996. Arðsemi eignaliða og fjármagns hélt áfram að dragast saman í fyrra. Þetta kemur fram í nýútkomnu hefti Hagtalna mánaðarins. 23 sjávarútvegsfyrirtæki voru skráð á hlutabréfamarkaði um síð- ustu áramót og nam velta þeirra um 56% af heildarútflutningsveltu sjáv- Helstu kennitölur rekstrar og efnahags sjávarútvegsfyrirtækja á hlutabréfamarkaði jS/í f 4 1996 1997 Velta í millj.kr. “41 50.531 57.938 Fjöldi fyrírtækja '\ ./ 24 23 Rekstrarafkoma1*/ velta 15,3% 15,8% Hagnaður af regl. starfsemi/ velta 3,6% 1,7% Hreinn hagnaður/ velta 6,6% 5,8% Rekstrarhagnaður2*/ langtímafjármagn3> 6,5% 5,0% Eiginfjárhlutfall 31,3% 34,9% Veltuhraði fastafjármuna41 0,95 0,81 1) Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði. 2) Hagnaður eftir afskriftir en fyrir fjármagnsliði. 3) Langtímaskuldir og eigið fé. 4) Skilgreindur sem velta / fastafjármunir A MORGUN VERÐA ALLIR AÐ GREIÐA í LÍFEYRISSJÓÐ s Frá og með 1. júlf taka ný lög gildi sem skylda alla til að greiða í lífeyrissjóð. < Nú er lag, veldu frelsi til að njóta lífsins eftir þínu höfði. Þú þarft að byrja - snemma að safna í réttum sjóði til að geta notið lífsins síðar á ævinni. Hringdu í síma 540 5060 eða komdu til okkar á Laugaveg 170. FRJÁLSI LÍFEYRISSJÓÐURINN Frjálsi lífeyrissjóöurinn er stærsti og elsti séreignarlífeyrissjóður landsins. arútvegsins 1997. Er það veruleg aukning frá árinu 1996 en þá voru sjávarútvegsfyrirtæki á hlutabréfa- markaði með um 49% af heildarvelt- unni. Heildar rekstrar- tekjur jukust Arðsemi eigin fjár fyrirtækjanna lækkaði verulega á milli ára og var 10,8% 1997 en 15,8% árið áður. Heildarrekstrartekjur þeirra jukust hins vegar nokkuð á liðnu ári eða úr 50,5 milljörðum króna í tæplega 58 milljarða. Hagnaður fyrirtækjanna fyrir af- skriftir og fjármagnskostnað jókst um tæplega hálfan annan milljarð eða 19%. Hagnaður af reglulegri starfsemi lækkaði hins vegar veru- lega eða úr 3,6% af veltu 1996 í 6,2% á síðasta ári. Minni hagnaður skýrist aðallega af því að afskriftir og fjármagns- kostnaður hafa stóraukist milli ár- anna 1996 og 1997. Afskriftir jukust um tæp 30% milli ára og námu 9,7% af veltu í fyrra í stað 8,5% árið áður. Fjármagnskostnaður jókst einnig verulega eða úr 1,6 milljörðum í 2,6 eða um 68%. Heildareignir sjávarútvegsfyrir- tækjanna 23 jukust verulega í fyrra frá árinu 1996 eða um 32%. Námu þær 88,5 milljónum króna í árslok 1997 þar af 71 milljarði í fastafjár- munum. Heildareignir voru um 67 milljarðar í árslok 1996. Bókfærð eigna á veiðiheimildum hækkaði um 4,2 milljarða króna og nam kvóta- eignin alls 9,8 milljörðum um síð- ustu áramót. Ekki búist við aukinni arðsemi Fyrirtækin fjárfestu mikið í fastafjármunum á síðasta ári og hækkuðu langtímalán því um 10 milljarða króna. Þrátt fyrir það batnaði eiginfjárhlutfall fyrirtækj- anna og nam tæpum 35% um síð- ustu áramót. í Hagtölum mánaðar- ins segir að þetta hlutfall nálgist að vera viðunandi en taka verði tillit til þess að sjávarútvegur sé áhættu- söm atvinnugrein sem krefjist hærra eiginfjárhlutfalls en aðrar og áhættuminni atvinnugreinar. Hlutfallsleg rekstrarafkoma er oft höfð til viðmiðunar þegai- fyrir- tæki á hlutabréfamarkaði eru veg- inn og metin. Þessi kennitala hefur verið 15-16% á undanförnum þrem- ur árum í umræddum fyrirtækja- hópi. Hlutfallið hefur því sem næst staðið í stað eða lækkað lítillega. Segir að ekki sé að vænta hærri arðsemi, mælt sem hlutfallsleg rekstrarafkoma miðað við núver- andi kostnaðaruppbyggingu í sjáv- arútvegi að óbreyttri heildarveltu. Þá er bent á að það hljóti að vera nokkurt umhugsunarefni hversu fjármunir og fjármagn í rekstri hafi hingað til skilað sér illa til tekju- og hagnaðarmyndunar í sjávarútvegi. Auknar aflaheimildir og hækkun sjávarafurðaverðs að undanfömu muni þó að einhverju leyti bæta þessa mynd á yfirstandandi ári. I I i I > í > > i l i i I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.